Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. 9 Utlönd Þa skortir ábyvgð og einurð „Afstaöa Bandaríkjanna í þessu í Reykjavík sýndi ljóslega að Banda- ríkjamenn höfðu ekki gefið upp alla von um yfirburð en þá skorti ábyrgð og póbtíska einurð til að komast yfir þennan þröskuld enda hefði þá losn- að um tök hernaðar- og iðnaðarsamt- steypanna,“ segir Mikhail Gor- batsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, á einum stað í bók sinni, Perestrojka. artilraunanna og var upphaf annars. Við brutum upp hið gamla mynstur viðræðna og færðum viðræður Sov- étríkjanna og Bandaríkjanna út úr því sem ég vil kalla stjórnmálaþoku og lýðskrum. í áralöngum samninga- umleitunum hafði fjöldi tillagna frá báðum gert afvopnunarmál að hinni örgustu latínu, jafnvel fyrir stjórn- málaleiðtoga, hvaö þá fyrir almenn- ing.“ Eintök af riti Mikhail Gorbatsjov prýddu glugga bókaverslana víða um heim i gær. Simamynd Reuter Komið og skoðið Valenzia hornsófann og Comet hvíldarstólinn. Landsins stærsta úrval af bólstr- uðum húsgögnum: Hornsófar - Sófasett - Svefn- sófar - Hvíldarstólar. Margir litir - Góð húsgögn - Gott verð. Það er þess virði. Opið alla helgina. TM-HÚSGÖGN Síðumúla 30, sími 68-68-22, Bók aðalritarans kom formlega út í gær, samtímis í íjölmörgum þjóð- löndum. Hér á landi er það bókafor- lagið Iðunn sem gefur ritið út og var því fylgt úr hlaði á fundi með fjöl- miðlum. Á fundi þessum flutti Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra ávarp, þar sem hann gerði höfund bókarinnar að umræðuefni. Sagði ráðherrann að því væri ekki að leyna að Gorbatsjov heföi haft töluverð áhrif á afstöðu sína til heimsmála. Sagði ráðherrann ennfremur að ekki mætti draga úr mikilvægi þess að einn af leiðtogum stórveldis fengist til að opinbera almúga manna hugs- anir sínar og kenningar á þennan máta. Sama atriði kom fram í máli Heim- is Pálssonar, sem er ritstjóri íslensku útgáfunnar af bókinni. Sagði hann að það væri vissulega mikilvæg þró- un þegar leiðtogi stórveldis kæmi ofan af stalli sínum og beindi máh sínu beint til alþýðu manna, án hinna hefðbundnu milliliða embætt- ismanna, stofnana og fjölmiðla. í formála að bók sinni segir Gor- batsjov sjálfur um þetta atriði: „Þessa bók samdi ég af því að ég vildi beina orðum mínum milhliða- laust til þjóða Sovétríkjanna, Bandarikjanna og reyndar allra þjóða.“ Og síðar: „Eg samdi þessa bók af því að ég treysti heilbrigðri skynsemi jarð- arbúa. Ég er sannfærður um að þeir hafa, eins og ég, áhyggjur af því hvað bíður hnattarins okkar. Það er meg- inatriðið." í bókinni ræðir Gorbatsjov mikið um ábyrgð stórveldanna og nauðsyn þess að þau grípi til nýrra vinnu- bragða í samskiptum sín á milh og samskiptum sínum við aðrar þjóðir. Hann telur að Reykjavíkurfundur- inn hafi markað þáttaskh í þessum efnum og segir: „Við teljum aö fundurinn á íslandi hafi markað þáttaskil. Hann batt endahnútinn á einn þátt afvopnun- n Jeep EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI EGILL VILHJÁLMSSON HF. Smiöjuvegi 4, Kop , s. 7 72 00 - 7 72 02. CHEROKEE JEPPAR á sérlega hagstæðum kjörum: ★ 25% útborgun ★ Eftirst. lánaðar í allt að 2 % ár ★ Ath. Gengi dollars - Hagkvæmt verð o o 1988

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.