Alþýðublaðið - 28.06.1967, Qupperneq 11
Jim Ryun setti heimsmet í
míluhlaupi á meistaramóti USA
fyrir helgi, hljóp á 3:51,1 mín.
Gamla metið, 3:51,3 mín. átti |
Ryun sjiálfur. Paul Wilson setti
(heimsmet í stangarstökki, stökk
5,38 m., sem er 3 sm. betra en
met Seagren fyrir tveimur vik-
um.
— o —
í Kaupmannahöfn kepptu Dan-
ir, Hollendingar, Tyrkir og Aust-
uríkismenn í undanrásum Evrópu
bikarkeppninnar í frjálsum íþrótt
um. Pötsch, Austurríki sigraði í
kúluvarpi með 17,27 m. og van
der Kruk, Hollandi varð annar
með 17,08, sem er hollenzkt met.
Heuvel, Hollandi sigraði í 400 m.
íhlaupi ó 47,9 sek. Justesen, Dan-
mörku varð þriðji á 49,6 sek. —
Þessi mynd var tekin á Siglufirði á hátíðahöldum 17. júní, en þar voru m.a. ýmsar íþróttir, Á myndinni
sjást þrír af 100 metra hlaupurumun, en beztum tíma náði Sigurjón Erlendsson 12,0 sek. llinir hlaupar- ;
arnir á myndinni eru Hallvarður Óskarsson oe Jóhann Tómasson. (Mynd: — jr.).
Rreum, Danmörku sigraði í há-
stökki, 2,05 m. en Kanis, Hollandi
varð annar með 1,93 m. Nánar
síðai'.
Keppnistímabil
golfmanna hafið
Þessi mynd er frá leik Vals og KR-inga í fyrrakvöld. Það er hætta við mark KR-inga, en elcki tókst
Val að skora.
FRAM IBK JAfNTEFLI 1:1
Akureyri sigraði Akranes 4:1
Fram og Keflavík gerðu jafn.
tefli 1-1 á Laugardalsvellinum í
gærkveldi I fremur tilþrifalitlum
og tæklfærasnauðum leik. Bæði
mörkin voru skoruð í fyrri hálf-
leik, en í síðari hálfleik var ekk
ert mark skorað þrátt fyrir all-
mörg marlxskot.
Framarar sóttu meira í byrjun
leiksins, en vörn Keflavíkur varð
ist vel. Þegar skammt var liðið
af hálfleiknum var dæmd víta-
spyrna á Keflavík, sem Framarar
skoruðu örugglega úr Eftir það
gekk hvorugu liðinu betur fyrr
en á 30. mín. að góð sending kem
ur utan af vinstri kanti fyrir
mark Fram, skallað var í átt að
marki og Jón Jóhannsson skilaði
boltanum í netið með frábærum
skalla yfir markmann Fram. Eft-
ir markið var eins og Keflvíking-
ar sæktu í sig veðrið um stund,
en tókst ekki, frekar en Fram
Framhald á bls. 14.
KEPPNISTÍMABIL G. R. hófst
20. maí með keppni um Arnesons
skjöldinn. — Þátttakendur voru
mjög margir miðað við vetrarleg-
an og illa farinn völl í Gi'afar-
holtsdal. Hinn 27. sama mánaðar
'hófst svo Hvítasunnukeppni G. R.
með 18 holu höggleik með forgjöf.
16 beztu héldu síðan áfram í út-
sláttarkeppni, sem stóð alla næstu
viku og lauk með úrslitum laug-
ardaginn 3. júní.
Úrslit í undankeppni 18 holur
I með forgjöf:
1. Svan Friðgeirsson 89 — 24 alls
65 högg.
2. Sveinn Gíslason 97—30 alls 67
högg.
3. Yilhjáimur Ólafsson 95^23
alls 72 högg.
Án forgjafar:
1. Óttar Yngvason 88 högg.
2. Svan Friðgeirsson 89 högg.
3. Gunnar Þorleifsson 91 högg.
Til úrslita um Hvítasunnubikar-
inn léku Hörður Ólafsson (forgj.
30) og Vilhjálmur Ólafsson (forgj.
23). Þeir léku 36 íiolur í afar
hai'ðri og tvísýnni keppni, er lauk
með sigri Harðar, sem fékk ein
5 taögg frá Vilhjálmi. Vilhjálmur
veitti Herði mikla keppni, en
missti tökin á 36. holu og tapaði
því 1 — 0. Keppendur voru alls 30,
sem teljast verður frábær þátt-
taka svo snemma sumars.
Jason Clark.
Keppni þessi er 36 holu höggl.
og öll leikin á sama degi. Afar
illa viðraði sunnud. 11. júní, er
keppni átti að hefjast. Aðeins 6
keppendur voru mættir til leiks
enda ausandi slagveður af suð-
Framhald á 14. síðu.
íslandsmót hand-
knattleiksmanna
verður háð í Hafn-
ÍSLANDSMEISTARAMÓT í hand
knattleik utanhúss fer fram í
Hafnarfirði á tímabilinu frá 22.
júlí n. k. til 20. ágúst.
Mótið mun fara fram á malbik-
uðu svæði við Lækjarskóla og
verður í umsjá Handknattleiks-
deildar F. H.
Tilkynning um þátttöku þarf að
senda til Handknattleiksdeildar F
H í**P. O. Box 210, Hafnai-firði
eigi ‘áíðar en 9. júlí n. k.
Keppt verður í meistaraflokki
karla og kvenna.
28. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ JJj