Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 600 kr. Verð i lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Fylgi flokka Skoðanakönnunin, sem DV birtir í dag, gefur okkur dágóða hugmynd um fylgi flokkanna nú. í slíkum könn- unum getur þó alltaf einhverju skakkað, svo að fólk skyldi ekki einblína á ákveðið prósentustig. En breyt- ingar frá kosningunum eru talsverðar. Þar er ekki um að ræða sveiflu til hægri eða vinstri. Ekki er um að ræða sveiflu til eða frá ríkisstjórnarflokkunum. Tveir þeirra bæta við sig en hinn þriðji tapar. Greinilegt er af könnuninni, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur endurheimt talsvert af fylgi frá Borgaraflokknum. Þetta stafar auðvitað af því, að fólk hefur í sumar hugs- að minna en fyrr um klofning sjálfstæðismanna og hvað honum veldur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur setzt í ríkis- stjórn og formaður hans orðið forsætisráðherra. Borgaraflokksmenn hafa þó ekki setið auðum höndum, ritað greinar og stofnað félög. Þeir gætu aftur náð dampi, þegar þing kemur saman. En þeir verða að spjara sig í umræðunni, eigi þessi breyting ekki að halda áfram. Sjálfstæðisforystan getur þó lært af þessari könnun, að fylgisbreytingin þeim í hag er ekki afgerandi. Enn mundi Borgaraflokkurinn halda allmörgum þingsætum og kannski fleiri eftir kosningabaráttu. Könnunin gefur Sjálfstæðisflokknum ekki grænt ljós um, að hann eigi nú að efna til kosninga. Framsókn bætir við sig. Sá flokkur hefur oft fengið meira fylgi í kosningum en skoðanakannanir hafa gefið til kynna. Hann græðir á endaspretti kosningabaráttu. í síðustu kosningum réð fylgisaukning Steingríms Her- mannssonar í Reykjaneskjördæmi úrslitum um heildar- fylgi flokksins. Ekki kæmi á óvart, að flokkurinn nyti Steingríms mjög í þessari könnun. Fólki þætti utanríkis- ráðherra hafa spjarað sig vel gegn Bandaríkjamönnum Samtök um kvennalista eru enn í sókn. Fólk sættir sig við, hvernig þau komu fram í stjórnarmyndunartil- raunum. Þingkonur kvennalista njóta mikils fylgis láglaunakvenna. Hugmyndir um skattahækkanir og aðhald eiga ekki upp á pallborð hjá þessu fólki, sízt matarskattar. Kvennalistinn nýtur góðs af allri athygl- inni, sem kosningasigur hans olli. Alþýðuflokkurinn hefur nú tapað fylgi. Þótt skatta- tal formanns flokksins nái til sumra, sem vilja hörku, er örðugt fyrir formann alþýðuflokks að vera ákafasti talsmaður þess, að hert sé að fólki. Þá heldur niðurníðsla Alþýðubandalagsins áfram samkvæmt þessari skoðanakönnun. Flokkurinn er illa sundraður, sem er almenningi kannski ljósara nú en nokkru sinni fyrr. Formaður flokksins stendur í rústum hans. Ekkert hefur gerzt, sem vekur tiltrú á Alþýðu- bandalaginu. Láglaunafólkið snýr sér frekar til kvenna- lista. Þessar fylgisbreytingar frá kosningunum eru flestar af þeirri stærðargráðu, að rétt er 'að gefa þeim gaum. Þær kunna að sýna ákveðna þróun, til dæmis þá að Borgaraflokkurinn hjaðni. En þær þurfa alls ekki að sýna annað en tímabundnar breytingar. Vel að merkja hefur Sjálfstæðisflokkurinn oftast fengið minna fylgi í kosningum en kannanir gefa til kynna. Sjálfstæðis- flokkurinn á tiltölulega lítið fylgi meðal þeirra, sem eru óákveðnir lengst af milli kosninga. Yrði e&it til kosninga á næstunni, þyrfti það ekki allt að koma fram, sem hér segir. Kosningar gætu varla orðið fyrr en með vori. Kosningabaráttan gæti breytt hlutföllum. Haukur Helgason Ég er hjartanlega sammála Jóni Baldvini Hannibalssyni fjármála- ráðherra sem segir það tilgangslaust að stofria skattalögregluher til þess að senda hann með bjúgsverð út í óvígan frumskóg íslenskra skatta- laga. En tekst ráðherranum að fella frumskóginn? Opnar hann með bylt- ingu á skattalögunum greiða leið að öllu því skattfé sem spökustu menn KjaUaiinn Herbert Guðmundsson blaðamaður segja að skotið sé undan í skjóli frumskógarins? Þeir segja það 5-7 milljarða króna sem dygðu út af fyr- ir sig til þess að geimegla yfir öll fjárlagagöt á svip>stundu. Eða er þetta eintóm óskhyggja? Allir sanngjamir menn - konur og karlar- hljóta að mæna augunum til Jóns Baldvins næstu mánuðina og fylgjast náið með því hvort hon- um tekst að uppræta með byltingar- kenndum uppskurði sóðaskapinn í íslensku skattakerfi. Réttlát skattheimta og raunveru- leg gildir til jafhs við laun í mati á lífekjörum landsmanna. Ásamt með því að hafa öruggt þak yfir höfuðið em þetta grundvallarforsendur fyrir sæmilegum sálarfriði íslendinga út af efnalegri afkomu sinni. Nú reynir á hvort skattalögin verði gerð framkvæmanleg og að þau verði síðan framkvæmd refja- laust eða hvort áfram rekur á reiðanum rakleitt í sálarháskann, þrætubókina, öfundina og illindin í skattamálum okkar. Blóðugar götur En nú segir fyrirsögnin ekkert til um köld skattamál. Hvers vegna dreg ég þau þá inn í umræðuna um umferðarmál? Jú, það er auðskýrt. Þama em tvö óhemjuleg vandamál í sömu óreiðunni. Jón Baldvin hefur skorið upp herör sem líklega mætti nefha geislabyssu á nútímamáli í þeim tilgangi að útbúa framkvæm- anleg skattalög og framkvæma þau síðan í fúlli alvöm. Jóni Helgasyni tókst að puðra gegnum Alþingi nýj- um umferðarlögum í tíð sinni sem dómsmálaráðherra. Þau lög taka gildi innan tíðar og það má nota þau, þótt betur hefði farið á því að lögin fæddust ögn skarpari í skinn- inu. En þessi lög breyta engu til bóta í umferðarmálum nema að þeim sé fylgt eftir. Og þar er pottur brotinn. Lögin allsber ráða engu. Sem slík em þau verri en engin lög og hreint skálkaskjól misviturra manna sem hafa þó tekið á sig ábyrgð valdsins í umferðarmálum. Með alþekktum undantekningum, við hægri breytingu og á umferðar- öryggisári, hefur umferðarmálin rekið á reiðanum með þeim afleið- ingum að hér ríkir ógnaröld í umferðinni. Blóðið flýtur um götur og þjóðvegi og blikkbrakið hrúgast upp í haugum. Valdið veit vissulega eitthvað af þessum ósköpum. En því virðist nægja að berjast gegn millj- arðatjóni og týndu fólki í gröfina og á spítala í hundraðatali með ein- tómri sýndarmennsku. Það er umferðaöryggisslys. Að undanskildu tveim árum af tuttugu höfum við mátt þola sýndarmennskuna og tjó- nið án alvarlegra viðbragða valds- ins. Sóunin er ómælanleg. Og þar að auki er enginn ábyrgur. Eða hvenær hefur frést af þingheimi eða ráðherragenginu andvaka út af þessu? Eða borgarstjóm? Valdið ákvað það fyrir mörgum árum að komast billega frá þessu “vandamáli". Það stofhaði umferð- arráð sem er vopnað 12 milljónum króna á þessu ári til þess að sýnast vera til. Tryggingafélögin bættu, aldrei þessu vant, öðru eins við. Það var gert í óðagoti og sú góðsemi hefur runnið út í sandinn. Það ætlar að verða þriðja skálkaskjólið í ís- lenskum umferðaröryggismálum. Dauðasyndir Ég mun aldrei reyna að draga hót úr mikilvægi þess að umferðarlögun- um verði framfylgt þótt þau mættu vera skynsamlegri. En það er hégómi og sýndarmennska að stunda lög með geðþótta og þar sem grundvöll- inn vantar til þess að rétt lög séu framkvæmanleg af sanngimi. Og hvers er þá vant? Það er sára- einfalt í sjálfu sér. 1. Umferðarkerfið er eins og út úr hálfruddum frumskógi. Það er ósamstætt í öllum frágangi gatna og vega, merkingum, lýsingu og leiðbeiningum. Sem sagt: Ring- ulreiðin er einkenni umferðar- kerfisins. Ökumenn og aðrir vegfarendur eru ofurseldir til- búnum vahdamálum. 2. Framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs sagði mér fyrir löngu að hann teldi þriðjung ökumanna mjög vankunnandi eða óhæfa í umferðinni. Ég er sammála og meira en það. I umferðinni hér á íslandi ráða í raun lögmál frum- skógarins árið 1987. Ég hef rakið þetta áður og rek þetta enn, að gefhum nýjum og nýjum tilefnum. Samviskan nag- ar mig og ég get ekki orða bundist út af heymarleysi og sinnuleysi valdsins. Ef umferðarlögin eiga að hafa gOdi og stuðla í raun að um- ferðaröryggi þarf tvennt umfram annað til viðbótar. 1. Nothæft umferðarkerfi. 2. Algera endurhæfingu 180.000 ökumanna í samvinnu valdsins og slysavamasamtaka um allt land. (Þetta hefði verið verðugt verkefiii fyrir tryggingafélögin 87.) Eða - eigum við að halda áfram að umlíða umferðaröryggisslys- ið? Herbert Guðmundsson „Með alþekktum undantekningum, við hægri breytingu og á umferðaröryggis- ári, hefur umferðarmálin rekið á reiðan- um með þeim aíleiðingum að hér ríkir ógnaröld í umferðinni. Blóðið flýtur um götur og þjóðvegi og blikkbrakið hrúgast upp í haugum. Valdið veit vissulega eitt- hvað af þessum ósköpum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.