Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1993, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1993, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1993 Kvikmyndir BÍÓBORGIN Simi 11384 Drekinn ★★ Léttileg ævifrásögn sem snýst oftar en ekki upp í skemmtileg en tilbreytingar- snauð slagsmál. Sjónarhorn eiginkon- unnardregursöguna niðurá plansjón- varpsmyndar en leikararnir standa sig vel. -GE Skjaldbökurnar 3 ★★ Stökkbreyttu skriðdýrin skreppa til Japansá lénsveldistíma og bjarga deg- inum. Skjaldbökuaðdáendur ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð, hinir vita við hverju erað búast. -GE HÁSKÓLABÍÓ Simi 22140 Við árbakkann** Kraftlítil túlkun á frægum rituðum end- urminningum bókmenntakennara. Redford fer svo fínlega I hlutina að hann nær ekki föstu taki á lífsspeki eða tilfinningaspili sögunnar. -GE Á ystu nöf ★★★ Hrikalega fallegar loftmyndatökur og nokkur snilldarleg áhættuatriði bæta glæsilega fyrirformúluspennusögu. -GE Ein og hálf lögga ★★ Ágætisgamanmynd um lítinn snáða sem semur um að fá að vera lögga. Tekur sig sem betur fer ekki alvarlega og kemst upp með margt. Guttinn er ansigóður. -GE Skriðan ★★,/2 Góð saga Bagleys kemst vel til skila, þrátt fyrir vanefni og frekar slakan leik- hóp. -GE Bíóið ★★ Fremur meinleysislegt grín um kjarn- orkuófreskjumyndakóng sem frum- sýnir nýjustu afurð sína í miðri Kúbu- deilunni. Um leið er verið að gera grín að (komma)ófreskjumyndum kalda stríðsins. Gengurekki alveg upp. -GB Úsiðlegt tilboð ★★ Adrian Lyne vekur upp spurningu um siðgæði og peninga í vel skrifuðu handriti en of hægri kvikmynd sem nær aldrei almennilegu flugi. Einnig sýnd I Bíóhöllinni. -HK LAUGARÁSBÍÓ Sími 32075 Hefndarhugur Vísindaskáldskapurinn er skorinn við nögl með vægast sagt slæmum ár- angri. -GE Villt ást Vi Óerótísk og óspennandi mynd um ást- ir og örlög ungra hjóna á Jamaíku 19. aldar. -GB Feilspor ★★★ Vi Einstaklega vel gerð sakamálamynd þar sem tvær sögur fléttast I eina. Litt þekktir leikarar ná góðum tökum á áhugaverðum persónum. -HK REGNBOGINN Slmi 19000 Súper Marió bræður ★★ Það er heilmikið um að vera, flottar brellur og mikil læti en það hefur lítil áhrif vegna þess hve sagan er óspenn- andi. -GE Ástarþrihyrningurinn ★★★ 1/2 Lofsverð mynd sem jafnhendir kímni, rómantík og drama og fipast aldrei. Innsætt handrit er bakkað upp af yfir- vegaðri leikstjórn og hreint frábærum leik. 1111111111111111111111111111111111111111 -GE Tveir ýktir 1 ★★ Endemis della og vitleysa en fárán- leikagrinið er i lagi, sérstaklega miðað viðnýlegartilraunirísömuátt. -GE SAGA-BÍÓ Sími 78900 Hvarfíð " 1/2 Amerísk endurgerð klassískrar hol- lenskrar spennumyndar tekst vel, enda sami leikstjóri. Nýjar fléttur I handriti erusniðugar. -GE Gerð í Ameríku ★★ Ójöfn rómantísk gamanmynd sem á góða spretti, þökk sé afbragðs frammi- stöðu leikaranna. -GE STJÖRNUBÍÓ Simi 16500 Á ystu nöf ★★★ Hrikalega fallegar loftmyndatökur og nokkur snilldarleg áhættuatriði bæta glæsilega fyrir formúluspennusögu. -GE Dagurinn langi ★★★ Bill Murray fer á kostum I hlutverki veðurfréttamanns sem stöðvast I tím- anum og lifir upp sama daginn aftur og aftur. Frumleg og skemmtileg gam- anmynd. -HK Framarar fagna marki Helga Sigurðssonar, fyrir miðri mynd. Helgi hefur skorað 9 mörk í 1. deildinni í sumar og hefur sett stefnuna á markakóngstitilinn. En hvort verða það Framrar eða KR-ingar sem fagna sigri í leik liðanna ■ kvöld? Getraunadeildin-1. deild karla í knattspymu: Fyrri umferðinni lýkur í kvöld - meö leik Reykjavíkurliðanna KR og Fram Það verður sannkallaður stórleik- ur á KR-vellinum við Frostaskjól í kvöld kl. 20 er Reykjavíkurrisamir KR og Fram mætast í 1. deild karla í knattspyrnu. Með leiknum er mótið hálfnað, 9 umferðir af 18 að baki. Síðari umferðin verður leikin í næstu viku og hefst með leik Víkings og Vals á mánudagskvöld. í 1. deild kvenna er einn leikur á dagskrá í kvöld kl. 20 en þá mætast Stjaman og Þróttur, Nes., í Garðabæ. Á morgun, laugardag, halda Vals- stúlkur norður um heiðar og mæta hði ÍBA. Þá mætast Einherji og KBS í 2. deild kvenna á Vopnafirði á morg- un kl. 16 og á sunnudag leika FH og BÍ í Kaplakrika og Tindastóll og Leiftur á Sauðárkróki kl. 14. í 2. deild karla hófst síðari umferð- in í gær með þremur leikjum. 10. umferðinni lýkur um helgina. í kvöld kl. 20 tekur næstneðsta hö deildar- innar, KA, á móti toppliði Breiða- bliks úr Kópavogi. Á morgun mætast Þróttur, Nes., og botnhö BÍ í Nes- kaupstað kl. 14. Það veröur einnig leikið í 3. dehd- inni um helgina. í kvöld leika Reyn- ir, S„ og Selfoss í Sandgerði og HK og Skallagrímur á Kópavogsvelh kl. 20. Einnig leika Magni og Grótta á Grenivík kl. 19. Loks er það 4. deildin, en í henni eru 10 leildr á dagskrá um helgina. Fimm leikir veröa í kvöld. Á Grýlu- vehi í Hveragerði mætast Hamar og Léttir, Ernir og Hafnir leika á Sel- fossi, Ármann og Leiknir, R„ á Ár- mannssvelh, Ægir og Njarðvík í Þor- lákshöfn og Þrymur og SK á Sauðár: króki. Leikirnir heíjast alhr kl. 20. Á morgun leika SnæfeU og-Árvakur í Stykkishólmi, Víkingur og HB á Hell- issandi, Fjölnir og Afturelding á Val- bjamarvelh, Hvöt og HSÞ-h á Bakka- kotsvehi og Dagsbrún og KS á Dvergasteini. -BL Feröafélag íslands: Þórsmörk, Mýrar og Fjallabak Ferðafélag íslands stendur fyrir fjölbreyttum ferðum þessa helgi sem endranær. Helgaferðir frá fóstudegi th sunnudags verða tvær. Farin verður hringferö að FjaUabaki. Leið- in Uggur í Laugar - í Eldgjá - að Álftavatni og byrjar og endar í Reykjavík. Gist verður í Laugum og við Álftavatn. Hin helgarferðin er í Þórsmörk og verður gist í Skag- fjörðsskála. Dagsferðir verða hjá Ferðafélaginu bæöi á laugardag og sunnudag. Laug- ardagurinn er tekinn snemma og lagt af stað í tvær ferðir kl. 8.00. Annars vegar verður farið að TröUakirkju í Hnappadal. Hún er 941 metra hátt fjall í framhaldi af Smjörhnjúkum, austan Hítarvatns. Hins vegar verð- ur gengið á Eldborg á Mýrum. Lagt verður upp frá Snorrastöðum. Um hálftíma gangur er að gígnum sem er óvenjulega reglulegm- og rís um 60 metra yfir hraunið um kring. í sömu ferð verða Gullborgarhellar í Gullborgarhrauni sóttir heim. KL. 8.00 á sunnudag verður farin dagsferð í Þórsmörk. Hægt er aö framlengja ferðina. Þá verður gengið á Grænudyngju og um Sog og Soga- selsgíg. Sú ferö hefst kl. 13.00 og lýk- ur á LækjarvöUum í Móhálsadal. Nánari upplýsingar og farmiðasala er á skrifstofu Ferðafélagsins, Mörk- inni 6. Margir leggja leið sína í Þórsmörk um bæöi FÍ og Útivist þessa helgi. hverja helgi. Þangað eru ferðir hjá jþróttir Unglingarnir keppa í frjáls- um á Dalvík Islandsmeistaramót 18 ára og yngrt verður haldið á Dalvík um helgina. Mótið hefst kl. 10 báöa dagana. Alls eru 635 keppendur skráðir til keppni. Hvíta kúlan rúllar Nokkur golfmót eru á dagskrá um helgina. Á Ólafsfírði verður opið Coca Cola mót þar sem keppt er í flokkum. Leiknar verða 36 holur með og án for- gjafar. Hjóna- og parakeppni verður hjá Golfklúbbnum á Hellu, öldungamót hjá GF á Flúðum, einnig er LEK-mót á Akureyri og opið kvennamót á Dalvlk. Þá verður Einherjamót I Leirunni á laugardag. íslandsmótið í tennis islandmótinu I tennis iýkur um helgina með úrslítaleikjum I meistaraflokkum á völlum Vík- ings í Fossvogi. Sumarmót UMFA í knattspyrnu Á Tungubakkavelli í Mos- feilsbæ verður á sunnudaginn haldið knattspyrnumót með sjö leikmönnum I hverju liði. Leik- menn, sem ieika 11. og 2. deild, fá ekkí vera með t mótinu. Maraþon hjá SH Sundfélag Hafnarfjarðarstend- ur fyrir maraþonsundi i Suður- bæjariaug og hefst það á há- degi í dag en lýkur á hádegi á morgun, laugardag. Stefnt er að því að synda alls 110 km en alls taka 17 sundmenn þátt í sundinu. Ætlunin er að safna fé til æfinga- og keppnisferðar til Þýskalands í ágúst. Ferðir Útivist Útivist mun standa fyrir tveggja nátta ferð í Þórsmörk um þessa helgi. Farið verður af stað úr Reykjavík á föstudag. Gist er í Básum, skála eða tjöldum, og verða skipulagðar gönguferðir fyrir hópinn. Þá verður farin önnur ferð. Þar verður gengið á Fimmvörðuháls. Lagt verður upp frá Skógum á laugardag og gist í Fimmvörðu- skála um nóttina. Á sunnudegin- um verður svo komið niður í Básum. Fararstjóri er Hörður Har- aldsson. Dagsferðir helgarinnar verða tvær og hefjast báðar kl. 8.00 á sunnudag. Annars vegar verður farið I stutta ferð I Bása I Þórs- mörk og hins vegar gengið á Ok. Það er 7. áfangi fjallasyrpu Úti- vistar og er áætlaður göngutími 5-6 klst. Brottför I allar ferðirnar er frá BSl, bensínsölu. Nánari upplýs- ingar og miðasala er á skrifstofu Útivistar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.