Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Blaðsíða 21
LAUGARÐAGUR 2. JÚLÍ 1988. 21 Fjórðungsmót um helgina: Riðið á Kaldármela - helsti viðburður hestamanna í ár Stórir flotar hestamanna hvaö- anæva af landinu hafa undanfarið sést stefna á Kaldármela í Hnappa- dalssýslu en þar er haldið nú um helgina fjórðungsmót hestamanna á Vesturlandi. Reiðleiðir voru merktar í Mýrasýslu á mótstað og einnig leið- ir úr'Dölunum. Gera má ráð fyrir þúsundum hesta á mótinu og allt upp í tíu þúsund áhorfendur verði veður gott. Mikið átak hefur veriö gert til þess að taka á móti öllum þessum íjölda, m.a. hafa heilu jarðirnar verið girtar af í stykki svo að fara megi sem best um ferðahesta á mótinu. Fjöldi Fáksfélaga úr Reykjavík reið á mótið og önnur hestamannafélög skipulögðu hópreiðar þangað. Mörg- um hestamanninum frnnst slíkar ferðir hápunktur hestamennskunn- ar, þá eru þeir í fullkomnum tengsl- um viö landið sitt, klárana sína og góða félaga. Algengasta reiðleiðin vestur úr Reykjavík er um Þingvöll og síðan ur Lundarreykjadal og hjá Hesti að Hvítárbrú. Þeir sem kjósa smáævintýri fara frá Þingvöllum hjá Svartagili, Gagn- heiöina undir Botnssúlum hjá Hval- vatni og síðan milli Veggja og Kvíg- indisfells í Eiríksvatn og sem leið liggur niður Skorradalinn. Afréttar- girðing flækir þó lítillega þessa leið, betra að vita vel hvar Miðið er á henni. Útreiðar um fjöll og firnindi gefa sérstaka tilflnningu sem hestamenn þrá allan veturinn. Allir þeir sem kynnst hafa töfrum íslensks öræfa- heims kannast við þessa tilfinningu. Útiveran, hreina loftið og sjálf hreyf- ingin örvar menn og hressir og svo kóróna gæðingsins stoltu og sterku tök allt saman. Vel heppnað ferðalag á hestum gerir knapana að nýjum mönnum og þar hjálpast ótalmargt að. Kaldármelar eru í hjarta eins feg- ursta útreiðasvæðis sem til er. Marg- Stundum er erfitt að halda í einn hest og beita öðrum. um Víðiker, Uxahryggjaleið ofan í Skorradal. Þá yfir Hvítárbrúna gömlu hjá Hvítárvöllum og síðan um Valbjarnarvelh með Múlum vestur yfir Hítará og þá beint á Kaldármel- ana. Ótal tilbrigði eru á þessari leið en stysta leiðin vestur er um Svína- skarð upp úr Mosfellssveitinni að Möðruvöllum í Kjós og síðan Reyni- vallaháls í Brynjudal og Botnsdal. Þá síldarmannagötur í Skorradalinn og sem leið liggur vestur. Þá er hægt að fara á Þingvöll og um Leggjabrjót í Botnsdalinn og Síld- armannagötur í Skorradahnn. Einn- ig er hægt að fara beint af Uxahryggj- um niður í Flókadal og síðan nær beina stefnu á Valbjarnarvelli um Borgarfjörðinn þveran. Þeir sem telja ekki eftir sér smákrók geta líka farið Okveg af Uxahryggjum niður í Reykholtsdal eða bara þreytt Skúla- skeið í annað sinn og riðið Kaldadal af Uxahryggjum niöur að Húsafehi þar sem Sörli er heygður með öhum tygjum. Þá er hægt að fara beint nið- Guðni Haraldsson á Grimsstöðum á Mýrum hólfaði heila jörð niður til þess að sem best mætti fara um ferðahesta á mótinu. ir sem á annað borð eru komnir með hrossin sín þangað hugsa sér gott til glóðarinnar með útreiðar eftir mótið. Þá verður mörgum hugsað til Löngu- fjara en með kunnugum er næstum hægt að ríða fjörurnar út af Mýrun- um frá Borgarnesi til Búða á Snæ- fellsnesi. í slíkri reið er ekki amalegt að kynnast flugvekurð gæðinganna. Einnig má ríða um hina undurfógru Baulárvelli í Helgafellssveit og síöan Skógarströndina í Dali. Þá Langa- vatnsdal í Borgarfjörð um Sópanda- skarð. Eða norður um Dali í Húna- þing. Hvert sem ferðinni er heitið á margur hestamaðurinn eftir aö taka undir með skáldinu: „En á Blesa eru mér - allir vegir færir." Góða ferð og fariö þið varlega. Guðlaugur Tryggvi Karlsson <*<:... Valdi, Kalli og Bjarni úr Reykjavík komnir á Hvítárvelli i Borgarfirði á tveimur jörpum og glófextum frá Skarði á Landi. ÆVINTÝRALEGA GÓÐAR I LIBERO BLEIUR Falla eins og buxur að kroppnum Þynnri bleiur en . taka meiri bleytu. NÆMISPRÓFAÐAR POTTÞÉTTAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.