Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1993, Blaðsíða 36
Frjálst,óháö dagblað
FIMMTUDAGUR 6. MAl 1993.
Jóhann Geirdal:
Sofandahátt-
urinn algjör
„Þetta eru auðvitað alvarleg tíöindi
og munu hafa víðtæk áhrif á öllum
Suðurnesjum. Þetta kemur hins veg-
ar ekkert á óvart. Samdráttur hefur
legið fyrir lengi en menn hafa bara
stungið hausnum í sandinn og neitað
að trúa því. Ráöamenn áttu til dæm-
is að vera búnir að sjá þetta fyrir og
gera viðeigandi ráðstafanir. Sofanda-
hátturinn hefur verið algjör," segir
Jóhann Geirdal, formaður Verslun-
arfélags Suðumesja, um fyrirhugað-
an niðurskurð á Keflavíkurflugvelli
en um 200 manns úr verslunar-
mannafélaginu starfa á Keflavíkur-
flúgvelli. -Ari
„Það er bara eitt orð til yflr þess-
ar fréttir. Reiðarsiag. Á Keflavíkur-
flugvelli starfar um eitt þúsund
manns og langflestir eru í félaginu
hjá okkur. Atvinna þessa fólks alls
er í hættu ef af þessum mikla niður-
skurði á Keflavíkurflugvelli verð-
ur. Víð erum nú þegar með 14 pró-
sent atvinnuleysi hér svo það geta
allir séö hvílíkur voði er hér á ferð-
inni f atvinnulegu tilliti,“ sagði
Kristján Guðmundsson, formaður
Verkaiýös- og sjómannafélags
Keflavíkur, um upplýsingar sem
borist hafa um að Bandaríkjamenn
hyggi á stórfelldan niðurskurð á
Keflavíkurflugvelli á næstunni.
„Bandaríkjamenn hafa nánast
alfarið séð um rekstur flugvallar-
ins. íslendingar hafa reyndar tekið
þátt i kostnaði vegna flugumsjónar
en slökkviliðið, viðgerðir, hreinsun
og fleira sér herinn um. Þarna er
því um verulega fjármuni að ræöa
en hversu mikla höfum við ekki
upplýsingar um,“ segir Þröstur
Ólafsson, aðstoðarmaður utanrík-
isráðherra.
Gera má ráð fyrir að árlega muni
milljarðar króna leggjast á rfkis-
sjóð vegna reksturs Keflavíkur-
flugvallar hverfi bandariski herinn
á brott. i samtali við DV í morgun
kvaöst Pétur Guðmundsson flug-
vallarstjóri ekki treysta sér til aö
metaáhrifln. -sdór/-kaa
LOKI
Er nú Clinton genginn í Sam-
tök herstöðvaandstæðinga?
Veðrið á morgun:
Stinnings-
kaldi eða
allhvasst
Á morgun verður suðvestanátt,
sums staöar stinningskaldi eða
allhvasst með skúrum suðvestan-
og vestanlands en úrkomulaust
að mestu í öðrum landshlutum.
Veðrið í dag er á bls. 44
TVÖFALDUR1 ■ vinningur
BjömBjamason:
Öryggishagsmuna
verðuraðgæta
„Ég er þeirrar skoðunar að varnar-
samningurinn við Bandaríkin og að-
ildin ' að Atlantshafsbandalaginu
verði áfram homsteinar okkar í ör-
yggismálum. Við höfum enga sam-
bærilega samninga við Evrópurík-
in,“ segir Bjöm Bjamason, formaður
»—i utanríkismálanefndar.
Bjöm segir að hefja verði viðræður
við Bandaríkjamenn um hvernig
staðið verði að vömum íslands í ljósi
breyttra aðstæðna á alþjóðavett-
vangi. Ljóst sé að íslendingar verði
að gæta öryggishagsmuna sinna eins
og aðrar þjóðir. Aðspurður sér hann
engin teikn um að Vestur-Evrópu-
sambandið geti tekið við vömum
landsins af Bandaríkjamönnum.
-kaa
Harður árekstur
Harður árekstur tveggja bíla varð
á mótum Hafnargötu og Faxabrautar
í Keflavík í nótt.
—* Lögreglan var kölluð á vettvang og
byijaði hún á því að létta af ungum
ökumanni annarrar bifreiðarinnar
þeirri þungu byrði að hafa ökurétt-
indi. Talið er að hann hafi verið í
svokallaðri spyrnu og því á mikilli
ferð þegar slysið varð. Engin slys
urðu á mönnum í árekstrinum en
bflamir em mikiö skemmdir.
-pp
Enn í gjörgæslu
Stúlkan frá Seyðisfirði, sem reynt
var að bjarga fingri á í veimur skurð-
aðgerðum í gær og fyrradag, var enn
í gjörgæslu í morgun. Líðan hennar
r4b-or eftir atvikum en ekki er enn ljóst
hvort tekist hefur að bjarga fingrin-
um. -pp
Þeir báru sig fagmannlega að Kjartan Kjartansson og Hrafnkell Kjartansson er Ijósmyndari DV hitti þá að störfum
við höfnina. Ekki voru þeir þó að meðhöndla snoppufríðasta fiskinn úr lífriki sjávarins. En fegurðin kemur að inn-
an, eins og allir vita, enda hrogn grásleppunnar verðmæt útflutningsvara og steinbíturinn getur verið gómsætur
sé hann rétt meðhöndlaður. DV-mynd ÞÖK
VestQarðagöngin:
metra vatnsæð
„Þetta er 460 metra handan viö
gatnamótin í Botnsdal. Við hittum á
þessa stóra vatnsæð og er rennslið
núna til að byija með 80-100 htrar á
sekúndu. Æðin er þegar orðin 12
metrar á breidd, þó ekki alveg sam-
felld. Þetta byijaði af nokkuð miklum
krafti, strax í einni sprengingu eða í
einni færu, á sunnudaginn. Hver
færa er 4,5 metrar að lengd og stór
hluti af þessu kom í einni slíkri. Síð-
an er búið að sprengja tvær í viðbót.
Verktakinn er að reyna að þétta
bergið núna með því að dæla inn
sementseðju," sagði Bjöm Harðar-
son, umsjónarmaður jarðgangagerð-
arinnar á Vestfjörðum, í samtah við
DV í morgun.
Mikið vatnsmagn rennur nú út um
gangamunnann við Tungudal eftir
að gangamenn lentu á stórri vatns-
æð. Vatnið er 9-10 gráða heitt. Sam-
tals renna nú um 200 sekúnduhtrar
af vatni út um gangamunnann.
-OTT
Gripinnglóðvolgur
Brotist var inn í matvöruverslun
við Freyjugötu um klukkan 3 í nótt.
Lögreglan brá skjótt við og gómaði
manninn inni í versluninni. Maður-
inn, sem oft hefur komist í kast við
lögin, braut rúðu til aö komast inn í
verslunina en gerði í leiðinni vart
við sig. -pp
T
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um fiétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Bitstjórn - AugíýsSngar - Áskrirt - Dreifing: Sími $$2700
• T
.aUtaf á mfövikudögum