Dagur - 18.04.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 18.04.1988, Blaðsíða 15
18. apríl 1988 - DAGUR - 15 n Minning: TPálína Jónasdóttir fædd 10. október 1891 - dáin 8. apríl 1988 Deyr fé deyja frændur deyr sjálfur hið sama en orðstír deyr aldregi hveim er sérgóðan getur. Mig langar í örfáum orðum að minnast frænku minnar, Pálu, er nú er til' hinstu hvílu borin. Fyrstu mánuði lífs míns annaðist Pála mig og bar mig á höndum sér. Mamma hefur sagt mér, að Pála hafi boðið fram krafta sína strax og ég fæddist og aldeilis reynst sér vel. Hún vaknaði eld- snemma á morgnana til að strauja bleiur og barnaföt og tímunum saman sat hún með mig og söng hverja vögguvísuna eftir aðra. Alltaf bar hún sérstaka umhyggju fyrir mér og eru ófáir sokkarnir og vettlingarnir sem hún prjónaði fyrir mig er ég var lítil. Eftir að ég eltist hafði hún ánægju af að fylgjast með mér og vita hvernig mér gengi í skólan- um. Ég veit að hún hafði gaman af, er ég skrifaði henni bréf og sagði henni frá einkunnum mínum. Ég hef ekki kynnst konu sem oröin var þetta gömul, sem fylgdist eins vel með og lét sér meira annt um hagi annarra. Pála var yndisleg kona lítil og nett og frá henni geislaði, hún hafði fallega húð og sást varla hrukka á andlití hennar, enda var henni gefið í vöggugjöf alveg einstak- lega gott skap og jákvæðni. Hún vildi hverjum manni vel og alltaf var hún tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd. Hún hafði í einu orði sagt stórt hjarta. Ég vildi óska að við hefðum búið nær hvor annarri þannig að við hefð- um hist oftar. Ég bið góðan Guð að eitthvað af kostum Pálu minnar eigi eftir að prýða mig á mínum lífsferli og þá veit ég, að mér á eftir að farn- ast vel í þessu lífi. Ég þakka Pálu frænku minni fyrir allt gott í minn garð og mamma mín og Árni þakka einnig fyrir ánægjulegar stundir. Pála var einlæg í trú sinni á Guð og trúði á sæla endurfundi við sína nánustu. Ég veit að hin milda hönd Guðs mun leiða hana á sinn dvalarstað og þangað mun fylgja henni innilegt þakklæti og fallegar hugsanir þeirra sem þekktu hana. Minningin um Pálu frænku mína verður mér ávallt kær. Erla Sigríður Grétarsdóttir. Hún fer að engu óð er öllum mönnum góð og vinnur verk sín hljóð. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Sumir ganga í gegnum lífið með fyrirgangi og hávaða, þó það tryggi engan veginn að orðstírinn lifi. Svo eru það aðrir sem ávaxta sitt pund með öðrum hætti og alveg án háreysti eða skarkala. Pannig er þetta og verður, enda „svo misjafnt sem mennirnir leita að / og misjafn tilgangurinn sem fyrir þeim vakir". Ömmusystir mín Pálína Jónas- dóttir sem í dag er lögð til hinstu hvílu fyllti síðarnefnda hópinn. Það var ekki hennar háttur að vekja athygli á sér með hávaða eða tilburðum. Engu að síður veit ég að hún skipar í hjörtum margra stórt rúm, sakir einstakra mannkosta og fágæts hjartalags. Pálína fæddist þann 10. októ- ber árið 1891 að Heiðarhúsum á Laugalandsheiði í Eyjafirði. Pað var þá lítið býli, en er nú fyrir löngu komið í eyði. Foreldrar hennar voru Jónas Ólafsson bóndi og sjómaður og kona hans Guðrún Árnadóttir. I Heiðarhús- um dvaldist Pála, en svo var hún jafnan kölluð, til eins og hálfs árs aldurs, en fluttist þá ásamt for- eldrum og systkinum að bænum Steinkoti í Eyjafirði. Par var heimili hennar fram á sextugs aldur. Pálína er af þeirri kynslóð sem séð hefur byltingu verða á íslensku þjóðfélagi. Pegar hún fæddist á litlu heiðarkoti í Eyja- firði, ríkti sannarlega önnur öld í fleiri en einum skilningi. Tækni- framfarir höfðu nær algjörlega farið hjá garði íslendiriga. Vinnu- brögð og verkkunnátta svipaði til þess sem ríkt hafði um aldur. Það hafði rétt aðeins byrjað að örla á þeirri öldu upplýsinga sem síðar átti eftir að gera íslenska þjóð- félagið að velmegunarþjóðfélagi, eins og það þekkist best í heimin- um. Þjóðin hafði á þessum tíma enn ekki sigrast á skortinum og því svarf fátækt að fölmörgum heimilum á íslandi. Steinkot var og er ekki stór jörð, hvernig sem það er skoðað, ekki einu sinni á rriælikvarða fólks á fyrri hluta þessarar aldar. Og þó að börnunum fjölg- aði leið öllum alltaf vel, var Pála vön að segja mér. Par réði mestu nægjusemin og samheldnin sem jafnan var aðalsmerki þessa fólks. Börnin í Steinkoti urðu fimm og voru í aldursröð: Árni, Jófríður, Helga, Pálína og Sigur- björg. Sigurbjörg lést á öðru aldursári, en hin systkinin lifðu öll og náðu háum aidri. Með frá- falli Pálu nú, eru þau öll látin. Fyrir okkur nútímafólkið sætir það undrun hvernig fólk fyrri tíð- ar megnaði að draga fram lífið á hinum fjölmörgu kostarýru jörð- um sem að þá voru setnar. Ekki síst vegna þess að ekki voru þá til þess aðstæður sem nú, að brjóta landið og vinna tún. Pví varð bústofninn oft rýr og gat ekki gef- ið mikið af sér. Það gilti því miklu að allir sem vettlingi gátu valdið tækju til hendinni við bústörfin og leituðu eftir bjargræði væri þess nokkur kostur. Hjá heimilisfólkinu í Steinkoti giltu auðvitað sömu lögmál. Börnin tóku til hendinni eftir því sem kraftar og aldur leyfðu og þótti sjálfsagt. Gamla fólkið var vant að segja að vinnan göfg- aði manninn og er það svo sann- arlega sannmæli. í Steinkoti munaði auðvitað mestu um það, að Jónas heimilis- faðirinn var ötull og eftirsóttur sjómaður og réri eftir því sem kostur var. Yfir vetrarmánuðina var hann á hákarlaveiðum. Þess á milli fór hann á síld eða á aðrar veiðar eftir aðstæðum hverju sinni. Eins og nærri má geta var sjómennska þeirra tíma erfið og kalsasöm á tíðum. Bátarnir voru opnir, hjálpartæki engin og ekki nokkur leið að láta af sér vita, ef eitthvað fór úrskeiðis. Árið 1881 um vetur fór Jónas faðir Pálu sem oftar á hákarla- veiðar. Þetta var annálað ísaár. Veður hefur því verið kalt en sennilega sjólítið. Svo gerðist það eitt sinn um hávetur að allir bátarnir nema einn skiluðu sér í land. Á bátnum sem var saknað, var Jónas í skiprúmi. Það þótti fljótlega sýnt að báturinn hefði farist. Vikurnar liðu og ekki var mikil von um mannbjörg á þess- um árstíma, þegar í hlut átti lítill opinn bátur úti á reginhafi yfir hávetrartímann. Það má því nærri geta að sorg hefur ríkt hjá fjölskyldunni ungu. En þá gerðist kraftaverkið. Tólf vikum eftir að báturinn fór af stað í hákarlaleg- una kom hann fram. Allir voru heilir á húfi. í tólf heilar vikur, þrjá mánuði um hávetur hafði báturinn setið fastur í ís. Mennirnir höfðu með sér nesti sem duga átti í venjulega legu, en ekkert umfram það. Skipverjarn- ir héldu hins vegar í sér líftórunni með því að veiða sér til matar og drýgja það síðan með skrínukost- inum, sem þeir höfðu haft með sér aö heiman. Þetta er ótrúleg saga, en sönn og sögð hér sem næst því er Pála nam hana af vörum móður sinnar. Þetta er lærdómsrík saga og segir okkur mikið af þeirri breytingu sem orðið hefur á röskri öld. Pálína var komin á sextugs aid- ur er hún flutti frá Steinkoti og inn í Glerárþorp, þar sem kallað var Árgerði. Gerðist hún þá ráðs- kona hjá bræðrum tveim, Hall- grími og Guðmundi. Er Pála kom að Árgerði var þar og hjá þeim móðir þeirra bræðra Stein- unn. Seinna flutti Árni bróðir Pálu til þeirra að Árgerði og bjó hjá þeim uns hann lést árið 1969, þá níræður að aldri. Frá Árgerði fluttust þau að Svalbarða í Gler- árhverfi og þaðan í Lyngholt þar sem þau bjuggu í ellefu ár. Pálína lét af ráðskonustörfum er hún varð 84 ára og fluttu þeir bræður að Dvalarheimilinu í Skaldarvík. Pálína fluttist þá til Hrefnu Svanlaugsdóttur og leigði hjá henni í tvö ár, uns hún fór á Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri 87 ára að aldri. Mér og systkinum mínum eru sérstaklega minnisstæð árin í Svalbarða og Lyngholti. Því fylgdi sérstök tilhlökkun að koma norður og heiinsækja þau syst- kinin Pálu og Árna (Árna afa eins og við vorum vön að kalla þennan ömmubróður okkar). Bræðurnir Mundi og Halli voru okkur svo sannarlega líka góðir. Andrúmsloftið á heimilinu var gott. Heimilisfólkið var afar sam- rýmt og sainskipti þess snurðu- laus. Þangað sótti maður því hlýju og væntumþykju. Stundirnar sem ég átti með Pálu frænku minni eru mér gjör- samlega ógleymanlegar. Hún hafði einstakt lag á því að miðla af sinni reynslu með öllu sínu fasi og frásögnum. Hún var öllum þeim sem kynntust henni holl fyrirmynd. Hún talaði af æðru- leysi um lífið og tilveruna, sorgir og gleði. Þetta skynjaði maður betur á fullorðinsárum, en sem barn og því varð það mér jafnan tilhlökkun að eiga stund með þessari frænku minni. Þegar ég nú lít til baka finn ég að hún var raunverulegur per- sónugervingur hins kristilega sið- gæðis, að sælla sé að gefa en þiggja, enda nam hún þá reglu strax við móðurkné, eins og lítil saga frá bernskuárunum lýsir vel. Fátæk nágrannakona kom í heimsókn að Steinkoti og kvaðst ekki eiga neitt til að seðja svöng börn sín nema mjólk. Móðir Pálu fór þá inn í fátæklegar hirslur sín- ar og sótti eitthvað matarkyns og færði nágrannakonunni. Pála kvaðst þá hafa sagt við móður sína, hvort þau mættu við þessu. En móðir mín svaraði, sagði hún mér: „Þú skalt gefa af þinni fátækt, það margaldast aftur hjá þér.“ Það dylst auðvitað engum sem þekkir til að Pála hefur numið vel þessa lífsskoðun móður sinnar. A.m.k. veit smáfólkið þetta. Að því hefur Pála oft vikið smáu og stóru. Og litlu börnin sem kannski skilja best allra hjartalag fólks, sóttust alltaf eftir því að vera návistum við þessa góðu konu. Auk ráðskonustarfa sinna hafði Pála með höndum margs konar önnur störf. Hún var eftir- sótt til að sinna konum að loknum barnsburði. Þarf það engan að undra, að nærgætni hennar og alúðleg framkoma hefur verið öllum konum styrkur. Þá lærði Pála fatasaum og stundaði hann eftir föngum svo sem heilsa og kraftar leyfðu. Framan af ævi sinni var Pála fremur heilsuveil. Kirtlaveik var hún og berklar sóttu hana heim. En henni tókst sem betur fer að sigrast á þessu böli. Allt fram til hinstu stundar var síðan heilsa hennar góö. Hún var létt og kvik í hreyfingum. Steig dansspor ef þannig bar undir fram á tíræðis- aldur og hafði gaman af því að fara á mannamót. Hún var bein í baki og tíguleg, fíngerð og kunni því vel að búa sig upp ef hún gerði sér dagamun. Þrátt fyrir að hún giftist ekki né eignaðist börn, átti hún nafna og nöfnur. Þeir voru ýmsir sem vildu láta hana njóta nafns. Ég hygg að flestum hafi þótt það vita á gott að börn hétu í höfuðið á þessari sómakonu. Pála var enda vinmörg og vinsæl. Starfsfólkið á Hlíð mat hans mikils og var það gagnkvæmt. Ég veit fyrir víst að á Hlíð undi hún hag sínum vel og naut þess að eyða þar ævikvöld- inu. Það var alltaf uppörvandi að sækja Pálu frænku heim. Hún var jákvæð og bjartsýn og í hennar huga komst aldrei að neinn efi þegar hún horfði til framtíðarinn- ar. Hún var ótrúlega ungleg og bar aldur sinn vel. Það mátti með sanni segja að árin sem hún hafði að baki segðu lítið um aldurinn, svo ung var hún í anda. Pálína naut góðs atlætis vina sinna. í því sambandi vil ég sér- staklega nefna þau Eggert Olafs- son og konu hans Sigríði sem ásamt börnum þeirra hjóna reyndust henni sannir vinir. Veit ég vel að varla leið.sá dagur að þau heimsæktu hana ekki og gleddu hana á alla lund. Þá var alltaf gott samband hennar við Hallgrím Stefánsson, sem hún hélt heimili fyrir eins og ég hefi rekið. Nú þegar lokið er ævi merkrar heiðurskonu hrannast upp endur- minningar. Frá glöðum dögum æsku rninnar er ég ásamt systkin- um mínum heimsótti hana norður, en einnig frá því að ég fullorðin manneskja sat og ræddi við frænku mína. í návistum við hana hvarf allt kynslóðabil sem dögg fyrir sólu, þó að hún tengdi saman með langri reynslu sinni tvenna tíma í þess orðs fyllstu merkingu. Fram til hinstu stund- ar fylgdist hún vel með samtíma- viðburöum og hafði lifandi áhuga á öllu því sem að fram fór í kring um hana. Það má segja að andlát hennar hafi borið brátt að. Hún veiktist af heilablæðingu á páskadag. Og lést af völdum hennar föstudaginn 8. apríl sl. án þess að hafa komist til meðvit- undar. Hún fékk hægt andlát eins og hún sjálf hafði kosiö sér og fór héðan úr heimi í sátt við allt og alla. Pálína Jónasdóttir var ógleymanleg kona. Það var mannbætandi að kynnast henni og glæddi mneð manni trúna á lífið og framtíðina. „Þá blómgast enn og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor íhugum vinaþinna" (Tóniiis Ciuómmulsson) Þó fjarlægðin skildi okkur að í eiginlegri merkingu naut ég þess að eiga gott samband við hana. Lítill sonur okkar Einars naut þess að ræða um þessa frænku sína sína og hlakkaði til þess aö fara norður með lítilli systur sinni í heimsókn til Pálu frænku, sem að töfraljómi lék um. Við frændfólk hennar í Bol- ungarvík kveðjum hina Iátnu heiöurskonu með viröingu og þökk og biðjum henni guös bless- unar. „Ó dauði taktu vel þeim vini mínum sem vitjað hefur þreyttur á þinn fund. Oft bar hann þrá til þín í huga sínum og þú gafst honum traust á banastund“. (Tómas Guömundsson) Sigrún J. Þórisdóttir. Öllum þeim sem minntust mín með blómum, skeytum og öðrum gjöfum, á áttræðisafmælinu, sendi ég hjartans þakkir. Sérstaklega þakka ég fjölskyldu minni fyrir að gera afmælisdaginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. AÐALBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR. Þökkum innilega auðsýnda samúð og einlægan vinarhug við andlát og jarðarför, MARINOS ZOPHANÍASSONAR, Lundargötu 5, Akureyri. María Óskarsdóttir og synir og systkini hins látna. Ritstjórn • Afgreiðsla • Auglýsingar Strandgötu 31 - Sími 24222.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.