Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989. 33 Lífestm Oft er það svo aö minnihluti ibúa i fjölbýli telur sig ekki hafa efni á framkvaemdum. Þá kemur gjarnam tíi kasta fjölbýlishúsa- laganna eöa þá að reynt er aö komast að samkomutagi. DV-mynd BG Ef einn íbúð- areigandi neitar að taka þátt í fram- kvæmdum íbúi í fjórbýlishúsi spyr: Þríraffiórum eigendum fjölbýlis- hússins sem ég bý í viija setja Danfoss-hitakerfi í sameiginlega hitaiögn hússins. Ástæðan fyrir þessum frarakvæmdum er gam- alt kerfi sem hleypir hitakostnaöi óeðlilega hátt upp. En nú neitar einn eigandinn að taka þátt í framkvæmdunum. Getum við hinir hafið verkið á grundveili meirihlutasamþykkis - eða þarf samþykki allra til að málið nái í gegn? Svar: Breytingar sem þessar telj- ast ekki „verulegar" í skilningi 4. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 280/1976 úm samþykktir fyrir húsfélög. Því ræður einfaldur meirihluti atkvæða miðað við eignarprósentu, skv. 3. mgr. sömu greinar. Ákvarðanir sem þessar verður að sjálfsögðu að taka á löglega boðuöum hús- fundi. Hann skal boða með sann- anlegum hætti með átta daga fyr- irvara og tilgreina á í fúndarboði hvað ræöa skuh á fundinum. „Minnihlutinn“ (andvígir íbúð- areigendur) eru skyldugir til að leyfa aðgang að íbúð sinni til að framkvæma verkið. Auk þess eiga þeir að taka þátt í kostnaöin- um miðaö við eignarprósentu íbúðar sinnar. , ,Eignarprósenturegl- er ekki algild an - vegna viðhalds glugga í fjölbýlishúsi? Kona sem er íbúi í fjölbýlishúsi vill fá að vita nánar um „eignarprósentu- regluna“ vegna ýmissa viðhalds- framkvæmda við glugga. - Ég hef rekið mig á þá staöreynd að íbúðareigendur í fjölbýlishúsum eru mjög í vafa um hvemig kostnað- ur vegna viðhalds á gluggum er skipt. Mér er kunnugt um að sameig- inlegt viðhald utanhúss er yfirleitt greitt samkvæmt eignarprósentu. Hvað snertir glugga og umbúnað þeirra getur málið orðið dálítið flókið því þeir snúa bæði út og inn og þeir tilheyra ýmist séríbúð eða sameign. Ég vona að þú getir skorið úr um þessi atriði því tími viðgerða og við- haidsframkvæmda er genginn í garð. Svar: Eins og þú bendir á þá tilheyra gluggar ýmist sameign eða séríbúð og verður því svarið samkvæmt því. Hér er um að ræða íbúðaglugga að innan og utan, risglugga yfir séríbúð eða sameiginlegu lofti og glugga á stigagangi. 1. Varðandi íbúðaglugga skal greina í fyrsta lagi á milli glersins og glugga- umbúnaðarins - og í öðru lagi þess hluta gluggaumbúnaðar sem er inni í íbúðinni og þess sem er utanhúss. í 4. mgr. 11. gr. laga nr. 59/1976 um fjölbýlishús, er gler í gluggum und- anskilið sameiginlegu viðhaldi húss- ins að utan. Gleriö telst því í séreign íbúðareigenda. Allir eigendur hafa þó rétt til ákvörðunar um gerð glers í gluggum skv. 10 gr. laganna. Sá hluti gluggaumbúnaðarins sem er inni í íbúðinni er í séreign - sá sem er aö utan er í sameign. Byggist það á því að ytri gluggaumbúnaðurinn hefur áhrif á útht hússins, enda er hann ekki undanskilinn sameigin- legu viðhaldi hússins að utan. Við- hald á gluggaumbúnaði að utan er því sameiginlegur og skiptist kostn- aður niður á allar íbúðir hússins eft- ir eignarprósentu. Kostnaður vegna viðhalds glersins og gluggaumbúað- ar að innan bera íbúðareigendur sjálfir. 2. a) Sé þakgluggi yfir séríbúð í risi gilda um hann sömu sjónarmið og um aðra íbúðarglugga sbr. lið 1. - Séu þakgluggar hins vegar yfir sameigin- legu risi þá gilda um þá sömu reglur og um annað viðhald á þaki. Kostn- aður skiptist í samræmi við eignar- prósentu íbúða hússins. 3. Vegna glugga á stigagangi er rétt að benda á eftirfarandi í 6. grein fjöl- býlishúsalaganna. „Skipti veggur íjölbýlishúsi svo aðeins hluti íbúða er um sama gang, stiga, svalir, tröpp- ur eða annað sameiginlegt húsrými - en aðrir íbúðareigendur hafa þar engin afnot eða aðgang - telst það til þeirra íbúða einna.“ - Viðhald á gleri og innra byrði gluggaumbúnað- ar væri þvi eingöngu á kostnað íbúða í viðkomandi stigagangi. Viðhald á ytra byrði væri hins vegar á kostnað allra íbúða hússins sbr. 4 mgr. 11. gr. laganna. í fjölbýlishúsi er ekki sama hvort gluggaumbúnaöur snýr inn eöa út eða hvort gluggar eru i sameign eða séríbúð, sérrisi eða sameiginlegu risi. Þessa verður að taka tillit til þegar kostnaður er greiddur. DV-mynd BG Er kjallaraíbúðin sér eða ekki? Eigandi kjallaraíbúðar spyr: - I mörgum sameignum er sérinn- gangur í kjallaraíbúðir eins og þar sem ég bý. Mér leikur forvitni á að vita hvort kjallarahurð tilheyri sam- eign eða ekki þar sem hún er jú utan- húss. Á hússjóður að greiða við- haldskostnað vegna hennar? Svar: í 4. mgr. 11. gr. laga um fjölbýl- ishús segir: að allt viðhald á húsinu að utan sé sameiginlegt - að undan- skildu gleri í gluggum og hurðum íbúða - að öðru leyti en málning þeirra. Endumýjun útidyrahurðar á sérinngangi í kjallaraíbúð er því ein- göngu á kostnað eiganda hennar. Ef síðar þyrfti að mála þessa hurð að utan þá bæri öllum íbúum hússins að taka þátt í málningarkostnaði samkvæmt eignarprósentu. Máln- ingu á hurðina að innanverðu þyrfti kjallaraeigandinn að greiða einn eins og annað viðhald á íbúð sinni. Gerður Thoroddsen, lögfræðing- ur Húseigendafélagsins, svarar fyrirspurnum tesenda í dag. DV-mynd BG Lögfræóiþjónusta DV í dag: Mikið spurt um sameig- inlegar fram- kvæmdir og kostnað í fjölbýli I dag svarar Gerður Thorodds- en, lögfræðingur Húseigendafé- lagsins, spumingum frá lesend- um um húsnæöismál. Eins og svo oft áður fjalla fyrirspurnir um sameiginlegar ákvaröanir um ýmsar framkvæmdir og skipt- ingu kostnaðar vegna þeirra. Meirihluti íslendinga býr í fjöl- býli - húsum með tveimur eða fleiri íbúðum. Það er því brýnt að góð regla komist á samskipti íbúðaeigenda. Fjölbýlishúsalögin skera ih- um mörg vafaatriði og er eitt meginmarkraiða Húseig- endafélagsins að ieysa úr vanda- málum húseigenda og leigjenda. -ÓTT X-------------------------------------------------------- LUKKUPOTTUR VERALDAR, DV 0G BYLGJUNNAR LUKKUSEDILL HR. 3 VINNINGUR: TVEGGJA VIKNA DVÖL Á BENAL BEACH Á COSTA DEL SOL MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNI VERÖLD Nafn:___________:________~ Heimilisfang:__________ Sími:_ Vinsamlegast látið seðilinn minn í Lukkupottinn 1989 svo ég fái tækifæri til að vinna tveggja vikna dvöl á Benal Beach á Costa del Sol, að verðmæti kr. 55.540,- í Veraldarferð þann 18. júlí næstkomandi. nRflAMIflSTÖfllN Póstleggðu seðilinn strax í dag. Merktu umslagið: LUKKUPOTTURINN 1989 SNORRABRAUT54 105 REYKJAVÍK Hlustaðu á Bylgjuna í dag, FERÐALÖGIN koma í þessari röð: 1. FROÐAN - GEIRI SÆM 2. CROCKODILE ROCK - ELTON JOHN 3. TURN BACK THE CLOCK - JOHNNY HATES JAZZ Ég heyrði ferðalögin leikin í ofangreindri röð á Bylgjunni, FM 98,9 í dag kl. _______________ BYLGJAN,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.