Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1989, Síða 32
F R ÉTTA S K
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháö dagblað
FIMMTUDAGUR 13. JÚU 1989.
Sakadómur Reykjavíkur:
Flugumferðar-
stjóri og flug-
, stjóri dæmdir
Flugstjóri, hjá Flugleiðum, og flug-
umferöarstjóri hafa verið dæmdir í
sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi
vegna atviks sem átti sér stað
snemma að morgni fimmtudagsins
6. september 1984. Þá lá við árekstri
tveggja þotna Flugleiða. Þoturnar,
sem eru af gerðunum Boieng 727-200
og DC-8, voru báöar að fara í flug til
Evrópu. Um borð í þeim voru 403
manns. Þoturnar fóru í loftiö með
mjög skömmu millibili.
Þrátt fyrir aö fjarlægð á milli vél-
anna hafi verið mjög lítil, eða 30 til
60 metrar að mati flugstjórans á
DC-8 véhnni, breytti flugstjóri Bo-
eing þotunnar ekki um flugstefnu og
hélt ferð sinni áfram óhikað. Flug-
stjóri Boeingþotunnar var dæmdur
svo og flugumferðarstjórinn sem gaf
flugheimildirnar.
Ármann Kristinsson sakadómari,
Sigurður Líndal prófessor og Þor-
steinn Jónsson flugstjóri kváðu upp
dóminn. Flugstjóranum og flugum-
ferðarstjóranum var gert að greiða
allan málskostnað. -sme
Akureyri:
- Eldur í
sútuninni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Eldurinn var í því sem við getum
kailað affallshús, en okkur tókst aö
varna því að hann kæmist inn í sjálft
húsið. Ef það hefði gerst hefði þaö
getað oröið stórmál því þar inni er
mikill eldsmatur," sagði Tómas Búi
Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á Ak-
ureyri, í morgun er DV ræddi við
hann við sútunarstöð Iðnaðardeildar
Sambandsins.
Þar kom upp eldur um kl. 6 í morg-
un í litlu húsi sem er áfast aðalbygg-
»» ingunni. Slökkviliðinu tókst að verja
aðalbygginguna fyrir eldinum, en
mikill reykur var þar inni. Tjón mun
því ekki hafa orðið verulegt á skinn-
um sem voru í vinnslu en tæki sem
hreinsa loft úr vinnslusalnum munu
að sögn Tómasar Búa vera ónýt.
Nýr bæjarfógeti
á Ólafsfirði
Kjartan Þorkelsson hefur verið
skipaður bæjarfógeti á Ólafsfirði.
Kjartan hefur starfað sem fulltrúi
sýslumannsins í Rangárvallasýslu
undanfarin ár.
* Auk Kjartans sótti Ólafur Ólafsson,
fulltrúi hjá bæjarfógetaembættinu á
Akureyri, um stöðuna. -hlh
LOKI
Skilur þetta viðeig-
andi svar eftir skófar?
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Greinargerð Hannesar
byggð á vanþekkingu
- verður svarað á viðeigandi hátt segir ráðherrann
„Greinargerð Hannesar eða rit-
smíð, að svo miklu leyti sem hún
er svaraverð - en hún byggist á
allsherjar misskilningi og van-
þekkingu á þeim verkefnum sem
hér eru unnin, verður svaraö á við-
eigandi hátt innan ráðuneytisins.
Ég hef lýst þvi yfir að ég ræði ekki
þetta mál í fjölmiðlum enda hefur
utanríkisráðherra annað með tíma
sinn að gera en að standa í orða-
skaki við starfsmenn. Þessari
greinar gerð verður svar að á viöeig-
andi hátt,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráöherra
en ennþá hefur ekki komiö svar
við greinargerð Hannesar Jónsson-
ar sendiherra vegna þeirrar deilu
sem komiö hefur upp á milli hans
og ráðherra útaf heimasendiherra-
embættinu.
- Erekkialvarlegtaðásakastarfs-
mann utanríkisráðuneytisins, sem
hefur starfað þar í 35 ár, um van-
þekkingu?
„Þaö er ekkert alvarleg ásökun
heldur mat á tilskrifinu. Hér er um
að ræða heimasendiherra sem á að
gegna frá Laugaveginum sendi-
herrastarfí til allmargra þjóðríkja
í tveimur heimsálfum. Hann situr
Qarri vettvangi ráðuneytisins og
hefur greinilega, þegar tilskrifið er
lesið, ekki kynnt sér hver eru for-
gangsverkefni og meginverkefni
ráðuneytisins," sagðiutanríkisráð-
herra.
-SMJ
Guðrún Guðnadóttir, Hörpulundi 2 í Garðabæ, var að mála húsið sitt i
gær. Ekki veitir af að nota þær þurru stundir sem gefast á suðvesturhorni
iandsins. Hjólastóllinn var Guðrúnu engin fyrirstaða. Eða eins og hún sagði
sjálf: „Maður gerir það sem maður getur og þetta er eitt af því.“
DV-mynd Hanna
Ríkissjóöur:
Útgjöld 6 milljarða
fram úr fjárlögum
- hallinn 1 fimm ár 25,7 milljarðar
Samkvæmt endurskoðaðri áætlun
um afkomu ríkissjóðs á þessu ári er
gert ráð fyrir að heildarútgjöld ríkis-
ins verði rúmir 82 milljarðar. Það eru
tæplega 6 milljarðar umfram fjárlög.
Tekjur ríkissjóös verða á þessu ári
um 78 milljarðar samkvæmt áætlun-
inni eða um 1 milljarður umfram
Qárlög.
Um 630 milljóna króna tekjuaf-
gangur ríkissjóðs samkvæmt fjárlög-
um hefur snúist upp í um 4,2 millj-
arða halla. Ástæðan er fyrst og
fremst aukin útgjöld.
Tekjur ríkissjóðs hafa aldrei veriö
hærra hlutfall af landsframleiðslu en
í ár eða um 26,5 prósent. Það má
heldur ekki mikið út af bera í stjórn
ríkisQármála á síðari helmingi árs-
ins til þess að nýtt met verði slegið
í hlutfalli ríkisútgjalda af lands-
framleiðslu en þetta hlutfall er um
27,9 prósent samkvæmt áætluninni.
Þetta mun verða fimmta árið í röð
sem ríkissjóður er rekinn með um-
talsverðum halla. Samanlagður halh
þessara ára er um 25,7 milljarðar á
núvirði. -gse
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík:
Hálendið að þjóðgarði
- lögreglan dregur úr þjónustu á hálendinu
„Við höfum áhuga á hálendinu. Eg
hef lengi verið á þeirri skoðun að
gera eigi þjóðgarð á hálendinu og
reka hann eins og fyrirtæki. Það á
að taka gjald af þeim sem þangað
fara og veita ferðalöngum þjónustu
og leiðsögn. Þetta hefur verið gert í
Bandaríkjunum og Evrópu. Það er
komin 100 ára reynsla á þetta form.
Framhaldsskólanemar og kennarar
gætu unnið þessi störf,“ sagði Böðvar
Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík.
Böðvar sagði að lögreglan í Reykja-
vík yrði ekki með sömu þjónustu á
hálendinu og hún heföi verið með
síðustu tvö sumur. Lögregluna
skortir tæki og aðstöðu til þess. Böð-
var sagði að almenn ánægja hefði
verið með störf hálendislögreghmn-
ar og það væri miður aö þurfa að
draga úr þjónustunni.
„Lögregluembættin um landið
sinna störfum á hálendinu. Lög-
gæslusvæöin ná um landið allt og þar
með hálendið. Ég tel aö hálendiö sé
éin af auðíindum landsiiis og aö viö
verðum aö hugsa um það sem slíkt,“
sagði Böövar Bragason.
-sme
Veðriö á morgun:
Víða bjart
og hlýtt
Á morgun verður hæg vestlæg
átt á landinu og fremur hlýtt og
bjart víða um land. Þó verður lík-
lega skýjað vestast á landinu og
dálítil súld um tima við suðvestur-
og vesturströndina. Þokuloft verö-
ur úti fyrir Norðurlandi. Vestantil
á landinu verður hitastigið 11-14
stig en á eystri helmingnum 15-18
stig.
V