Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 30
34 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 Menning_________________________ Einsöngstónleikar í Sigurjónssaf ni Tónleikar voru í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í gærkvöldi. Hulda Sigríöur Geirsdóttir, söngkona, söng viö undirleik Hólmfríðar Sigurðar- dóttur, píanóleikara. Á efnisskránni voru verk eftir Gabriel Fauré, Ric- hard Strauss, Sergey Rachmaninoíf, Leonard Bemstein, Giacomo Pucc- ini, Charles Gounod, Antonin Dvorak, og Franz Lehar. Þetta var fjölbreytt efnisskrá og að mörgu leyti vel valin. Tvö lög sem flutt voru eftir Fauré voru stílhrein og hljómuðu fallega. Lakari vora önnur tvö lög eftir Strauss, sem voru heldur sviplaus í einhvers konar samþýskum stíl. Mörg sexundar og sjöundarstökk í seinna laginu gáfu yflrbragð átaka sem raunverulega voru ekki til staðar. Strauss fékk upp- Tónlist Finnur Torfi Stefánsson reisn æru í Zueignen sem er mjög vel heppnað sönglag og var flutt sem aukalag. Lögin eftir Rachmaninoff, þótt ekki væru þau illa gerð, skildu heldur ekki mikið eftir. Leonard Bemstein getur ekki talist til mestu tón- snillinga aldarinnar en í „I hate music" tekst honum að draga upp skýra mynd af viðfangsefni sem byggist á skemmtilegri hugmynd. Fáir slá Pucc- ini út í aríusmíð þegar honum tekst best upp. Arían úr Turandot sem þama var flutt, er ef til vill ekki hans besta en engu að síður fallegt og skýrt verk. Aría Gounods úr Faust hefur skrautlega og í rauninni efnis- ríka laglínu ofan á heldur þunnum undirleik. Hún hittir í mark þegar hún er vel flutt og með tilþrifum eins og var á þessum tónleikum. Þjóð- lagabragur setur fallegan lit á aríu Rúsölku úr samnefndri óperu eftir Dvorak og hljómaði hún mjög vel þarna. Síðasta lagið á efnisskránni var eftir Lehar og hljómaði eins og gamalt dægurlag, sem það er, en náði þó að hræra svolítið í væmnistaugunum í fólki. Hulda Guðrún er vel þjálfuð söngkona með góða og töluvert mikla rödd. Hún söng af öryggi og sýndi oft töluverð tilþrif bæöi í að fást við erfið tæknileg atriði og í túlkun. Ef aö einhverju mætti finna þá hætti henni til á stöku stað að láta raddsveiflurnar sjúska tónhæð, sem er varasamt því að það getur orðið ávani eins og mörg dæmi sanna. Píanóleikur Hólmfríð- ar var yfirleitt mjög góður og tilfinning hennar fyrir jafnvægi píanós og söngvara var áberandi góð. Henni var nokkur vorkunn þótt henni yrði örlítill fótaskortur á áttundarspili í ópemaríunum. Efnið er hljómsveitar- tónlist umskrifuð fyrir píanó og heldur vanþakklátt fyrir pínóleikara. Bandamannasaga aftur á fjalirnar Sjónleikurinn Bandamannasaga eftir Sveinn Einarsson verður sýndur í Nor- ræna húsinu tvisar sinnum í þessari viku, miðvikudag 25. ágúst og fimmtudag 26. ágúst kl. 20.30. Sýningar verða í fund- arsal Norræna Hússins og eru þær liður í 25 ára afmælishátíð hússins sem nær hápunkti nú í ágústlok. Aðgöngumiðar verða seldir í Norræna húsinu og kosta kr. 500. Sveitatöfrar ’93 Dagana 28. og 29. ágúst nk. verður haldin fjölskylduhátíð að Sjávarhólum, Kjalar- nesi. A hátíðinni, sem ber heitið „Sveita- töfrar ’93“, verður margt til skemmtun- ar, bæði fyrir böm og fullorðna. Boðið verður upp á skemmtiatriði eins og dans, galdra og spákonur. Einnig verður boðið upp á þyrluferðir, hestaferðir og mótor- hjólaferðir. Fram kemur ungur móto- ki’ossökumaður sem stekkur í gegnum eld á torfærumótorhjóli sínu. Torfæru-, fom- og kvartmíluökutæki verða til sýn- is, myndbönd kynnt, gönguferðir um Esjuna með leiðsögumanni, veitingar og fl. Einnig munu ýmis fyrirtæki kynna vörur sínar og selja. Boðið verður upp á tónleika, bæði laugardags- og sunnudags- kvöld. Er þar um að ræða hlöðuball ann- ars vegar og tjaldball hins vegar. Bæði böllin fara fram á tímabilinu frá kl. 22.00-03.00 á laugardagskvöldið en hlöðu- tónleikamir fara fram á sunnudags- kvöldið milli kl. 22.00 og 01.00. Eins og nafnið ber með sér fer hlöðuballið fram í hlöðunni á Sjávarhólum og munu eftir- taldar hljómsveitir spila á hlöðuloftinu: Lipstick Lovers, Dos Pilas, Lifun, Strips- how og Synir Raspútíns. Á tjaldballinu, sem fer fram í 400 fermetra tjaldi, spilar hljómsveitin Örkin hans Nóa fyrir dansi. Selt verður inn á svæðið sem hér segir: 0-6 ára fá frían aðgang. 6-12 ára kr. 500. Fullorðnir kr. 1000. Á staðnum verða sal- emi, Pizza 67 selur nýbakaðar pitsur, heitt veröur á könnunni ásamt öðmm veitingum. Markmið þessarar hátíöar er að bjóða almenningi upp á að koma í sveitina og skemmta sér í íslenskri nátt- úm áður en skóli og vetur ganga í garð. Félag íslenskra nuddfræðinga Stjóm félags íslenskra nuddfræðinga hef- ur ákveðiö eflirfarandi: 1. Inntökuskil- yrði í félagið séu: a. bóklegt nám á fram- haldsskólastigi á námsbraut fyrir nudd- ara; b. verklegar greinar séu metnar eftir nuddskólum eða nuddkennurum, sem félagiö viðurkennir, um allan heim, lág- mark 500 klukkustundir; c. starfsþjálfun sé lágmark 700 klukkustundir. 2. Akvörö- unin gildir um alla nemendur sem hefja nuddnám eftir 1. júlí 1994. Markmið fé- lagsins er að efla nuddmenntun í land- inu, efla faglega stöðu nuddfræðinga og efla heilsu landsmanna. Tapað fundid Páfagaukur fannst Gulur páfagaukur með grænleitum stél- fjöðrum fannst í Garðabænum um tíu- leytið á mánudagskvöldið. Nánari upp- lýsingar í sima 656339. Tilkynningar WALTER WAGER # mmam Ný Úrvalsbók Hér er á ferðinni enn ein Úrvalsbókin. Þetta er harðsoðin spennusaga af gamla skólanum, meðan sovétið var alvöru sov- ét og þar með meginófétið. Síminn eftir Walter Wager er ekki ein af nýjustu bók- um þessa vinsæla höfundar en sennilega sú sem hvað oftast hefur verið endurút- gefln. Hún hefur nú loks verið þýdd á íslensku. Verðið er kr. 895 en í áskrift kostar hún kr. 540. Blómin springa út á írlandi Hljómsveitin Vinir vors og blóma, sem hefur getið sér gott orð á meðal íslend- inga, ætlar nú að heija á Dublin á ír- landi fostudaginn 27. ágúst nk., þar sem hún leikur í virtum tónlistarklúbbi sem ber nafnið „Rock Garden”. Lagið þeirra „Gott í kroppinn”, sem hefur verið að kynda vinsældarlistana að undanfórnu, verður flutt þar á tveimur tungum; á írsku „In the body“ og á nýlendu-þýsku „Schrubba light“. I júnl síðastliðnum keyptu þeir Úlfar Finnbjömsson matreiðslumeistari og Agnar Hólm Jóhannesson þjónn veit- ingastaðinn Jónatan Livingston Máf ásamt sambýliskonum sínum, þeim Sigr- únu Hafsteinsdóttur og Halldóru Finn- bjömsdóttur. Úlfar og Agnar em báðir þekktir fagmenn og er markmið þeirra að gera góðan veitingastað enn betri. ■' Nýr, glæsilegur matseðill hefur þegar lit- ið dagsins ljós á veitingastaðnum og hef- ur hann hlotið góðar viðtökur. Veiðivon Grímsá í Borgar- f irði hef ur gef ið þúsund laxa - Armennveidduvelaffiski Veðurfarið hefur breyst, það hefur hlýnað en það þarf regn og það mik- ið þessa dagana. í margar veiðiárnar vantar meira af fiski því þessir legnu taka illa hjá veiðimönnum. „Við veiddum 50 laxa hollið í þijá daga og helling af fallegum sjóbirt- ingi, það er þónokkuð af fiski í Grímsánni," sagði Kolbeinn Ingólfs- son en hann var að koma úr Grímsá í Borgarfirði með Ármönnum. En Kolbeinn hefur oft veitt í Grímsá og mögrum sinnum veitt þá væna þar, sérstaklega þegar hausta tekur. „Það var búið að segja að ekki væri mikið af fiski en mér fannst mikið um alla á. Sjóbirtingurinn get- ur líka verið skemmtilegur á flug- una,“ sagði Kolbeinn en Ármenn veiða bara á fluguna. Vantar regn í Miðfirðinum „Það veiddust þrír laxar í morgun í Miðíjaðará, það vantar regn í Mið- fjörðinn þessa dagana og nýja fiska," sagði Gísh Haraldsson í veiðihúsinu í Miðfirði í gær. „Núna eru komnir á milli 730 og 740 laxar,“ sagði Gísli ennfremur. Veiddu feiknavel í Gufudalsánni „Veiðimenn, sem voru fyrir skömmu, veiddu 140 bleikjur í vatn- inu og þær stærstu voru 4 pund,“ sagði Pétur Pétursson, er við spurö- um um Gufudalsá í Reykhólahreppi. „Þetta vom þeir Öm Svavarsson, Tómas Ragnarsson og félagar sem veiddu þessa fiska flesta í vatninu. Vatnið kraumaði af fiski og flugan gaf þeim vel. Það hafa veiðst 400 sil- ungar og stærstu bleikjurnar em 5 pund. Silungurinn er mjög seint á ferðinni þetta sumarið en endirinn gæti orið meiri háttar góöur," sagði Pétur í lokin. „Þetta var frekar rólegt í Kjósinni, það veiddust þó tíu laxar í morgun,“ sagði Halldór Ingvarsson en hann var í Laxá í Kjós í gærmorgun. Laxá í Kjós hefur gefið 1222 laxa núna. „Það var eitthvað af fiski á svæði eitt, við sáum þar 15-20 laxa. í Bugö- unni vom fáir laxar og þeir vildu • Veiðin í Brúará hefur verið allgóð í sumar og vænir silungar kæta veiðimenn eins og þessi væni urriði semvar5pund. DV-mynd ÞÞÞ ekki neitt blessaðir þar,“ sagði Hall- dór ennfremur. 22 punda sá stærsti í Aðaldalnum Laxá í Aðaldal hefur gefið 1722 laxa • Tólf hundruð laxa múrinn hefur verið rofinn í Elliðaánum og gott betur, fluguveiðin hefur sótt betur og betur á síðustu dagana. DV-mynd SK og stærsti laxinn ennþá er 22 pund, það var Ólöf Jónsdóttir sem veiddi fiskinnáDevon. -G.Bender Hafnargönguhópurinn í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.00 fer Hafnargönguhópurinn í gönguferð með Fossvoginum. Farið verður frá Hafnar- húsinu. Hægt verður að velja um að sigla úr Gömlu höfninni út fyrir Gróttu og inn Skerjafjörð og leggjast að bryggju í Kópa- vogi eða fara landleiðina með AV. Vita- og hafnamálaskrifstofan í Kópavogi verð- ur heimsótt. Aö því loknu verður gengið með Fossvoginum og síðan farið til baka með SVR niður í miðbæ. Ferðin tekur um þrjár klukkustundir. Fargjald kr. 1000 í bátirrn, annars strætisvagnafar- gjald. Allir velkomnir í gönguferð með Hafnargönguhópnum. Nýr aðalræöismaður ísraels í heimsókn sinni fyrir nokkrum dögum afhenti Simon Peres, utanríkisráðherra ísraels, Páli Arnóri Pálssyni hæstaréttar- lögmanni formlega forsetabréf um til- netningu hans sem aðalræðismanns ísra- els á íslandi. Fór afhendingin fram í lok ræðu Peresar í kvöldverðarboði því er Davíð Oddsson forsætisráðherra hélt táöherranum í Þingholti sl. fóstudags- kvöld. Aðalsteinn Eggertsson stórkaup- maður hefur verið aðalræðismaður ísra- els sl. 20 ár en hættir nú að eigin ósk. Páll Amór Pálsson rekur lögmannsstofu að Ármúla 26, Reykjavík. Aðsetur og póstfang hinnar nýju ræðismannsskrif- stofu verður á skrifstofu Páls Amórs og mun hann sinna þaðan veryulegum verk- efnum ræðismanns. Sími skrifstofunnar er 685122 og bréfsimi 686503. Húbert Nói í Borgarkringlunni Nú stendur yfir á Götugrillinu í Borgar- kringlunni sýning á verkum eftir lista- manninn Húbert Nóa Jóhannesson. Myndimar em allar unnar í olíu á striga. Sýningin er opin á verslunartíma Borg- arkringlunnar og stendur til 20. septemb- er. Sjö, níu, þrettán! Sjö, níu, þrettán! er vinnuheiti á upp- flettibók um hjátrú í daglegu lífi og störf- um íslendinga sem unnið hefur verið að undanfarin misseri á vegum bókaforlags- ins Vöku-Helgafells. Bókin mun koma út fyrir næstu jól og er nú verið að leggja síðustu hönd á vinnslu efnisins. Rætt hefur verið við fjölda fólks um allt land og feikimiklum upplýsingum safnað sam- an. Engu að síður óskar forlagið eftir því að þeir sem kynnu að hafa eitthvaö slíkt fram að færa láti frá sér heyra áður en endanlega verður gengið frá bókinni til prentunar. Meðal þess sem fjallað er um er ýmiss konar hjátrú tengd bömum, meðgöngu og fæðingu, hári, íþróttum og fl. Enn vantar þó ítarlegri upplýsingar um nokkur atriði, einkum í sambandi við brúðkaup og það sem tengist brúðinni sérstaklega. Þeir sem luma á fróðleik eða reynslusögum hvaö þetta varðar, eða önnur atriði er tengjast hjátrú íslend- inga, em vinsamlegast beðnir að skrifa Vöku-Helgafelli að Síðumúla 6, 108 Reykjavík, eða hringja í ritstjóra bókar- innar, Símon Jón Jóhannsson þjóðfræð- ing, í síma 650415. Kínakvöld í kvöld, miövikudagskvöld, kl.20.00 verð- ur Kínaklúbburinn með þriðja Kina- kvöldið á Shanghai. Unnur Guðjónsdóttir mun segja frá fyrri ferðum Kinaklúbbs- ins til Kína og sýna myndir þaðan sem hún hefur sjálf tekið. Þá mun hún segja frá næstu ferð klúbbsins sem farin verð- ur 1. október nk. Tai-chi-juan (kínversk leikfimi) og „konkubínu" dans verður sýnt og margréttuð kinversk máltíð verð- ur framreidd. Sætapöntun hjá Shanghai í síma 16513 en verðið er kr. 950 á mann. Tombóla Þessar ungu stúlkur, sem heita Agnes Gísladóttir og Kamilla Reynisdóttir, héldu nýlega tombólu til styrktar krabba- meinssjúkum bömum. Alls sötnuðu þær kr. 2781.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.