Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987. 19 Erlend myndsjá Réðst á nautabanann fýrir hugleysi Nautabani'einn varð nú í vikunni að þola það að áhorfandi réðst að honum í hringnum og sló hann niður fvTÍr að hafa neitað að bana nauti sem hann hafði atast við. Ahorfandinn kýldi nautabanann. sem síðan var handtekinn f>TÍr tilvikið, en áhorfandinn slapp við alla eftirmála. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera nautabani. Seint koma sumir en... Það er siður að flytja fyrr eða síðar heim til fóðurlandsins líkamsleifar þeirra sem falla á erlendri grund. Bandaríkjamenn fluttu nú fyrir skömmu heim leifar hermanns, Eddie Slovik, sem tekinn var af lífi fyrir liðhlaup í heimstyijöldinni síðari. Hann var fjóra áratugi í erlendri mold. Það eru systir og mágur Eddie sem standa yfir gröf hans á myndinni. Tip O’Neill heiðursdoktor Thomas Philip O’Neill, oftast nefndur Tip O’Neill, hefur verið sæmdur nafn- bótinni heiðursdoktor í lögum, af Trinity háskólanum f Dublin á írlandi. Tip O’Neill er að sjálfsögðu af írskum ættum og á að baki langan og afkastamikinn feril í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Tip var forseti deildarinnar um langt ára- bil og einn af helstu leiðtogum demókrata. Hann hefur nú látið af þingmonnsku og helgar sig undirbúningi hátíðarhalda vegna tvö hundruð ára afmælis banda- rísku stjómarskrárinnar. Með Tip O’Neill á meðfylgjandi mynd er Margaret Heckler sem um þessar mundir gegnir embætti sendiherra Bandaríkjanna á írlandi. Hún var að sjálf- sögðu viðstödd athöfnina þegar Tip var heiðraður og var með þeim fyrstu til að óska honum til hamingju. Kýr á beit í garði Marcosar Nú eru mannlausir lystigarðamir umhverfis höll þá er Mareos. fvnmn forseti Filippseyja. lét byggja fyrir sig á sínum tíma. Þar eru nú kýr á beit á flötunum við sundlaugina þar sem áður svntu gidlfiskar af ýmsmn teg- undum. Núverandi stjómvöld á eyjunmn hyggja ekki á ný-tingu hallarinnar. að minnsta kosti ekki fyrir fólk. Þó mætti vafalítið koma þar fyrir þó nokkrum af þeim evjaskeggjmn sem lieimilis- lausir em og búa við sára fátækt. Þeir gætu þá altént náð sér í mjólkur- sopa á staðnum. Fjölskyldu- samvinna Mæðginin á þessum tveimur myndum, þau Alberta Easter og George Lester Lemons, vom nýlega handtekin, asamt tveimur öðrum sonum Albertu, á móteli í bænum Westland í Michiganfylki í Banda- ríkiunum. Fyrr þann sama dag höfðu þrír lögreglumenn farið á staðinn til að handtaka fiúna fyrir ávísanafals. Fjölskyldan tók þá í gíslingu og fundust líkin af þeim í mótelherberg- inu - þeir vom allir skotnir til bana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.