Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987.
Fréttir
íslensku flugfélögin:
Aldrei jafnmiklar
bókanir og í sumar
ferðum hefur verið fjölgað og flugvélar teknar á leigu
Miðað við þær bókanir sem þegar
liggja fyrir hjá íslensku flugfélögun-
um, Amarflugi hf. og Flugleiðum
hf., stefnir í metsumar í farþegaflutn-
ingum hjá báðum flugfélögunum.
Amarflug hf. hefur þegar íjöigað
áætlunarferðum hjá sér og Flugleið-
ir hf. hafa tekið tvær þotur á leigu
til að anna eftirspum. Uppselt er í
flestar ferðir á háferðamannatíman-
um.
Halldór Sigurðsson, blaðafulltrúi
Amarflugs hf., sagði að nú væri
búið að bóka um 30% meira en var
á sama tíma í fyrra. Hann sagði að
þegar væri búið að fjölga áætlunar-
ferðum og alveg ljóst að um enn
frekari fjölgun á þeim yrði að ræða.
Fyrir utan áætlunarflug er Amar-
flug hf. mikið í leiguflugi, bæði til
sólarlanda og Þýskalands. „Það má
eiginlega segja að vélar okkar verði
í flugi allan sólarhringinn í sumar,“
sagði Halldór.
Sæmundur Guðvinsson, blaðafull-
trúi Flugleiða hf., sagði að í maí
væm bókaðir hjá Flugleiðum hf. 52
þúsund farþegar á móti 39 þúsund
farþegum á sama tíma i fyrra og
væri aukningin 33,4%. Hér er átt
við flug milli Ameríku og Evrópu
sem og flug frá og til íslands og
Evrópu. í júní er búið að bóka 72.400
farþega á móti 64.400 í fyrra og í
júlí er búið að bóka 79 þúsund far-
þega á móti 73 þúsund farþegum í
fyrra. Samtals er búið að bóka hjá
Flugleiðum mánuðina maí-ágúst 267
þúsund farþega á móti 232 þúsund
farþegum í fyrra.
Flugleiðir hf. hafa tekið á leigu til
3ja ára Boeing þotu 727-200 sem tek-
ur 164 farþega og verður notuð í
Evrópuflugið og DC8 þotu sem tekur
249 farþega en hún verður notuð
jafnt í leiguflug, Ameríku- og Evr-
ópuflugið eftir því sem þörf krefur
hverju sinni.
Framundan er því meira anna-
sumar hjá íslensku flugfélögunum
en nokkm sinni fyrr.
-S.dór
Skógræktarfélagið vildi jörð:
Heimamenn heimtuðu
sauðfjárrækt áfram
Skógræktarfélag Reykjavíkur
hefur á undanfömum árum talsvert
leitað eftir að fá land til skógrækt-
ar fyrir einstaklinga og i vetur fékk
félagið vilyrði frá eigendum jarðar-
innar Hlíðar í Grafningi um að það
gæti fengið landið til skógræktar
er fyrrum ábúendur þar hættu bú-
skap.
Landgræðsla ríkisins mælti ein-
dregið með því að félagið fengi
jörðina þar sem hún væri illa farin
eftir langvarandi sauðfjárbeit.
Við þetta brá svo við að heima-
menn heimtuðu að jörðin yrði
áfram sauðfjárræktarjörð og studdi
bæði hreppsnefhdin og jarðanefnd
sýslunnar þær kröfur þannig að til afnota. Hann lagði málið fyrir
Skógræktarfélagið varð af jörð- hreppsnefnd sem hafnaði því að
inni. undangengnum hreppsnefndar-
Jörðin er í eigu sjóðs sem Páll fundi þar sem allir voru á móti
Melsted stofnaði fyrir erfíngja sína þessu. Þeim finnst víst skógrækt
og átti arður af henni að renna til til óþurftar á þessum stað,“ sagði
menntunar þeirra en enn sem kom- Vilhjálmur.
ið er hefur sjóðurinn aðeins borið „Okkurfinnstþaðskrýtiðsjónar-
kostnað af jörðinni. mið að hreppurinn skuli vilja hafa
Vilhjálmur Sigtryggsson, fram- jörðina áfram sem sauðfjárræktar-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags- jörð því þann búskap á að reyna
ins, sagði í samtali við DV að þessi að skera niður eins og hægt er.“
málalok hefðu verið mikið áfall 1 máli Vilhjálms kom ennfremur
fyrir félagið þar sem félagið hefði fram að féfagið myndi áffam reyna
lengi leitað að jaíhákjósaniegum að fá land fyrir einstaklinga til
stað og þessum. ræktunar.
„Sjóðurinn bauð okkur jörðina -FRI
í dag mælir Dagfari
DV
Gullfoss er enn á sinum stað. Til vinstri sést örmjótt haftið sem enn heldur
honum í gamla farinu.
Gullfoss
að breytast
„Þeir sem koma að Gullfossi einu
sinni á ári sjá ekki þessar breytingar.
Hinir sem eru þama reglulega sjá hins
vegar hvað er að gerast; austurhluti
fossins er að færa sig til vesturs í gljúf-
ur sem er sífellt að dýpka,“ sagði Þórir
Sigurðsson í Haukadal sem unnið hef-
ur að þrifum á Gullfosssvæðinu
undanfarin ár. „Ég held að menn hafi
ekki gert sér grein fyrir því hvað er
að gerast við Gullfoss, hvorki náttúru-
vemdarmenn né aðrir.“
Þórir segir að breytingar á vatns-
flæði í Gullfossi hafi verið mestar á
undanfömum þremur árum. Nú sé
aðeins smáhaft sem haldi austurhlut-
anum aðskildum frá gljúfrinu vestur
af og þegar það gefi sig megi búast
við því að sá hluti fossins sem þekkt-
astur af af myndum hverfi að mestu.
Eftir standi ber klöppin.
„Öllu má hjálpa og ég held að það
sé kominn tími til að menn fari að
huga að fossinum vilji þeir bjarga
honum,“ , sagði Þórir Sigurðsson í
Haukadal.
-EIR
borgarstjórinn
Það hefur gengið á ýmsu í sam-
skiptum Davíðs borgarstjóra annars
vegar og borgarstarfsmanna hins
vegar. Borgarstarfsmenn hafa ýmist
fellt gerða kjarasamninga, brennt
þá á báli eða játað sig sigraða í
taugastríði sínu við borgarstjóra.
Samskipti borgarstjórans og starfs-
manna hans virðast helst einkennast
af vígorðum, móðgunum eða lög-
regluaðgerðum og viðræður þeirra í
milli fara aðallega fram í gegnum
fjölmiðla. Nú síðast er formaður
starfsmannafélagins búinn að leggja
höfuð sitt að veði til að standa við
einhver loforð sem Davíð á að hafa
gefið honum fyrir fóstrur en formað-
urinn þurfti að hafa milligöngu um
skilaboð milli þessarar stéttar og
borgarstjórans vegna þess að Davíð
er hættur að tala við starfsmenn
sína.
Þetta ástand kemur okkur hinum
nokkuð spánskt fyrir sjónir enda er
Davíð Oddsson sagður hinn'vinsæl-
asti maður og vel metinn af Reykvík-
ingum. Kannski það henti ekki
svoleiðis mönnum að eiga orðastað
við þá sem starfa hjá þeim og
kannski byggjast vinsældir Davíðs á
því að hann tali ekki við hvem sem
er. Hvers vegna eiga borgarstjórar
líka að vera að tala við hvem sem
Sjálfur
er? Þetta er upp til hópa rakkara-
pakk sem sífellt er að heimta hærri
laun og kann aldrei gott að meta.
Óforskömmugheitin eru jafnvel
svo mikil að borgarstarfsmenn eyða
vinnutímanum í að fella samninga
og nota til þess ökutæki borgarinn-
ar. Hvað gerðu ekki slökkviliðs-
menn? Þegar borgarstarfsmenn
gengu til allsherjaratkvæðagreiðsl-
unnar í síðasta mánuði notuðu þeir
slökkviliðsbílana til að fella samn-
ingana. Það er Davíð sem á þessa
slökkviliðsbíla en ekki letingjamir á
slökkvistöðinni enda sá borgarstjóri
til þess næst þegar gengið var til
atkvæðagreiðslu að lögreglan væri
mætt á staðinn til að njósna um ferð-
ir slökkviliðsmanna. Borgarstjórinn
sigaði með öðrum orðum löggunni á
slökkviliðið og fyrirskipaði víkinga-
sveitinni að liggja í leyni með
alvæpni ef sá alvarlegi hlutur gerð-
ist að slökkviliðsmenn sæjust aka
um á brunabíl í einkaerindum.
Svona eiga borgarstjórar að vera
enda eiga aumir borgarstarfsmenn
að skilja að það er sjálfúr borgar-
stjórinn sem ræður og það er hann
sem er vinsæll og skemmtilegur í
augum borgarbúa en ekki einhver
letidýr hjá borginni sem kunna ekki
að meta bætt kjör sem borgarstjór-
inn sjálfur hefur af manngæsku sinni
samþykkt. Til þess er lögreglan að
halda uppi lögum og reglu og vera
til taks þegar óþjóðalýðurinn í
bmnaliðinu óhlýðnast sjálfum borg-
arstjóranum.
Undanfama daga hafa fóstrur tek-
ið upp á því að óhlýðnast sjálfum
borgarstjóranum. Eins og fyrr segir
hafa hvorki fóstrur né Davíð talast
við frekar en aðrir sem vinna hjá
borginni en formaður starfsmanna-
félagsins hefur flutt skilaboð í milli
eins og nú tíðkast þegár einhver
þarf að tala við sjálfan borgarstjó-
rann. Öll þau ósköp enduðu með því
að fóstrumar játuðu sig sigraðar og
Davíð hefur sýnt það og sannað að
hann er kvensterkur vel.
Þetta er mikill sigur fyrir Davið
borgarstjóra og sannar þá kenningu
hans að sjálfur borgarstjórinn á ekki
og þarf ekki að leggja sig niður við
að tala við starfsmenn sína. Ekki
nema þá í gegnum fjölmiðla og senda
þeim þannig tóninn að þeir fari á
taugum og skilji að sjálför borgar-
stjórinn er orðinn reiður. Þannig
getur Davíð borgarstjóri terroriser-
að allt liðið, ýmist með því að siga
löggunni á það eða gefa þvi langt
nef með meinlegum athugasemdum
í blöðum og sjónvarpi.
Nú er maður að lesa það og heyra
að borgarstarfsmenn vilji að sjálfur
borgarstjórinn biðji þá afsökunar á
því að hann hafi verið vondur við
þá. Heyr á endemi. Davíð biður eng-
an mann afsökunar enda em það
þeir en ekki hann sem hafa verið
með múður og fellt samninga og
brennt samninga og verið með
ósanngjamar launakröfur löngu eft-
ir að Davíð er búinn að bjóða þeim
allt sem hægt er að bjóða. Hvað á
hann þá að vera að tala við þetta
fólk þegar hann hefúr ekkert meira
við það að tala? Kvensterkur maður-
inn. Sjálfur borgarstjórinn!
Dagfari