Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988. 31 LífsstHL Val á garðhúsgögnum og þola ágætlega rigningu og bleytu. Hins vegar er ólíklegt að hægt sé að kaupa þau þannig að hægt sé aö leggja þau saman. Garðhúsgögn með álgrind eru einnig algeng. Þau eru létt og yfir- leitt hægt að leggja þau saman. Húsgögn með járngrind eru ívið þyngri. Járnið er oftast með plast- húð og ver það járnið fyrir bleytu. Þannig er minni hætta á ryöi. ÓTT. Roluhengið a myndinm hefur þrju sæti. Tjald er yfir rólunni sem er haldið uppi með plasthúðaðri járngrind. Verðið er 19.000 kr. Sólstólarnir hafa þykk og þægileg áklæði. Stærri stóllinn kostar 4.959 kr. en sá minni 3.664 kr. Hlutirnir fást í Seglagerðinni Ægi. Síðustu sumur hafa gefið fólki kost á að njóta útiveru í görðum sínum. Veðrið hefur verið einstakt. Æ fleiri kaupa garðhúsgögn svo að útivera verði sem þægilegust. Garðhúsgögnin eru staðsett á ver- önd, á svölum eða á grasflöt. Margs ber að gæta þegar ílutt er í nýtt húsnæði og staður til útiveru er valinn. Það veröur að vera skjólgott og sólríkt þar sem stað- setja skal garðhúsgögn. Byriið á að rannsaka staöhætti. Mikilvægt er að athuga hvar sólar nýtur og hvar vinds gætir minnst. Skjól er hægt að mynda með skjólveggjum. Þó er ráðlegt að fá leiðbeiningar um slíkt hjá fagmanni. Þar sem garðhúsgögnum er ætl- aður staöur er yfirleitt grafið fyrir stétt eða palli. Til þess þarf oftast að grafa einn metra niður og fjar- lægja mold og mýkri jarðveg. Ann- ars er hætta á að hellumar í stétt- inni sígi. Sólbekkir og garðstólar frá Seglagerðinni Ægi. Að framan f.v. er einfald- ur sólstóll á 1.230 kr. Næst kemur þægilegur stillanlegur stóll á 3.000 kr. Borðið kostar 1.370 kr. Stóllinn lengst t.h. er á plasthúðaðri járngrind með höráklæði. Verðið er 2.200 kr. Sólbekkirnir eru með misþykkum dýnum. Verðið er frá 2.165 kr. og upp í 4.100 kr. Borð, bekkur og sólhlif í einni tösku. Borðið og sætin eru er úr plast- efni, grindin er úr áli. Þessa samstæðu er þægilegt að taka með í úti- legu eða bregða upp í garðinum. Sólhlífina er gott að hafa, sé t.d. verið að borða þegar sólin skín. Þá vill sterk birta endurkastast af borð- búnaði. Þessi samstæða fæst i sumarmarkaöinum, Eiðistorgi. Verðið er 6.900 kr. fyrir borðið með bekkjum. Sólhlífin kostar 2.900 kr. Hengi- stóllinn kostar 3.900 kr. Stólarnir á myndinni eru úr plastefni og kosta 1.650 kr. Borðið kostar 1.990 kr. Vörurnar fást í sumarmarkaðnum, Eiðistorgi. Hollt ráð: Hver kannast ekki við áklæði á garðhúsgögnum sem vilja renna til á stólunum. Ef ekki er hægt að koma því við að setja band á horn púðanna er annað ráð til. Útvegið ykkur ræmu af frönsk- um rennilás og limið undir. Þá ætti enginn að renna á gólfið. Val á garðhúsgögnum Garðhúsgögn eru yfirleitt aðeins höfð úti hluta af árinu. Því verður að koma þeim í geymslu yfir vetur- inn. Því er hægstætt að kaupa þannig húsgögn að hægt sé að leggja þau saman. Þannig eru þau minnst fyrir og taka minnst pláss. Síðan er það smekksatriði hvern- ig húsgögn skal velja. Algeng eru garðhúsgögn úr tré sem áklæði er sett á (pullur). Þau er einnig hægt að fá þannig að hægt er að leggja þau saman. Mikilvægast er við kaup á slíkum vörum að ganga úr skugga um að tréð sé vel fúavarið. Þó sumur hafi veriö góð er engin hætta á að aldrei rigni. Basthúsgögn eru einnig vinsæl í garða. Þau eru létt og meðfærileg ■"ír- Byggingaþjónustan með græna daga: Ókeypis ráðgjöf um garðinn Landslagsarkitektar og garðyrkjumenn á staönum Byggingaþjónustan er til húsa að Hallveigarstíg 1. Þar verður almenningi gefinn kostur á ókeypis ráðgjöf um garðinn dagana 3.-10. júní. Dagana 3.-10. júní geta garðeigend- ur fengið ókeypis ráðgjöf fagmanna hjá Byggingaþjónustunni við Hall- veigarstíg 1. Á staðnum verða landslagsarkitektar og skrúðgarð- yrkjumeistarar. Þeir munu svara spurningum fólks um hönnun garða, gróðursetningu, val á plönt- um, staðsetningu þeirra og fleira í þeim dúr. Hjá Byggingaþjónustunni hefur til þessa verið boðið upp á vikulega ráðgjöf af þessu tagi. Má þar nefna að fólk hefur komið með afstöðu- teikningu af garði sínum. Þannig hafa arkitektar rissað upp og gefið hugmyndir að skynsamlegri hönn- un garðsins. Að þessu sinni munu skrúðgarðyrkjumeistarar einnig gefa ráð. Þannig er fólki gefinn kostur á að samræma hönnun garðsins og ráögjöf garðyrkju- meistarans. Hönnun og umhirða Með þessum grænu dögum vekja landslagsarkitektar og skrúðgarð- yrkjumeistarar athygli á starfsemi sinni. Landslagsarkitektar eru til- tölulega ný stétt sem fólk notfærir sér æ meira. Þeir geta t.d. gefið fólki lausnir svo forðast megi óþarfa kostnað við garðaframkvæmdir. Vinna þannig sem best úr aðstæð- um hveiju sinni. Hér þarf ekki að vera um flóknar teikningar að ræða. Lausnir fást oft meö ráðgjöf og einföldum afstöðuteikningum. Oft vita garðeigendúr ekki hvert skal snúa sér þegar þeir þurfa á ráðgjöf garðyrkj umeistara að halda. Sumir vilja helst láta garö- yrkjumann alfarið sjá um garð sinn. Þar má t.d. nefna að hentugt er að fá mann til að sjá um lóðir íjölbýlishúsa. Aðrir þurfa aðeins að fá ábendingar um umhiröu. Skrúðgarðyrkjumeistarar eru þeir sem leysa þessi vandamál. Ábend- ingar um þá er alltaf hægt aö fá hjá Byggingaþjónustunni. Þeir eru einnig á gulu síðunum í síma- skránni. Fyrirtæki kynna vörur fyrir hús og garð Á grænu dögum Byggingaþjón- ustunnar munu fjölmörg fyrirtæki kynna vörur sem henta í garðinn. Þar má nefna hellur, heita potta, ljós í garðinn, gróðurhús og grill. Einnig verður sérstakur jarðvegs- dúkur kynntur sem ætlaður er til að hjálpa gróðri og jarðvegi. Fjórir aðilar standa að grænu dögunum í samvinnu við Bygg- ingaþjónustuna. Það eru félög landslagsarkitekta, skrúðgarð- yrkjumeistara, plöntuframleið- enda og garðyrkjumanna. Byggingaþjónustan gefur ókeypis ráðgjöf allan ársins hring varðandi hús og garöa. Þar er bent á fyrir- tæki og ráðgjöf fagmanna sem henta fólki sem er að byggja eða endurbæta. -ÓTT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.