Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 16

Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 16
Hafið þið reyrit okkar þjónustu? cpedrömyndir Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520. Bílaleiga Akureyrar: - Kaup á Subaru bílum ekki í sjónmáli „Þetta er tóm vitleysa. Þessir strákar buðu okkur bíla og ætl- Þórshöfn: Hús reist fyrir sög- unarmyllu Þessa dagana er verið að reisa sögunarmyllu á Þórshöfn. Sögunarmylla þessi var keypt frá Danmörku sl. sumar og er henni ætlað að vinna úr þeim mikla timburreka sem er á Langanesfjörum. Gera menn sér vonir um að sögunarmyllan geti tekið til starfa síðari hluta vetrar. Bændur á Langanesi hafa öld- um saman nýtt rekann, bæði til snlíðaefnis og eldiviðar. Þóttu mikil hlunnindi að búa á góðri rekajörð þegar timbur var dýrt og af skornum skammti. Nú hef- ur þeirri hugmynd verið hrint í framkvæmd að reisa sögunar- myllu á Langanesi sem gæti veitt einhverjum atvinnu, auk þess sem heimamönnum þykir sjálf- sagt að nýta rekavið ef þess er kostur. Eigendur sögunarmyllunnar éru Sauðaneshreppur, Svalbarðs- hreppur, Kaupfélag Langnesinga og hagsmunaaðilar, þ.e. landeig- endur að rekafjörum. EHB uðu hugsanlega að láta okkur vita ef eitthvað yrði af kaup- um, en við höfum ekkert heyrt meira í þeim,“ sagði Skúli Agústsson hjá Höldi sf. á Akureyri, þegar hann var spurður að því hvort rétt væri að Bílaleiga Akureyrar hefði keypt „nætursaltaða“ Subaru bíla. Eins og margsinnis hefur kom- ið fram í fréttum keyptu fjórir íslendingar á fjórða hundrað Subaru bíla í Noregi, en þessir bílar voru álitnir skemmdir eftir saltbað við höfnina í Drammen. Bílarnir stóðu um tíma í sjó og lýsti framleiðandi því yfir að þeir gætu verið hættulegir og gallar komið fram í þeim seinna meir. Reyndi fulltrúi verksmiðjanna að koma í veg fyrir að þeir yrðu fluttir til íslands, auk þess sem Bifreiðaeftirlit ríkisins taldi bíl- ana ekki skráningarhæfa. Mjög skiptar skoðanir eru um hvort bílar þessir séu í raun og veru skemmdir og telja margir að þeir séu síst verri en aðrir bílar. „Við höfum ekki heyrt aftur í þessum mönnum. Þeir höfðu samband við okkur um leið og þeir gerðu kaupsamninginn um bílana og spurðu okkur hvort við hefðum áhuga á að kaupa eitt- hvað af bílum. Við sögðumst vera tilbúnir að ræða þetta við þá en síðan höfum við ekkert heyrt frá þeim. Þetta getur komið upp aftur en ég sé ekki að neitt sé í sjónmáli varðandi slík bílakaup okkar á næstu dögum,“ sagði Skúli að lokum. EHB Hún Petra Antonsdóttir var að kaupa sér Þorláksmessuskötuna í gær er Ijósmyndara bar að garði. Mynd: TLV Akureyri af skötu á lyktar moraun - sala eykst jafnt og þétt Þaö er Ijóst, að skata verður allvíða á borðum Akureyringa á morgun, svo lyktin væna mun þá kvelja marga sem ekki kunna að meta þennan mat. Þessi vestfirski siður hefur sem sagt náð að festa hér rætur samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá nokkrum aðil- um sem selja skötu á Akur- eyri. Hjá Sjávargulli var okkur sagt að töluvert hefði verið spurt eftir skötu. Þeir selja ísfirska skötu sem er vel kæst og ekki söltuð, að sögn. Fiskbúðin við Strandgötu selur sömuleiðis vestfirska skötu og sögðust þeir telja að neysla skötu um jól á Akureyri væri að færast í aukana. Salan væri rétt að hefj- ast en þeir töldu að flestir kaupi skötuna í dag. Hjá KEA við Hrísalund feng- ust þær upplýsingar að undanfar- in ár hefði skatan alltaf selst upp. Salan hefði aukist mikið undan- farin ár, en skatan þeirra er frá Fiskhúsi KEA. Hagkaup selur vestfirska skötu og sögðu þeir að salan hefði farið rólega af stað, en þó hefðu mjög margir spurst fyrir um skötu. Þeir voru með skötu til sölu í haust og Fóstruskorturinn á Akureyri: Síðuseli lokað um áramótin? - fjórar af sex faglærðum fóstrum dagvistanna sögðu upp í kjölfar starfsmats „Ég er svartsýnn og hræddur um að til lokunar dagvista komi eftir áramótin. Ég veit vel hversu erfitt er að fá ófag- lærða starfsmenn til að koma í stað fóstra, það hefur verið reynt áður og ég er hræddur um að það takist ekki á þessum tíma. Launin eru ekki hvetj- andi og við eigum líka eftir að fá undanþáguheimildir frá ráðuneytinu. Það er tafsamt að koma málum í gegn þessa dag- ana,“ sagði Jón Björnsson, fé- lagsmálastjóri Akureyrarbæj- ar. Jón Björnsson sagði að í nýútkomnu starfsmati starfsmats- nefndar hefðu launaflokkar fóstra verið endurskoðaðir. Laun almennra fóstra hefðu hækkað um einn flokk en laun forstöðu- manna um tvo launaflokka. Þar með hefði svolítil bragarbót verið gerð á launamálum fóstra en þó Nú er mikill fóstruskortur á Akureyri og ekki er víst að jólasveinarnir hafi alitaf tíma til að stytta börnunum stundir. verulega miklu minni en vonir þeirra stóðu til. Margar fóstrur hefðu farið í önnur störf vegna lágra launa og þær myndu ekki snúa aftur til starfa. „Þegar þessi niðurstaða starfs- matsnefndar lá fyrir á föstudag sögðu fjórar af þeim sex fóstrum, sem ennþá starfa hjá bænum, upp störfum sínum. Nú starfa aðeins tvær fóstrur hjá bænum sem ekki hafa sagt upp. Við erum að reyna að auglýsa eftir fólki til að taka að sér forstöðu dagvista án þess að hafa tilskilda menntun og fáum við einhverjar umsóknir munum við sækja um undanþág- ur til ráðuneytisins. Við höldum fundi á tveimur dagvistum, þar sem forstöðu- menn hætta um áramótin, og athugað verður hvort einhver starfsmanna vill taka við forstöð- unni. Ef enginn starfsmaður vill taka að sér forstöðuna og enginn sækir um starfið fyrir áramót þá horfir þannig að Síðusel verði ekki opið eftir áramót og Flúðir ekki nema að litlu leyti. Við höf- um þegar varað foreldra við þessu. En ég tek fram að hingað til hefur ekki verið um þrýstiað- gerðir af hálfu fóstra að ræða heldur uppgjöf, að vísu var upp- sögn þessara fjögurra ákveðið viðbragð við starfsmatinu," sagði Jón Björnsson. EHB hefðu þó nokkrir keypt hana þá og fryst til jólanna. VG Hrísey: Hópbónus í frystihúsinu Vegna breytinga á vinnslukerfi í Hraðfrystihúsi KEA í Hrísey hefur verið haldinn einn samn- ingafundur um bónusfyrir- komulag. Björn Snæbjörns- son, varaformaður Verkalýðs- félagsins Einingar á Akureyri, sagði að breytt vinnslufyrir- komulag í frystihúsinu gerði það að verkum að nauðsynlegt væri að skipta yfir í hópbónus. Að sögn Björns Snæbjörnsson- ar fékkst ekki ákveðin niðurstaða á fundinum milli fulltrúa Eining- ar og Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna. „Breytingin á vinnslufyrirkomulaginu er þannig að tekin er upp svonefnd tlæði- lína, en það merkir að vinnan fer að mestu leyti fram á færibönd- um. Við horfum því á það að hér er um hópvinnu að ræða og ekki kemur annað til greina en að unnið verði eftir hópbónuskerfi. Það þarf að semja unt slíkt bónuskerfi áðuren vinnslan fer í gang, en það verður að öllunt lík- indum í næsta mánuði,“ sagði Björn Snæbjörnsson. EHB D Síðasta blað fyrir jól kemur út á morgun, Þorláksmessu. Næsti útgáfudagur er síðan mánudagur- inn 28. desember og er skilafrest- ur srnærri auglýsinga í það blað til hádegis á morgun. Síðasta blað ársins kemur út miðvikudaginn 30. desember og er skilafrestur smærri auglýsinga til hádegis þriðjudaginn 29. des- ember. Engir „nætursalt- aðir“ Subaru bílar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.