Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988. 3 fremst komin til að aðstoða eldri mann viö að ná sambandi. „Maður þessi lést vegna sjúkdóms í lungum,“ segir Glady’s. „Hann er mjög hár og ákaflega jákvæður," bætir hún við. Síðan koma nánari úthstanir á úthti mannsins. „Hann er kominn th að hehsa upp á þig og þakka þér eða einhverjum úr fjöl- skyldu þinni sem reyndist honum vel í lifanda lífi,“ bætir hún við. Jónsson- urinn kannaðist við persónu þessa og fékk einnig nokkra aðra í heim- sókn. Hún fer til tveggja annarra sem ýmist kannast við þá sem til þeirra koma eöa ekki. Margir eru hikandi þegar þeir eru spurðir hvort þeir þekki hinn eða þennan og mikið er um loðin svör. Spurningar eins og „Gæti þetta verið hún amma?“ eða „Er máðurinn með grátt hár?“ heyr- ast. Það er að heyra á Glady’s að hún vilji helst ekki fá spurningar eða ábendingar þessar og hún biður fólk að svara í sem stystu máli. Afinn mætir til að setja niður fjölskyldudeilu „Hingað er kominn maður sem vih hitta einhvern á þessu svæði,“ segir hún og bendir á borð sem stendur um miðbik salarinns. „Hann vhl tala við þig,“ segir hún og bendir á mann sem situr við borðið. Þetta er hann afi þinn sem er kominn og mér fmnst hann vera mjög ákveðinn persónu- leiki. Maðurinn, þ.e.a.s. sá lifandi í salnum, kannast við lýsinguna á afa sínum. „Það er eins gott að þú kann- aðist viö hann,“ segir miðhlinn og hlær, „hann er ekki sú manngerð sem hefði gert sig ánægða með ann- að,“ bætir hún við. Tíðarandi „Hann er hingað kominn th að reyna að lægja ófriðaröldur í fjöl- skyldunni. Hann segir að þessi ágreiningur sé á misskhningi byggð- ur og þetta sé of langt gengið. Hann vih endilega að þú og þeir sem eiga hlut að máli talið saman um þetta og hreinsið andrúmsloftið,” segir Glady’s. Maðurinn, sem á í hlut, verður hálfklumsa við þetta og vandræða- legur. „Passar þetta?” spyr Glady’s. Maðurinn játar því og staðfestir að einhver vandræði séu í fjölskyld- unni. Miöilhnn segir honum þá að best sé að fara að ráðum afa og snýr sér að öðrum í salnum. Skilaboð til mömmu Misjafnlega gengur að fá lifendur til að þekkja þá sem koma en margir kannast viö marga. Allt í einu snýr Glady’s sér að ungri stúlku sem situr í salnum. „Hér er kominn piltur sem lést af slysförum,” segir hún. „Nei annars, hann dó ekki af slysförum heldur hjálpaði hann sér sjálfur yfir um. Hann kemur hér til þín vegna þess að þú varst vinur hans og einn- ig langar hann að biöja þig að koma skhaboðum til mömmu sinnar," seg- ir miðihinn. Stúlkan segist þekkja piltinn og Glady’s heldur áfram. „Pilturinn er dapur yfir því að hann hryggði sína nánustu með ótímabærri brottför sinni en honum hður vel. Hann vhl að þú hafir samband við móður hans, sem er enn hrygg, og látir hana vita um komu sína hér í kvöld. Jafnframt átt þú að segja henni hve vænt hon- um þyki um hana. Hann talar um ung börn, ég held að það séu systkini hans, og segist munu hta eftir þeim. Hann þakkar þér fyrir fyrirbæn- irnar og segir þær hafa hjálpað sér mikið,“ bætir miðihinn viö. Stúlkan virðist vera mjög snortin og kinkar kohi th samþykkis. Eftir nokkra stund í viðbót er skyggnilýsingunni lokið. Eftir kaffi gefst gestum kostur á að spyrja Glady’s Fieldhouse spurninga. Látnir sitja á kistunni og dingla fótunum Glady’s Fieldhouse svaraði hinum ýmsu spurningum eftir kaffið. Blaða- maöurinn spurði hana til dæmis hvers vegna látnir auðvelduðu henni ekki lífið og gæfu upp eigið nafn og nafn þeirra sem þeir vhdu ná sam- bandi við. Hún svaraði því th að hlutirnir væru því miður ekki svona einfaldir. Þær upplýsingar, sem hún fengi, væru mismunandi, stundum sæi hún fólk og heyrði, stundum fyndi hún hlutina á sér og svo framvegis, ekki væri alltaf hægt að tala við framhðna eins og þá sem lifandi væru. Maður einn spurði hana hvort ekki hefði neikvæð áhrif ef reynt væri að halda lffi í fólki sem væri látið lækn- isfræðilega séð. Hún sagði að þetta væri erfið spuming. Stundum hefði komið fyrir að fólk, sem væri sem látið en hföi með aðstoð véla, hefði komið aftur th lífsins. Hún taldi að hver maður hefði sinn vitjunartíma og hefðu gerðir okkar mannanna oftast lítil áhrif þar á. Þessu væri ahs ekki beint gegn fólki í læknastéttum heldur taldi hún svoleiðis störf með þeim göfugustu sem hægt væri að vinna við í þessu lífi. Hún var spurð hvort hkbrennsla hefði einhver áhrif á ferðir okkar yfir um. Þeirri spurningu svaraði hún neit- andi og sagði að hkaminn væri eins og umslag sem við fleygðum frá okk- ur eftir notkun. Engu máli skipti hver endalok hans yrði. Oft sagðist hún hafa séð þá látnu sitja á kistun- um, dingla fótunum og virða fyrir sér fólkið í kirkjunni. íslendingar áhugasamir um líf að loknu þessu Eftir fundinn kom blaðamaður að máli við Glady’s og spurði hana hvernig henni heföi þótt fundurinn. Hún sagði að hann hefði verið óvenju þungur og erfiður. Við spurningu um hvort íslending- ar tækju þessum málum af áhuga sagði hún aö svo væri, oft kæmi fyr- ir að þeir væru dálítið th baka og hélt hún að ástæðan væri ótti um að leyndarmál yrðu afhjúpuð. Hún sagði jafnfram að það væri ástæðu- laust því að henni myndi aldrei koma það th hugar. Þetta er í þriðja skiptið sem Glad- y’s kemur th landsins og lét hún vel af dvölinni hér. Svo virðist sem áhugi íslendinga á málefnum, sem snerta líf að loknu þessu, sé mikhl. Gesta- miðlar á vegum Sálarrannsóknarfé- lags íslands hafa verið margir á síð- ustu misserum og yfirleitt hafa fund- ir með þeim verið fjölsóttir. Um ástæðuna fyrir þessum áhuga íslend- inga er erfitt að fjölyrða. Hitt er víst að hann er raunvenhegur og mikill. -EG Lífsstíl Glady's Fieldhouse er viðurkennd sem miðill i heimalandi sínu. Hún ferðast um heiminn til að lýsa þvi sem hún sér i öðrum heimum. BÍLA MARKADUR ..á fullrí fertf Á bílamarkaöi DV á laugardögum, auglýsa fjöldi bílasala og bilaumboða fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum og í öllum verðflokkum. AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast ( siðasta lagi fyrir kl. 17:00 fimmtudaga. Smáauglýsingar í helgar- blað þurfa að berast fyrir kl. 17:00 föstudaga. Siminn er 27022 ém 1 BLAÐAUKI ALLA LAUGARDAGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.