Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Blaðsíða 1
Frú Emilía: Ekki geta allir leikið fyrstu fiðlu í kvöld verður önnur sýning á Kontrabassanum, leikriti eftir Þjóðverjann Patrick Stiskind, á Laugavegi 55b. Kontrabassinn er gamanleikur og fjallar um kontrabassaleikara í sinfóníuhljómsveit, um einmana- legt síðdegi áður en hann fer í kjólfotin til að spila. Kontrabassinn ijallar meðal ann- ars um það hvemig er að lifa sem atvinnumaður í tónlist, með stóra drauma - og einmana. Af skiljanlegum ástæðum geta ekki allir leikið fyrstu fiðlu. En það er líka hart að sætta sig við sæti á aftasta púlti - einkum þegar stefnt er svo miklu hærra. Einnig um þetta fjallar Kontrabassinn. Tilhugsun hins fastráðna kontra- bassaleikara í sinfóníunni um þá nauð að eyða því sem eftir er starfs- ævinnar fjötraður við óhentugasta og klunnalegasta hljóðfærið gerir hann næstum vitstola. Fjötraður við hljóðfæri sem næstum aldrei er kaÚað fram úr öftustu röð til einleiks. Það er þess vegna sem hann spyr sjálfan sig hvers vegna hann hafi ekki orðið píanóleikari? Eða söngvari? Eða fiðluleikari? Alla vega eitthvað sem hefði veitt honum tækifæri til að sýna hvers hann er megnugur. Kontrabassaleikurinn segir frá erfiðu samlífi með hljóðfærinu sínu. Eintal sem er í senn fyndið og sorglegt, jafnvel örvæntingar- fullt. Höfundurinn, Patrick Suskind, er fæddur 1949 og leikritið Kontra- bassann skrifaði hann sumarið 1980. „Það fjallar um tilveru manns í htla herberginu sínu - auk fjölda annarra hluta. Við samningu verksins gat ég stuðst við eigin reynslu að því leyti að ég hef eytt mestum hluta lífs míns í sífellt minni og minni herbergjum, sem ég á sífellt erfiðara með að yfirgefa. En ég vona að einhvern tíma finni ég herbergi sem er svo smátt og umlyki mig svo náið að það fylgi mér þegar ég yfirgef það. í svona litlu herbergi ætla ég svo að reyna að skrifa tveggja manna leikrit sem gerist í mörgum her- bergjum," sagði Patrick Stiskind um Kontrabassann ári eftir að hann skrifaði hann. Þátttakendur í uppfærslu leik- hússins Frú Emilía á Kontrabass- anum eru Árni Pétur Guðjónsson sem leikur kontrabassaleikarann, leiksjórn annaðist Guðjón P. Ped- ersen og leikmynd og búninga sér Guðný B. Richards um. Þýðingu gerðu Hafhði Arngrímsson og Kjartan Óskarsson. J.Mar tal sem er í senn fyndið og sorglegt - jafnvel orvæntingarfullt. Arni Pétur Guðjónsson fer með hlutverk kontrabassaleikarans. DV-mynd KAE. ;j«r> VO.'."'-' ■!■ ■ i.i.i Royal Ballet of Senegal. „Royal Ballet of Senegal“ í kvöld, annað kvöld og á sunnu- dagskvöld mun Royal Ballet of Senegai skemmta gestum veitinga- hússins Evrópu, auk þess sem hópurinn kemur fram í veitingahús- inu Casablanca annað kvöld. Royal Ballet of Senegal er litríkur danshópur með óvenjulega sýningu og er henni ætlað að gleðja augað. Dansarnir byggjast á trúarsiða- og frumbyggjadönsum frá Afríku. í hópnum eru limbódansari, eldgleyp- ir, liðamótalaus „snákamaður“ og töfralæknir. Tónlistin, sem hópurinn notar, er leikin af þeim sjálfum, mestmegnis á ásláttarhljóðfæri, þjóðarhljóðfærið, afrísku trommuna. -J.Mar GaJlerí Svart á hvítu flytur sig um set Gallerí Svart á hvítu hefur frá fiytja starfsemina um set. þann þátt í starfsemi gallerísins. stofnun haustið 1986 verið til húsa Nýjahúsnæöiöerátveimurhæð- Gallerí Svart á hvítu verður í við Óðinstorg. Þótti aðstandendum um, á jaröhæð er rúmgóður framtiðinni opiö alla daga frá kl. gallerísins orðið fullþröngt um sig sýningarsalur og á efri hæð verður 12,00-18.00 nema mánudaga. og þegar stærri salur stóð til boða umboðssala gallerísins en ætlunin við Laufásvegi 17 var ákveðið að er að leggja meiri áherslu en var á Næturgalinn Pálmi - sjá bls. 19 Förumenn á Kj arvalsstöðum - sjá bls. 20 Ópera óperaima, Don Giovanni - sjá bls. 29 Rauðvínskraum- aður steinbítur - sjá bls. 18

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.