Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1988, Blaðsíða 6
30 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988. Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir - Háskólabíó KRÓKÓDÍLA-DUNDEE II Paul Hogan er kominn aftur í hlut- verki Michaels Dundee, ööru nafni Krókódíla-Dundee. Þessi sjarmer- andi hetja, sem heillaöi alla í fyrra, lendir í nýjum ævintýrum þar sem hann þarf að hverfa aftur á heima- slóðir í Ástralíu. Linda Kozlowski endurtekur hlutverk sitt og leik- stjóri er sá sami, John Cornell. Hinn létti húmor og ævintýrablær- inn, sem einkenndu fyrri myndina, eru hér til staðar. Sem sagt, góð skemmtun. Bíóhöllin RAMBO III Sylvester Stallone fer í þriðju myndinni um fyrrverandi Viet- namhermanninn, John Rambo, til Afganistan í leit að yfirmanni sín- um og vini sem Rússar hafa tekið höndum. Eins og við er áð búast lendir Rambo í miklum og blóðug- um átökum. Rambo III, sem er ein dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið, svíkur engan sem á annað borð vill hafa spennumyndimar dálítiö krassandi. BEETLEJUICE Michael Keaton leikur aðalhlut- verkið í þessari makalausu grín- mynd sem fjallar að mestu um drauga, góða sem vonda, og við- skipti þeirra við lifandi fólk. Titil- persónan, Beetlejuice, er persóna sem fengin er til að fæla fólk úr húsi sem ung, nýlátin hjón tileinka sér. LÖGREGLUSKÓLINN 5 Þeir sem séð hafá fyrri myndir um hina snarrugluðu lögregluþjóna, sem útskrifuðust í fyrstu mynd- inni, vita á hverju þeir eiga von. Hugmyndin er oröin nokkuð út- þynnt en ágætir brandarar inni á milli. Bíóborgin ÖRVÆNTING - sjá grein til hliðar RAMBO III - sjá Bíóhöllina . BEETLEJUICE - sjá Bíóhöllina HÆTTUFÖRIN Hér er á ferðinni hörkuspennandi mynd sem íjallar um eltingarleik við morðingja og mannræningja í óbyggðum. Aðalhlutverk leikur Sidney Poitier og er þetta hans fyrsta kvikmynd í mörg ár. Tom Berenger, stjarnan úr Platoon, fer með hitt aðalhlutverkið. Þetta er mynd fyrir þá sem vilja hasar og spennu. Hættuförin er einnig sýnd i Bíóhöllinni. Laugarásbíó SKYNDIKYNNI Skyndikynni íjallar um leit tveggja vinkvenna að draumaprinsinum, en breytt viðhorf níunda áratugar- ins setja þeim vissar hömlur. En löngunin er oft sterkari en siðgæð- ið og þaö bitnar á þeim. Það birtir hjá þeim er þær ákveða að dvelja á heilsuhæli. Aðalhlutverkin leika Lea Thompson og Victoria Jack- son. SOFIÐ HJÁ Sofið hjá (Cross My Heart) er sága um tvær góðhjartaðar persónur, Eavid og Kathy, sem laðast hvor að annarri. David vill á þriðja stefnumótinu fá Kathy upp í rúm til sín en Kathy vill kynnast honum betur. Sofið hjá er raunsæ gaman- mynd með Martin Short og Anette O’Toole í aöalhlutverki. SKÓLAFANTURINN Skólafanturinn er gamanmynd sem fjallar um raunir mennta- skólanema sem verður það á að reita skólafantinn til reiði. SVÍFUR AÐ HAUSTI Þessi hugljúfa kvikmynd íjallar um tvær systur sem hafa eytt sum- arfríi sínu á sama stað í sextíu ár. Aðalhlutverkin leika hinar öldnu stjörnur Bette Davis og Lillian Gish. Þetta er mynd sem óhætt er að mæla með. HÚSIÐ UNDIR TRJÁNUM Regnboginn heldur áfram sýning- um á frönskum gæðamyndum. Leikstjóri myndarinnar Húsið undir trjánum (La maison sous les arbes) er Rene Clement sem lengi hefur verið í fremstu röð franskra leikstjóra. í þetta skipti eru banda- rískir leikarar í aðalhlutverkum, Faye Dunaway og Frank Langella. NÁGRANNAKONAN Francois Truffaut er látinn en eftir hann liggja mörg meistaraverk og er Nágrannakonan eitt þeirra. Að- alhlutverk leika Fanny Ardant og Gerard Depardieu. Þetta er mynd fyrir kvikmyndaáhugamenn, sem og aðra unnendur góðra lista. KÆRI SÁLI Dan Aykroyd og Walter Matthau leika í þessari gamanmynd sem fjallar um leikmann í sálfræðings- hlutverki. HENTU MÖMMU AF LESTINNI Þessi ágæta grínmynd er komin aftur á hvíta tjaldiö og þeim sem ekki hafa séð hana er bent á grín- mynd sem virkilega er gaman að. Stjörnubíó NIKITA LITLI Nikita litli fjallar um Jeff, sautján ára skólastrák, sem kemst að óhugnanlegu leyndarmáli foreldra sinna þegar alríkislögreglan kann- ar uppruna þeirra. Leikstjóri er Richard Benjamin og aðalhlut- verkin leika Sidney Poitier og sá leikari sem spáð er mestum frama í Hollywood, River Phoenix. ENDASKIPTI er gamanmynd sem fjallar um feðga sem skipta um hlutverk. Marshall Seymour og ellefu ára sonur hans, Charlie, skipta óvart um líkama. Þetta veldur að sjálf- sögðu vandræðum. Aðalhlutverkið í þessari ágætu gamanmynd leikur Judge Reinhold sem er sjálfsagt þekktastur fyrir samstarf sitt við Eddie Murphy í Beverly Hills Cop gamanmyndunum. ÞRÍR MENN OG BARN Þessi vúnsæla og ágæta gaman- mynd er vel bíóferðar vúrði. Fjaílar hún um þijá piparsveina sem taka að sér uppeldi á kornabami. Þetta er upprunalega frönsk hugmynd, yfirfærð á Bándaríkin. ALLT LÁTIÐ FLAKKA Eddie Murphy er sagður stórkost- legur á sviði. Hér er tækifæri til að sjá hvort satt reynist. Regnboginn LEIÐSÖGUMAÐURINN Þessi norska kvikmynd, sem gerist á Samaslóðum í Norður-Noregi, hefur hvarvetna hlotið einróma lof og var tilnefnd til óskarsverðlauna. Ekki skemmir það að einn aðalleik- arinn er Helgi Skúlason. Það verð- ur enginn, sem ann góðum kvik- myndum, svikinn af Leiðsögu- manninum. Það verða mörg Ijón á veginum þegar Richard Walker (Harrison Ford) ákveður að leita sjálfur að eiginkonu sinni. Bíóborgin: Örvænting Eftir hina misheppnuðu sjóræn- ingjamynd sína, Pirates, er Roman Polanski kominn á góða ferð í nýj- ustu kvúkmynd sinni, Örvæntingu (Frantic), sem er hörkuspennandi og dularfull sakamálamynd er ger- ist í París. Harrison Ford leikur Richard Walker, bandarískan lækni sem veröur fyrir óvæntri lífsreynslu þegar hann er, ásamt eiginkonu sinni, í París. Á óskOjanlegan hátt hverfur hún. Örvæntingarfull leit hans leiðir hann inn í undirveröld Parísar þar sem hann hittir unga og fagra stúlku sem kann aö vera lykillinn að hvaríi eiginkonuhans. Harrison Ford er ein skærasta stjama kvúkmyndanna og.var það sannarlega hvalreki á flöru Pol- anskis að fá hann í aðalhlutverkið. Eftir hina slæmu útreið, sem Sjó- ræningjarnir fengu, blés ekki byr- lega fyrir honum. Þegar hann aftur á móti hafði tryggt sér Ford opnuð- ust pyngjur peningamanna og ár- angurinn er sérlega spennandi sakamálamynd sem er flókin og dularfull. Harrison Ford leikur lækni sem verður fyrir þeirri reynslu að eigin- kona hans hverfur sporlaust. Sú er leikur ungu stúlkuna er ung, frönsk leikkona, Emmanuelle Seigner, sem er sambýliskona Pol- anskis. Roman Polanski hefur áður tekist vel við sakamálamynd og er Chinatown þar fremst í flokki. Ör- vænting bætist nú við þann hóp mynda Polanskis sem teljast með hans betri. HK. Spennandi atriði er gerist á húsþaki í París. Harrison Ford og Emmanu- elle Seigner í hlutverkum sínum. SÖLUFÓLK Starfskraftur óskast til sölu- og kynningarstarfa og auglýsingasöfnunar. Vinna í gegnum síma (má vinnast heima). KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN ÞVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVÍK © 62 10 05 OG 62 35 50 VEISTU ... að aftursætið fer jafnhratt og framsætið. SPENUUM BELTIN hvar sem við sitjum í bílnum. || UMFERÐAR Ferðalög Utivistarferðir Helgarferðir 5.-7. ágúst. 1. Fjölskylduhelgi í Þórsmörk. Tilvalin ferð fyrir unga sem aldna. Dagskrá: Rat- leikur, léttar gönguferðir, pylsugrill, kakó, leikir og söngur. Gist í Utivistar- skálunum Básum meðan pláss leyfir, annars tjöld. Afsláttarverð og frítt fyrir böm yngri en 10 ára með foreldrum sín- um. 2. Kjalarferð. Fjölbreytt ferð. Gist í skála í Svartárbotnum. M.a. Þjófadalir, Oddnýjarhnúkur, Hveravellir og Kerl- ingarfjöll. Gönguferðir, fjallagrös, laug- arböð. 3. Þórsmörk. Venjuleg helgarferð sam- eiginleg fjölskylduhelginni og á sömu af- sláttarkjörum. Farastjóri Kristján M. Baldursson. Uppl. og farm. á skrifstof- unni, Grófmni 1, símar 14606 og 23732. Sjáumst. Sunnudagsferðir 7. ágúst. Kl. 8: Þórsmörk, einsdagsferð. Verð kr. 1.200. Kl. 10.30: Leggjabrjótur. Gengin gamla þjóðleiðin úr Brynjudal að Svartagili við Þingvelli. Skemmtileg gönguleið. Kl. 13: Þingvellir - Hrauntúnsgata. Gengin áhugaverð þjóðleið, m.a. hjá gömlu eyðibýlunum á ÞingvöUum. Verð kr. 900. Miðvikudagsferð í Þórsmörk 10. ágúst kl. 8. Ódýr sumardvöl í Útivistarskálun- um Básum. Hægt að dvefja til fóstudags, sunnudags eða lengur. Kl. 20: Bláfjöli, útsýnisferð með stóla- lyftu. Verð 800 kr. Brottfór frá BSÍ, bens- ínsölu. Ferðafélag islands Helgarferðir 5.-7. ágúst: 1. Fjallabaksleiðir nyröri og syðri. Leiðin liggur um Eldgjá - Hólmsárlón - Rauðubotna og Álftavatn. Gist í sæluhúsi FÍ. 2. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála í Langadal. 3. Landmannnlaugar - Eldgjá. Gist í sæluhúsi FÍ í Landmannalaugum. Upp- lýsingar og fanniðasaia á skrifstofu Ferðafélagsins, Öldugötu 3. Kvöldkaffi með kór víðistaðakirkju suimudagskvöldið 7. Flenborgarskóla ágúst kl. 20.30. Þetta verðrn- lokaátak í tilefiii af utanlandsfór kórs Flensborg- kórsins til fiáröfiunar. Kórstjóri er arskóla heldur kórinn kvöldskemmtun í Margrét Pálmadóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.