Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1992, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1992, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1992. Kvikmyndir HÁSKÓLABÍÓ Sími: 22140 Glæpamynd með rjómanum af þeldökku hæfileikafólki í Hollywood. Gamansöm en hefur dekkri hliðar líka. Robin Givens er stórgóð í sínum fyrsta bióleik. - G E FX2 ★ Sagan er augljós og óspennandi og það er af litlu að taka á öðrum sviðum. Oþarft framhaldáágætrikvikmynd. -GE Mál Henrys ★★'/2 Vel leikin dramatisk kvikmynd um harðan lögfræðing sem uppgötvar sinn betri mann eftir slys. Boðskapurinn góður en melódramafullmikið. -HK Impromptu ★★★ Stórskemmtileg mynd um hástéttina í París á fyrri hluta 19. aldar. Judy Davis er með áhugaverðari leikkonum. -IS Addams-fjölskyldan ★★'/2 Leikarar, umhverfi og tæknileg ún/innsla eins og best verður á kosið en söguþráð- ursundurlaus. -ÍS Tvöfalt líf Veróníku ★★★'/2 Tvær stúlkur, fæddar sama dag, hvor í sinu landi, nákvæmlega eins i útliti og án þess að vita hvor af annarri. Þetta er viðfangsefni pólska leikstjórans Krzystofs Piesiewicz í magnaðri kvikmynd. -HK The Commitments ★★★★ Tónlistarmynd Alans Parker er ógleyman- leg skemmtun. Söguþráðurinn er stór- skemmtilegur og soul-tónlistin frábær. Ein af betri myndum Alans Parker. -ÍS LAUGARÁSBÍÓ Sími: 32075 Glæpagengi ★★ Kraftlitil saga og leikstjórn en hugmyndin er ágæt og leikarar lausir við stjörnu- stæla. Góðir sprettir ínn á milli. -GE Barton Fink ★★ Coen-bræður standa sig ekki i sögusköp- uninni og gerast klisjumenn í fyrsta skipt- ið. Frábærar persónur og leikendur bjarga málunum. -GE Prakkarinn 2 ★★ Litið vit en nokkuð gaman að tveimur pottormum í vígahug. Betri en sú fyrsta. -GE REGNBOGINN Sími: 19000 Bakslag ★★ Tryllir sem spillir of mikilli orku vegna fjar- stæðukenndrar sögu. Á góða spretti og Litgow er furðugott fól en Mulcahy held- urafturafsérístilnum. -GE Morðdeildin ★★ Vel skrifuð lögreglusaga en óljóst hvar áherslurnar liggja, endar snögglega, rétt áður en hún virðist vera að taka flugið. -GE Náin kynni ★ Margtuggið videofóður um símavændi og morðingja meðsáralitlu athyglisverðu. -GE Fjörkálfar ★★ Gamanið er bráðfyndið en tilveru- kreppudramatíkin einum of formúlu- kennd. Gerilsneydd en örugg afþreying. -GE Fuglastríðið í Lumbruskógi ★★ Hugljúf teiknimynd fyrir börn. Það sem gerir hana þó eftirsóknarverða er islensk talsetning sem hefur heppnast sérlega vel. -HK SAGA-BÍÓ Pími: 78900 enmgar annarra ★★'/. Danny De Vito fer á kostum í gaman- mynd sem hnýtir i ofurbrask á sannfær- andi og skemmtilegan en full rólegan hátt. -GE Benni og Birta í Ástralíu ★★'/2 Góð teiknimynd frá Disney, líka fyrir full- orðna. Frábærlega teiknuð með skemmti- legum persónum. -GE STJÖRNUBÍÓ Sími: 16500 Bilun í beinni útsendingu ★★*'/2 Heilsteypt kvikmynd frá Monthy Python, leikstjóranum Terry Gilliam, raunsæ og gamsöm i senn og ekki spillir frábær leik- ur Jeffs Bridges og Robins Williams. -HK Tortímandinn ★★★ Áhættuatriðin eru frábær og tæknibrell- urnar ótrúlega góðar. Bara að sagan og persónurnar hefðu verið betur skrifaðar. -GE Börn náttúrunnar ★★★ Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur gert góða kvikmynd þar sem mikiifeng- legt landslag og góður leikur blandast mannlegumsöguþræði. -HK íþróttir helgarinnar: Meistaramótið í badminton Það sem ber einna hæst í íþróttum helgarinnar er meistaramót íslands í badminton. Keppt verður í Laugar- dalshöll og hefst keppni á laugardag og sunnudag klukkan 10 fyrir há- degi. Úrslitakeppnin í meistaraflokk- um karla og kvenna hefjast eftir há- degi á sunnudag. í karlaflokki er Broddi Kristjáns- son tahnn sigurstranglegur í einliða- leik en íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Árni Þór Hallgrímsson, hefur örugglega í hyggju að halda þeim tith. Broddi hefur staðið sig geyshega vel á mótum erlendis í vetur og verð- ur fróðlegt að sjá hvort honum tekst að endurheimta titihnn í einliðaleik sem hann hefur oft unnið áður. Hjá konunum er búist við hörku- keppni og mun jafnari en hjá körlun- um. Elsa Nielsen, sem varð íslands- meistari í einhðaleik í fyrra, aðeins 16 ára gömul, verður eflaust í barátt- unni um titihnn svo og Þórdís Edw- ald sem er margfaldur íslandsmeist- ari en hún var ekki með í fyrra vegna þungunar. Badminton er íþrótt sem á vaxandi vinsældum að fagna og því er gott tækifæri fyrir fólk að koma í Höllina um helgina og sjá badminton eins og þaðgeristbesthérálandi. -GH Árni Þór Hallgrímsson og Elsa Nielsen urðu íslandsmeistarar í einliðaleik karla og kvenna á meistaramótinu í fyrra. Það verður fróðlegt að sjá hvort þeim tekst að verja titla sína í Laugardalshöll um helgina. DV-mynd GS Ferðafélag íslands: Vætta- og þorrablótsferð Ferðafélag islands efnir annað árið í röð th vætta- og þorrablótsferðar að Eyjafjöllum og í Mýrdal. Kveikjan að ferðinni er Vættatal Áma Bjöms- sonar sem kom út í fyrra en Árni verður einmitt með í ferðinni sem farin verður nú um helgina. Brottfór er á laugardagsmorgun kl. 8 og verður gist í góðu yfirlæti í fé- lagsheimihnu Skógum. Þórður Tóm- asson, safnvörður í Skógum, verður einnig með í fór hkt og í fyrra. Á ferð um Eyjafjallasveit og Mýrdal er margt sem hehlar, landslag er þar stórbrotið og sveitimar ríkar af sög- um og munnmælum um vættir sem áttu að eiga sér dvalarstað í ghjum, helhsskútum, dröngum, hólum og jafnvel vötnum. Margt er minnisstætt úr ferðinni í fyrra og verður það riíjað upp en einnig farið á nýjar slóðir. Má þar nefna fingrafór draugsins Flóða- labba, bústaði trölla og hið stórfeng- lega Kaldaklifsgil. Á laugardagskvöldinu verður þorrablót og kvöldvaka Ferðafélags- ins í félagsheimihnu Skógum. Þátt- takendur hafa með sér þorramat sem þeir leggja með sér á borð. Mikih áhugi er á ferðinni og er nauðsynlegt aö panta og taka farmiða sem allra fyrst í dag. Þeir sem ekki komast með í vætta- og þorrablótsferðina eiga kost á að taka þátt í fyrstu ferð af tíu þar sem Ferðafélagið kynnir gamlar þjóðleið- ir á Suðvesturlandi. Slíkar ferðir verða famar einu sinni í mánuði frá janúar og fram í október. Sú fyrsta er nú á sunnudag- inn og er farið kl. 11 frá Umferðar- miðstöðinni, austan megin. Þá verð- ur genginn Skipsstígur, gamla leiðin sem lá úr Njarðvíkum th Grindavík- ur. Ferðin er einnig farin í thefni upphafs vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatah. Á sama tíma verður í boði fjallganga. Heimkoma er um kl. 15.30. ■» Skógarfoss. Ferðafélagsfólk heldur þorrablótið i Félagsheimilinu Skógum. DV-mynd E.J. 23 r Körfubolti: 5 leikir í Japis-deitd Fímm leikír eru á dagskrá Jap- is-deildarinnar í körfuknattleik um helgina. í kvöld klukkan 20 er stórleikur I Njarðvfk en þá leika beimamenn gegn Gríndavlk. Á sunnudaginn klukkan 18 leika Snæfell og IBK í Stykkishólmi og klukkan 20 leika: Tindastóll- Haukar, Valur-Skallagrímur og KR-Þór. í 1. deíld karla eru tveir leikir á laugardag klukkan 14, Víkverji-ÍA og Höttur-UBK og á sunnudag kl. 20 (R-Keilufélagið. Handbolti: Spennandi leikir Þrír hörkuleikir fara fram í 1. deild karla í handboltanum um helg- ina. Á laugardag kl. 16.30 leika Valur og KA að Hlíðarenda og á sunnudagskvöld kl. 20 tekur ÍBV á móti Víkingum og FH fær Stjörnuna I heimsókn en Stjarn- an er eina iiðið sem unnið hefur FH-inga í vetur. Borötennis: Störmöt í TBR húsi Borðtennismót Coca Cola og Víkings verður haldið í húsi TBR á sunnudaginn. Keppni hefst klukkan 11 fyrir hádegi og sið- ustu leikirnir hefjast klukkan 17. Keppt verður I punktakeppni og I tvíliðaleik, tvenndarleik og eldri flokki karla. Ferðir Ferðafélag íslands Ferðaáætlun Ferðafélags íslands er komin út. í henni er að finna ahar upplýsingar um ferðir þess og einnig Ferðafélags Akureyrar og Ferðafélags Fljótsdalshéraös. Ferðimar skiptast í dags- og kvöldferðir, helgarferðir og sum- arleyfisferðir. í miðopnu eru kort af tveimur vinsælum gönguleið- um milh sæluhúsa Ferðafélags- ins. Nýjung í áætluninni er merk- ingar við sumarleyfisferðir sem gefa til kynna hversu erfiö eða auðveld ferð er. í hverri ferð er staðkunnugur fararstjóri. Kynn- ið ykkur ferðaáætlunina, hringið á skrifstofuna og leitið upplýs- inga. Útivist Á kyndhmessu, sem er á sunnu- dag, hófst vetrarvertíð á tímum árabátanna. Th að minna á það mun Útivist ganga eina af sírnnn árlegu verleiöagöngum. í þetta sinn verður gengið frá Kálfatjöm í Hólmabúðir undir Stapa. Heim- sóttar verða verstöðvar á leið- inni. Farið er frá BSÍ kl. 13 og stansað á Kópavogshálsi, viö Ás- garð í Garðabæ og Sjóminjasafnið í Hafnarfirði. Að Kálfatjöm er komið kl. 13.45. Frítt fyrir 15 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Náttúruverndarfélag Suð- vesturlands Á morgun, laugardag, kynnir Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands nýja ferðaröð sem hefst 15. febrúar. Það verður gert með þvi að ganga frá Nomæna húsinu kl. 13.30 niður í Grófina i fylgd fróðra manna. Að því loknu gefst kostur á að fara í stutta náttúruskoöun- arferð út á Kollatjörð ef veður leyfir. í sjóferðina verður farið frá Grófarbryggju kl. 15.30 með farþegaskipinu Árnesi. Öhum er heimil þátttaka. Frítt er í göngu- ferðina en sjóferðin kostar 800 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.