Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1993, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1993 30 t@nlist ________________________________________________PV Pís of keik með sína fyrstu plötu í fullri lengd: Reynum að skapa okkur sérstöðu í danstónlistinni - segir Máni Svavarsson, höfundur laganna á plötunni „Ef ég á að bera tónlistina á nýju plötunni saman við það sem við höf- um áður sent frá okkur frnnst mér hún dýpri en hingað til. Við höfum dregið úr poppinu og einbeitum okk- ur betur að danstónlistinni en fyrr. Það sem við erum að gera er meira í ætt við evrópska danstónlist en bandaríska. Við reynum þó vitaskuld að skapa okkur sérstöðu en ekki herma bara eftir þeim sem eru að fást við svipaöa hluti og við.“ Þannig svarar Máni Svavarsson spumingunni um á hvaða línu hljóm- sveitin Pís of keik sé á nýrri plötu sinni sem kemur út eftir nokkra daga. Platan heitir „Doit“ og á henni eru ellefu lög eftir Mána við texta þre- menninganna í hljómsveitinni. Hann segist fyrst og fremst líta á lögin sem danstónlist og lætur öðrum eftir að flokka hana í undirflokka. „Ég vil einfaldlega ekki taka þátt í að raða henni í „rave“, „house“, „trans“ eða annað sem danstónlistin skiptist í. Það verða aðrir að sjá um,“ segir hann. „Ég neita því ekki að það gætir hjá okkur svolítilla áhrifa frá vinsælum evrópskum danstónlistar- mönnum svo sem 2 Unlimited, Haddaway, Culture Beat og fleirum. En að sjálfsögðu erum við ekki að stæla neinn og ég treysti mér ekki að segja að Pís of keik standi nær ein- hverjum einum erlendum flytjanda öðrum fremur." Engin bóla Auk Mána eru Ingibjörg Stefánsdóttir og Júlíus Kemp í Pís of keik. Hingað til hafa þau sent frá sér lög á nokkrum safnplötum og voru einnigatkvæðamikil i kvikmyndinni Veggfóðri. „Doit“ er fyrsta plata þeirra í fullri lengd. Nokkrir gestir koma ffam á plötunni: Ingólfur Sig- urðsson trommuleikari, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson gitarleikari og aðstoðarupptökustjóri plötunnar, Sigurður Flosason saxófónleikari og Ellý Vilhjálmsdóttir, sem syngur með í einu lagi, „útvarpsvæna laginu á plötunni," segir Máni og brosir. „Sigurður fer á kostum í einu laginu þar sem hann spinnur stórgott djasssóló á saxófóninn ofan á hefð- bundið danslag,“ bætir hann viö. „Viö reynum að skapa plötunni sérstöðu með ýmsum þess háttar ráðum til að hún hljómi ekki eins og flö PIONEER ! The Art of Entertainment Pís of keik, Ingibjörg Stefánsdóttir, Júlíus Kemp og Máni Svavarsson. hver önnur bóla sem kemur upp í dag og er svo sprungin á morgun. Til dæmis heldur bandaríski sjónvarps- prédikarinn Jimmy Swaggart þrumuræðu í einu lagi plötunnar." Máni segir að tónlist Pís of keik höfði aðallega til unglinga á aldrinxnn ði aðaijega til unglinga jpj©túgagnrýni þrettán til sautján ára. En harm veit einnig til þess að eldra og yngra fólk hlusti á hana. Hann segir að áhuginn fyrir danstónlist sé merkilega mikill á landsbyggðinni, raunar jafnvel hlutfallslega meiri en á höfuðborgar- svæðinu. Mr. Big - Bump Ahead: ★ ★ Varist eftir- vinsældalistunum, því það er al- gjörlega út úr kú miðað við annað efhi á plötunni. -Sigurður Þór Salvarsson líkingar Mr. Big er ein þessara amerísku rokksveita í milliþungavigtinni sem er rígfost í gamla arfmum frá tímabilinu upp úr 1970. Nafn sveitarinnar er meira að segja fengið frá þeim tima en það er upphaflega nafn á lagi með þeirri góðkunnu hljómsveit, Free. Lag Ýmsir flytjendur - Diskóbylgjan: Traust safn « Fjölmargar geislasafnplötur - breskar, bandarískar, þýskar og þannig mætti lengi telja - hafa komið út með diskótónlist sjöunda áratugarins. Engin sem ég hef heyrt kemst þó jafhnálægt því að endurspegla það sem vinsælast varð í Hollywood, Óðali, Klúbbnum og H-100 og Diskóbylgjan. Enda annaðist gamalreyndur plötu- snúður val laganna. Elstu lög plötunnar eru frá árinu 1974 og þau yngstu komu út nokkur eftir 1980. Yfirleitt er talið að fyrsta diskólagið hafi komið út árið 1974. Það var Rock Your Baby sem George McGrae söng fyrir slysni og seldi í yfir tíu milljón eintökum þá um sumarið. Gaman hefði verið að hafa það með í staðinn fyrir til dæmis Rock The Boat frá sama sumri. Ekki hefði heldur spillt að hafa svo sem eitt lag með Donnu Summer með á safiiinu. Raunar mætti telja upp allmikið af lögum sem að skaðlausu hefðu mátt fylgja á plötunni en þau koma kannski út síðar og fyfla upp í mynd þess tíma i sögu dægurtónlistarinnar á seinni hluta tuttugustu aldarinnar sem margir telja þann ómerkflegasta. En hvaða þetta er einmitt að finna á þessari plötu Mr. Big og hljómsveitin hefur sýnt þá virðingu að flytja það óbreytt.. Það tekst bara nokkuð vel, enda hefur Eric Martin, söngvari Mr. Big, ótrúlega líka rödd og Paul Rodgers og nokkuð greinilegt að Rodgers er hans fyrirmynd. Áhrifin frá Free sem hljómsveit eru sömuleiðis augljós í tónlist Mr. Big þó Free hafi aldrei fengist við keyrslurokk af því tagi sem Mr. Big spilar. Blúsinn var þó alltaf undirtónninn hjá Free og hann er líka að finna hér og hvar í lögunum á þessari plötu. Samt vantar afla sannfæringu í þessi lög og í hefld hljómar þetta eins og vasaútgáfur á verkum meistaranna. Til dæmis er hreint hlálegt að heyra gamla Cat Stevens lagið Wild World í flutningi Mr. Big með aflri virðingu fyrir þessum ágætu mönnum. Það lyktar langar leiðir að þetta lag er einvörðungu haft með til að eiga greiðan áðgang að „Við ætlum að fylgja útkomu plötunnar eftir með veglegum út- gáfutónleikum og vonumst einnig til að geta komið fram með tuttugu til þrjátíu mínútna prógramm á skemmtistöðum. En draumurinn er að fara einnig út á land, efna til dæmis til rave-hátíðar í einhverju félags- heimilinu með tveimur diskótek- urum og halda ærlega danshátíð." Áhugi Mána hefur aðallega beinst að danstónlist síðan hann var tólf til þrettán ára gamall - þegar diskó- tónlistin var sem vinsælust. Hann segist vera undrandi á hversu fáir jafnaldrar sínir fáist við þetta form hér á landi. „Ég veit að margir líta niður á danstónlistina og finnst hún bara ómerkflegurtaktur," segir hann. „En laglínan er að sjálfsögöu alltaf til staðar eins og í annarri dægurtónlist þótt hún sé kannski óhefðbundin. Ég er mjög sáttur við útkomu tónlist- arinnar á plötunni. Ef eitthvað er hljómar hún betur en ég bjóst við í upphafi. Ég er sannfærður um að ég get sett hana á fóninn i fimmtugs- afmælinu mínu og hlustað á hana kinnroðalaust með gestunum!" mælistiku sem menn leggja á diskóárin verður því ekki á móti mælt að Diskóbylgjan er sennflega sú plata sem gefur heiflegasta mynd af því sem gekk á diskótekum landsins á þessumumdeilda tíma. Ásgeir Tómasson Daryl Hall - Soul Alone: ★ ★ Bragðdaufur Var John Oates drifkrafturinn í dúettinum Daryl Hafl og John Oates? Svo virðist vera þegar hlust- clawl háll , sol að er á Soul Alone. Á henni er fátt sem minnir á afrek pfltánna á seinni hluta áttunda áratugarins og sér í lagi íyrri hluta þess níunda. Þótt Daryl Hall sé fúllbragðdaufur fyrir minn smekk á þessari nýjustu plötu sinni er hann þó afar vandaður og fágaður. í tónlistinni er að finna visst afturhvarf til soultónlistarinnar sem áreiðanlega hefur sett sitt mark á hann á árum áður. Hafl er frá Fíladelfiu og soulið þaðan naut verulegra vinsælda um og upp úr 1970. Á Soul Alone er margt að fmna sem minnir á þá tónlist. Það sem á skortir er hins vegar sterku laglínumar sem einkenndu tónlist félaganna áður fyrr. Tónlistin á Soul Alone er áferðarfafleg en dæmd til að fara inn um annað eyrað og út um hitt. Eiginlega heppilegust sem bakgrunnstónlist og myndi áreiðanlega sóma sér prýðilega sem lyftutónlist í einhverju stórhótelinu í Fíladelfíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.