Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Gjaldþrot Halldórs Ekki má kenna Steingrími Hermannssyni einum um hrun sjávarútvegsins, sem hann segir sjálfur, að nálgist þjóðargjaldþrot. Höfuðpaur miðstýringarinnar, sem hef- ur leikið sjávarútveginn grátt í tíð nokkurra skaðlegra og síversnandi ríkisstjórna, erHalldór Ásgrímsson. Steingrímur afsakar sig líka með því að hafa verið í fílabeinsturni, meðan hann fékk ekki að vera forsætis- ráðherra. En nú er hann orðinn landsfaðir að nýju og ætlar sér að ganga lengra á braut miðstýringarinnar, sem stefnir að gjaldþroti sjávarútvegs og þjóðfélags. Fastgengisstefna síðustu stjórnar var einn mikilvæg- asti þátturinn í hruni sjávarútvegsins. Hún hefur löng- um verið trúaratriði Steingríms og hin síðustu ár notið óverðskuldaðs stuðnings úr hópi hagfróðra manna. Með henni keypti þjóðin meira vandamál fyrir minna. Steingrímur og raunar fleiri höfðu séð, að gengis- lækkanir átust yfirleitt upp á nokkrum tíma. Þær voru yfirleitt undanfari kröftugrar sveiflu verðbólguhjólsins. Því var farið að kenna þeim um ýmislegt, sem aflaga fór í þjóðfélaginu. Þær fengu á sig illt orð. Þótt segja megi, að áhrif gengislækkana séu slæm, eru þó margfalt verri áhrif gengisfrystingar. Þjóðin hef- ur lifað af ótal gengislækkanir og eflt hag sinn um leið. En hún hefur ekki þurft nema tveggja ára fastgengis- stefnu til að komast í námunda við gjaldþrot Halldórs. Steingrímur og félagar hans í fyrri ríkisstjórn losn- uðu við vandamál gengislækkana með því að fá í stað- inn margfalt hættulegri vanda fastgengi.sstefnu. Með henni neita menn nefnilega að gefast upp fyrir stað- reyndum lífsins og berjast um á hæl og hnakka. Persónugervingur þrjózkunnar er ekki Steingrímur, heldur Halldór Ásgrímsson. Hann mun seint gefast upp í hvaladeilunni, hvernig sem viðrar, því að hann kann ekki að hætta. Hann mun ekki heldur hætta við miðstýr- inguna, sem hann hefur leitt yfir sjávarútveginn. Bezt væri auðvitað að hætta þessari gengisskráningu af hálfu stjórnmálamanna. Bezt væri að leyfa genginu að skrá sig sjálft frá degi til dags, án kollhnísanna, sem stjórnmálamenn miðstýringarstefnunnar framleiða, þegar þeir viðurkenna staðreyndir seint og um síðir. Til þessa er Steingrímur ófáanlegur, enda telur hann, aö svart sé hvítt og hvítt sé svart. Að hans mati er það ekki miðstýring ráðherranna, sem hefur gert sjávarút- veginn gjaldþrota, heldur stefna frjálshyggjugaura úti í bæ og úti í Efnahagsframfarastofnuninni, OECD. Sú ágæta stofnun, sem fer í taugar Steingríms, hefur ekki alltaf rétt fyrir sér og fylgist of seint með breyttum aðstæðum á íslandi. En pappírar hennar segja þó í stór- um dráttum ekki aðra sögu en heilbrigð skynsemi sagði, löngu áður en hagfræðingagengin komu til sögunnar. Efnahagsframfarastofnunin hefur lagt til, að milduð verði miðstýring kvótakerfisins með því að kvótar verði seldir og keyptir á opnum markaði. Þessi sjálfsagða til- laga hljómar eins og grimmasta frjálshyggja í eyrum Steingríms Hermannssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Þessir tveir menn hafa meira eða minna stjórnað sjáv- arútveginum um langt skeið. Þeim hefur með aðstoð Sjálfstæðisflokks tekizt að breyta góðæri í heimatilbúna kreppu á aðeins tveimur árum. Samkvæmt síðustu upp- hrópunum Steingríms verður kreppan nú enn hert. Forsenda þess, að þjóðinni fari að vegna betur að nýju, er að hún losi sig við þessa tvo ráðherra, einkum þó þann, sem hefur límt sig við stól sjávarútvegsins. Jónas Kristjánsson Frumkvæði Gorbatsjovs í veikri stöðu Bush Þegar helsta kaupsýslublaði Bandaríkjanna, fremsta heims- fréttablaðinu og ráðunautum Gor- batsjovs Sovétleiðtoga í utanríkis- málum ber saman um stöðuna í skiptum risaveldanna að nýaf- stöðnum forsetakosningum í Bandaríkjunum þarf vart frekari vitna við. Tilkynning Mikhails Gorbatsjovs um að hann eigi brýnt erindi á Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og vilji gjarnan hitta frá- farandi og tilvonandi forseta Bandaríkjanna í leiðinni sýnir að Sovétmenn gera sér engu síður en Wall Street Journal og Internatio- nal Herald Tribune grein fyrir því að lykillinn að farsælu upphafi for- setaferils George Bush felst í veru- legum árangri i afvopnunarvið- ræðum Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna. í helgarblaði Wall Street Journal um síðustu helgi greinir James M. Perry frá áliti stjórnmálasérfræð- inga blaðsins sem „spá aðallega svartnætti og óförum á næstu vik- um og mánuðum". Fræðimenn úr hópi repúblikana, þeir John Sears og Kevin Phillips, leggja áherslu á að Bush komi umboðslaus í for- setaembættið, íhaldsarmur eigin ilokks vantreysti honum og stjórn- arandstöðuflokkur demókrata hafl eílt þingmeirihuta sinn. Ofan á allt þetta bætast svo horfurnar á að bakslagið eftir fyrirhyggjulausa fjármálastefnu undanfarinna ára sé yfirvofandi. „Niðurstaðan er,“ segir Perry, „að það verður erfitt og máske ógerlegt fyrir Bush að ná marktæk- um árangri í innanlandsmálum snemma á forsetaferlinum. Því er það, segir Sears, næstum öruggt, að Bush „efnir til fundar með Rúss- um og reynir að koma einhverju jákvæðu á skrið áður en hann fær yfir sig öll hin vandræðin. Hann höndlar við Rússa, og það verður vinsælt" hjá flestum Bandaríkja- mönnum en gerir líklega hægri sinnaða repúblikana enn tor- tryggnari en fyrr.“ í sama eintaki Wall Street Jour- nal útlista fréttamenn blaösins í Washington hvernig Bush og utan- ríkisráðherraefni hans, James Ba- ker, séu líklegir til að fjarlægjast stefnumál Ronalds Reagans í því skyni að komast á samstarfsgrun- dvöll við meirihluta demókrata á þingi. Ljóst sé að þeir muni sýna alvarlega viðleitni til að finna lausn eftir diplómatiskum leiðum á il- lindunum við stjórn sandínista í Nicaragua. Sömuleiðis muni það mælast vel fyrir á þingi ef reynt verði með viðræðum við Sovét- menn að komast að samkomulagi um túlkun gagneldflaugasamn- ingsins frá 1972 og þar með setja geimvarnaáætlun Reagans skorð- ur. Hægri menn verða auðvitað æfir yfir slíku, en það er bara betra, hafa fréttamennimir eftir Brent Scowcroft, flughershöfðingja á eft- irlaunum, sem talinn er manna lik- legastur til að verða settur yfir Þjóðaröryggisráöið í stjórn Bush. Bjóði nýi forsetinn ekki hægri öfl- unum birginn, segir Scowcroft, „verður forsetaferill hans ömur- legur“. I mánudagsblaði International Herald Tribune hefur Joseph Fitc- hett meira að segja af kostunum sem Bush og menn hans sjá við að leita eftir víðtæku samkomulagi við Sovétríkin um niðurskurð vopnabúnaðar. Þar sé ekki aðeins um að ræða að komast í takt viö þingmeirihluta demókrata, heldur einnig að efla sambandið við Evr- ópuríkin í Atlantshafsbandalaginu. Mestu skiptir þó, að sögn Fitchett, að á þessu sviði er að finna út- gönguleiö úr fjárhagsþrengingum Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson ríkissjóðs Bandaríkjanna. Nógu skjót niðurstaða í viðræðum um helmings fækkun langdrægra kjarnorkuvopna ætti til dæmis að duga til að knýja landvarnarráðu- neytið til að sleppa annarri hvorri tveggja rándýrra, nýrra kjarna- vopnaflauga, MX flauginni eða Midgetman. Anthony Harris, fréttaritari breska kaupsýslublaðsins Finan- cial Times í Washington, útlistar sama efni af enn meiri nákvæmni í mánudagsblaði. Eina ieiðin til að koma böndum á fjárlagahallann, sem varð hömlulaus í stjórnartíð Reagans, er að leggja til atlögu við útgjöldin til hermála. Á næstu árum koma til greiðslu óhemjufjár- hæðir vegna vopnakerfa sem heimiluð voru að frumkvæði Reag- ans. Fjárhæðin er talin 300 til 350 milljarðar dollara næstu fimm ár- in. Carlucci landvarnarráðherra hefur ekki dregið dul á að valið stendur milli þess, eins og fjárhag Bandaríkjanna er nú komið, að skera niður einhver þessara vopnakerfa eða láta niðurskurðinn bitna á almennum viðbúnaði og baráttuhæfni heraflans. - Við þetta bætist, segir Harris í Financial Times, að á síðustu mán- uðum hefur orðið að loka af örygg- isástæðum gömlum og úr sér gengnum framleiðsluverum fyrir kjarnorkusprengihleðslur og kveikjur, öllum með tölu. Kveikj- urnar endast aðeins takmarkaðan tíma, svo ef kjarnorkuverin komast ekki í gang aftur innan árs hefur það i för með sér sjálfvirka, ein- hliða afvopnun Bandaríkjanna. Auk þess að endurbæta verin þarf að þrífa óhemjumengun umhverfis þau. Kostnaðurinn, sem hvergi er enn kominn inn á fjárlagaáætlanir, gæti numið allt að 100 milljörðum dollara. Fjárhagsleg endimörk vígbúnað- arkapphlaupsins blasa því við, í Bandaríkjunum jafnt og Sovétríkj- unum. Af venjulegri pólitískri leikni hefur Mikhail Gorbatsjov séð sér færi að verða fyrri til, bjóða sjálfum sér til Bandaríkjanna á fund Bush og koma um leið fram með nýjar tillögur og nýtt frum- kvæði á Allsherjarþinginu. Ekki kæmi á óvart að þar yrði sérstök áhersla lögð á niðurskurð hefðbundins vopnabúnaðar og fækkun í herjum í Evrópu. Fyrir liggur tilboð Sovétstjórnarinnar um fækkun til jafnvægis eftir vopnategundum og hergreinum, þannig til dæmis að Sovétríkin yrðu að fækka í skriðdrekaskara sínum margfalt meira en Vestur- veldin. Markmiðið á að vera að herbúnaði Atlantshafsbandalags og Varsjárbandalags verði með gagnkvæmri afvopnun og eftirliti komið í það horf að varnir séu fyr- ir hendi en ekki árásargeta svo tor- tryggni valdi. Ríki Atlantshafsbandalagsins hafa ekki enn getað komið sér sam- an um svar við síðustu tillögum Varsjárbandalagsins um þetta efni. Þar á ofan er kominn upp ágrein- ingur um samhengi milli afvopn- unarviðræðna og endurnýjunar skammdrægra kjarnorkuvopna í Atlantshafbandalagsríkjum. Stjórnir Bandaríkjanna og Bret- lands vilja taka ákvörðun um end- urnýjun sem fyrst, en stjórnir Vest- ur-Þýskalands, Frakklands og Belgíu slá þvi á frest. Svona aðstöðu kann Gorbatsjov að nota sér, enda er hann orðinn sá stjórnmálamaður sem fólk ber mest traust til víða um Vestur- Evrópu, sér í lagi i Vestur-Þýska- landi. Andófshetjan Andrei Sakharov, höfuðsmiður sovésku vetnis- sprengjunnar, sat á miðvikudag áttræðisafmælisveislu frumkvöð- uls þeirrar bandarísku, dr. Ed- wards Tellers. Sakharov notaði tækifærið til að rústa stjörnustríðs- drauma afmælisbarnsins, en Teller var sá sem kom flugunni um geim- varnaáætlun til að gera kjarnorku- vopn úrelt í kollinn á Ronald Reag- an. Meiri firru getur ekki, sagði Sa- harov, en að geimvarnaáætlun stuðh að friði -og stöðugleika. Hún væri þvert á móti líkleg til að valda kjarnorkustyrjöld, því í henni felst sífelld freisting fyrir hugsanlegan andstæðing að ónýta búnaðinn í geimnum. Þar að auki standa áformin ein um geimhernað nú þegar í vegi fyrir merkum árangri í afvopnunarsamningum og á Sak- harov þar við hugmyndina um helmings fækkun langdrægra kjarnavopna. Magnús Torfi Ólafsson Kjarneðlisfræðingnum og andófsmanninum Andrei Sakharov (t.h.) var tekið með kostum og kynjum i Bandaríkjunum þegar hann fékk i fyrsta skipti að fara úr landi í Sovétríkjunum, Hér ræðir hann við George Bush forsetaefni í Hvíta húsinu, daginn áður en hann varaði við geim- varnaáætluninni í afmælisveislu Edwards Tellers. Túlkur í miðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.