Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1992, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1992, Blaðsíða 12
12 Spumingin ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992. Hvaðfinnstþér um reykingar? Guöriður Pálmars: Ég reyki ekki sjálf. Mér flnnst ekki nógu mikið til- lit tekið til þeirra sem ekki reykja. Lína Jóhannesdóttir: Ég reyki nú sjálf. Þetta er óhollt og ég hef reynt að hætta. Baldur Jónsson: Ég reyki sjálfur pípu, og hef reykt í 30 ár eða meira. Ég get ekki hætt. örvar Már Michelsen: Þær eru óholl- ar. Árni Ágúst Brynjólfsson: Reykingar eru óhollar. Þórunn Óskarsdóttir: Mér flnnast þær slæmar. Lesendur „Mér virðist sem annars konar raddir hljómi nú og yfirgnæfi hinar fyrri.“ - Frá stofnun starfsmannafélags á Kefla- víkurflugvelli. Utlendur atvinnurekstur á Suðurnesjum Konráð Friðfinnsson skrifar. í maí 1951 geru íslendingar vamar- samning við Bandaríkjamenn. Fjörutíu og einu ári síðar eru Banda- ríkjamenn enn hér með tól sín og tæki á Vellinum. Ákveðin andstaða gegn vamarliðinu hefur verið í gangi frá upphafi og hana studdi maöur svo sem í eina tíð, þótt hlutlaus sé nú orðinn í dag. Það sem vekur athygli mína núna er að mér virðist sem annars konar raddir hljómi nú og yfirgnæfa hinar fyrri. Þessar „radd- ir“ efna að vísu til mótmælafundar fyrir utan vallarhliðið í norðangarra og stofna starfsmannafélag en þær segja ekki eins og áður: „farið heim“. Heldur hið gagnstæða. En hver skyldi ástæöan vera? Kannski hafa „raddimar" taliö sig öraggar í faðmi bandaríska hersins til þessa en síðan vaknað af væmm blundi? Hver veit? Þingið í Washing- ton gaf nefnilega út yfirlýsingu um að útgjöld til hermála verði skorin niður um einhveija milijarða dollara og herstöðvum víðs vegar um heim lokað. Verum minnug þess að her- stöðvar hafa þegar viða verið lagðar niður. Og fleiri lokanir munu eiga sér stað vegna bágrar stöðu í efnahag Bandaríkjanna. Á hinn bóginn skil ég vel mótmæli fólksins sem vill treysta þann grund- völl er það hefur langi byggt á. En fækkun herstöðva nú og niðurskurð- ur til þeirra er bara ein sönnun þess hve varhugavert það er aö trúa um of á útlenda atvinnurekendur. Svo mjög hafa menn þar syðra treyst á störfin á Keflavíkurflugvelli að önn- ur starfsemi og nýsköpun á Suður- nesjum hefur beðið stórtjón af að mínu mati. Ég fullyrði einnig að menn muni þurfa að búa sig undir að öll starf- semi á Miðnesheiði verði lögð niður á næstu ámm eða áratug. Þaö er full- komlega rökrétt að álykta svo. Hvort íslensk sijómvöld hafi eitthvað í bak- höndinni til að mæta þessum skell ef af verður hef ég ekki hugmynd xun. En íhuga skyldi þennan möguleika í fullri alvöra. Brosklúbbur og sæmdarhjón S.B. skrifar: Sjónvarpsauglýsingar ríkissjóðs hafa undanfama mánuði sagt frá sæmdarhjónunum Björgu og Þór. Þau hafa lagt til hiiðar mánaðarlega áhtlega upphæð af laununum sínrnn til þess að kaupa spariskírteini ríkis- sjóðs. Þetta hafa þau gert af óbilandi bjartsýni um eigin hag og lofsverðum þegnskap við ríkiö, sem túlkað var meö greinilegum velþóknunartón af þulinum sem las textann með auglýs- ingunni. Bjartsýnin var byggð á þeirri vissu að bréfin þeirra væm undanþegin eigna- og tekjuskatti enda vandlega og margendurtekið í auglýsingun- um. - Að vísu voru peningaseðlamir í auglýsingunni allir á hraðri niður- leið - sem gat áð sjálfsögðu verið ill- ur fyrirboði. En hvað gerist nú? Allt svikið. Nú á að leggja bæði eigna- og tekjuskatt á bréfin þeirra - þvert ofan í gefin loforð! Hvað gera þau Björg og Þór nú? Þau era auðvitað bæði sár og reið. En að hugsa sér að gamli flokk- urinn þeirra skuii standa fyrir þessu. Sjálfstæðisflokkurinn sem hafði lof- að að leggja ekki á nýja skatta - og löngu áður lofað að afnema tekju- skatt að fullu - gerist nú handbendi kommúnista og hótar KGB-aðferðum við skattheimtu. Og hvernig fer með góða skapið í brosklúbbnum, sem sýndur var í öðrum auglýsingum frá ríkissjóði? Frýs brosið? - Eða tekst áróðurs- meisturum ríkissjóðs að búa til nýja lygi handa einfeldningunum svo að þeir geti aftur fari að brosa? Er atvinnuleysi orðum aukið? Síðasta „trikkið“, að úthrópa mennt- aða lækna sem atvinnuleysingja, fellur um sjálft sig, segir bréfritari. DV áskilur sér rétt til að stytta aðsend Jesendabréf. Friðrik Jónsson skrifar: Sífellt er klifað á atvinnuleysi og birtar hafa verið tölur um útgreiddar atvinnuleysisbætur hvers mánaðar. Þetta er ekki ný bóla. Við höfum gegnum árin verið fóðrað í fréttum um yfirstandandi atvinnuleysi, væntanlegu atvinnuleysi og aldrei meira en einmitt í dag. Ekki veit ég hvort þetta er landlægt móðursýkital eða byggt á einhveijum raunveruleg- um könnunum. Hefur nokkuð verið kannað ofan í kjölinn hvaða fólk það er sem gengur um atvinnulaust mánuðum saman? Ég tel það ekki atvinnuleysi þótt t.d. hluti kvenna í frystihúsum þurfi að víkja tímabundið úr vinnu vegna árstíðabundinna sveiflna í afla. Margar þessara kvenna era giftar og era á vinnumarkaði til að dreifa tim- anum fremur en til þess að dreifa þunga tekjuöflunar á tvennar herð- ar. Atvinnuhorfur langskólanema að sumri til hafa smám saman orðið minna og minna áhyggjuefni eftir að lánasjóður námsmanna hefur tekið við því hlutverki að greiða skóladvöl og samhliða kostnað. Hjá menntmönnum hefur heldur ekki oröið vart neinnar kreppu vegna atvinnuleysis. Enn vantar t.d. kennara svo að tugum eða hundrað- um skiptir eftir atvinnuauglýsingum að dæma. Og síðasta „trikkið“, að úthrópa menntaða lækna sem at- vhmuleysingja eða útlaga frá ís- landi, fellur um sjálft sig þegar sú staðreynd blasir við að það getur tek- ið fólk vikur eða mánuði að ná til sérfræðinga í þeirri stétt og langir biðlistar era á sjúkrahúsum vegna meðhöndlunar þessa menntaða starfshóps. Ég tel brýntað hætt verði að nota atvinnuleysisgrýluna til að draga kjarkinn úr landsmönnum? DV VeHerð veitur áfreisi Ó.P. skrifar: Sumir kratar virðast óónægðir með þróun velferðarmála hér og hyggjast koma höggi á formann flokksins af því tilefhi. Halda e.tv. aö varaformaðurinn, Jó- hanna Sigurðardóttir, muni snúa flokknum frá stefnu, sem þeir kenna við Sjálfstæðisflokkinn og segja krata lieinlínis ofurselda honum í stjóraarsamstarfinu. Það er einmitt núverandi vara- formaður Alþýðuílokksins sem leitt hefur málefni félagsþjón- ustunnar hin seinni ár. Afnám úreltra reglugerða á stóran þátt ibreytingu til batnaðar. Velferðin veltur á því að innleiða óheft frelsi, þáð hefiu lika tekist í tíð núverandi ríkisstjómar. Aboihí & vmnu- stöðum Gísli Magnússon hringdi: Eftir fréttimar ura áreitni við konur á vinnustöðum hér á iandi hefur verið úthrópað sem gert hefur verið, er manni næst skapi að hætta öllum samskiptum við blessað kvenfólkið, a.m.k. á vinnustað. - Þar sem ég vinn tek ég líka eftir þvf að karlmennimir era orðnir afar varfærnir í tali og sumir sneiða alveg hjá lyft- umú er þeir sjá konu í henni. - Þetta er allt að verða hið óþægi- legasta mál sem þarfnast endur- skoðunar. Þeirfæla fuglana Sigríður hringdí: Eg vil byrja ó að senda Þór- unni, sem skrifaði í DV 18, maí sl. undir fyrirsöginni „Hvar era fuglar?“ bestu kveðju. Hún er ekki ein um að sakna fuglanna úr umhverfi sínu. Ég bý t.d. í grennd við Miklubrautina, aust- an Lönguhlíðar, þar er sama sag- an. Uro haustið 1990 hurfu þeir að mestu og hafa ekki sést síðan. : Ástæðumar era raargar en aö mínu mati helstar þær að köttum í borginni hefur fjölgað gífurlega - sagðir vera um 8-10 þúsund! Einnig hefur huudum íjölgað. Það þarf því ekki að fara I grafgöt- ur um meginástæður fuglahvarfs hér í borg. Þeir voru þá 12! Reynir hringdi: Eg ætlaöi sannarlega að kaupa miöa á tónleikana meö Gipsy Kings í Laugardalshöllinni. Kg var staddur í London þegar þeir héldu hjjóriileika þar enfékkekki miða. Ég hugðist því bæta mér þetta upp núna. - En hvað var nú þetta? í öllum auglýsingum og umíjöílun um tónleikana var tekið skýrt fram aö þeir væra bara 6 sem kæmu hingað. Á ein- um staö var reyndar talaö um 7 manns. Það fannst mér ekki nógu gott mál því á öðrum hljómleik- um er hljómsveitin skipuö 12 manns. - Eg keypti því ekki miða í þetta sinn. - Svo kemur bara í Ijós að þeir voru þá 12 í hjjóm sveítinni hér eftir allt! Ég tel þvi að um alvarleg mistök hafi veriö aö ræða í kynningu á tónleikum Gipsy Kings hér á landi. Frábærkvikmynd Tryggvi hringdi: Eg vil þakka Háskólabíói fyrir að fá kvikmyndina „Steiktir, grænir tómatar" til sýiúngar hér. Þetta er kvikmynd sem liægt cr að mæla með fyrir alla fjölskyld- una. Hún er um (jölskyldu í einu suðurríkja Bandaríkjanna. Sag- an er endurminnlngar konu sem komin er á elliheimili. - Leikur- iim er fádæma góöur og sviðsetn- ing svo raunveruleg að manni finnst maður mitt í atburðarás- iiuii. - Góð skenuntun og góð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.