Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 3
MIÐiVEHUDAGÍUBLlð.' MARS 1989.. at DV Tvöfalt fleiri atvinnulausir en í fyrra: Fréttir Mest atvinnuleysi á Norðurlandi vestra Atvinnuleysi í febrúarmánuði jafngilti því að um 2.628 íslendingar gengju atvinnulausir þann mánuð. Þessi fjoldi er um 2,1 prósent af öllu vinnuafli á íslandi. í sama mánuði í fyrra var um 0,6 prósent atvinnu- leysi. Atvinnuleysið er meira á lands- byggðinni. Á höfuðborgarsvæðinu voru um 857 atvinnulausir eða um 1,1 prósent af vinnuaflinu. Á lands- byggðinni var hins vegar 1.771 at- vinnulaus. Það jafngildir um 3,5 pró- sent atvinnuleysi. Atvinnuleysi á landshyggðinni er því rúmlega þrisv- ar sinnum meira en á höfuðborgar- svæðinu. Af einstökum landshlutum var ástandið verst á Norðurlandi vestra. Þar voru 277 atvinnulausir eða mn 6,5 prósent af vinnuaflinu. Á Suður- landi var 4,1 prósent atvinnuleysi, á Austurlandi 3,8 prósent og á Norður- landi eystra og Vesturlandi 3,6 pró- sent. Atvinnuástandið var best á höfuð- borgarsvæðinu en þar var 1,1 prósent atvinnuleysi í febrúar. Á Vestfjörð- um var 1,3 prósent atvinnuleysi og 2,4 prósent á Suðumesjum. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins hefur atvinnulausum íjölgað um 86 prósent frá sömu mánuðum í fyrra. Atvinnuleysi er einnig mun meira en á árinu 1986. Nú eru um 61 pró- sent fleiri atvinnulausir á fyrstu tveimur mánuðum ársins en þá. Á undanfomum árum hefur at- vinnuástandið verið mun verra í jan- úar og febrúar en á öðrum tímum ársins. Síðasthðin tvö ár hefur at- vinnuleysi í febrúar hins vegar verið um helmingi minna en í janúar. Nú er munurinn hins vegar mun minni eða 10 prósent -gse 6,47% Atvinnuleysið Höjúóborgarsv. 2,42% Reykjanes DFJRJ Ekið á tvö hross: Þingkona náði bílnúmerinu Danfríður Skarphéðinsdóttir, þingkona Kvennahstans á Vestur- landi, kom lögreglunni í Borgamesi til hjálpar um helgina. Það var fyrir helgi að ekið var á tvö hross með þeim afleiðingum að aflífa varð þau bæði á slysstaðnum. Sá sem ók á hrossin fór af vettvangi og skyldi hrossin iha særð eftir hggjandi á veginum. Lögreglan fann út hvemig bifreið sá seki ók. Þegar auglýst var eftir upplýsingum í fjölmiðlum höfðu nokkrir aðilar samband við lögregl- una - þar á meðal var Danfríður. Hún hafði verið á ferð í Borgarfirði og ökulag eins ökumanns vakti sérstaka athygh hennar. Danfríður skrifaði niður númer bifreiðarinnar. Bílstjór- inn, sem vakti svo athygli Danfríðar, var sá sami og ók á hrossin. Ökumaðurinn er Borgfirðingur. Þess má geta að lausaganga hrossa er bönnuð á því svæði sem ekið var á hrossin. -sme Jónas Hallsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar í Reykjavík, með óhlaðna og ryðgaða haglabyssu sem fannst á þaki hússins númer tvö við Lækjargötu. Talið er að unglingar hafi verið með byssuna. DV-mynd S SÓLARGLUGGAFILMUR ★ Við setjum Gila sóiargluggafilmu á skrifstofuna - vinnustað- inn og þú losnar við meira en helming sólarhitans. ★ Tölvarar, það verður þægi- legra að vinna við tölvuna - minni hiti á sólríkum dögum, jafnari og mildari birta, betra að sjá á skjá, minna um glampa og fiökt. ★ - Svarta Gila bíiafilman loksins komin aftur. ÍSáR0T BlLDSHÖFÐA 18, SlMI 672240 Til hátíðabrigða iw/úkkulaði og rjómi er samsetning sem getur ekki brugðist. Pað færðu að reyna þegar þú bragðar þennan - með súkkulaðibitunum. ( i m ■■ i ™ ;KVP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.