Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988. 5 Fréttir Lán og styrkir til loðdýrabænda úr opinbenim sjóðum: Rúmur milljarður hefúr farið í loðdýrabúskapinn AÐALFUNDUR ÍBÚASAMTAKA GRAFARVOGS verður haldinn í Foldaskóla fimmtudaginn 18. febrú- ar kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. önnur mál. Gestir fundarins verða frá æskulýðsráði, ungmenna- og íþróttafélagi og skátum. Stjórnin Það er ljóst að fjárfesting í loðdýra- búskap er að langmestum hluta komin úr opinberum sjóðum. Loð- dýrabændur hafa haft aðgang að þrem opinberum sjóðum; Stofnlána- deild landbúnaðarins, Byggðastofn- un og Framleiðnisjóði landbúnaðar- ins og nema framlög þeirra samanlagt rúmum milljarði kr. Rétt er að geta þess að aðeins framlag Framleiðnisjóðs er hægt að líta á sem gjafafé en frá hinum stofnununum er um að ræða verulega niðurgreitt lánsfé. Þetta er forvitnileg tala, sérstak- lega í ljósi þess að fjárfesting í þessari búgrein er talin vera um 1,3 til 1,4 milljarðar kr. Þessar tölur fást með því að leggja saman lánafyrirgreiðslu þessara þriggja sjóða sem hér segir: 760 milljónir frá Stofnlánadeild Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur lánað til loðdýrabúa 627 millj- ónir kr. frá upphafi. Þetta er 15,6% af útlánum Stofnlánadeildar. Af þessu hafa 336 milljónir fariö til refa- búskapar. Til viðbótar þessu hefur síðan Stofnlánadeildin lánað 134 milljónir kr. tii fóðurstöðva sem ger- ir 3,3 % af útlánum Stofnlánadeildar. Að sögn Stefáns Valgeirssonar hef- ur Stofnlánadeildin lengt eins og hægt er greiðslufrest á lánum til refabænda. Ef lengja þarf frekar greiðslufrestinn verður að breyta lögunum. Loðdýrabændur eru ekki famir að greiða neitt ennþá af höfuð- stóli lánanna. Ekki er vitað hvaða stofnun eða sjóði mun vera ætlað það hlutverk að styðja við loðdýrabændur núna en ef Stofnlánadeild á eitthvað frekar að koma til skjalanna verður að breyta lögum um úthlutun lána þar. 100 milljónir frá Byggðastofnun Um áramótin síðustu skulduðu loð- dýrabændur 57 milljónir kr. hjá Byggðastofnun. Það munu vera 86 aðilar sem skulda þessa upphæð. Þetta er ekki hátt hlutfall af heildar- útlánum Byggðastofnunar sem nema 4,1 milljarði. Til viðbótar þessum 57 milljónum koma síðan lán til fóður- stöðva. Til þeirra lánar Byggðastofn- un 25% af byggingarkostnaði en þar mun vera um lægri tölur að ræða en til búanna sjálfra. Byggðastofnun hefur ekki lánað til loðdýrabænda síðan 1985 en þó voru greiddar út íjárhæðir 1986 vegna skuldbindinga sem búið var að efna m. Þess má geta að Byggðastofnun hefur yfirleitt annan veðrétt í eign- um loðdýrabænda en Stofnlánadeild hins vegar fyrsta. Lán Byggðastofn- unar eru til langs tíma og eru afborganir bænda ekki háar af þess- um lánum sem teljast verða fremur hagkvæm. Þau eru til 10-12 ára og engar afborganir greiddar fyrsta árið. Framlag Framleiðnisjóðs 160milljónir Loðdýrabændur hafa einnig fengið fé úr Framleiðnisjóði landbúnaðar- ins. Hann hefur veitt fjármagn vegna almennra búháttabreytinga. Byrjað var að veita úr sjóðnum 1985 og var Kvosarskipulagið enn í félagsmálaráðurieytinu: Skoða álitsgerð ríkislögmanns „Það þarf engan að undra að þetta taki nokkum tíma. Ríkislpg-' maður hefur skilaöjliti-eínu'og er það nú tU- -skoðunar,“ sagði Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra í samtali við DV þegar hún var spurð hvenær vænta mætti ákvörðunar um staðfestingu Kvosarskipulagsins svokallaða. Skipulagsstjórn ríkisins hefur samþykkt skipulagið í tvigang en borgarstjórn Reykjavikur sam- þykkti skipulagið þann 1. október síöastliðinn. í samtali við DV í des- ember sagði félagsmálaráðherra að búast mætti við ákvörðun í málinu í byijun janúar. Spumingu um hvort álit ríkislög- manns fengist upplýst svaraöi félagsmálaráðherra þannig aö hún hefði fengið álitið á miðvikudag og á meðan unnið væri í málinu innan ráðuneytisins yrði ekki skýrt frá efni álitsgerðar ríkislögmanns. „Það er ekki ástæða til að gera grein fyrir álitsgerðinni á j>essi stigi,“ sagði Jóhanna Siguröardótt- ir. Gunnlaugur Claessen ríkislög- maður sagðist í gær ekki geta gefið neinar upplýsingar um efni áiits- gerðar sinnar. Hann sagði að álitið hefði verið sent félagsmálaráð- herra þriðjudaginn í síðustu viku og svör við sérstökum viöbótar- spumingum síðastliöinn þriöju- dag. -ój Refafaraldur á Kjalarnesi Ovenju mikið hefur verið um ref og mink á Kjalarnesi í vetur. Tveir refir voru skotnir í síðustu viku. Dýrin hafa ekki valdið neinu tjóni þar sem refirnir eru ekki villtir held- ur telja heimamenn þá hafa sloppiö út úr loðdýrabúinu á Hólalandi á Kjalamesi en verið er að leggja það niður um þessar mundir. Þessa dag- miðað við að allt að 600.000 kr. yrði varið til hvers bónda sem hætti hefð- bundnum búskap og færi í loðdýra- búskap. Beinist þessi aðstoð að bændum sem hafa a.m.k. 75 refalæð- ur eða 300 minkalæður. Munu það vera um 100 milljónir kr. sem hefur verið ráðstafað á þennan hátt. í fyrra varð geysileg aukning í stétt loðdýra- bænda og því þurfti að greiða út töluvert fé á þennan hátt. „í refarækt verður ekkert greitt nú í bili en auð- vitað munum viö afgreiða þá sem var búið að lofa fyrirgreiðslu," sagöi Jó- hannes Torfason, stjómarformaður Framleiðnisjóðs. í öðm lagi veitir Framleiðnisjóður framlög fyrir 45% af kostnaði fóöur- stöðva vegna tækja og vélakaupa. Haft var í huga í upphafi að vöxtur greinarinnar væri mikill og fóður- stöövamar gjarnan stærri en þörfin á byggingartíma þeirra sagði til um. Er ekki óeðlilegt að áætla að milli 40 og 50 milljónum hafi verið varið á þennan hátt úr Framleiðnisjóði. í þriðja lagi veitir sjóðurinn fram- lag til skinnaverkunar sem nemur 25% af tækjaverði. Þetta er óveruleg upphæð eða sem nemur 5-6 milljón- um. Þá styrkir Framleiðnisjóður kostn- að við leiðbeiningar og rcmnsóknir og hefur það numið 6-8 milljónum kr. á ári á síðustu tveim ámm. -SMJ TIL SOLU GMC Jimmy S-15, árg. 1987, til sölu. Bifreiðin er með öllum fáanlegum aukahlutum og í algjörum sérflokki. Skipti - skuldabréf. Upplýsingar i síma 14240-41551. KOPAVOGSBÚAR ! STÓRBÆTT ÞJÓNUSTA OPIÐ KL. 08.00-20.00 MÁNUDAGA TIL LAUGARDAGA NÓATÚN HAMRABORG E ana er veriö að lóga dýrunum sem eftir eru í loðdýrabúinu og á því að vera lokið fljótlega. Minkurinn, sem einnig hefur mikið borið á, kemur ekki úr loðdýrabúinu heldur er hann villtur. Fjölgun hans á sér því aðrar skýringar. Má þar líklega kenna um góðu árferði. -JBj :

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.