Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Blaðsíða 32
FRÉTT ASKOTIÐ ■ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórr* - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988. Verkfall í álverinu á miðnætti „Það hefur ekkert mjakast í sam- ■ komulagsátt á þeim samningafund- um sem haldnir hafa verið undanfarna daga þannig að ég á von á því að vinnustöðvun hefjist í álver- inu á miðnætti eins og boðað hefur verið,“ sagði Örn Friðriksson, yfir- trúnaðarmaður í álverinu og for- maður Málm- og skipasmiðasam- bandsins, í samtali við DV í morgun. Það eru um tuttugu verkalýðsfélög sem eiga aðild að kjarasamningum í álverinu en þar er hlutur Hlífar í Hafnarfirði stærstur. Komi til vinnustöðvunar í álverinu er framkvæmd hennar með allt öðr- --fim hætti en hjá öðrum fyrirtækjum í landinu. Til að koma í veg fyrir hundraða milljóna króna tjón, sem yrði ef álveriö stöðvaðist í einu vet- fangi, er dregið úr framleiðslunni hægt og rólega. Þetta er kölluð straumlækkun, að sögn Arnar Frið- rikssonar. Hann sagði að það tæki tvær vikur að stöðva álverið alveg án þess aö valda skemmdum á tækj- um og tólum. í dag klukkan 18.00 hefur verið boðaður sáttafundur í deilunni en Örn sagði að ekkert það hefði gerst *enn sem yki sér bjartsýni á að samn- ingar tækjust fyrir miðnættið. -S.dór Bensínverðhækkunin: Ekki um helgina Verðlagsráð skoðar nú ósk olíufé- laganna um 6 prósent hækkun á bensíni sem þýðir að lítrinn af bens- íni fer úr 31,90 krónum í 33,80 krónur. Verðlagsráð hefur ekki verið kallað A'iman til fundar til að taka ákvörðun um beiðnina en búist er við að hækk- unin nái fram að ganga. Venjubundnir fundir í verðlagsráði eru á miövikudögum. Fundur um bensínið gæti þó orðið fyrr eða þess vegna fljótlega eftir helgi. ‘ -JGH LOKI Segja má að nú séu menn komn- ir með tungubroddinn í bjórinn! Ríkisstjómin: Deilt um hvenær á að fella gengið - en ekki um hvort það verður fellt I ríkisstjórninni er ekki deilt um hvort af gengisfellingu verður heldur hvenær. Framsóknarmenn hafa sett fram kröfur um aðgerðir sem fyrst og þá jafnvel í tengslum við fiskverðsákvörðun um mán- aðamótin. Alþýðuflokkurinn viU hins vegar fresta gengisfellingunni þangað til eftir rauða strikið 1. júli til þess að ekki þurfi að setja bráða- birgöalög um kjaraskerðingu. Þegar þing kæmi saman í haust yrði hins vegar lagt fram frumvarp um að fella rauða strikið í október úr gildi. Með því yrði Alþingi látið deila ábyrgðinni með ríkisstjórn- inni. Ríkisstjórnin vinnur nú að sam- setningu efnahagsmálapakkans sem fylgja á gengisfeilingunni. Grípa þarf til einhverra aðgerða til þess að verja hina lægst launuðu fyrir þeirri kjaraskerðingu sem stefnt er aö í kjölfar gengisfelling- arinnar. Tilfæringar innan skatt- kerfisins komá helst til greina; annaðhvort hækkun persónuaf- sláttar eða að greiða út ónýttan afslátt. Aðrir en hinir lægst laun- uðu verða hins vegar að taka á sig kjaraskerðingu. Til þess að ríkis- stjórnin nái markmiðum sínum í eftiahagsmálum þarf að koma til um 5-10 prósent skerðing kaup- máttar á árinu svo hann samræm- ist þjóðartekjum. Ein erfiðasta glíma ríkisstjórnar- innar er að finna lausn á misgengi lánskjaravisitölu og launa í kjölfar kjaraskerðingarinnar. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra mun leggja á þaö áherslu að fá ekki yfir sig misgengishóp í húsnæði- skerfmu, svipaöan þeim sem skapaðist eftir efnahagsaðgerðirn- ar 1983. Vaxtafrádráttur í skatt- kerfinu til húskaupenda er ein þeirra lausna sem ræddar hafa ve- rið. -gse ; Stuðningsmenn samtakanna Tjörnin lifi fjölmenntu á áheyrenda palla borgarstjórnar í gær þegar atkvæði voru greidd um bygging arleyfi fyrir ráðhús. DV-mynd GV/ Borgarstjóm: Níu með ráðhúsi en sex á móti Byggingarleyfi fyrir ráðhúsi Reykjavíkur var samþykkt í borgar- stjórn í gær. Allir fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins greiddu atkvæði með byggingarleyfinu en allir fulltrúar minnihlutans voru á móti. Atkvæði féllu þannig að níu voru samþykkir en sex á móti. Mikill fjöldi áheyrenda var á pöll- um, m.a. úr samtökunum Tjörni lifi, og mótmæltu þeir af krafti meðan umræðurnar stóðu yfir. -JBj Samkomulag á Suðuriandi í nótt: Lágmarkslaun 36 þúsund Um klukkan tvö í nótt voru undir- ritaðir nýir kjarasamningar í deilu ófaglærös starfsfólks á sjúkrahúsum og vistheimilum á Suðurlandi en verkfall hófst hjá þessum hópi 4. maí síðastliðinn. Verkfallinu var frestað um leið og samningarnir voru undir- ritaðir. í þessum samningum er gert ráð fyrir að lágmarkslaun verði 36.000 krónur á mánuði en þau voru 29.975 krónur. Og laun þessa fólks hafa ekkert hækkað síöan 1. október í haust. Ingibjörg Sigtryggsdóttir, formað- ur Verkalýðsfélagsins Þórs á Sel- fossi, sagði í samtali við DV í morgun aö starfsaldursþrepin hefðu alltaf verið nokkuð góð hjá þessum hópi og þannig væri það enn í nýju samn- ingunum, sem gilda frá 1. mars síðastliðnum til 1. apríl á næsta ári. í dag klukkan eitt eru boðaðir fé- lagsfundir fyrir austan fjall um samningana. -S.dór Veðrið á morgun: Þunt veður norðan- lands Á morgun verður suðlæg eða suðvestlæg átt á landinu. Rigning verður á Austurlandi og skúrir um sunnan- og vestanvert landið en þurrt að mestu norðanlands. Hiti verður á bilinu 4-6 stig. Kjaradeilu hót- elfólksvísaðtil sáttasemjara í gær slitnaöi upp úr viðræðum verkalýðsfélaga og vinnuveitenda í kjaradeilu ófaglærðs starfsfólks á hótelum. Kröfunni um að hótelfólkið fengi 5 þúsund króna júníuppbót og 1100 króna bónus á mánuði eins og verslunarmenn var það sem brotnaði á. Lítið mjakaðist í samningum við verkalýðsfélögin í Vestmannaeyjum hjá sáttasemjara í gær og hefur ann- ar fundur verið boðaður í dag. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.