Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990. Spumingin Lesendur Ferðu í vetrarfrí? Sigurpáll Sigurðsson nemi: Já, ég fór á sjúkrahús. Ætli það verði ekki að duga sem vetrarfrí. Hafsteinn Hannesson nemi: Bara jólafríið. Skólinn og vinnan taka all- an tíma og þvi enginn möguleiki á fríi. Ríkisstjómin og Sambandstengslin: Málefnasamningur bjargarSÍS Björn Kristjánsson skrifar: Nú er það komið í ljós, sem margir voru búnir að spá, að ekkert annað væri fyrir Samband ísl. samvinnufé- laga að gera en samþykkja tilboð Landsbankans um kaup á hlut Sam- bandsins í Samvinnubankanaum. Það sem eftir stendur mun þó koma landsmönnum enn meira á óvart, og það er að það er í raun sjálf ríkis- stjórnin sem er stærsti aðili þessa máls - og það er hún sem mun nú líklega gangast fyrir samningum við erlenda lánardrottna um frekari fyr- irgreiðslu til handa Sambandinu. - Tilboð Landsbankans skipti þar í raun engu máli. Svo illa er nú komið fyrir þessu fyrrum stærsta og öflug- asta fyrir tæki í landinu, Samband- inu. Síðan er haldið áfram eins og kveð- iö er á um í málefnasamningi núver- andi ríkisstjórnar og gengið til samn- inga við Sambandið um kaup á eign- arhluta þess í Aðalverktökum. - Þetta var staðfest í fréttum Ríkisút- varpsins í gærkvöldi (7. jan.) - ís- lenska ríkisstjórnin er sem sé á fullri ferð við að reyna að bjarga Samband- inu út úr skuldafeni og frá gjaldþroti á meðan allur atvinnurekstur í landinu er á heljarþröm. Launþeg- arnir eru skattpíndir sem aldrei fyrr og ástandið líkist engu öðru en léns- skipulagi miðalda, þegar landsetar urðu að sitja og standa eins og léns- herrar fyrirskipuðu og reyttu gjöldin af hinum fyrmefndu. Sér fólkið í landinu ekki hvaða sjónleikur er leikinn hér? Hvers vegna skyldu ráöherrar koma fram í þessu húsi við Höfðabakka hafa íslenskir aðalverktakar aðsetur. - í málefnasamingi ríkisstjórnarinnar fólust loforð um að rikið skyldi kaupa hlut SÍS i Aðalverktökum, segir hér m.a. fyrir alþjóð vegna hinna ýmsu yfir- vofandi gjaldþrota sem eins konar talsmenn þessara fyrirtækja? - For- sætisráðherra virðist vera sérstakur talsmaður Sambandsins í Lands- bankamálinu og í máli Regins - og fjármálaráðherra leikur sækjanda í Arnarflugsmáhnu og ferst það sem alvönum leikara. - Hvaða ráðherra tekur aö sér mál „Úthafsævintýris- ins“ við Alaska sem virðist nú vera að byija að fara í hringi? Dóra Kristmannsdóttir bókhaldari: Já, ég bý í Bandaríkjunum og þar er algengt að menn fari í vetrarfrí. Þorgils Kristmannsson, stöðvarstjóri Flugleiða i Glasgow: Já, ég fer til Flórída en ég bý í Skotlandi. Þar eru vetrarfrí algeng. Flýja til útlanda á náðir sósíalsins Höskuldur hringdi: Það er víst staðreynd sem enginn getur móti mælt að margir ísiending- ar hafa nú um sinn flúið land sitt í leit að betri kjörum erlendis. Þetta hefur gerst áður og er htið við þvi aö segja þótt menn kjósi aö reyna fyrir sér annars staðar ef þeim sýn- ast allar bjargir bannaðar í sínu eigin landi. Auðvitað væri best að allir íslend- ingar gætu verið í sínu landi og haft þar sitt viðurværi. Mig grunar þó að margir sem flytjast héðan, t.d. til Norðurlandanna, fari héðan í hreinni óvissu um hvað viö taki. Oft- ar en ekki er einfaldlega farið héðan annaðhvort íjölskyldufaðirinn fyrst eða þá öll fjölskyldan saman og möguleikar á störfum þá fyrst kann- aðir er út kemur. Enn eru þeir til sem halda ótrauðir utan, með eöa án fjölskyldu, og láta skrá sig atvinnulausa strax th þess eins að komast á atvinnuleysisbætur - eða á sósíalinn, eins og þetta er kallaö núorðið. - Þetta vil ég flokka undir algjöra ævintýramennsku og kalla ég hvem þann mann óábyrgan sem viöhefur þessa aðferð, jafnvel þótt það eigi að heita svo að verið sé að „bjarga" sér og sínum. Þetta verður bara aldrei nein björg- un þegar til lengri tíma er litið því það er líka fylgst með þessum „at- vinnuleysingjum" á Norðurlönd- unum og þeir fá ekki bætur í það óendanlega. Það er orðið afar mikið um þetta viðhorf hér og fleiri og fleiri flykkjast utan í óvissuna sem þar ríkir, ef menn hafa ekki gert ráðstaf- anir hér heima um atvinnu áöur en haldið er af staö. - Ég vil vara íslend- inga við þessari ævintýramennsku. Hitt er svo annað mál að hér verður að fara að taka alvarlega það at- vinnuleysi sem er að skapast vegna minnkandi hagvaxtar og gjaldþrota fyrirtækja. Við getum- heldur ekki greitt atvinnulausum hérlendis í það óendanlega. Hulda Birgisdóttir iðjuþjálfí og Jakob Orri Jónsson: Nei, ég er nýbyrjuð að vinna og því enginn möguleiki á vetr- arfríi. Inga Guðmundsdóttir verslunar- stjóri: Alveg örugglega ekki því ég þarf að vinna mikið. Eg hef farið í frí að vori til en það kallast víst sum- arfrí. Laugardagslokanir verslana Halldóra Jónsdóttir skrifar: Verslunarhættir hér í höfuðborg- inni eru að verða óþolandi hvað varðar opnunartíma um helgar. Ég skil ekki hvers vegna allar verslanir eru ekki einfaldlega opnar alla laug- ardaga á sama tíma. Það er svo oft búið að ræða hve nauðsynlegt er að hafa verslanir opnar lengur en til kl. 12 á laugardög- um - og þá á ég við allar verslanir, ekki bara sumar, en það er aldrei hægt að vita fyrirfram hvaða versl- anir eru opnar og hvaða verslanir ekki þennan dag vikunnar. Ég veit þó fyrir víst að verslanir í Kringlunni eru opnar nú í vetur til kl. 4 á laugardögum, hvað sem verð- ur þegar kemur fram á vorið og í sumar. - En verslanir annars staðar í borginni, að ekki sé nú talað um í miðborginni, opna mjög óreglulega á laugardögum og sumar hveijar opna þá alls ekki. Ég fór t.d. í miöbæinn sl. laugardag rétt fyrir hádegið og ætlaði sannar- lega að taka það rólega, fá mér að boröa í hádeginu og gera svo verslun mína á eftir. Ég fór inn á Hótel Borg og þar var opið eins og venjulega. Upp úr kl. 1 eða einhvemtíma á bil- inu milli kl. 1 og 1:30 fór ég svo þess- ara erinda. - Nema hvað, flestar verslanir þarna á svæðinu voru lok- aðar, þ.á m. stór bókaverslun sem ég ætlaði sannarlega aö versla í. Ég tók því það ráð að fara alla leið inn í Kringlu, þar sem opið var til kl. 4. Það nægði mér í þetta sinn en það er ekki víst að það hafi nægt öll- um. Fólk fer seinna á fætur á laugar- dögum en venjulega og vill hafa dag- inn eins og því sjálfu hentar og geta kannski farið í verslanir eftir kl. 4. Þetta er viðtekin regla alls staðar þar sem ég þekki, að fólk geti notað laug- ardaga til að fara í búðir. En svo er þaö með þennan blessað- an miöbæ. Það er nú ekki nema von að þarna leggist allt niöur með tíð og tíma ef kaupmenn nenna ekki eða vilja ekki hafa opið hjá sér á laugar- dögum til jafns við þann aðila sem samkeppnin er mest við, Kringluna. Hvernig í ósköpunum á fólk að geta fylgst meö því hvaða verslanir hafa opið og hveijar ekki? - Þetta 'ástand er óþolandi og til skammar fyrir borg með hátt i 100 þúsund íbúa. „Hvernig í ósköpunum á fólk að geta fylgst með því hvaða verslanir eru opnar á laugardögum í miðborginni?" Engin forspá Guðmundur Gíslason hringdi: landi og þjóð þegar líða tekur á síð- Forsætisráðherra lét hafa eftir astaárverstuogóvinsæiusturikis- sér að forspár maöur hefði séö stjómar sem hér hefur setiö að bírtu yíír landi voru þegar líða völdum. tæki á þetta ár eða undir lok árs- Það er einlæg ósk til lands og ins. - Þetta finnst mér engin forspá þjóöar að slík ríkisstjórn sem þessí því eðlilega hlýtur að birta yfir eigialdreieftiraðsitjahérviðvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.