Dagur - 02.12.1987, Blaðsíða 15

Dagur - 02.12.1987, Blaðsíða 15
íþróftir Bikarkeppni HSI: - töpuðu 24:28 fyrir Fylki í Seljaskóla í gærkvöld algjörlega niður. Pór var þó yfir 14:11 í hálfleik, eins og áður sagði. Ef seinni hluti fyrri hálfleiks var lélegur hjá Pórsliðinu, hvað er þá hægt að segja um seinni hálfleikinn? Baráttan, sem hefur fleytt þeim áfram gegn sterkari liðum í vetur, sást ekki, feilsend- ingar voru margar og skot úr von- lausum færum voru óteljandi. Fylkismenn gengu því á lagið, jöfnuðu 16:16 og sigu svo hægt og sígandi fram úr. Alla festu vantaði í leik Þórs- ara undir lok leiksins, því ekki munaði nema tveimur mörkum þegar rúmar fimm mínútur voru eftir og Þór með boltann. En þá kom enn eitt vonlaust skotið og Fylkismenn brunuðu upp, löbb- uðu í gegnum Þórsvörnina og skoruðu. Þetta hefur verið heldur nei- kvæð umsögn um leikinn, en ekki orðum ofaukin telur undirritað- ur. Menn töluðu varla saman í vörninni og ekki sáust menn púrra hvorn annan upp í sókn- inni. Leikmenn vita sjáífsagt upp á sig sökina og því ekkert á því að græða að núa salti í sárin. Það verður að líta á þetta tap sem verðuga lexíu og vonandi verður næsti leikur Þórsliðsins eftir ára- mót allt annar og betri. Mörk Þórs: Sigurpáll Á. Aðal- steinsson 8/5, Sigurður Pálsson 6, Ólafur Hilmarsson 5, Kristinn Hreinsson 2, Jóhann Samúelsson 1, Hörður Harðarson 1, Árni Stefánsson 1. Mörk Fylkis: Sigurður Haukur Magnússon 6, Jón L. Hilmarsson 6, Magnús Sigurðsson 6/3, Einar Einarsson 4, Elís Sigurðsson 3, Ólafur Borgþórsson 1, Jón Ó. Davíðsson 1, Leifur Árnason 1. Dómarar voru þeir Vigfús Þor- steinsson og Egill Markússon og dæmdu þeir ágætlega. AP 2. desember 1987 - DÁGUR - 15 Svartur dagur hjá Þórsumm Björn Sveinsson og félagar hans í Þór mæta ÍR í bikarnum. Myndin er úr fyrri leik liðanna í úrvalsdcildinni en þá höfðu ÍR-ingarnir betur. Ólafur Hilmarsson skoraði fimm mörk fyrir Þór gegn Fylki en það dugði ekki til og liðið er úr leik í bikarnum. Þórsarar vilja örugglega gleyma þessum leik sem fyrst. Eftir að hafa komist í 5:0 og verið 14:11 yfir í hálfleik, klúðruðu Þórsararnir leiknum algjörlega í seinni háltleik. Hvað er hægt að segja um svona leik, það sást ekki neisti af baráttu, vörnin var hriplek og þetta var ekki Axels dagur í markinu. Sigur Fylkis var sanngjarn, þrátt fyrir slaka byrjun en þetta er örugglega lélegasti leikur Þórsara í ár. Annars var þetta hálfgerður feluleikur. Þegar Þórsararnir mættu í Seljaskólann, kannaðist starfsfólkið ekki við að það ætti að vera leikur. Fylkismennirnir mættu þó og var því leikurinn spilaður. Þetta leit svo sem nógu vel út í byrjun, eins og áður sagði. Þórsararnir sölluðu inn mörkunum og Axel varði tvo víti. En þá kom kæruleysið inn í leik þeirra rauðklæddu. Skot voru reynd úr heldur vonlausum færum og það sem verra var - baráttan og leikgleðin datt Dregið í bikarkeppni: Þór mætir IR og Tindastóll Haukum Körfubolti: Tindastóll endurtieimti sæti sitt í b-ríðli - og þá drógust ÍBK og UMFN saman sætið f c-riðli in einum leik en þar sem Tinda- stóll sigraði í innbyrðisviðureign liðanna, hlaut liðið fyrsta sætið. Tindastóll og Þór léku saman í fyrsta leik og sem fyrr sagði sigr- uðu Stólarnir með 39 stigum gegn 31. Þá lék liðið gegn ÍR c og sigr- aði örugglega í þeim leik 78:45. í þriðja leik mætti Tindastóll b liði IR og tapaði 31:37 í mjög jöfnum leik. í síðasta leiknum lagði síðan UMFL að velli mjög örugglega 59:27. Þeir Sigurður Levy og Pét- ur Vopni Sigurðsson voru atkvæðamestir Tindastólsmanna í leikjunum fjórum. Sigurður skoraði alls 79 stig en Pétur Vopni 58 stig. Þórsarar töpuðu fyrir Tinda- stóli í fyrsta leik eins og kemur fram hér að ofan en unnu hina leikina þrjá. Liðið lagði ÍR b að velli með 44 stigum gegn 32, ÍR c með 38 stigum gegn 25 og UMFL með 72 stigum gegn 32. Helgi Jóhannesson var í miklu stuði í Sandgerði og skoraði alls 112 stig og þar af 39 stig í leiknum gegn ÍR b. Högni Friðriksson skoraði 32 stig í mótinu og Arnar Berg- þórsson 20. Tindastóll og Þór hlutu því 6 stig, ÍR b og ÍR c hlutu 4 stig en UMFL ekkert. saman í meistaraflokki karla: (Liðið sem talið er upp á undan á heimaleikinn fyrst). ÍBK- UMFN, ÍS b-KR, UMFG- UMFS, KR-Valur, ÍR-Þór, UMFT-Haukar, UMFN b-ÍS og UBK-ÍA. í kvennaflokki drógust liðin sem léku til úrslita í fyrra, KR og ÍBK, saman í fyrstu umferð. En í meistaraflokki kvenna drógust eftirtalin lið saman: KR-ÍBK, ÍS- ÍR og UMFG-Haukar en UMFN situr hjá í fyrstu umferð. - Þórsarar urðu að láta sér lynda 2 Fjölliðamót í 4. flokki í körfu bolta fór fram í íþróttahúsinu í Sandgerði um síðustu helgi. Þar mættust Þór, Tindastóll, ÍR b, ÍR c og UMFL í c-riðli og léku þau um laust sæti í b- riðli. Þetta var annað fjölliða- mót vetrarins en það þriðja og síðasta í þessum riðli, fer fram í Höllinni á Akureyri í febrúar. Tindastóll, sem féll niður í c riðil á fyrsta fjölliðamótinu, og Þór börðust um sigur í riðlinum en það voru Sauðkrækingarnir sem höfðu betur og endurheimtu sæti sitt í b riðli. Bæði töpuðu lið- Sund: Oðinn og IBV féllu í 3. deild - SH og KR í 1. deild Sundfélag Hafnarfjarðar sigr- aði í 2. deildinni í sundi sem fram fór um síðustu helgi og vann sér um leið sæti í 1. deild að ári. Lið KR hafnaði í öðru sæti og vann sér einnig sæti í 1. deild. Sundfélagið Óðinn og ÍBV 1. SH féllu í 3. deild en liðin höfnuðu í ,2. KR tveimur neðstu sætunum. HSÞ 3. Ármann sem kom upp úr 3. deild í fyrra 4. HSÞ hélt sæti sínu en liðið hafnaði í 5. Óðinn fjórðasæti. Keppni varmjögjöfn 6. ÍBV og spennandi en nú voru í fyrsta sinn gefin stig eftir alþjóðlegri stigatöflu en það þýðir að breidd hvers liðs hefur meira að segja en árangur einstaklinga. Annars urðu úrslit deildarinnar þessi: 21.167 20.012 16.155 15.999 15.285 14.946 Þórsarar drógust gegn ÍR-ing- um í bikarkcppni KKÍ og Tindastóll mætir Haukum en fyrir helgi var dregið um það hvaða lið leiki saman í fyrstu umferð. Aðeins fjögur úrvals- deildarlið drógust saman. Fyrir utan Þór og ÍR mætast ÍBK og UMFN í sannkölluðum Suður- nesjaslag. Leikið er heima og heiman og fara leikimir í fyrstu umferð fram í janúar. Eftirtalin lið drógust

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.