Dagur - 23.03.1955, Blaðsíða 8

Dagur - 23.03.1955, Blaðsíða 8
8 Baguk Miðvikudaginn 23. marz 1955 71400 frjáplöniur gróðursetfar á vegum Skógrækfarfél. Eyfirðinga Frá aðalfundi félagsins, sem haldinn var síðast liðinn sunnudag Aðalfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga var haidinn í Iþrótta- húsinu á Akureyri 20. marz si. — Guðmundur Karl Pétursson yfir- læknir, fprmaður félagsins, bauð gesti velkomna og stjórnaði fundinum. Mættir voru fulltrúar frú öllum 10 deildum félagsins. í ársskýrslu stjórnarinnar, er formaður flutti kom fram, að vel hefur verið haldið í horfinu með störf og stefnu. Fræðslufundir voru haldnir í öllum deildum fé- lagsins á árinu og kvikmyndin „Fagur er dalur“ sýnd á þeim öll- um, að einni undanskilinni. Var aðsókn hvarvetna mjög góð. Plöntuuppeldi og gróðursetning. Aðalstarf félagsins er þó eins og áður, plöntuuppeldið og gróð- ursetning trjáplantna í hin af- girtu skógarsvæði félagsins. Ur uppeldisstöð félagsins, und- ir umsjón Ármanns Dalmanns- sonar framkvæmdastjóra Skóg- ræktarfélagsins voru seldar 29070 skógarplöntur og 2590 garðplönt- ur. Ein af mörgum gróðursetning- arferðum félagsins var farin í Miðhálsstaði í Oxnadal og gróð- ursettar þar 7000 trjáplöntur til minningar um Þorstein Þor- steinsson, sem lengi og ötullega vann að skógræktarmálum, svo sem kunnugt er. En alls voru gróðursettar á vegum félagsins sl. ár um 71400 plöntur, þar af 20 þús. hjá stærstu deildinni, Skóg- ræktarfélagi Akureyrar, Kynni skólafólks af trjárækt. Guðmundur Karl Pétursson sagði frá aðalfundi Skógræktar- félags íslands, sem haldinn var að Hallormsstað í sumar, og lýsti þeim áhrifum er menn yrðu fyrir á þeim stað, jafnvel svo að blindir fengju sýn. í sambandi við þetta urðu nokkrar umræður um nauðsyn þess að skólaferðunum væri beint þangað, meira en verið hef- ur. Var það þá upplýst að sjald- an væri orðið fært bifreiðum austur þangað á þeim tíma er skólaferðirnar eru famar. Þá var einnig um það rætt að tengja 'saman skógræktarstörf almenn- um skólum. Ungmennafélögin og Ferðafé- lagið hafa komið til móts við skógræktarstörf almennum skól- um. Fundur skógræktarmanna. Ármann Dalmannsson, sem ný- lega er kominn heim af fundum fulltrúa skógræktarfélaganna, sagði fréttir og framtíðarhorfur. Á þessu ári verður ekki hægt að fullnægja eftirspurn um trjá- plöntur. En skógræktarmenn minntir á að koma á þessu ári upp girðingum og undirbúa á annan hátt stórfellda sókn. Því að á næstu árum munu skógræktar- stöðvarnar fullnægja eftirspurn- inni og búa sig undir ört vaxandi eftirspurn. Eyfirðingar þurfa þó ekki að kvarta í þessu efni, og er það eigin uppeldisstöð að þakka. Hún er nú að komast af erfiðustu reýnsluárunum og hyggur á auk- ið starf. (Frarahald á 7. síðu) Uppskipim lir Arnarfelli stöðvuð í gær í gærmorgun hófst hér ó Ak- ureyri uppskipun á kaffi og sykri úr m,s. Arnarfelli, en eft- ir skamma hríð stöðvaði Verka- mannafélag Akureyrarkaup- staðar vinnu, í umboði Alþýðu- sambandsins vegna Dagsbrún- ar í Reykjavík. Hér er ekki verkiall, en ástæða var talin að allur farmurinn væri á skrá til aðalinnflytjandans í Reykjavk. 1 þessu sambandi er rétt að minna á, að svo er jafn- an um vörur af þessu tagi, er fluttar eru I heiíum förmum, en þær eru eigi að sður ætlaðar fjölmörgum öðrum stöðum og skipin sigla með þær þangað. Var svo í þetta sinn. Hér átti að fara á land nokkurt magn, en alls ekki vörur, sem í rauninni eru ætlaðar Reykvíkingum eða Hafnfirðingum. Virðist stöðv- unin því á misskilningi byggð. Hafði skipið og Iosað á Aust- fjörðum án þess að reynt væri að stöðva það. Aðalfundur Framsóknarféiags Ákureyrar á mánudagskvoldið Aðalfundur Framsóknarfélags Akureyrar var haldinn að Hótel KEA sl. mánudagskvöld. — Fóru þar fram venjuíeg aðalfundar- störf, en síðan hófust umræður um stjórnmálaviðhorfið og hafði Jakob Frímannsson framkv.stjóri franisögu. Sagði hann m. a. frá starfi síð- asta aðalfundar miSstjórnar xlokksins. UrSu síSan allmiklar umræður. Fjölbreytt ársskemmt- un skólabarna Skólabörniíi hér á Akureyri hafa að undanförnu haft árs- skemmtun sína í leikhúsi bæjar- ins og hefur aðsókn verið mikil og skemmtiatriðum ágætlega fagnað. En bömin sjálf sjá um öll atriðin, undir góðri leiðsögu kennara. Hér er um að ræða leik- þætti, upplestur, söng, fimleika- sýningu, skrautsýningu o. fl. Mikið starf liggur að baki. þessara skólaskemmtana, en það er ekki talið eftir, hvorki af kennurum né börnum. Saínað er fyrir gott málefni — ferðasjóð barnanna — auk þess sem skemmtanirn,ar eru kennsla í hispurslausri framkomu á opin- berum vettvangi og í ábyrgðar- störfum. Frú Ásdís Rafnar heiðruð af kvenfélagi Akureyrarkirkju Á nýafstöðnum aðalfundi Kven félags Akureyrai'kirkju var frú Ásdís Raínar kjörin heiðursfélagi. Hún lætur nú af formennsku samkvæmt eigin ósk_ en hún var aðal hvatamaður að stofnun fé- lagsins og formaður þess frá upp- hafi. Fundarstjóri, frú Elínborg Jónsdóttir, gat þess að margt af því sem félagið hefði komið til leiðar, mundi ógert, ef frú Rafnar hefði ekki notið við. Minntist hún farsælla starfa þeirra vígslubisk- upshjónanna fyrir söfnuðinn. Stóðu fundarkonur upp í þakk- lætis og virðingarskyni við þau hjónin og sendu þeim hlýjar kveðjur og óskir út í nýja bústað inn. Núverandi stjórn félagsins sltipa frúrnar Sólveig Ásgeirs- dóttir, formaður. Margrét Ingólfs dóttir, varaformaður, María Thor arensen, gjaldkeri, Þórhildur Steingrímsdóttir. ritari, Rannveig Þórarinsdóttir, meðstj., Elínborg Jónsdóttir, meðstj. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin, en hana skipa: Haukur Snorrason ritstj., formaður, Árni Björnsson, ritarþ Guðmundur Blöndal, gjaldkeri, Ásgrímur Stefánsson, varaform., og Jón H. Oddsson. í fulltrúaráð félagsins voru kjörnir 12 menn. auk stjórnar- innar, og hlutu þessir kosningu: Jóhann Frímann, Jakob Frí- mannss,. Þorst. M. Jónsson, Am- þór Þorsteinsson, Ingimundur Árnason. Brynjólfur Sveinsson, Stefán Reykjalín, Guðmundur Guðlaugsson, Þorsteinn Stefáns- son, Þorsteinn Davíðsson, Sig- mundur Björnsson og Olafur Magnússon. Leikfélðg Ákureyrar sýnir „Mýs cg menrf effir John Sfeinbeck Leikstjóri er Giiðmundur Gunnarsson Um þessar mundir er að Ijiika æfingum hér á Akureyri á leik- ritinu „Mýs og menn“ eftir bandaríska rithöfundinn John Steinbeck. Er þetta þriðja viðfangsefni leikfélagsins á leikárinu. og hið eina, sem er alvarlegs eðlis. Það sem réði vali þessa heims- fræga leikrits Steinbécks, segja forráðamenn félagsins, er snilld- arleg samning þess og frábær túlkun höfundarins á hverri ein- ustu persónu. Það hefur einnig þann kost, að vera ekki mjög dýrt í uppfærslu, þó að það krefjist fjögurra mismunandi leiksviða. Búningar eru einfaldir og leik- ritið ekki mannmargt; „Mýs og menn“ hafa farið sigurför um all- an heim og í Reykjavik var leik- ritinu tekið með miklum ágætum. Það fékk sérstök verðlaun leik- dómenda í New York sem bezta leikrit leikársins 1937—;38. Sagan, samnefnd leikritinu, er mörgum kunn, því að hún hefur verið gefin út í íslenzkri þýðingx’. og leikritið hefur verið leikið i út- varpið. En það er von leikfélags- ins að leikritinu verði vel tekið, þar sem marga mun fýsa að sjá með eigin augum þessar um- komulausu en sönnu manngerðir Steinbecks. Guðm. Gunnnarsson er leiksf jóri. ' „Mýs og menn“ er í 3 þáttum og 6 sýningum og leikarar eru 10 talsins. Með hlutverk fara: Jón Kristinsson Páll Helgason, Bjarni Finnbogason, Guðmundur Gunnarsson, Þráinn Þórhallsson, Jón Ingimarsson, Edda Scheving, Guðmundur Magnússon. Jón Þóx-arinsson og Vignir Guð- mundsson. Leikstjóri er Guð- mundur Gunnarsson og er þetta í fyrsta sinn, sem hann stjórnar dramatískum leik, en hann er reyndur og bekktur leikhúsmað- ur hér í bæ og hefur stjórnað allmörgum leikritum af léttari tegundinni. Það mun óhætt að treysfa Guðmundi til þess að leysa'þetta mjög svo erfiða verk- efni af hendi svo að vel fari sakir ágætra leikarahæfileika, sérstak- lega góðrar þekkingar á leik- sviðsbúnaði og öllu er að upp- færsíu leiks iýtur. Væntanlega verður hægt að frumsýna leikinn um miðjanæstu viku, en ýmissa atvika vegna hef- ur frumsýning dregist, m. a. vegna veikinda af völdum inflú- enzufaraldurs. Gamanleikur í vor. Ákveðið er næsta verkefni L. A. verði leikrit er Jón Norðfjörð stjórnar og verður það sennilega gamanleikur, en ekki er fullráðið enn. Væníanlega hefjast samt æf- ingar á honum um svipað leyti og ,,Mýs og menn“ fara á svið. Mun nánar sagt frá því leikriti síðar. lýr me Bæjarstjórinp befur sagt af sér - skipt um forseta bæjarstjóniar únista, sem. hafa stjórnað bænum að undanförnu. Eftir þetta sagði bæjarstjórinn, Friðfinnur Árna- son. af sér og hefur bæjarstjóra- starfið nú verið auglýst laust. Þykja nú helzt hoi’fur á, að Framsóknarmenn og Sjálfstæðis- menn myndi meirihluta ásamt 1 Alþýðuflokksmanna og komm- | fulltrúa úr verkalýðsflokki. Nýlega fór fram kjör forseta bæjarstjórnar í Húsavík og var Karl Kristjánsson albin. kiörinn í stað Axels Bcnediktssonar skólastjóra. En harrn var áður bæjarstjórn- arforseti í krafti meirihlutavalds Enn koma nýir bílar til Akureyrár Nýlega var hér birt mvnd af nýjum bílum, sem til bæjarins komu. Voru það Chevrolet- og Opel-bílar, sem KEA hefur xunboð fyrir. Með Helgafelli komu nú á dögunum, auk Chevrolet- og Buick-bíla til KEA, brezkir Ford-bílar til Bílasölunnar h.f. Sjást þeir á myndinni, Zephyr-, Prefect- og Consul-bílar frá Fordverksmiðjunum brezku.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.