Alþýðublaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 5
26- september 1968 ALÞÝÐUBLAÐI9 5 66°/o Bandaríkja- manna vilja 18 ára kosningarétt *se0' Stuðningur við 18 ára kosningaaldur hefur aldrei verið mjeiri en nú í Bandaríkjunum, að því er Gallup stofnunin í Princeton heldur fram. Byggist þessi fullyrðing á víðtækri skoðanakönnun um bandarskt stjórnarfar, sem stofnunin lét gera um miðjan septembermánuð. Kosningaréttur er bundinn við 21 árs aldur í Bandaríkjunum^ nema í fjórum fylkjum, þar sem hann er allt niður í 18 ár. ÞavÉ eru Georgia, Kentucky, Alaska og Hawaii. Gallup stofnunin kannaði stuðning Bandaríkjamanna við 18 ára kosningaaldur fyrst árið 1939. Þá reyndust aðeins 17% vera hlynntir þeirri breytingu. Nú kom í ljós. að 66% af öllu fulltíða fólki í landinu er hlynníl því, að 18, 19 og 20 ára fólk fái að kjósa. Unga fólkið var ekki spurt um þetta mál. Kemur sjálfsagt engum til hugar í Bandaríkjunum, að- þau firn geti gerat, að unga fólkið afþakki þessi mannréttindi. eins og nokkrir fram- haldsskólanemendur hafa gert hér uppi á íslandi. Rússar hóta Israel MOSKVA: Sovétstjórnin aðvar. aði ísraelsmenn í gær, vegna „þeirrar alvarlegu ábyrgðar," sem Ísraelsríki bærj á afleið- ingmn þeirra „hættulegu ögr- ana,“ er það hefði haft í frammi við Sameinaða Arabalýðveldið, Jórdan og Sýrland að undan- förnu. í yfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar, sem yfirmaður blaðaþjónustu sovézka utaríkisráðuneytisins, Iveonid Zamjatin, las upp á fundi með fréttamönnum í Moskvu í gær, var þó ekki nánar skýrt', við hvaða afleiðingar átt væri. Bæði í yfirlýsingu stjórnar- innar og í svörum Zamjatiris við spurningum fréttamanna, kom það glöggt fram, að Sovét- ríkin hefðu ennþá trú á þvi, að vandamálin í Mið- austur löndunum mætti leysa á friðsam- legan hátt fyrir atbeina Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna, vænt anlega á grundvelli þeirrar á- lyktunar, sem Öryggisráðið gerði um málið, í nóvembermánuði í fyrra. Talið er á’ Vesturlöndum að yfir- lýsing Sovétstjórnarinnar sýni litla breytingu á stefnu hennar í málefnum Mið-austur- landa, en því hafði greinilega verið hagað svo til, að yfirlýsingin birtist um sömu mundir og fundir Allsherjar þingsins hæfust í New York. Leiðtogar Sovétríkjanna, sem stut't hafa Arabaríkin ósleitilega með vopnasendingum og öðru eftir ósigur þeirra í sex daga stríðinu í fyrra, eru greinilega ekki bjartsýnir á, að Aröbum byrji vel, komi til alvarlegra á- taka víð ísraelsmenn öðru sinni. Myndin er tekin í Lindarbæ af stofnfélögum Leikrmi|'/j/'jni):ar, félagsskaparins. myndin táknræn fyrir heiti j LEIKSMIÐJAN nýstárlegt leikhús Stofnaður hefur verið hér í borg félagsskapur leikhúsfólks. Kallar hópurinn sig: LEIKSMIÐJUNA og hefur að markmiði að rækta íslenzka leiklist. Smiðjan hyggst m.a. ná til- gangi sínum með eftirtöldum ráðum: Mynda ‘hóp leikara, sem 'eingöngu sinnir verkefnum Smiðjunnar. Leggja skal áherzlu á að at- huga íslenzka þjóðhætíi, mál, Fyrstu tén leikarnir erui SLU FSF í dag, fimmtudaginn 26. sept- ember, heldur Sinfóníuhljóm- sveit íslands fyrstu tónleika sína á þessu misseri. Norðmað- urinn Sverre Bruland stjórn- ar þessum tónleikum. Detlef Kraus, hinn frægi þýzki einleikari, leikur einleik í Píanó- konsert nr. 2 í B-dúr eftir Brahms. Önnur verk á efnisskránni eru Fanfare og Koral eftir Norðmann inn Egil Hovland og Sinfónía í g-moll, K.V. 550 eftir Mozart. Nýkomjn er út hjá Ríkis útgáfu námsbóka önnur út- gáfa af Starfsfræði eftjr Krist in Björnsson, sálfræðing og Stefán Ól. Jónsson, náms- stjóra. Myndskreytingu he'fur Þröstur Magnússon annazt, en í bókinni eru alls 67 myndir. Þetta er kennslubók í starfs fræði, ætluð fólki á aldrjnum 14-17 ára. svo og öðrum þeim, sem hyggja á náms- og stöðu- val. í bókinni eru gerð skil aðal atriðum námsefnis í starfs- fræði, og ætlazt er tjl, að kenn arar geti notað hana við kennslu. Bókin greinist í nokkra aðal hluta- Fyrst er stutt yfirlit um atvinnuþróun, ejnkum hér á landi. Því næst er kafli um störf og starfshópa. Þá er sér- stakur kaflj með mörgum skýr ingarmyndum um skóla og námsbrautir og annar um vinnustaðinn og aðstöðu þar. í-jíðasta hluta bókaHinnar er ætlað að leiðbeina nemendum við sjálft náms- og starfsval.ð Þar er drepið á helztu atriðin, sem hafa þarf í huga við náms- og starfsval. Ætla má, að bók þessi verði löllum gagnleg, sem vilja kynna sér nám og námsbrautjr hér á landi, því að í henni er að finná ýmsar upplýsingar um iþau mál. Þó mun þókinni fyrst og fremst ætlað að vekja æskufólk til Umhugsunar um sjálft náms- og stöðuvalið og þann undirbúning, sem fara verður fram, áður en valið er. Sá undirbúningur felst í því að kynna sér vel atvinnulíf og verkaskiptingu samfélags- ins, námsbrautir og ejgin ósk ir, óbuga og getu. Prentun bókarinnar annað- ist Prentsmiðja Hafnarfjarða h.f. itóniist og máttúrueinkenni í (þeim tilgangi að finna sérein- kenni íslenzks hugsunarháttar og skáldskapar. Reynt verði að velja ætíð (þiau viðíangsefni (þemu) til meðferðar, sem iþykja eiga Ibrýnt erindi við fólkið sem sýnt cr fyrir og eru tímabærar. Fyrdtu vérkefni smiðju'nnar leru Gaidra-Loftur og Litli prins* inn. Eyvindur Erlendsson, sem er meistari (yfirsm,iður) við smiðjuna, leikstýrir Galdra- Lofti, og hyggst hann haga upp aetniijgunni sem mest eins og Jóhann sjálfur hugsaði sér. Leiksmiðjan mun brátt halda ú:t á land með þessi tvö verk- efni og verður fyrsta sýningin fimmtánda okt. Æfingar Smiðjunnar fara fram í Lindarbæ, og má segja, að hún sé í og með skóli. Dag- lega eru æfingiar, sem lúta að almennri þjálfun leikara, líkam legri og andlegri. Stofnfélagar ‘leiksmiðjunnar eru níu. Þeir eru Iþessir: Amar Jóngson, Edd,a Þórarinsdóttir, Eyvindur Ei’lendsson, Bjarni Steingrímsson, Karl Guðmunds son, Níels Óskarsson, Sigmund- ur Örn Arngrímsson, Sólveig Hauksdóttir, og Þórhildur Þor- leifsdóttir. Vert er, að starfsemi þessari sé fullur gaumur gefinn og er vonandi, að á henni sannist, að Ihægt sé að 'halda uppi menndng- arstarfsemi hér. , Jafðskjátfti Taprrul, Mexíkó, 25. 9. Tólf manns létu lífið og mörg hundruð manns m'sstu heimili sitt þegar jarðskjálfti dundj yfir þorpið Chiapas í suð austur Mexíkó, rétt við landamær'; Guatemala í gser Fólkið lézt þegar heimiH þeirra hrundu saman meðan á jarðskjálftanum stóð, en hann stóð yfir í 26 sekúndur. 2,2 metra flóðbylgja fylgdi á eftjr jarðskjálftanum og færði næst ,um í kaf hafnarbæjnn Salina Cruz. Sþróttðklúbbur FUJ Næstkomandi þr ðjudag 1. október verður haldjnn stofn- fundur íþróttaklúbbs á vegum Félags ungra jafnaðaxmanna í Reykjavík. Fjöldj þátttakenda takmarkast v ð 25, þar sem íþróttasalur sá, sem klúbbur inn mun hafa til notkunar í vetur, rúmar ekki fleirj. Þeir, sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi íþróttaklúbbsins í vetur, eru beðnir um að hafs. samband við skrifstofu A) ■ þýðuflokks ns i síma 15020 fyr ir næstkomandi laugardag. Þátttökugjald er 500 krónur fyrir veturinn. Undirbún; ngsnefndin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.