Dagur - 20.01.1983, Blaðsíða 3

Dagur - 20.01.1983, Blaðsíða 3
Fjöldi fólks segir sig úr Vídeólundi Mikil óánægja virðist nú hafa gripið um sig meðal íbúa í Lundarhverfi sem eiga aðild að myndbandafyrirtækinu Vídeó- lundi. Mun óánægja fólksins aðallega stafa af vali mynda sem sýndar erú og þeim mikla launakostnaði sem er samfara rekstri fyrirtækisins. „Ég veit að íbúar í Tjarnarlundi 2-6 sem er fjölbýlishús hafa sagt sig úr fyrirtækinu og einnig hafa íbúar í Furulundi 8 sem er 20 íbúða hús ákveðið að hætta“, sagði viðmælandi blaðsins. Hann bætti því við að myndaval væri ákaflega slakt og myndirnar yfir- leitt endursýndar tvisvar til þrisv- ar sinnum. „Þá eru margir mjög óánægðir með það hvernig fjár- málin standa, og ég get nefnt sem dæmi að þeir tveir menn sem aðal- lega hafa staðið að því að sýna myndirnar hafa reiknað sér mjög há laun og að þau yrðu jafnvel undanþegin skatti". „Ég tek fram að ég vil ekki að verið sé að skrifa um þessi launamál. Fólkið fékk skýr- ingu á þessu öllu á aðalfundinum og reikningar félagsins voru sam- þykktir“, sagði Pétur Pétursson sem lét af formennsku í Vídeó- lundi á dögunum. Hann tók það þó fram að þessi laun yrðu ekki undanþegin skatti. „Við höfum ekki endursýnt myndir meira en fólkið hefur beð- ið um á fundum", sagði Pétur. „Við höfum í mörgum tilfellum endursýnt myndir þrisvar sinnum en það er vegna óska fólksins“. - Hvað eru það margir íbúðar- eigendur sem hafa sagt sig úr fyrirtækinu? „Það eru samtals fimm stiga- gangar sem hafa sagt sig úr þessu. Nýja stjórnin er þessa dagana að boða fund með þessu fólki enda er mikill misskilningur á ferðinni víða. Það fólk sem hefur sagt sig úr Vídeólundi er fyrst og fremst fólk sem aldrei hefur sótt fundi og veit þess vegna ekki um ástæður fyrir þessu og hinu sem hefur ver- ið að gerast. Það hefur hvorki leit- að til okkar eftir upplýsingum eða boðið okkur á húsfélagsfundi til að kynna mál félagsins eins og við höfum verið tilbúnir að gera“, sagði Pétur. Bridgefélag Akureyrar: Sveit Júlíusar sigraði A-riöiII: Júlíus Thorarensen 71 Páll Pálsson 63 Hörður Steinbergsson 55 Stefán Pálsson 49 Jón Stefánsson 46 Ferðaskrifstofa Ak. 16 B-riðill: Stefán Vilhjálmsson 64 Halldór Gestsson 57 Anton Haraldsson 56 — næsta keppni á þriðjudag Sveitakeppni Bridgefélags Akur- eyrarmeistari 1983 varð sveit Júl- eyrar, Akureyrarmót í bridge, íusar Thorarensen en auk hans lauk sl. þriðjudagskvöld. Akur- eru í sveitinni Alfreð Pálsson, Jó- hann Helgason, Ármann Helga- son, Stefán Jóhannesson og Jakob Kristinsson. Keppnin var allan tímann mjög spennandi og tvísýn og úrslit ekki ráðin fyrr en í síðustu umferðinni, en í henni sigraði Júlíus - Jón 20-0, Páll - Ferðaskrifstofa Ak. 17-3,Hörður -Stefán 19-1. Spilað var í þremur riðlum í mótinu, alls 18 sveitir og urðu efstu sveitir þessar: Aknreyranaeistarar, sveit Júliusar Thorarensen. Standandi frá vinstri: Jó- hann Helgason, Alfreð Pálsson og Ármann Helgason. Sitjandi frá vinstri: Stefán Jóhannesson, Júlíus Thorarensen og Jakob Kristinsson. Ljósm: Norðurmynd, Akureyri. C-riöiU: Kári Gíslason 87 Eiríkur Jónsson 72 Una Sveinsdóttir 37 Keppnisstjóri var sem fyrr Al- bert Sigurðsson og stóð hann sig með mikilli prýði að venju. - Næsta keppni félagsins verður tvímenningur, Akureyrarmót, sem hefst nk. þriðjudagskvöld. Þátttöku þarf að tilkynna til stjómar félagsins fyrir kl. 19 nk. sunnudagskvöld. Toyota sýning Sýnum hinn nýja Toyota Tercel (4wd) fjórhjóladrifinn laugardaginn 22. janúar frá kl. 10.00-17.00. Bláfell sf, Draupnisgötu 7a, Akureyri, sími 21090. ÆfJingaskór r stærðir 28-44, verð frá kr. 370. Iþróttasokkar hvítir með röndum. Stærðir 22-26, verð kr. 46. L Eyfjörð Hjalteyrargötu 4, sími 25222 Skákþing Akureyrar 1983 hefst sunnudaginn 23. janúar kl. 14.00. Raðaö verður í flokka eftir ELO-stigum. Umferðir verða á sunnudögum og miðvikudögum. Skráning í mótið er í síma 23926 (Gylfi Þórhallsson) og 24393 (Jón Garðar Viðarsson). Lokaskráning í keppnina verður laugardaginn 22. janúar. Keppni í unglingaflokki 15 ára og yngri hefst laug- ardaginn 29. janúar kl. 13.30. Skákfélag Akureyrar. Betri kaup Vissir þú að við eigum til egg ............. á aðeins kr. 39.95 kg unghænur ........ á aðeins kr. 42.95 kg rauðepli ........ á aðeins kr. 28.20 kg að það er tilboðsverð á: Beech nut barnadjús aðeins kr. 3.60/ 4.60 Coke 1.5 Itr. aðeins kr. 29.95 Saltað hrossa kjöt m/beini aðeins kr. kg. 43.70 ^ i ...—...& HAGKAUP Norðurgötu 62 Sími 23999 20. janúar 1983 - DAGUR - 3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.