Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994 Fréttir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson á þriggja tíma fundi í gær: Landbúnaðardeilan óleyst - segjastviljahaldastjómarsamstarfinuáfram Eftir þriggja tíma fund formanna stjórnarflokkanna í gær er landbúnaðardeilan enn óleyst. Þeir Jón Baldvin Hannibalsson og Davíð Oddsson sögðust þó ákveðnir í því að halda stjórnarsamstarfinu áfram. Þeir áformuðu að hittast aftur í morgun. DV-mynd JAK „Alþýðuflokkurinn er reiðubúinn að skoða allar tillögur eða hugmynd- ir sem byggja á lagatæknilegri skoð- un ef hægt er að gera frumvarpið skotheldara með einhverjum slíkum breytingum. En við föflumst ekki á efnislegar breytingar sem ganga á snið við samkomulag stjórnarflokk- anna. Upp er kominn sá misskilning- ur að imnt sé með einhverri máls- grein í búvörulögum að kveða á um skipan tollamála eftir gildistöku GATT. Það er mjög flókið tæknilegt mál sem kallar að sjálfsögðu á sam- ráð allra ráðuneyta sem að málinu koma. Þessum misskilningi þarf að eyða. i annan stað verður að binda svo um hnútana að skiigreiningar í lögum séu pottþéttar, menn verða að vita að reginmunur er á verðjöfnun- argjöldum og tollum. Þegar þessum misskilningi er eytt fæ ég ekki betur séð en ekkert tflefni sé til að tala um stjómarkreppu. Alþýðuflokkurinn stendur við það frumvarp sem ríkis- stjómarflokkamir hafa komið sér saman um og þingflokkamir hafa samþykkt. Það eina sem þarf aö forð- ast er að þetta pólitíska samkomulag verði ekki virt, farið verði að gera allt annað en um var talað,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráöherra eftir þriggja tíma fund sinn með Davíð Oddssyni forsætisráð- herra í gærdag. Oddvitum stjómarflokkkanna tókst ekki að finna lausn á landbún- aðardeilu flokkanna á fundinum. Eftir fundinn var ljóst að kratar ætla ekki að bakka í andstöðu sinni við breytingartillögur Egils Jónssonar og meirihluta landbúnaðamefndar við búvörulögin. En Davíð sagðist þeirrar skoöunar að tiflögurnar frá landbúnaðamefnd rúmuðust innan samkomulags sljómarflokkaima um breytingar á búvöruiögunum. „Eg get þó viðurkennt að það er ákveðið álitamál varðandi þetta 50 prósent jöfnunarálag sem kannski ætti að vera með öðrum hætti í frumvarpinu en það er núna,“ sagði hann. Vilja áframhaidandi samstarf Davíð og Jón Baldvin eyddu annars mestum tíma í að ræða stjómarsam- staríið og voru sammála um að halda því áfram. „Ég vil taka af öfl tvímæli um að það er ekkert tilefni til að búa til samsæriskenningar eða að ætla okk- ur alþýðuflokksmönnum að það móti afstöðu okkar í málinu að við séum að undirbúa stjómarslit. Ég trúi ekki öðm en að það takist samkomulag milli stjórnarflokkanna um að virða okkar pólitíska samkomulag um bú- vörulögin. Það er hvorki ástæða né tilefni til annars nema menn vilji endilega reyna að skaða þetta stjóm- arsamstarf,“ sagði Jón Baldvin. „Það er ljóst í mínum huga að for- maður Alþýðuflokksins er eindregið þeirrar skoðunar aö þessi ríkisstjóm eigi að klára sitt verk og láta ekki mál af þessu tagi mgla sig í ríminu. Það væri mikið slys ef mál af þessari stærðargráðu mundi velta stjóm sem er að gera góða hluti að mínu viti,“ sagði Davíð Oddsson. Á meðan oddvitar stjómarflokk- anna ræddu stjómarsamstarfið sátu þrír lögfræðingar, sem hafa verið formanni landbúnaðamefndar Al- þingis til ráðuneytis, á fundi með sérfræðingum utanríkis-, viðskipta- og fjármálaráðuneytisins. Þar var rætt um lagatexta frumvarpsins og breytingartfllögur Egils Jónssonar og meirihluta landbúnaðamefndar. Ætluðu Davíð og Jón Baldvin að bíða niðurstöðu sérfræðinganna um mál- ið áður en næsta skref yrði stigið. Átti annar fundur flokksformaim- anna að hefjast í morgun. -hlh Gyifi Kriutjteöan, DV, Akureyit Jóhanni Hjartarsyni stórmeist- ara viröist líka þaö vel að tefla á Akureyri því þar hefur hann að sögn aldrei tapaö kappskák. Hann er f efsta sæti alþjóðlega skákmóts- ins þar að loknum 4 umferðum meö 3,5 vinninga ásamt stigahæsta manni mótsins, Sokolov. Jóhann tefldi með svörtu í gær gegn Hollendingnum van Wely og sigraöi og Sokolpv gerði þá jafntefli gegn Margeiri. Önnur úrslit urðu aö Helgi Ólafsson og Ðaninn Berg gerðu jafhtefli, Þröstúr Þórhaflsson vann Danann Danielsen, De Firm- ian vann Ólaf Krisfjánsson og Gylfi Wrhallsson Akureyringur vann annan sigur sinn í röö er hann lagði Björgvin Jónsson. Staða efstu manna er þaniug að Jóhann og Sokolov hafa 3,5 vinn- inga sem fyrr sagði, van Wely 2,5 og tvo vinninga hafa De Firmian, Gylfi og Danielsen. Fimmta uraferð verður tefld í Alþýðuhúsinu í dag ' kl. 17. Ein stærsta landaverksmiðja til þessa var upprætt á föstudagskvöidið þeg- ar lögreglumenn frá Breiðholtslögreglunni og rannsóknardeild lögreglunn- ar létu til skarar skríða í verksmiðju i austurbæ Reykjavíkur. Tvö þúsund litrar af gambra fundust og 800 kg af sykri og sjást Amþór Bjarnason og Einar Ásbjörnsson lögreglumenn á myndinni við eimingartækin á vettvangi. DV-mynd Sveinn Egill Jonsson: Breyti ekki afstöðu minni „Eg hef í engu breytt minni afstöðu til málsins og mun ekki draga neitt til baka af því sem ég hef þegar sagt um málið. Ég hef ekki verið þátt- takandi í atburðum helgarinnar, hef setið á friðarstóli," sagði EgUI Jóns- son, formaður landbúnaðamefndar Alþingis, við DV í gærkvöldi en hann sagði í DV á fostudag að hann mæti málefnin en ekki líf ríkisstjóma. Landbúnaðamefnd mun hitta lög- fræðilega ráðunauta sína á fundi á þriðjudagsmorgun og fara yfir texta breytingartillögu meirihluta land- búnaöamefndar eins og lögfræðing- amir verða búnir að stflla honum upp eftir nánari skoðun. Egill vildi ekki meina að fundurinn með sér- fræðingum viðskipta-, fjármála- og utanríkisráðuneytis mundi breyta neinu varðandi efnislegt innihald textans. „Við erum búin að fara efnislega rajög nákvæmlega yfir málið. Við munum fallast á stöku orðalags- breytingar eða breytingar á lagalega tæknflegum atriðum, svo framarlega sem þau hindra okkur ekki í að klára máliö. Ég mun ekki gera neinar efh- islegar breytingar á tillögunni. Land- búnaðamefnd hefur ákveðið að af- greiða málið á þriðjudag samkvæmt fyrri áætlunum sínum og þær standa.“ -hlh Prófkjör sjálfstæðismanna á Selfossi: Sigurður Jóns- son í fyrsta sæti Sigurður Jónsson, kennari og bæj- arfulltrúi, varð efstur í prófkjöri sjálfstæðismanna á Selfossi sem fram fór á laugardag. Hlaut hann 202 atkvæði í fyrsta sæti af alls 386 at- kvæðum. 531 tók þátt í prófkjörinu sem er ívíð betri þátttaka en 1990 þegar 506 tóku þátt. Bjöm Ingi Gíslason, hárskeri og bæjarfulltrúi, hafnaði í öðm sæti með 242 atkvæði en alls 414 atkvæði. Rétt á hæla Birni kom Ingunn Guö- mundsdóttir, bankastarfsmaöur og bæjarfulltrúi, með 329 atkvæði í 3. sæti. Ingunn fékk flest atkvæði í þrófkjörinu, alls 441, þar af 232 í ann- að sæti. Allt fram tfl loka talningar- innar var jafnræði með Bimi og Ing- unni í keppninni um annað sætið. Kristín Pétursdóttir þjónustufull- trúi lenti í fjóröa sæti með 224 at- kvæði en hlaut alls 373 atkvæði. Steinar Árnason framkvæmdastjóri hlaut 191 atkvæði í fimmta sæti og Halldór Páll Halldórsson kennari 179 í það sjötta. Kosning í sex efstu sætin er bindandi. í sjöunda sæti hafnaði Ragnhildur Jónsdóttir meðferðarfulltrúi, Einar Gunnar Sigurðsson trésmiður og handknattleiksmaður hafnaði í því áttunda og Pálmi Egilsson vélstjóri í níunda sæti. Stuttar fréttir Bifreiöaeigendum er nú gert að greiða úr eigin vasa 10 til 15% af því tjóni sem þeir verða fyrir þeg- ar frami'úður skeramast. Skv. Mbl. er lágmarksgjaldið 2 þúsund krónur en mest þurfa bifreiöaeig- endur að borga 20 þúsund. Lagasetning boðuð Svavar Gestsson, formaður iðn- aöarnefndar Alþingis, ætlar aö beita sér fyrir því að lög verði sett með hraöi sem banni Fisk- veiðasjóði að lána útgerðum til viðgerða og skipasmiöa erlendis.; RÖV greindi frá þessu. vinniiDrogoum monnæit Starfsraannaféiag Varaarliðs- ins hefur raótraælt brottrekstri þríggja starfsmanna sem vildð var úr starfi vegna gmns um þjófhaö. Rannsókn var felld niöur vegna skorts á sönnunuin. Morg- unblaöið skýrði frá þessu. TáJknfirðingur á brott Tálknafjarðarhreppur hefur ákveðið að nýta sér ekki for- kaupsrétt á togaranum Tálkn- firðingi BA 325. Morgunblaðið greindi frá þessu. islenskirtónar i Li!!ehammer Tónverkið Rímur, sem Hafliði Hallgrímsson samdi fyrir norsku ólympíunefndina, var flutt íLille- hammer í gærkvöldi. RÚV skýrði frá þessu. Kjarasamningur feHdur Félagsmenn bifVeiðastjórafé- lagshis Sleipnis hafa fellt kjara- samning sem gerður var í vor. Tíminngreindifráþessu. -kaa -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.