Dagur - 15.03.1934, Side 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhauns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XVII
é ár. ^
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 15. marz 1934.
28. tbl.
Innlendar
Flokksþing Framsóknarmanna.
er sett skyldi 17. þ. m. í Reykja-
vík, er nú ákveðið að sett skuli
degi síðar, sökum seinkandi skips-
ferða. Er þetta gert til hægðar-
auka Norðlendingum og Austfirð-
ingum og er þó vafasamt að komi
að haldi, sökum þess hve skipa-
ferðir eru óhentugar úr lagi um
þetta leyti.
Landsfundur bænda, er nú
stendur yfir í Reykjavík, hefir
samþykkt að skora á stjórnina að
hverfa frá gullfæti í gengismál-
inu og taka upp nýja mynt. Enn-
fremur að lækka nú þegar gengi
krónunnar um 25% að minnsta
kosti. (ÚF).
Guðmundur Hlíðdal landsímastj.
og Gunnlaugur Briem verkfræð-
ingur eru nýkomnir frá útlöndum
og samningagerðum um hina fyr-
irhuguðu þráðlausu talstöð í
Reykjavík, er hafa skal beint
samband við Danmörku og Eng-
land. Búizt er við að stöðin verði
reist innan 12 mánaða og kosti
um 375,000 kr. Hefir hagkvæmt
lán fengizt, og verða vextir af
því 3Va%* Þá hefir og Marconi-
félagið brezka lofað 10000 ster-
lingspunda láni til framkvæmda
og verða vextir af því fé 5%. —
Gjöld til London verða 12 eða
12y2 shilling fyrir mínútu hverja
sem talað er, en viðtalsbil hvert
verður 3 mínútur. Má þó búast
við að gjaldið lækki, ef stöðin fær
nóg að gera. Samanborið við önn-
ur lönd eru samningar hagkvæm-
ir fyrir ísland. T. d. er gjaldið 12
shillingar fyrir mínútu hverja ef
talað er frá London til skipa inn-
an 900 kílóm. fjarlægðar, en 24
ef fjarlægðin er meiri en 900 kíló-
metrar, frá London til Kairo 24
shillingar, til New York, Austur-
Canada og Indlands 40 sh., til
Cuba 52 sh. og til Sandwichseyja
66 sh.
Ráðgert er að halda áfram að
byggja verkamannabústaði í Rvík
í sumar, áfasta við þá, sem áður
hafa verið byggðir. Mynda þá bú-
staðirnir fullbyggðir ferhyrning,
er nefndur verður »Alþýðuhverfi
Vesturbæjar«. — Formaður bygg-
ingarsjóðs, Magnús Sigurðsson,
hefir útvegað 225.000 kr. lán hjá
líftryggingarfélaginu »Thule«, til
40 ára, með 5% vöxtum, affalla-
laust og án umboðslauna. Er gert
f r é 11 i r.
ráð fyrir að byggja 50 verka-
mannabústaði og verði því lokið
14. maí 1935.
ívar Þórarinsson fiðluleikara,
Guðmundssonar, er nýlega kom-
inn til Reykjavíkur frá Kaup-
mannahöfn, þar sem hann hefir
lært nýja iðngrein, en það er
fiðlusmíði. Er hann fyrsti íslend-
ingur er það smíði hefir numið.
Ætlar hann nú að setjast að í
Reykjavík og koma þar upp verk-
stæði, smíða fiðlur, gítara og
önnur strengjahljóðfæri og gera
við þau. Hafi slík hljóðfæri bilað
nokkuð að mun hér á landi, hafa
eigendurnir neyðzt til þess að
senda þau utan í viðgerð, en nú
þarf þess eigi framar. —
Leifur Ásgeirsson, stærðfræði-
meistari, settur skólastj. á Laug-
um, hefir nú verið ráðinn til þess
starfa næstu 5 ár. Ráðsmaður
verður þar Jóhann ólafsson.
Aflafréttir.
Uppgripaafli hefir verið á Isa-
firði undanfarna góðviðrisdaga
og hefir aflazt þar 8—15 skp. á
bát, en sumir aflað jafnvel meira.
* * *
Vélbáturinn Egill frá Ilúsavík,
er um viku hefir verið á hákarla-
veiðum, kom nú inn með full-
fermi. Hafði hann fengið 112 há-
karla og 12 (?) tunnur lifrar.
Stærsti hákarlinn, er báturinn
fékk, var 17 fet á lengd og í hon-
um 112 lítrar af lifur.
Lungnapest hefir gert vart við
sig í Borgarfirði syðra, en eigi
eru þó mikil brögð að henni enn.
GENGI var um síðustu helgi
sem hér segir: Sterlingspund
22.15, dollar 4,37V2. þýzkt mark
172.90, franskur franki 28.82,
belga 101.80, svissneskur franki
141.26, líra 38.00, finnskt mark
9.93, peseta 60.28, czeknesk króna
18.42, sænsk króna 114.41, norsk
króna 111.44, dönsk króna 100.
Gullverð íslenzkrar krónu, miðað
við gullverð frankans, var 50.74.
(ÚF).
Glimu- og skemmtanamót verður
haldið að Laugaskóla 28. þ. m. Standa
ungmennafélög í Þingeyjarsýslu að
mótinu. (ÚF).
t
Magnús Einarsson,
organisti.
Þar er sannmerkilegur maður
til moldar genginn. Langa æfi
vann hann, fullur af eldlegum á-
huga, við léleg laun og litlar
þakkir. Það er svo með hann, sem
marga af ágætustu mönnunum, að
það er fyrst nú, fyrir tiltölulega
fáum árum, sem menn eru að átta
sig á þvi, hvílíkan mann við höf-
um átt í honum. Brautryðjend-
urnir og afburðamennirnir eru
nálega aldrei metnir að verðleik-
um af samtíðinni, og svo var og
um hann. Hann sótti heldur ekki
eftir metorðum né mannvirðing-
um. Honum var listhneigðin í
blóð borin, og á unga aldri brauzt
hann í því, að afla sér dálítillar
menntunar í sönglist. Dvaldi
hann vetrartíma hjá sr. ólafi
Pálssyni á Melstað, og nam af
honum undirstöðuatriði söngfræð-
innar, og einhverja tilsögn mun
hann hafa fengið hjá honum í
orgelspili. Mörgum árum síðar
dvaldi hann í Kaupmannahöfn, og
naut kennslu í hljómfræði hjá
tónskáldinu Viggo Sanne. Þó
námið væri þannig mjög af
skornum skammti, var Magnús
merkilega vel að sér. Lögmál
hljómfræðinnar, jafnt óskrifuð
sem skrifuð, lágu ljóst fyrir hon-
um.
Brennandi áhugi var það sem
einkum einkenndi störf hans, og
ég er sannfærður um, að Magnús
Einarsson hefir, af náttúrunnar
hendi, verið okkar mesti söng-
stjóri (dirigent). Hann var bráð-
natinn við raddkennslu og slyng-
ur að koma röddum saman. Hann
var hrifnæmur mjög, og það svo,
að þeir sem með honum unnu,
gátu ekki varizt þess að smitast
af honum hvað það snerti. Átti
hann þess vegna betra með að ná
valdi yfir þeim, sem hann stjórn-
aði, sem og samúð þeirra, er á
hlýddu.
Magnús Einarsson á öllum öðr-
um íslendingum frekar skilið að
teljast brautryðjandi kórsöngs
hér á landi, einkum karlakórs.
Þar komst hann langt fram úr
sínum tíma. För hans með Heklu
til Noregs, skömmu eftir aldamót-
in, mun lengi verða í minnum
höfð.
Magnús var prýðilega gefinn.
Glaðlyndur og spaugsamur ávallt,
Nýja-Bíó gg
Föstudags- laugardags og sunnu-
dagskvöld klukkan 9.
Fyrri hluti 10 pættir.
Tal- og hljómmynd I tveim hlutum
- 20 páttum.
Aðalhlutverkin leika:
HARRY CAREY og ROBERI BOSWORTH.
Mynd þessi er tekin eftir hinni
heirosfrægu Indíánasögu Coopers,
Gerist hún um miðja 18. öld,
er Frakkar og Englendingar eru
að berjast um yfirráðin í Ame-
ríku. Koma þar mikið við sögu
Indíánahöfðingjarnir Sagamore
og Uncas sonur hans, sem gengu
i lið með Englendingum og
unnu mikið þrekvirki.
Myndin er talin að vera sígild
menningarsöguleg heimild frá
þessu tímabili, stórkostlega spenn-
andi og með aibrigðum fögur
landlagsmynd.
mjög laglega hagmæltur, og urðu
margar lausavísur hans land-
fleygar. Hann las mikið, einkum
hin síðari árin, og gat aldrei bók-
arlaus verið heimafyrir. Tví-
kvæntur var hann og lifir hann
síðari konan, Aðalbjörg Steins-
dóttir, sem og dóttir þeirra hjóna.
Magnús á mikið og merkilegt
menningarstarf að baki sér hér í
bæ. Og um land allt mun hans
minnst af öllum þeim fjölda, sem
beinlínis eða óbeinlínis nutu hans
náðargáfna.
Fyrir rúmu ári var hann heiðr-
aður með riddarakrossi ísl. fálka-
orðunnar. S. B.
Erl. fréttir.
í danska þinginu voru á þriðju-
daginn til umræðu húsnæðislögin,
er samþykkt voru á ófriðarárun-
um til þess að koma í veg fyrir
húsaleiguokur í bæjum og borg-
um. Hafa Danir litið ríkt eftir
því, að þau væru haldin. En húsa-
leiguokrurunum hefir auðvitað
verið meinilla við þau. — í um-
ræðunum á þriðjudaginn kom í
ljós, að jafnaðarmenn og frjáls-
lyndi flokkurinn vildi halda í lög-
in, en íhaldið var algjörlega á
móti þeim, kvað þau óþarfar leif-
ar ófriðaráranna og enga hættu á
því, að húseigendur og leigjendur
mundu ekki eftirleiðis koma sér
Framh. á 4. síðu,