Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1989. LífsstíU 1300% verðmunur á snyrtivörum - mánaðarkúr af megru n a r kremu m á rúmlega 15.000 krónur Eitt fjölmargra krema sem fást í snyrtivöruverslunum og ætlaö er að eyða appelsinuhúð og minnka fitumyndun undir húðinni. DV-mynd BG Verðmunur á Gernétic megrunar- kremum samanborið við svipaöa "^heðferð frá öðrum snyrtivörufram- leiðendum er mest 1300% og minnst . 680% eftir því við hvaða tegund aöra ermiðað. í snyrtivöruverslunum er hægt að fá úrval af kremum og áburði sem eiga að eyða svokölluðu cellulite undir húöinni og hafa grennandi áhrif. Flest snyrtivörufyrirtæki bjóða krem af þessu tagi og kostar mánaðarskammtur 1.050-1.900 krón- ur. Hægt er að fá megrunarkrem frá Clarence sem á að eyða cellulite og kostar mánaðarskammturinn um 1.500 krónur. Frá sama fyrirtæki er vatnslosandi olía sem er borin á lík- amann og á að hafa grennandi áhrif U5g kostar skammtur til eins mánaðar 1.100 krónur. Biotherm hlaup kostar 1.402-1.782 hver 10 daga skammtur. Krem frá Maria Gallant kostar 1.805 krónur mánaðarskammtur og Elan- cyl MP 24 kostar 1.526 krónur mán- aðarskammtur. Verð á þessum teg- undum er víðast hvar mjög svipaö. Gernétic marg- falt dýrara - í versluninni Mirru í Hafnar- stræti og í Topptískunni Aðalstræti fást megrunarkrem frá franska fyrir- tækinu Gernétic og kostar hver skammtur 14.400 krónur til 15.200 krónur. Skammturinn á að duga í rúman mánuð. Mælt er með að notuð séu saman þrjú mismunandi krem sem eru bor- in á líkamann og á notandinn að grennast fyrir áhrif þess. Kremin heita Artera, Vasco, Somido og Gasta og eru notuð í tveimur mismunandi samsetningum. Verðmunur á Gernétic og öðrum merkjum- er mestur 1300% og minnstur 680% eftir því við hvaða merki er miðað. Neytendasíðu DV er kunnugt um að Neytendasamtökunum hafa bor- ist upphringingar vegna verðlagn- ingar á Gernétic vörum og hafa við- skiptavinir haldið því fram að áburð- urinn virki ekki sem skyldi. Áðurnefndar verslanir, sem eru einu sölustaðir þessara vara fyrir utan innflytjandann, selja Gernétic vörur á svipuðu verði. Afgreiðslufólk þessara verslana kannaðist ekki við að kvartanir hefðu borist frá óánægðum við- skiptavinum en á báðum stöðum kom fram að verulega hefði dregið úr sölu Gernétic vara frá því að inn- flutningur hófst síöla árs 1988. Haft var samband við Guðlaugu Jónsdóttur, innflytjanda Gernétic, en hún vildi ekkert láta hafa eftir sér um verðlagningu varanna. Ekki fékkst leyfi til þess að mynda Ger- nétic vörúr í þeim verslunum sem hafa þær á boðstólum. Þrír húðsjúkdómalæknar, sem DV hafði samband við, sögðust ekki kannast neitt við þau krem og hlaup sem hér er rætt um. Hins vegar voru þeir sammála um að ekki væru þekkt nein krem sem grenntu fólk svo sannanlegt væri. -Pá NÆST Á DAGSKRÁ RAUÐUR GINSENG! Uppl. í simum 10004/21655 Mímir Ætlarðu út að hlaupa? Nú standa yfir útsölur í mörgum verslunum sem selja íþróttafatnað og vörur. Þeir sem eru að hugsa um að fara út að hlaupa eftir átveislur jóla og áramóta geta því keypt sér þar til gerða skó til hlaupanna á lægra verði en venjulega. Grófgerðir og góðir hlaupaskór eru nauðsynlegir ef hlaupið er á malbiki. Verð á slíkum skóm frá þekktum merkjum er afla jafna frá 3.500 krón- um og allt að rúmum 5.000 krónum. Það munar því talsvert um 30-50% afslátt sem víða er boðið upp á þessa dagana. Hægt er að fá mjög sæmilega skóá 2.000-2.500 krónur. -Pá Faxkröfur: 500 krónur á hverja sendingu - meðaltaiskostnaður, segja fulltrúar Pósts og síma „Það var fundið ákveðið meðaltals- gjald fyrir þessa þjónustu," sagði Gylfi Gunnarsson aðstoðarpóstmála- fiflltrúi í samtali við DV um gjald- töku Pósts og síma af faxkröfum. Gjald fyrir faxkröfur, sem tekið hafa við af póstkröfum þegar um er aö ræða sendingar yfir 20 kílóum, er 500 krónur fyrir hverja sendingu. „Það er mikil vinna við þetta fyrir okkar fólk, það eru þijár póstfax- sendingar í hverri kröfu, það þurfti að búa til eyðublöö og fleira. Við höfum ekki orðið varir við neina óánægju enda verða menn bara að horfast í augu við að þetta er það sem hluturinn kostar,“ sagði Gylfl. Kostnaður við að senda þijár blað- síður í póstfaxi er 440 krónur. ,Póst- kröfugjald er 164 krónur. Komið hef- ur fram nokkur óánægja með gjald- töku Pósts og síma fyrir þessa nýju þjónustu en formi þessu var fyrst og fremst breytt vegna vaxandi van- skila. -Pá / •ss Offita er vel þekkt vandamal t nútímaþjóðfélagi og fólk grípur til ýmissa ráða til þess að ná af sér aukakíló- um. Ekki hefur tekist að sanna neitt um að hægt sé grenna of feitt fólk með smyrslum og áburði. í snyrtivöruverslunum stendur fólki engu að síður til boða fjöldi grennandi krema og kostar mánaðar- skammtur allt að 15.000 krónum. Taxti opinberra stofhana: Að mestu und- anþeginn verð- lagseftirliti „Verðhækkanir á opinberri dómsmálaráðuneytinu með reglu- þjónustu heyra ekki undir Verð- gerð og heyrir því ekki undir Verö- lagsstofnun nema þegar um er að lagsstofnun. ræða hækkanir vegna erlendra Póstur og sími hefur tekiö upp aðfangahækkana," sagði Guð- breytt form á póstkröfusendingum mundur Sigurðsson, starfsmaöur útálandmeðmeiraen200%hækk- Verölagsstofnunar, í samtali við un á gjaldi fyrir þjónustuna. Guö- DV. mundur Sigurðsson hjá Verðlags- Hækkanir á margs konar þjón- stofiiun kvað það tilfelli ekki hafa ustu hafa verið geröar heyrin- komið til kasta stofnunarinnar og kunnar undanfarna daga. Leyfðar benti á að taxti opinberra stoftiana hafa verið hækkanir á taxta dans- heyrði ekki undir Verölagsstofhun. skóla og skíðalyfta á grundvelli I bráðabirgðalögura ríkisstjóm- þess að þjónusta þessara aðila hafi arinnar segir að þjónusta opin- síðast hækkaö fyrir ári. berra aðila skuli ekki hækka fyrir Breytt fyrirkomulag á bifreiöa- 28. febrúar nema um hækkun á skoðun hefur haft i för meö sér erlendum aðfóngum sé að ræða. margfalda hækkun á þjónustu við Slíku er ekki til að dreifa í þessum bifreíðaeigendur. Taxti Bifreiöa- tveimur tilfelium. skoðunar íslands er ákveöinn af

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.