Dagur - 10.02.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 10.02.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 10. febrúar 1989 Skákmeim — Bæjarbúar í tilefni af 70 ára afmæli Skákfélags Akureyrar 10. febrúar bjóðum við bæjarbúum í kaffi í Skákheimilinu, Þingvallastræti 18 e.h. á föstu- dagskvöldið. Húsið verður opnað kl. 20.00. Dagskrá hefst kl. 20.30. Skákfélag Akureyrar. Verksljórnar- fræðslan auglýsir Námskeið í töflureikninum MULTIPLAN verður haldið dagana 16. og 17. febrúar í samvinnu við Tölvufræðsluna Akureyri hf. Efni námskeiðsins: ★ Uppbygging töflureikna. ★ Helstu skipanir og valmyndir í MP. ★ Stærðfræðiföll í MP. ★ Notkun tilbúinna líkana. Leiðbeinandi: Jóhann G. Sigurðsson. Lengd námskeiðs: 16 klst. Verkstjórnarfræðslan og Tölvufræðslan Akureyri hf. Glerárgötu 34, sími 27899. Stórdansleikur laugardagskvöld Hin frábaera hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi N Vegna forfalla eigum við örfá borð laus fyrir matarges i. ☆ ÞORRAMATUR Nú eru síðustu forvöð að bragða á okkar frábæra þorramat Pantanir teknar í síma 22200 J Borðapantanir í síma 22200 Hvað er að gerast Big band Tónlistarskólans á Akureyri: Tónleikar í Sjallanum á sunnudag Big band Tónlistarskólans á Akur- eyri heldur tónleika í Sjallanum næstkomandi sunnudag 12. febrú- ar kl. 20.30. Þar kemur einnig fram D-sveit skólans ásamt sext- ett sem saman leika Jass-svítu. Stjórnandi Big bandsins frá því í haust er Róbert C. Thomas, en á þessum tónleikum er stjórnandi og jafnframt einleikari trompet- leikarinn Erik Tschentscher. Leiðir Eriks og Big bandsins lágu saman síðastliðið sumar þegar hljómsveitin fór til Rand- ers og tók þar þátt í tónlistarviku. Leiðbeinendur voru ekki af verri endanum þeir Erik Tschent- scher, Niels Jprgen Steen, Jesper Thilo og Ole Kock Sprensen. Erik var aðalleiðbeinandi ís- lendinganna og í lokin féllst hann Erik Tschentscher, stjórnandi og einleikari á tónleikunum. á að koma á þessu ári til Akur- eyrar og taka sveitina í gegn. Erik er þekktur trompetleik- ari og leiðbeinandi bæði í sínu heimalandi svo og víðar í Evrópu. Hann hefur starfað lengi við danska útvarpið sem 1. trompet- leikari bæði í jass-sveit og í Big bandi útvarpsins svo og í Tívolí- hljómsveitinni. Hann spilaði einnig 1. trompet í hinni frægu stórsveit Thad Jones „Eclipse". „Ef trompetröddin er skrifuð mjög hátt, er alltaf kallað á Erik hvaðanæva að og skilar hann frá sér háu tónunum ekkert síður en sjálfur Maynard Ferguson og munu tónleikagestir komast að raun um það á sunnudaginn kem- ur,“ segir í fréttatilkynningu frá Tónlistarskólanum. Samband ungra sjálfstæðismanna: Opinn fundur um hval- veiðar íslendinga - haldinn á Akureyri á laugardaginn Samband ungra sjálfstæðismanna efnir til opins fundar á Akureyri um hl'alveiðar íslendinga. Fund- urim. rður haldinn laugardag- inn 1 febrúar í Kaupangi við Mýra.veg og stendur frá kl. 14- 17. Fundurinn ber yfirskriftina; hvalveiðar, markaðir, vistfræði, sjálfstæði. Árni Sigfússon for- maður SUS flytur ávarp en erindi flytja Jóhann Sigurjónsson sjáv- arlíffræðingur um hvalarann- sóknir Hafrannsóknarstofnunar, Tómas Ingi Olrich varaþingmað- ur Sjálfstæðisflokksins um hval- veiðar og hafréttarsáttmálann, Ánægjulegar ferðir Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju hefir undanfarna vetur efnt til ferðalaga til kirkna í nágrenni Akureyrar og átt ánægjulegar samverustundir með börnum og fullorðnum úr þeim sóknum. Er þess minnst með þakklæti. Næsta sunnudag 12. febrúar fer sunnudagskólinn fram í Munkaþverárkirkju og verður áreiðanlega gaman að eiga stund í þeim aldna og virðulega helgi- dómi. Aðrir sunnudagaskólar hafa sótt Akureyrarkirkju heim og vonandi á slíkt samstarf eftir að aukast. Meira kaffi í KA-húsiim KA-kaffið á sunnudögum í KA- heimilinu hefur notið mikilla vinsælda fólks. Þangað hafa kom- ið um og yfir 100 manns í hvert skipti, bæði KA-menn og annað gott fólk. Hafa konurnar sem um kaffið sjá eignast marga vini úr mörgum flokkum og félögum þessa daga enda engin furða, því hlaðborðið er hið glæsilegasta. Þar verður engin undantekning á næsta sunnudag 12. febrúar þeg- ar fjórða kaffihlaðborðið verður haldið í KA-húsinu. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra ræðir um hvalveiðar og sjálfstæði íslands. Theodór Halldórsson fram- kvæmdastjóri Sölustofnunar lag- metis um áhrif hvalveiða á erlenda markaði og Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar og sjálfstæði íslands. Söngskemmtunin Gæjar og glans- píur, sem sýnd hefur verið í Broadway og Hollywood að undanförnu við afbragðs undir- tektir, verður sýnd á Akureyri á tveim sýningum í Sjallanum föstudagskvöldið 10. febrúar og laugardagskvöldið 11. febrúar næstkomandi. í Gæjum og glanspíum er brugðið upp smellnum leiftur- myndum af diskóæðinu frá síð- asta áratug með eldhressum hljóðfæraleik, söngvum, leik og dansi. Hátt á þriðja tug úrvals- manna stendur að sýningunni. Þar á meðal eru átta dansarar og átta valdir söngvarar, en á meðal þeirra eru látúnsbarkarnir báðir, Bjarni Arason og Arnar Freyr Gunnarsson. Sóley Jóhannsdóttir, sá víð- kunni dansari og skólastjóri, sá um sviðsetningu, Ástrós Gunn- arsdóttir er dansahöfundur, en handritið samdi útvarps- og blaðamaðurinn Ásgeir Tómas- son. Gæjar og glanspíur er gaman- söm og glæsileg söngskemmtun Umræður verða að erindum ioknum. Fundarstjóri verður Davíð Stefánsson og eru allir sem áhuga hafa á þessu málefni vel- komnir á fundinn. Skákfélag Akureyrar: 70 ára í dag Skákfélag Akureyrar er 70 ára í dag, föstudaginn 10. febrúar. Af því tilefni verður opið hús í fé- lagsheimili Skákfélagsins Þing- vallastræti 18. Þangað getur fólk komið, litið á aðstöðuna, gluggað í skákbækur, jafnvel gripið í tafl og fengið sér hressingu. Loks skal bent á að nánar verður sagt frá afmælinu í helgarblaði Dags á morgun. fyrir fólk á öllum aldri. Að sjálfsögðu verður líka dansað í Sjallanum þessi kvöld. Miða- og borðapantanir í síma 22970. Vörður FUS á Akur- eyri 60 ára: Afinælishátíð að Jaðri Vörður félag ungra sjálfstæðis- manna á Akureyri, heldur 60 ára afmælishátíð sína að Jaðri laug- ardaginn 11. febrúar kl. 20. Á meðal gesta verða Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðis- flokksins, Halldór Blöndal alþingismaður, Tómas Ingi Olrich varaþingmaður, stjórn SUS og félagar úr Heimdalli. Boðið verður upp á glæsilega þríréttaða máltíð. Stjórn FUS vill hvetja gamla félaga til að mæta á hátíðina en miðaverð er kr. 2600,- Gæjar og glanspíur bijótast norður

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.