Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987. 13 pv_________________Veitingahús Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Traustir eru þrír Frakkar Búða-menn á toppnum Þrír Frakkar eru ein notalegasta matstofa landsins, veitingahús franska stærðfræðingsins Matthí- asar Jóhannssonar, sem fyrir nokkrum árum hjálpaöi Rúnari Marvinssyni að gera garðinn fræg- an að Búðum á Snæfellsnesi. Nú hafa þeir félagar báðir haslað sér völl í Reykjavík og komizt þar á toppinn. Þrír Frakkar Matthíasar eru að vísu ekki alveg eins góðir og Við Tjömina Rúnars og vantar enn herzlumuninn að komast í í flokk hinna sárafáu þriggja húfu veit- ingahúsa. En Þrír Frakkar eru einna fremstir þeirra, sem skarta tveimur húfum. Og enn jákvæðara er, að staðnum hefur ekki hnignað, heldur hefur honum smám saman vaxið ásmegin í matreiðslu. Viðskiptalífið virðist ekki nógu duglegt við að halda uppi góðum veitingahúsum í hádeginu. Svo virðist sem íslenzkir kaupsýslu- menn séu ekkert spenntir fyrir nýjungum í veitingarekstri og mat- argerð og fari jafnan í sömu, gömlu hótelsalina til að fá sömu, gömlu réttina. Sumir beztu matstaðanna eru lokaðir í hádeginu á sumrin, svo sem Amarhóll, og sumir allt árið, þar á meðal Þrír Frakkar. Húsnæði Matthíasar og félaga ber menningarlegan, franskan svip. Það er innréttað í gömlu hús- næði, í einni, lítilli 16 sæta stofu, herbergi inn af henni og garðskála út frá henni. Veggimir em ljósmál- aðir að ofan og klæddir dökkum viði að neðan. Skemmtileg smiða- jámsborð með rauðleitum marm- araplötum era að mestu falin undir borðdúkum. Svörtu viðarstólamir era þægilegir. Á borðum eru tau- þurrkur, kerti og afar fallega skorin vínglös, sem hljóta að vera viðkvæm í uppþvotti og eftir því dýr í rekstri. Þjónusta hefur veriö misjöfn þessi fáu ár, sem Þrír Frakkar hafa veriö opnir. Stundum hefur hún verið mjög góð, stundum sæmileg og einu sinni var hún broslega leik- ræn. Það var, þegar þjónninn sagöi: „ÉG býð í dag upp á...“ í seinni tíð hefur þjónustan undan- tekningarlaust verið til fyrirmynd- ar. Sagt frá árgöngum Vínlistinn hefur þaö umfram flesta bræður sína hér á landi, að árganga er getið. Þannig mátti um daginn til dæmis sjá, að til var ár- gangur 1985 af Chateau Barthez de Luze, 1983 af Chateau Cantenac, 1985 af Chateau Fontareche, 1985 af Chateau Cléray, 1985 af Ge- wurztraminer og 1986 af Riesling Hugel. Samanlagt eru þetta mörg af beztu vínum Áfengis- og tóbaks- verzlunar ríkisins. Ekki er síður mikilvægt, að vínin, sem seld era í glasatali, era bæði góð, Chateau Fontareche og Ries- hng Hugel. Annars staðar hér á landi era yfirleitt valin hin verstu vín til að gegna þessu mikilvæga hlutverki. Þrír Frakkar era sem sagt einn fárra staöa eða kannski eini staðurinn á landinu, þar sem hægt er, í orðsins fyllstu mérkingu, að fá sér glas af góðu víni. Þá fæst í Þremur Frökkum, ein- um íslenzkra matstaða, franskur Kronenbourg-bjór, blandaður ýms- um tegundum ávaxtasafa, til dæmis kiwi og ananas saman. Ð ?? m U •jj • # Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. Stakkaskipti seðils Hér er oft skipt um matseðil, en ekki þó daglega, eins og bezt væri. En matseðillinn tekur líka algeram stakkaskiptum hverju sinni, svo að breytingin er alls ekki bara til málamynda eins og hjá sumum öðram. Seðillinn er hæfilega stutt- ur, yfirleitt með þremur forréttum, þremur fiskréttum, þremur kjöt- réttum og þremur eftirréttum. Rjómalöguð fiskisúpa var snarp- heit og afar góö, full af rækjum og stóram humarbitum. Með henni var dökkt brauð með smjöri í skál. Mjög góður beitukóngur var bor- inn fram í eldtraustum leirbolla, afar heitur og ákaflega mikið kryddaður, blandaður mikilh papr- iku og í fylgd með hrísgrjónum tíl hhðar. Sniglar vora líkir því, sem annars staðar era boönir. Lár- pera-kraumís var sérkennhegur forréttur, sérstaklega frískur og áberandi góður. Skötuselur var sæmilegur, ekki sérstaklega meyr, töluvert hvit- laukskryddaður, borinn fram með góðri sósu, hrísgrjónum, rækjum og léttsoðnum gulrótum. Afar góð humarkássa var rækilega piprað og thbrigðarík og fól í sér mikirn humar og blaðlauk, olífur, appel- sínur, sveppi og góða sósu. Frábær villibráðarsósa Hreindýr var mhdhega steikt, einstaklega meyrt og afar gott, bor- ið fram með frábærri vihibráðar- sósu og óhóflegu magni af margvíslegu meðlæti. Grhluð lambasteik, næstum jafngóð, var einnig létt og meyr, óvenju ljós, fyllt lárperumauki, er átti vel við við kjötið, og með óhóflegu magni af meðlæti, sem var ekki hið sama og með hreindýrakjötinu. Heimalagaður appelsínukraumis var góður, borinn fram með jarðar- berjum og þeyttum rjóma. Afar góð súkkulaðikaka var vætt í koníaki og borin fram með þeyttum ijóma. Döðlutertan var mýkri og ekki síð- ur góð, einnig með þeyttum ijóma. Mjúklega eldsteiktur banani var ljúffengur, borinn fram með góðri appelsínusósu. Þriggja rétta kvöldverður með kaffi, en án víns, kostar að meðal- tah 1.682 krónur í Þremur Frökk- um. Jónas Kristjánsson Matseðill 320 Rjómalöguð sperghkálsúpa 410 Beitukóngur Piperade 440 Sniglar að hætti Flandrarans 780 Smálúða með sveppum og brie osti 760 Steinbítur í rauðvíni 750 Smokkfiskur í karrí 970 Kanína með sveskjum 990 Grhluð lambasteik fyht með lárperumauki 1200 Nauta-piparsteik 1400 Hreindýr með bökuðum eplum 350 Döðlutertan hennar Önnu 370 Krapís 3ja Frakka með mokka, te og súkkulaði 38Ö Eldsteiktur banani með appelsínusósu Meistara- og verktakasamband byggingamanna vantar mann í starf framkvæmda- stjóra. Laun eftir samkomulagi. Umsóknum, er til- greini menntun og fyrri störf, sé skilað á skrifstofu MVB, Skipholti 70, fyrir 10. þessa mánaðar. KÓPASKERI Nýr umboösmaöur á Kópaskeri frá 1.10 ’87, Þórunn Pálsdóttir Klifgötu 10 sími 96-52118 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 35., 47. og 50. tbl. Lögbirtingabl. 1987 á jörðinni Feigsdal í Bíldudalshreppi, þingl. eign Guðbjartar Inga Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Stofnlánadeildar landbúnaðarins í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtudaginn 8. okt. '87 kl. 10.30. Sýslumaður Barðastandarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Aðalstræti 119, Patreksfirði, þingl. eign Jóhanns Vals Jóhannssonar og Hörpu Pálsd. samkvæmt kaupsamningi, fer fram eftir kröfu Jóns Ingólfssonar, Veðdeildar Landsbanka Isl. í skrif- stofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtudaginn 8. okt. '87 kl. 10.00 Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara jörðinni Stökkum I, Rauðasandshreppi, þingl. eign Hjartar Skúlasonar, Ingvars Hjartarsonar og Skúla Hjartarsonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sæm. hrl., Brunabótafélags Isl., Kristins Hallgrimssonar hdl., Guð- mundar Kristjánssonar hdl., Jóns Ingólfssonar hdl., Sigurmars K. Albertsson- ar hrl., Sveins H. Valdimarssonar hrl., Reynis Karlssonar hdl., Guðjóns Steingrímssonar hrl., Arnar Höskuldssonar hdl., Valgarðs Briem hrl„ Eg- gerts Ólafssonar hdl. og Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hrl. í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtudaginn 8. okt. '87 kl. 9.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara á mb. Geir BA 326, þingl. eign íshafs, fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl., Fiskveiðasjóðs Isl., Atla Gíslasonar hdl. og sjávarútvegsáðuneytisins í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreks- firði, fimmtudaginn 8. okt. '87 kl. 9.30. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var í 35., 47. og 50. tbl. Lögbirtingabl. 1987 á hluta úr fast- eigninni Móatúni 18, Tálknafirði, þingl. eign Jóns Samúelssonar, fer fram eftir kröfu Samvinnubanka (sl. hf. og Veðdeildar Landsbanka ísl. í skrif- stofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, miðvikudaginn 7. okt. '87 kl. 17.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Grænabakka 8, Bíldudal, þingl. eign Jónu Runólfsdóttur, fer fram eftir kröfu Gunnars Sæmundssonar hrl., Trygginga- stofnunar ríkisins og Samvinnutrygginga gt. í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, miðvikudaginn 7. okt. '87 kl. 16.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Ásgarði, Tálknafirði, þingl. eign Ölafs Þórðar- sonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Isl., Gunnars Sæmunds- sonar hrl., Guðríðar Guðm. hdl., Klemensar Eggertssonar hrl., Útvegsbanka isl. og Landsbanka isl. í skrifstofu embættisins að Aðalstræti 92, Patreks- firði, miðvikudaginn 7. okt. '87 kl. 15.30. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var í 69., 73. og 75. tbl. Lögbirtingabl. 1986 á hluta úr stál- grindarhúsi á Krossholtum I Barðastrandarhreppi, þingl. eign Barðastrandar- hrepps, fer fram að kröfu Byggðastofnunar á skrifstofu embættisins að Aðalstræti 92, Patreksfirði, miðvikudaginn 7. okt. '87 kl. 15.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Aðalstræti 120 A, Patreksfirði, þingl. eign Jóns Bersa Árnasonar, fer fram eftir kröfu Arnars G. Hinrikssonar hdl., Árna Pálssonar hdl., Gunnars Sæmundssonar hrl. og Jóns Kr. Sólnes hrl. í skrif- stofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, miðvikudaginn 7. okt. '87 kl. 14.30. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Aðalstræti 105, Patreksfirði, þingl. eign Ól- afs Gunnarssonar og Þóru Grímsdóttur, fer fram eftir kröfu Landsbanka isl. í skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, miðvikudaginn 7. okt. '87 kl. 13.30. _______________________Sýslumaður Barðastrandarsýslu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.