Dagur - 22.10.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 22. október 1987
„Það
staðinn
Vöruhús KEA er santnefnari
fyrir margar sérverslanir.
Vöruhússtjóri er Alfreð Alm-
arsson en yfir hverri deild eru
deildarstjórar. Til að fræðast
nánar unt Vöruhúsið hitti ég
Alfreð að máli á afskaplega
sólríkum degi seint í septem-
bermánuði.
Skódeild.
- Hvað er Vöruhús KEA?
.A’öruhús KEA er sérvöru-
verslun Kaupfélags Evfirðinga.
Þegar ég tala um sér\örur á ég
við flestallt nema matvörur og í
þessu tilfelli byggingavörur líka.
Reyndar erum við mesi í fatnaði,
bæði skófatnaði og öðrurn fatn-
aði. Pá erum við með vefnaðar-
\örur. búsáhöld og gjafavörur.
öll rafmagnstæki til heimilisins.
hljómtæki. sjónvörp, mynd-
bandstæki og hljómplötur."
Vöruhús KEA:
kemur ekkert í
fyrir Miðbæinn"
- segir Alfreð Almarsson
- Hvað skiptist Vöruhúsið í
margar deildir?
„Þetta eru 6 deildir hérna í
Miðbænum og 1 útibú í kjallaran-
um í Hrísalundi. Þar erum við
nteð ýmislegt úr Vöruhúsinu og
húsgögn að auki, s.s. skápa. fata-
skápa. unglingahúsgögn og ýmis
önnur ódýr húsgögn."
- Ekki hefur þetta alltaf \erið
vöruhús. voru þetta ekki sjálf-
stæðar verslanir hér áður fyrr?
„Spyrð þú mig aö þessu. ungan
manninn? Ég er nú ekki búinn að
vinna hérna nema síðan '83 og
kann ekki þessa sögu utan að. en
þessu var breytt t Vöruhús KEA
fvrir 13 árum að mig minnir.
Aður voru þetta sjálfstæðar
deildir en þeim var síðan safnað
saman undir einn hatt og skírt
Vöruhús KEA urn það leyti sem
lokið var við þessa byggingu hér.
Þetta er núna í þremur bygging-
um, Hafnarstræti 91, 93 og 95.“
- Og gengur reksturinn sæmi-
lega?
„Já, já, þetta hefur gengið
þokkalega. Ariö í ár er búið að
vera nokkuð gott en það gengur
auðvitað misjafnlega að reka
þessar deildir. Það er misjafnlega
erfitt, eða létt, eftir því hvernig
maður lítur á þetta."
- Hafa komið upp einhverjar
nýjungar á síðustu árum eða er
reksturinn í föstum skorðum?
„Þetta hefur verið í tiltölulega
föstum skorðum. Núna stendur
hins vegar fyrir dyrum að reisa
stórmarkað. eins og flestum er
kunnugt, og í framhaldi af því
verður einhver endurskipulagn-
ing hér í Vöruhúsinu. Þá verður
ákveðið hvað verður hér áfram
Búsáhaldadeild.
og hvað fer í nýja stórmarkaðinn
en ég held að ég megi fullyrða að
Vöruhúsið verði ekki lagt niður.
En það verður einhver uppstokk-
un."
- Er ekki líka nauðsynlegt,
t.d. upp á ferðamannastrauminn,
að hafa þessar sérvöruverslanir í
Miðbænum?
„Jú og ég held að allir séu sam-
mála um það að það kemur ekk-
ert í staðinn fyrir Miðbæinn.
Jafnvel þótt byggðar yrðu hundr-
að Kringlur í kringum okkur þá
stæði Miðbærinn alltaf fyrir sínu.
Hina sérstöku miðbæjarstemmn-
ingu fá menn hvergi annars
staðar." SS
Raftæki í eldhúsið.
Myndir: TLV
D: iúlpurnar eru vinsælar.
Verslunin Skemman:
„Mér líkar ágætlega hér"
- segir Valgerður Sveinsdóttir
Verslunin Skemman er nú til
húsa að Skipagötu 13 en var
áður í Glerárgötu. Eigandi
verslunarinnar er Valgeröur
Sveinsdóttir. Hún var spurð
um reksturinn og sögu verslun-
arinnar, en Skemman hefur
víða verið til húsa í bænum.
- Var Skemman ekki upphaf-
lega í Hafnarstræti?
„Jú, hún var þar í byrjun. Ég
veit ekki hvaða ár hún var stofn-
uð en þetta er mjög gamalt fyrir-
tæki. Eg keypti Skemmuna 1972.
Hún var þá í Hafnarstræti en síð-
an flyt ég hana í Brekkugötu 3,
því næst inn í Skipagötu, þá út í
Glerárgötu og nú er ég komin
aftur í Skipagötu.“
- Og hvernig líkar þér á nýja
staðnum?
„Mér líkar ágætlega hér. Þetta
er ágætur staður en hinn staður-
inn var ekkert verri fyrir vefnað-
arvörur. Það var gífurleg aukning
í vefnaðarvörunni þegar ég var í
Glerárgötu en þetta var allt of
stór búð fyrir vefnaðarvörur ein-
göngu og ég náði ekki upp dampi
í öðru. Þetta var yfir 400 fer-
metra búð, rekstrarkostnaðurinn
var mikill og gífurleg vinjia sem
búðinni fylgdi. Þetta er ástæðan
fyrir því að ég flyt mig.“
- Það er a.m.k. nóg af bíla-
stæðum hjá þér núna?
„Já, vissulega, en þar fyrir utan
er ég hálfgert bitbein hérna eins
og sumir virðast verða annað
slagið.“
- Nú?
„Já, þetta hús á að fara. Ég flyt
sem sagt inn í hús sem er ekki á
skipulagi en ég læt hverjum degi
nægja sína þjáningu.“
- Hefur reksturinn eitthvað
breyst eftir flutninginn?
„í fataefnum er salan mjög
svipuð en það hefur verið aukn-
ing að mér finnst í heimilisdeild-
arvörum síðan ég kom inn eftir.
Þá á ég við gardínuefni, sængur-
fataefni og allt það sem tilheyrir
heimilisrekstri. Þar finnst mér
hafa orðið aukning, enda erum
við með mjög gott úrval, bæði af
efnum og heimilisdeildarvörum.“
SS
■u-tiiiniriM
uerslanir í miöbæ RkurELjpar