Dagur - 12.11.1960, Blaðsíða 4

Dagur - 12.11.1960, Blaðsíða 4
4 5 ...... ..........................................-.......................> STJÓRNIN STENDUR EIN f SUMAR voru um land allt sam- þykktar áskoranir til ríkisstjórnar- innar um að hvika hvergi fyrir Bret- um í landhelgismálinu en halda fast við yfirlýsta stefnu allra stjórnmála- flokka og sjálfs Alþingis í þessu máli.- Hver einasta þessara yfirlýsinga og áskorana, sem umjantekningarlau.su fylgi áttu að fagna á hverjum stað, var tvímælalaus stuðningur fyrir ríkisstjórnina og sá bczti stuðningur, sem í nokkru máli er hægt að veita nokkurri ríkisstjórn utan Alþingis- kosninga. Blöð og útvarp fluttu þessar fregn- ir og almenningur fagnaði þeim. En höfuðblað ríkisstjórnarinnar, Morgun- blaðið, henti þeim öllum í ruslakörf- una í stað þess að birta þær með gleði. Aðeins ein óveruleg undantekning fannst í öllum þeim aragrúa áskor- ana, sem blöðum landsins voru send- ar til birtingar. Fyrir henni var Morg- unblaðið opnað. Það þandi fyrirbærið yfir þvera síðu. Síðan fékk Morgun- blaðið nokkra skipstjóra til að lýsa því yfir, að semja yrði um landhelgis- deiluna. Sama blað fékkst ekki til að birta eina einustu skelegga grein um málstað íslands og skýlausan rétt til útfærslu fiskveiðitakmarkanna og að íslendingar hefðu ekki við neina að semja í þessu niáli og hefðu unnið ótvíræðan sigur þrátt fyrir oflbeldi einnar þjóðar. Menn setti hljóða er allt þetta blasti við og ríkisstjórnin settist jafnframt að samningaborði við þá, scm óvirt höfðu reglugerðina um 12 xmlurnar. Vitnisburður skip- stjóranna var birtur á meðan íslenzka og brezka nefndin léku sér að fjöregg- inu. Aðalmálgagn ríkisstjórnarfnnar lét eina hjáróma rödd og vitnisburð örfárra skipstjóra tala sínu máli. Allir sáu og skildu hvað raunverulega var að gerast. Ríkisstjórn fslands sat á svikráðum við hinn íslenzka málstað og virtist reiðubúin að fórna lands- réttindum. En jafn ljóst var það, að þessi ólánssama ríkisstjórn stóð ein um þessar fyrirætlanir. Vilji þjóðar- innar var ekki lengur hennar vilji. Ríkistjórnin sló á framrétta hönd fólksins, lítilsvirti hinn einhuga bar- áttuvilja þess fyrir einhverju mikil- vægasta framtíðarmálinu og skopað- ist jafnvel að, svo sem mcð því að kalla það „samsafn fífla“ og sam- þykktir þess einskis virði. Þetta var undanfari þess, sem nú er fram komið. Sjálfstæðisforystan er búin að játa á sig samninga við Breta og reynir nú með fundahöldum að friða flokksmenn sína og Iáta þá sætta sig við svikin. Ef ríkisstjórnin afsalar réttindum í hendur erlendra þjóða, eru það landráð. Ef ríkisstjórnin lætur undan Bretum, fellst hún um leið á það sjón- armið, að þjófur, sem búinn er að stela miklu og um Iangan tíma, hafi öðlazt sögulegan rétt til að stimda sömu iðju nokkurn tíma í viðbót. Ekki er hægt að viðurkenna þjófnað á öllu áhrifaríkari hátt og ekki hægt að leggjast hundflatari fyrir erlendri þjóð. Ekkert getur spornað við yfir- vofandi hættu, nema ákveðinn þjóð- arvilji, sem lætur bæði heyra og sjá r -» hvað hann vill. En öll reynum við að trúa og treysta svo gæfu þjóðarinnar, að betur fari en nú horfir. | Emilía Sigurðardóttir frá Brettingssföðum FIATEYJARDALUR í Suður- Þingeyjarsýslu hefur verið ó- byggður síðan árið 1953. Brett- ingsstaðir voru síðasta býlið þar um árabil, tvö heimili. Ábú- endur annars vegar voru Eme- lía Sigurðardóttir og Gunnar Tryggvason, hins vegar Petrína Sigurgeirsdóttir og Þórhallur Pálsson. Önnur af tveim síð- ustu húsfreyjum í Flateyjardal er nýlátin, Emelía Sigurðar- dóttir. Petrína Sigurgeirsdóttir hefur átt við þungbæra van- heilsu að búa um skeið. Emelía Sigurðardóttir and- aðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 30. marz sl. Eg hafði vænzt þess, að ein- hver mér færari yrði til þess að minnast þessarar mætu konu á opinberum vettvangi. En ég veit ekki til að það sé enn orðið. Þessi fáu orð og fá- tæklegu rita ég í von um það, að Emelía Sigurðardóttir myndi taka viljann fyrir verkið, svo og vinir hennar og vandamenn. Emelía var dóttir hjónanna Lovísu Guðmundsdóttur og Sigurðar Hrólfssonar skip- stjóra. Þau bjuggu lengi að Jökulsá á Flateyjardal. Sigurð- ur Hrólfsson var skipstjóri á hákarlaskipum um áratugi, al- kunnur atorkumaður, harð- fylginn og hagsýnn. Hann varð aldrei fyrir neinu tjóni af skip- um, missti aldrei mann í öllum sínum svaðilförum. Má þó nærri geta að hákarlaskipin hafa oft hreppt hörð veður og mikið hafrót, því að þeim var haldið úti á þeim árstíma þegar allra veðra var von. En gæfa Sigurðar Hrólfssonar var mikil. Hann sigldi að lokum skipi og áhöfn heilu í höfn með mikinn feng, samanborið við aðra, er sömu atvinnu stunduðu. Áreiðanlega hefur mjög reynt á krafta húsfrú Lovísu að Jök- ulsá, andlega og líkamlega, þar eð á herðum hennar hvíldi for- sjá heimilisins mánuðum sam- an að meira eða minna leyti, meðan maður hennar var á sjónum. Mun hún ekki hafa vitað langtímum saman, hvort skip manns hennar og skips- höfn var ofansjávar eða neð- an. En ekki heyrðist þess get- ið að hún léti bugast í sínum þrekraunum. Emelía Sigurðardóttir fædd- ist að Brettingsstöðum í Flat- eyjardal 5. október 1893, en ólst að mestu upp að Jökulsá í sömu sveit. Árið 1924 giftist hún Gunnari Tryggvasyni og reistu þau þá þegar bú að Brettingsstöðum. Þar bjuggu þau síðan samfleytt þar til þau fluttu til Akureyrar haustið 1953 og reistu þar heimili á- samt börnum sínum, þeim er enn voru í foreldragarði. Óhætt mun að segja, að E- melíu og Gunnari hafi búnazt vel á Brettingsstöðum. Munu þau hafa komizt þar í allgóð efni. Hagsýni og dugnaður héldust í hendur. Aldrei var setið auðum höndum. Gunnar Tryggvason var alkunnur dugn- aðarmaður og atorku og mun hvergi hafa verið eftirbátur annarra bænda á Flateyjardal um framkvæmdir, ræktun, húsabyggingar o. s. frv. Auk þess mun Gunnar hafa sótt sjó- inn af kappi um skeið. Rafstöð reistu ábúendur jarðarinnar og mun hún hafa nægt til þarfa heimilanna að Brettingsstöðum. Fleira mætti telja, þótt ekki sé hér getið. Snemma á búskaparárum ungu hjónanna dró bliku á loft yfir Flateyjardal. Fólki og heimilum fækkaði í sveitinni. Mátti þá fljótt sjá hvað verða vildi. Að lokum eyddist byggð í dalnum sem fyrr segir. Þar er kafli úr sögu þelriri, sem átt hefur sér stað í ýmsum byggðum fslands síðustu ára- tugina — í eyjum, útnesjum og dölum. Enginn sér fyrir hve löng þessi saga verður eða hvernig hún endar. Ábúendur Brettingsstaða stóðu lengst gegn straumnum allra íbúa dalsins. Má segja að þar var setið meðan sætt var. Vegleysur á landi hafa ef til vill átt sinn þátt í hvernig fór. En svo fór þó, að vegur var mældur um Flateyjardalsheiði til Flateyjardals. En það var um seinan. Það gerðist sama sumarið og síðasta fólk-ið flutti úr dalnum. Síðan reis heimili þeirra Em- elíu og Gunnars á Akureyri. Þar höfðu þau búið sér hinn bezta samastað. Miklir örðug- leikar voru yfirstignir og allt virtist leika í lyndi. En þá kom kallið fyrr en varði, kallið, sem allir vei'ða að hlýða, þegar það kemur. Húsfreyjan var hrifin burtu fyrirvaralaust, svo að segja. Emelía Sigurðardóttir var að vísu roskin kona er hún andað- ist. Þó mun fráfall hennar hafa komið flestum á óvart. Enn virðist tími til stefnu, þótt nokkuð sækist á sjötugsaldur- inn. En „dauðinn er lækur, en lífið er strá“. Við vitum þetta að vísu, en þó leiðum við hug- ann að jafnaði sem minnst að því, hversu flest er fallvalt. „Gott væri enn að lifa„‘ sagði Guðmundur Ormsson, forðum, er hann ungur að árum, sá fyrir dauða sinn, óumflýjanlegan, á næstu augnablikum. (Svínfell- inga saga). Menn sjá ekki fyrir dauða sinn eða annarra yfir- leitt, hvenær hann ber að hönd- um. Með því er þeim auðsýnd mikil líkn, því að flestir bera í brjósti geig gagnvart dauðan- um, dulbúinn ef til vill að meira eða minna leyti. Og hve- nær sem hann virðist standa fyrir dyrum, okkar eigin dyr- um eða þeirra, sem okkur standa næstir, þá kjósum við að jafnaði frestinn. Þetta er lög- mál heilbrigðs lífs. Og hvenær sem dauðinn kallar, einkum ef það er óvænt, verður okkur á að spyrja: Hvers vegna svona fljótt? Á æskuárum Emelíu Sigurð- ardóttur var skólaganga barna og unglinga hverfandi lítil, samanborið við það sem nú er. Hún mun á barnsaldri hafa not- ið kennslu Jóhannesar Bjarna- sonar í Flatey nokkrar vikur. Síðar var hún á Akureyri einn vetur við saumanám. Þá er skólanám hennar talið. En hún var hlutgeng engu að síður hvar sem var. Störf og skyldur rækti hún ávallt með ágætum. Heimili sínu vann hún ávallt eftir mætti. Sambúð hjónanna var farsæl. Börnum og öðrum heimamönnum sýndi hún mikla umhyggju. Og í sveit sinni og bæ naut hún vinsælda og trausts. Það þarf ávallt töluvert til að afla sér trausts og vinsælda samborgara sinna. Þeir, sem blindír eru af sjálfselsku og sjá i einu og öðru oft ekki annað en eigin hag, eiga oft furðu örðugt uppdráttar. Það er eins og þeir séu alltaf að villast á hjarni. Emelía Sigurð- ardóttir fyllti ekki flokk slíkra manna. Dugnaður hennar, til- litssemi, hjálpfýsi til handa þeim, sem miður máttu sín, öfl- uðu henni álits og virðingar. Ber þetta ekki vott um menntun? Víst er það svo. Og hún er meifa verð en sumar bóklegar menntir, án þess að hér sé gert lítið úr þeim. Landleiðin til Flateyjardals liggur um Flateyjardalsheiði úr Fnjóskadal, langan veg og snjó- þungan mikinn hluta árs. Þótt aðdrættir til Flateyjardals færu að mestu fram á sjó, var þó oft yfir Flateyjardalsheiði far-. ið. Meðal annars lá leið gangna- manna þar um á haustin og liggur enn, er þeir leggja af stað í leitir í misjöfnum veðr- um og færð. Nú er komið að tómum kof- um í Flateyjardal, og þó ekki alls staðar að kofum, því að á sumum jörðum standa reisuleg steinhús. (Brettingsstaðir, Jök- ulsá). Áður fengu hraktir menn svangir og þreyttir, aðhlynn- ingu hvar sem komið var í dal- inn. Að lokum voru Brettings- staðir þrautalendingin þegar öll hin. heimilin voru fallin. Emelía og Gunnar á Brett- ingsstöðum voru miklir gest- gjafar í orðsins fyllstu merk- ingu, fyrst og fremst gangna- manna á haustin, svo og ann- arra, er að garði bar. Sömu risnu héldu þau og, er til Akur- eyrar kom. Hús þeirra stóð þar ávallt opið gestum og gangandi. Húsfrú Emelía mun á Brett- ingsstöðum hafa átt margar vökunætur og starfa vegna gesta sinna. Vökunætur á heimilinu. Vegna hvers? Jú, það þurfti að vinna ferðamönnum beina er þeir komu úr hrakningum af heiði eða sjó. Það þurfti að þurrka föt þeirra áður en þeir lögðu upp á ný. Ef til vill gengu húsráðendur úr rúmum sínum vegna gestanna og aðrir heima- menn. Allt snerist um þá með- an dvöl þeirra varði. Hundum og hestum var ekki gleymt, væru þeir með ferðamönnum. Þjónustan var talin sjálfsögð og innt af höndum með ánægju. Þetta var stórviðburður í lífi fólksins í dalnum. En borgunin fyrir erfiði og önnur útlát? Hennar var aldrei krafizt og hafnað, ef hún stóð til boða. Emelía Sigurðardóttir hafði unun af kveðskap og lagði all- mikla stund á ljóðagerð. Hún mun hafa látið eftir sig mikið af vísum og kvæðum, þótt lítið af því léti hún birta. Hún mun á yngri árum oft hafa kastað fram stökum, glettnisvísum og gamanyrða. Síðar kennir meiri alvöru. Skömmu fyrir andlát sitt verður henni að orði meðal annars, er hún hugsar um ólán mannkynsins vegna styrjaldar- æðisins, sem þjáð hefur það frá upphafi vega: „Af mildi ef mannvitið stjórn- ast, — þá margtryggður friður- inn er. — Öll tortryggni, hefnd og allt hatur — úr heiminum sjálfkrafa fer. Og undir ævilokin er horft fram í trú og trausti á æðri mátt og miskunn: Á lifsins vegum, lífsins faðir, vort líf í þinni hendi er, um daga, ár og aldaraðir þín elska og náð ei breytir sér. Þótt ýtt sé fari á feigðar Dröfn, er fleyi stýrt í ljóssins höfn. Börn Emelíu og Gunnars eru þessi: Sigurður vélstjóri, bú- settur á Akureyri, Tryggvi, skipstjóri, búsettur á Akureyri, kvæntur Heiðbjörtu Björns- dóttur, Óli, verkamaður á Ak- ureyri, Ingveldur, ljósmóðir í Framhald á 6. siðu. 1111111111111111111111111 1111111111111111 Jóhannes Jónasson 75 ára Jóhannes Jónasson. JÓHANNES JÓNASSON, fisk- matsmaður og verkstjóri Eyr- arlandsvegi 20 á Akureyri, varð 75 ára þann 8. nóvember. Hann er Þingeyingur að ætt, fæddm' í Yztu-Vík á Svalbarðsströnd en hefur átt heima á Akureyri síðan 1907 og hefur reynzt hinn mætasti maður. Sem unglingur dvaldist hann við nám og starf hjá séra Jónasi á Hrafnagili eitt ár og víðar dvaldi hann í Eyjafirði. Þegar hann fluttist til Akureyrar, fór hann fyrst til Magnúsar Krist- Gunnar Jónsson skipasmíðameistari - MINNINGARORÐ - HINN 27. okt. s. 1. andaðist í Reykjavík Gunnar Jónsson, skipasmíðameistari, og var jarð- sunginn þar 4. þ. m. Gunnar var fæddur að Hlé- skógum í Höfðahverfi 1. apríl 1899. Foreldrar hans voru hjón- in Jón Þórarinsson, bóndi frá Sigluvík og Helga Kristjánsdótt- ir frá Végeirsstöðum. Með þeim flutti Gunnar á barnsaldri vest- ur í Dýrafjörð og ólst þar upp. Ungur fór Gunnar til Reykja- víkur, nam þar skipasmíði og lauk sveinsprófi árið 1919. — Árið 1923 fluttist hann til Ak- ureyrar og rak skipasmíða- og ski,paviðgerðastarfsemi þar og um tíma á Siglufirði um 16 ára skeið. — Ár-ið 1940 réðist hann til Kaupfélags Eyfirðinga, sem forstöðumaður nýrrar skipa- smíðastöðvar, sem félagið kom þá á fót. — Árið 1952 varð hann að láta af störfum sakir heilsu- brests, flutti nokkru síðar til Reykjavíkur og bjó þar síðustu æviárin. Árið 1921 kvæntist Gunnar Ingibjörgu Ásbjörnsdóttur frá Hvammi við Dýrafjörð. Eru börn þeirra tvö: Bára, gift í Reykjavík og Tryggvi, skipa- smíðameistari á Akureyri, er tók við starfi föður síns hjá Skipasmíðastöð K.E.A. — Ingi- björg lézt árið 1932. Gunnar kvæntist aftur Sólveigu Þórðar- .dóttur frá Kolbeinsstöðum í Hnappadalssýslu. Börn þeirra eru fjögur: Anna Lísa og Hall- dóra, giftar í Reykjavík, Gunnar og Helga, er bæði dvelja hjá móður sinni í Kópavogi. — Áð- ur en Gunnar kvæntist átti hann son, Ólaf, sem nú er málmsteypumaður, og býr í Kópavogi. Hér hefir verið stiklað á stóru í æviágripi merks manns, taldar nokkrar almennar stað- reyndir, sem þó segja fátt um líf mannsins, starf hans og leik, sorgir hans og gleði, — vonir hans sem ýmist rættust eða brugðust. Hver sá, er flytur til hinna ókunnu heimkynna tekur með sér sinn eigin hugarheim, sem enginn fær skyggnzt í, mikla sögu sem sjaldnast er i letur færð, og þeir sem eftir lifa þekkja ekki nema að litlu leyti. — Því er það, að fáein minning- ar- eða kveðjuorð verða þess aldrei megnug að varpa skíru Ijósi á vegferð hins látna. Gunnar skipasmiður var vel þekkt nafn hér á Akureyri um tugi ára. Þegar þetta nafn var nefnt, skynjaði maður vaskleg- an atgjörvismann, óvenjulega hæfan í sinni starfsgrein, prúð- mannlegan og glaðlyndan. Ég átti þess kost að vera sam- starfsmaður hans um nokkurra ára skeið' óg minnist þeirra kynna, með. sérstakri hlýju. — Var það á þeim árum sem hann stjórnaði skipa- og bátasmíðum hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. — Ólíklegt þyk'ir mér það, að fé- lagið hefði lagt í þessa starf- semi ef Gunnar hefði ekki verið annars vegar til þess að veita fyrirtækinu forstöðu. Er það ótvírætt, að hann hafði séx-staka þekkingu óg húgkvæmni til að - bera á allri gerð og sjóhæfni skipa, ennfremiu- var smekk- vísi hans og vandvirkni við brugðið. — Stærsta verkefni Gunnars var vélskipið „Snæ- fell“, sem nú er orðið 17 ára gamalt. Gerði hann bæði upp- drætti alla að skipinu og ann- aðist alla stjórn á byggingu þess. Var það stærsta skip sem til þess tíma hafði verið byggt á íslandi og sýnir enn, að vel var fyrir öllu séð, enda hefir skipið reynzt sérlega vel og verið happasælt. Samstarfsmenn Gunnars virtu hann mjög og var Ijúft að taka leiðbeiningum hans og verk- stjórn. Minnist ég þess hve gott var að vinna með honum, leita til hans upplýsinga og ráðfæra sig við hann. — Alltaf var hann æðrulaus og öruggur um það, hvaða stefnu væri réttast að taka í hverju því vandamáli, sem að höndum bar. Hin síðai’i ár þjáðist hann af sjúkdómi, sem greip hann heljartökum. Okkur, sem þekkt- um Gunnar, þótti hryggilegt að sjá hve skjótlega orku hans og afli var burtu kippt. Þrekmað- urinn alkunni var allt í einu, á bezta starfsaldri, heltekinn af vanmætti og hrörleika. — Slíkt er erfitt að sætta sig við, en engin bót um að fást. Þegar svo er komið eru vista- skiptin fagnaðarefni. Þótt Gunn- ar sé horfinn héðan, lifir hann í hugum okkar. Þar geymist minningin um ágætan dreng. Eiginkonu og börnum Gunn- ars votta ég djúpa samúð. Gísli Konráðsson. jánssonar, síðar ráðherra, og Dómhildar konu hans, enda ná- skyldur báðum, og vann þar við verzlun, fiskverkun og ýms önn- ur störf í meira en áratug. Jóhannes vann síðan hjá Jak- obi Karlssyni við fiskverkun og skrifstofustöi'f einnig. En lengst vann Jóhannes hjá Kaupfélagi Eyfirðinga eða nokkuð á þriðja áratug. Hann var löngum verk- stjóri, til dæmis við byggingu stórhýsisins, þar sem enn eru aðalskrifstofur og verzlanir fé- lagsins. Fiskmatsmaður var Jó- hannes fyrir Norðurland frá 1931 og þar til starfsemi þeirri var breytt með lögum. Síðan 1951 hefur svo Jóhannes verið verkstjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa h.f. og er enn. Hlutgengur var hann í félágs- málum, var einn af stofnendum Leikfélags Akureyrar og kunn- ur leikari um fjölda mörg ár, í bæjarstjórn Akureyrar fyrir Framsóknarflokkinn sat hann allmörg ár og líka varamaður, var fátækrafulítrúi á Akureyri þar til Sveinn heitinn Bjarna- son tók við því starfi, svo nokk- uð sé nefnt. Kona Jóhannesar var ekkjan Gunnlaug Kristjánsdóttir, og lézt hún fyrir fáum árum. Son- ur þeirra hjóna er Mikael, for- stöðumaður Byggingardeildar KEA, og fóstursonur Magnús Kristinsson, rafvirki, Akureyri. Auk þess átti Gunnlaug 3 börn af fyrra hjónabandi. Jóhannes Jónasson er greind- ur maður í bezta lagi, marg- fróður og minnugur. Hann er gæddur ríkri kímnigáfu og breiðir hana stundum yfir heita geðsmuni. Sjötíu og fimm árin ber Jó- hannes vel, er fullur áhuga og ann sér engrar hvíldar. Þessa dagana vinna 20—30 manns undir verkstjórn hans á Fisk- verkunartsöð ÚA, stundum hef- ur sá hópur verið á annað hundrað Hvort sem Jóhannes er á hestbaki eða hann heldur á hamri eða sög, situr í bæjar- stjóm, stendur á leiksviði, stjórnar fiskverkun eða heldur uppi samræðum í vinahópi, er rúm hans vel skipað. Jóhannes er virtur maður og vinsæll, enda góður drengur. Blaðið sendir honum beztu afmæliskveðjur. □ Jóhannes Jónasson Heill sé þér heiðursmaður! Hugreifur ertu og glaður. Ekki getur hún Elli ennþá lagt þið að velli, á þér nær engu taki, enn ertu réttur í baki. Brautina bröttu gengið, barizt og sigur fengið. !Þú ert vökull og virtur, vonnaður grómi firrtur. Birtan, hún bregst þér eigi, bjartsýnn á hverjum degi. Gengur á hólm við hættur, hjálpar þér góður vættur. Göfugan áttu anda; ótal leyst hefur vanda. Hjá þínum andans arni enginn stendur á hjarni. Gifta þín fær ei að falla, farsælan má þig kalla. Þú ert léttur í lundu, Ijúfur á hverri stundu, hefur margt örðugt unnið, aldrei frá skyldum runnið. Þú ert þrautgóður maður, þolinn og vinnuglaður. Vaskleika þinn og vilja verður örðugt að hylja. Fylgir ei fölskum glaumi, flýtur ei undan straumi. Æskunnar maður ertu aldurshár þó að sértu. Verndi þig vættir góðar, vökular dísir og hljóðar. Aftansólin þig signi sómamaðurinn hyggni. Lýsi þér ljósið bjarta, ljómi gegnum þitt hjarta. Er flyturðu frá þessu landi fylgi þér drottins andi. Sigurður Sveinbjörnsson. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIII lllllllllllllll 111111111111111111111111111111»,' Haraldur Þorvaldsson 75 ára HARALDUR ÞORVALDSSON verkamaður á Akureyri varð 75 ái-a 9. nóvember. Hann er fæddur að Finnastöðum í Hrafnagilshreppi. Foreldrar hans voru hjónin Þorvaldur Jónsson og Anna Jónsdóttir, bæði af eyfirzkum ættum. Móð- irin lézt er hann fæddist. Syst- kini hans eru: Guðný, var bú- sett á Skagaströnd, en dáin, Jón, lengi kjötbúðarstjóri á Akureyri og Ásgeir, fyrrum bóndi að Sólborgarhóli. Fjög- urra ára fór Haraldur til Helgu Pálsdóttur á Botni í Hrafnagils- hreppi. En hún var þá nýlega orðin ekkja eftir Sigurð á Hrafnagili, föður Magnúsar á Grund. Á 11. árinu hafði Har- aldur vistaskipti og fór til Ní- elsar Sigurðssonar bónda á Halldórsstöðum í Saurbæjar- hreppi og dvaldi lijá honum um 6 ára skeið. Enn var Haraldur á ýmsum stöðum í Eyjafirði, meðal annars hjá Magnúsi á Grund og Hannesi í Hleiðar- garði. Árið 1910 kvæntist hann Ó- löfu Sigurðardóttur frá Litladal í Saurbæjarhreppi, og árið eft- ir hófu þau búskap á Eyvind- arstöðum í Sölvadal, á hálfri jöi'ðinni á móti Guðjóni Jóns- syni, föður Ketils á Finnastöð- um og þeirra bræðra. Árið 1920 fluttu Haraldur og Ólöf að Kífs- á í Glæsibæjarhreppi og þaðan fluttu þau til Akureyrar árið 1926. Hai’aldur missti konu sína árið 1941. Börn þeirra eru: Sig- urlína, gift Sigtryggi Þorsteins- syni fyrrum deildarstjói'a, Framliald á 7. siðu. Jórunn Anfonsdófiir - MINNINGARORÐ - Þann 10. maí í vor, var til moldar borin að Upsum í Svaríaðardal Jórunn Antons- dóttir húsfi-eyja að Sandgerði, Dalvík. í erli dagsins hefur það far- ið svo, að ég hef ekki komið því í framkvæmd að minnast Jórunnar á pappírnum, þótt hugur minn hafi oft dvalizt hjá henni, enda kann ég ekki að crða tilfinningar mínar til Jór- unnar svo vel sem ég vildi. En nú þegar blessuð jólin nálgast, leita endurminningamar svo sterkt á hug minn, að ég fæ ekki orða bundizt, enda var Jói'unn jólabarn í orðsins fyllsta skilningi. Fædd var hún um jclin 1889. Okkar Jórunnar fyrstu kynni vcru veturinn 1916, er við vor- um herbergissystur hér á Ak- ureyri og fæ ég aldrei fullþakk- að forsjóninni fyrir það, að láta leiðir okkar liggja saman. Jór- unn dvaldi þá hér við nám í söngfræði og listsaumum, sem hvorttveggja heillaði hug henn- ar, enda hafði hún svo fagra rödd, að ekki ódómbærari mað- ur á þá hluti en séra Geir Sæ- mundsson veitti athygli rödd bennar þegár hann hlustaði á blandaðan kór hins frábæra söngkennara svarfdæla Tryggva Kristinssonar. Sama mátti segja um handavinnu hennar, hún vár óvanalega vel unnin. Eg held að hún hafi verið listræn á flestum sviðum, enda komin af listrænu og mjög mikilhæfu fólki. Ekki gekk Jórunn á stræti og gatnamót til að afla sér vina, hún var mjög heimakær og hlé- dræg, en næði maður vináttu hennar get ég, sem þetta rita, ekki hugsað mér tryggari eða yndislegri vin. Mér fannst ég ver nær guði í návist hennar, svo sterk, göfgandi áhrif hafði hún á mann, enda engin undur, því vandaðri sál hygg ég vand- fundna. Ég held hún hafi aldrei gjört flugu mein, að ég tali nú ekki um hve innilega hún fyrir- leit alla illmælgi enda stór þátt- ur í lífi hennar að bera sáttar- orð mili frænda og vina ef hún taldi þess þörf. Sjálf var hún svo létt og glöð, að mér er nær að halda- að engin þrenging hefði getað dregið hana svo nið- ur, að hún ætti ekki aflögu sitt yndislega bros til að gleðja vini sína með. Jórunn var gift mætum manni, Arngrími Jóhannessyni, sem bar hana á örmum sér. Nú er hann þrotinn að heilsu og konumissirinn honum því til- finnanlegri. En sú er þó bót í máli, að börn þeirra hjóna munu ekkert láta ógjört til að gera honum lífið svo ljúft sem þau megna. Fjölskyldutengsl þeirra Sand- gerðishjóna voru svo sterk og náin, að naumast varð á betra kosið. Ég vil nú, um leið og ég sendi þessar ofullkomnu línur frá mér, biðja guð að styrkja mann hennar, um leið og ég votta honum og börnum hans, ásamt öðru skylduliði, mína innilegustu samúð. Sjálfri þér, vinkona, þakka ég af heilum hug ósegjanlegá ynd- islegar og glaðar samverustund- ir. Ég treysti því að aftur mæt- umst við í landi ljóss og friðar og til þess hlakka ég innilega. Vertu blessuð og sæl um ei- lífð alla, Sesselja Eldjárn. •illlill IIIIII iiiii IIlllli11111111111111111111111111IIIIIilllllt f Söngferðir Geysis KARLAKÓRINN Geysir hef- ur hefur að undanförnu farið um Þingeyjarsýslur og sungið á nokkrum stöðum. Þann 23. okt. var farið austur í Skúla- garð í Kelduhverfi og sungið þar fyrir Keldhverfinga og nokkra fleiri, því að þangað komu menn austan frá Þórs- höfn og frá Grímsstöðum á Fjöllum. Aðsókn og viðtökur áheyr- enda voru með ágætum. Eftir samsönginn var setzt að kaffiborði í boði kii'kjukórsins í Hverfinu, og þar glaðzt við söng og di'ykk um stund undir bráðfjörugri stjórn Björns í Kílakoti. Á heimleiðinni var komið við á Húsavík og þar haldinn sam- söngur við ágætar viðtökur Húsvíkinga. Síðastliðinn sunnudag var enn haldið í austurátt og sung- ið að Laugum í Reykjadal. Þar var samankominn fjöldi fólks úr Reykjadal, ásamt nemendum Og kennurum skólanna á Laug- um. Kunnu nemendur sýnilega vel að meta, þegar Katarína, þeirra Davíðs og Jóns á Hvanná var sungin. Aðsókn var ágæt svo og und- irtektir. Kaffi var drukkið í borðstofu skólans áður en söng- urinn hófst. Síðan var halcUð að Skjól- brekku í Mývatnssveit og sung- ið þar um kvöldið. Aðsókn var góð og viðtökur frábærar, svo endurtaka vai'ð meii'ihluta lag- anna á söngskránni. Þráinn Þórisson, skólastjóri, ávarpaði kór og söngstjóra að samsöng loknum, en formaður kórsins, Kári Jóhansen, þakk- aði. Söngstjórinn, Árni Ingi- (Framhald á 7. síðu.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.