Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994 13 Bryndís ívarsdóttir sendi okkur eílirfarandi heilræöi varðandi sparnað: 1. Betri er greidd skuld en munaður í munni. 2. Ekki selja hlutabréfin í heilsulindinni þinni, hættu heldur að i-eykja. 3. Hleyptu heilsunni að og hentu sígarettunni. 4. Klippt kort er betra en klippt skott. aðu pen- inga Við fengum þéttskrifað blaö frá Björk Felixdóttur þar sem hún telur upp ýmsar leiðir til sparn- aðar. Sumar þeirra hafa þegar komið fram en hér fylgja riokkrar nýjar: 1. Notaðu ekki hefti eða kort nema nauðsyn beri til og skammtaðu þér peninga í veskið, þá kaupir þu ekki óþarfa. 2. Ixtggðu fyrir dálitla peninga í hverjum mánuöi, þá koma t.d. fasteignagjöld þér ekki í opna skjöldu. 3. Hugsaðu vel um heils- una, það getur sparað læknis- og lyfjakostnað og jafnvel vinnutap. 4. Stundaðu ókeypis útivist. Lok á pönn- una Og enn heldur Björk áfram: 5. Búðu sjálf(ur) til eins margar af- mælis- og jólagjafir og þú getur. 6. Gardínur fyrir gluggum og lok á pottum og pönnum spara raf- magn. 7. Skemmtanir þurfa ekki að vera dýrar; bíó á þriðjudags- kvöldum á tilboðsverði, nammi- dagur einu sinni í viku, fara á staöi sem ekki kostar inná, nota strætó i bæinn en leigubíl heim og drekka sig ekki útúrdrukkinn, heldur mátulega, þá manstu bet- ur hvað þú skemmtir þér vel. Kredit- kortið Hér kemur gótt ráð frá Ragnari Karlssyni um hvernig hægt er að venja sig af því að nota kredit- kort. Byrjaðu á því að greiða allt með peningum síðustu fimm dag- ana í þessurn kortamánuði og síð- ustu tíu dagana í þeim næsta. Haltu svo þannig áfram koll af koJIi þannig að þú verðir búin(n) að losa þig við koröð eftir sex mánuði. Þá getur þú farið að fá staðgreiðsluafslátt og eyðir ósjálfrátt minna i óþarfa. Fækka umbíl Ragnar er á þeirri skoðun að með því að fækka um einn bíl á heimiiinu sparist 100-400 þústmd krónur á ári. „Notiö frekar þann sem fyrir er meira og takið strætó eða leigubila (í hófi) þegar þess er þörf, það er ódýrara.". Sparið alls- staðar Hún Þórunn Þ. Guðmundsdótt- ir vildi henda á augljósan spamað sem felst i því að fólk fari vel með fötin sín og skófatnaö. Það getur sparað heilmikla peninga ef fót og skór endast í mörg ár. Einnig sagði hún aö nota mætti hrein- lætisvörur í hófi og passa aö láta ljós ekki loga nema þau séu i notkun. „Kaupið líka meira hakkað kjöt, það er ódýrara og úr því má búa til marga góða rétti.“ -ingo Neytendur DV gerir verðkönnun á þorramat: Ódýrasti þorrabakkinn á 832 krónur kílóið -um 8% ódýrari en ódýrasti bakkinn í fyrra Þorrinn gengur í garð á morgun og er þá til siðs að blóta hann með því aö borða alls kyns súrmat og annan kjamgóðan íslenskan mat eins og hangikjöt, harðfisk og rúg- brauð. Koma þorra er miðuð viö bóndadaginn en samkvæmt fornu íslensku tímatali er þorrinn fjórði mánuður vetrar og hefst aUtaf á fostudegi í 13. viku vetrar, á bilinu 19.-25. janúar. Ýmsar verslanir og veitingahús bjóða af þessu tilefni upp á þorramat sem þó er æöi misjafn og misjafnlega vel úti látinn. Bakkamir eru misstór- ir og því er í verðsamanburði á þeim reiknað út kilóverö. Hins vegar getur samsetning bakkanna verið mis- munandi og verð ráöist að hluta til af magni dýrra tegunda eins og harð- fisks og hangikjöts. Ekkert mat var lagt á gæði innihaldsins í þessari könnun. Á allflestum bökkunum var að finna sviðasultu, slátur, bringukolla, 'lundabagga, hrútspunga, síld, rófu- stöppu, harðfisk, hákarl, hangikjöt, rúgbrauð og smjör en margir bæta við svínasultu, síld, ítölsku salati, magál, grísatám, sviðalöppum, sels- hreifum og jafnvel súrri lúðu í stað hvals sem hvergi fæst. Ódýrasti bakkinn í Nóatúni Nóatún býður að þessu sinni upp á ódýrasta þorrabakkann á 832 kr. kílóið. Það er stór tveggja manna bakki sem vegur tæp 1200 g og kostar 998 kr. Til samanburðar má geta þess að ódýrasti þorrabakkinn í fyrra fékkst í Kjötbúri Péturs og kostuðu þá 1100 g 997 kr., eða 906 kr. kg. Nóatún býður uppá eins manns og tveggja manna bakka og kostar sá minni 598 kr. og vegur 620 g, eða 965 kr. kg. Innihaldið er það sama á báð- um, einungis meira á þeim stærri að viðbættu ítölsku salati. Súrmatur er einnig seldur í lausu. Kjötbúr Péturs var að þessu sinni með næstódýrasta tveggja manna bakkann á 866 kr. kílóið en hann kostar 996 kr. og vegur 11-1200 g. Á honum eru 16 tegundir af þorramat og getur fólk skipt út ef það vill eitt- hvað annað en það sem á bakkanum er. Fyrir stærri blót, 25 manns eða fleiri, býður verslunin upp á 25 teg- unda bakka á 980 kr. á manninn. Súrmatur líka í lausu í Fjarðarkaupum fást tvær stærðir af þorrabökkum frá KEA. Eins manns bakki kostar 683 kr. og vegur 550-600 g en tveggja manna bakki kostar 1.238 kr. og vegur 1140-1150 g. Þar er einnig seldur súrmatur í lausu frá Blönduósi. Kjöt og fiskur selur eins manns bakka á 552 kr. og vegur hann 550 g. Tveggja manna bakkar fást á 1Ý03 kr. og vega 1100 g. Einnig fæst þar þorramatur í lausu. Ef pantað er fyr- ir 15 manns eða fleiri kostar þorra- maturinn 1.250 kr. á manninn. í Austurveri er allur þorramatur seldur eftir vigt og kostar kílóið 995 kr. Þar eru bakkarnir útbúnir eftir óskum hvers og eins. Hagkaup býður þorramat frá Borg- arnesi, KEA og Kjarnafæði á Akur- eyri ásamt því að selja súrmat frá Borgarnesi í lausu. Tveggja manna bakki frá Borgarnesi, 6-700 g, kostar 6-700 krónur en á honum er ein- göngu súrmatur svo kaupa þarf hangikjötið, harðfiskinn, flatkökum- ar, rúgbrauðið og smjörið sér. Eins manns bakki frá KEA, 500 g, kostar 683 kr. og tveggja manna bakki, 1 kg, Þorrahlaðborð á veitingahúsum Naustið Fjöru- Sex- Potturinn Mamma kráin baujan ogpannan Rósa * Lágmark 15—20 manns Það var í nógu að snúast hjá Þórarni Guðmundssyni í Múlakaffi í gær enda háannatími framundan eftir að þorrinn hefur hafið innreið sína. DV-mynd GVA kostar 1.238 kr. Þorramaturinn frá Kjarnafæði er væntanlegur um helg- ina en þá kemur eins manns bakki, 500 g, til með að kosta 677 kr. og tveggja manna bakki, 1 kg, 1.245 kr. í Garðakaupum kostaði tveggja manna bakki frá KEA, 1200 g, 1.238 kr. en þar er einnig boðið upp á salt- kjöt og nýtt lambakjöt. Ekki var komið verð á eins manns bakka. All- ur súrmatur fæst þar einnig í lausu. Hlaðborðin vinsæl Þorrahlaðborðin á veitingahúsunum standa alltaf fyrir sínu en í könnun- bmi voru þau á verðbilinu 1.290-2.500 krónur fyrir manninn. Veitinga- Kflóverð á þorrabökkum í verslunum 1400' H Stór S Lítill (V) 7 1 ± £ w o> o> = /0 —Cö o w £ Fjarðar- kaup Kjöt og Austur- fiskur Nóatún Hagkaup ver Garða- kaup Kjötbúr Péturs LsAlÍP mennimir voru samstiga í því að bjóða ekki upp á þorrahlaðborð fyrr en á fyrsta degi þorra, það er á morg- un. Mamma Rósa í Kópavogi var ódýr- ust með 27 tegunda hlaðborð á 1.290 kr. en þar er standandi þorrahlað- borð á kvöldin en einungis eftir pönt- un í hádeginu. Næst kom Potturinn og pannan en þar er einungis boðið upp á hlaðborðið að kvöldlagi um helgar. Boðið er upp á súpu á undan og 25 tegundir af þorramat á 1.390 kr. fyrir manninn. Veitingahúsið sel- ur einnig þorramatinn út og kostar hann þá 1.190 kr. á manninn. Sexbaujan á Eiðistorgi býður ein- ungis upp á hlaðborð ef hópar, lág- mark 15-20 manns, taka sig saman og panta. Þar er boðið upp á 17 teg- undir af þorramat á 2 þúsund krónur fyrir manninn. Fjörukráin í Hafnar- firði býður upp á 25-30 tegundir fyrir 2.300 kr. en þar er einnig seldur út þorramatur á 1.900-2.100 kr. fyrir manninn. Loks selur Naustið hlað- borðið á 2.500 kr. fyrir manninn á kvöldin en 1.950 kr. í hádeginu. Múlakaffi og veitingahúsiö Árberg selja einnig út þorrabakka. í Múla- kaffi kostar tveggja manna hjóna- bakki, 1250 g, 1.790 kr. eða 1.432 kr. kílóið. Ef pantaður er þorramatiu- fyrir 5 eða fléiri kostar hann 1.490 kr. á manninn. í Árbergi kostar ems manns bakki, 740 g, 1.280 kr. eða 1.730 kr. kg. 1-2 manna bakki kostar 1.790 kr. og vegur um 1100 g (1.627 kr. kg). Ef 30 eða fleiri panta hlaðborð kostar það 1.480 kr. á manninn og einn skammtur á veitingastaðnum kostar 790 kr. með súpu og kaffi á eftir. -ingo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.