Dagur - 04.11.1992, Blaðsíða 9

Dagur - 04.11.1992, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 4. nóvember 1992 - DAGUR - 9 Stefán Kjartansson og Hanna Guðnadóttir. Hanna og Stefán í Saumavélaþjónustunni: Vaxandi verslimarstaður Hanna Guðnadóttir og Stefán Kjartansson hafa rekið Sauma- vélaþjónustuna í Sunnuhlíð frá því í fyrravor en þau höfðu áður annast þennan rekstur á heimili sínu í nokkur ár. Að sögn Stefáns hafið reksturinn undið upp á sig og aukist það mikið að illmögu- legt hefði verið að sinna honum lengur inn á heimilinu. Því hefðu þau hjónin ákveðið að slá til og opna þjónustuna í Sunnuhlíð- inni. Saumavélaþjónustan býður ýmsar vörur sem tengjast sauma- skap auk viðgerðarþjónustu fyrir allar tegundir saumavéla. Þá býð- ur verslunin einnig fjölbeytt úrvai af hannyrðavörum. Þau 'Hanna og Stefán sögðu að Sunnuhlíðin væri vaxandi verslunarstaður og erfiðasta hjallanum væri greini- lega náð varðandi uppbyggingu hennar þótt finna mætti fyrir ákveðnum samdrætti nú í augna- blikinu sem orsakaðist af almennu ástandi í þjóðfélaginu. Þau bentu á mikilvægi þess fyrir verslunar- miðstöð á borð við Sunnuhlíðina að fjölbreytni væri sem mest því eitt rekstrarform styrkti annað. I ÞI Scsclía Gunnarsdóttir. Seselía Gunnarsdóttir í Vöggunni: Erfiðasti hjaUirm að baki Seselía Gunnarsdóttir opnaði verslunina Vögguna í maí 1989 og hefur rekið hana síðan ásamt dætrum sínum. Vaggan var fyrst í leiguhúsnæði en síðan festi Seselía kaup á húsnæði fyrir verslun sína. Vaggan er sérverslun með barnavörur og verslar með allt frá snuðum upp í kerrur og vagna. Seselía kvaðst finna mikinn mun á hvað umferð fólks um verslunarmiðstöðina hefði aukist frá því hún hóf verslunarrekstur. Það komi einnig fram í hinum almenna rekstri. Áður hafi verið algengt að fyrirtæki hafi komið og farið - rekstri þeirra verið hætt eftir skamman tíma því for- sendur hafi skort. Nú sé orðin breyting á þessu. Ákveðinn stíg- andi sé í viðskiptum í Sunnuhlíð- inni og góð samstaða sé einnig á meðal þeirra sem standi að rekstri í verslunarmiðstöðinni. „Fólk hafði ekki nægilega trú á þessu til að byrja með og fannst að allt hlyti að vera dauðadæmt sem væri hér. Þannig varð að tak- ast á við ákveðna byrjunarörðug- leika strax í upphafi en ég tel að nú hafi að mestu eða öllu leyti verið unnið á þeim,“ sagði Seselía Gunnarsdóttir. Hún sagði að verslunarmiðstöðin væri í raun ekki nægilega vel staðsett en slíkt kæmi þó síður að sök þegar hún hefði unnið sér fastan sess í hug- um fólks. Seselía sagði mikið um að utanbæjarfólk komi í Sunnu- hlíðin til að versla - bæði fólk úr nærliggjandi sveitum en einnig úr þéttbýliskjörnum í nágrenninu og mætti nefna Dalvík, Ólafs- fjörð, Siglufjörð og jafnvel Húsa- vík í því sambandi. Vera megi að sá hugsunarháttur væri enn nokk- uð við lýði innan Akureyrar að þurfa í miðbæinn til að sinna erindum sínum - til dæmis hvað verslun varðar en þó virtist það vera að breytast. Erfiðasti hjall- inn í rekstri Sunnuhlíðar væri tvímælalaust að baki. ÞI Ómar Torfason, sjúkraþjálfari: Verslimarmiðstöðm vel kynnt - hreint óráð að ráðast í byggingu annarrar Ómar Torfason, sjúkraþjálfari, opnaði þjálfunarstofu í Sunnu- hlíðinni í lok febrúar 1987. Bróð- ir hans, Skúli Torfason, tann- læknir, rekur tannlæknastofu í verslunarmiðstöðinni. Með til- komu sjúkraþjálfara og tann- læknis í Sunnuhlíð hófst rekstur heilbrigðisþjónustu á staðnum - tilvalið tækifæri til að auka fjöl- breytni þessa verslunar- og þjón- ustukjarna. Ómar kvaðst aðeins taka að sér sjúklinga eftir tilvísun frá læknum og útskrifa þá að með- ferð lokinni en eftir það gætu þeir haldið áfram að endurhæfa sig og þjálfa annarsstaðar ef áhugi væri fyrir hendi. Hann kvaðst hvetja fólk til að viðhalda líkamlegri færni eftir því sem kostur gæfist hvort sem væri með æfingum hjá öðrum sjúkraþjálfurum eða líkamsþjálfun af sjálfsdáðum. Ómar kvaðst einnig leggja áherslu á einstaklingstækni hvað þjálfun varðar og nefndi teygju- æfingar og nudd meðal annars í því sambandi. Þá beitir hann einnig hita- og stuttbylgjumeð- ferð. sama tíma og verslunar- og skrif- stofuhúsnæði stæði ónotað víða í bænum. Varðandi hugmyndir um byggingu annarar verslunarmið- stöðvar í Glerárhverfi eins og nú er rætt um við gerð skipulags sagði Ómar að slíkt væri hreint óráð - verslunarmiðstöðin við Sunnuhlíð væri komin upp og orðin nokkuð vel kynnt á meðal Raftækjaverslunin Rafland hefur verið rekin í Sunnuhlíð frá því í apríl 1987. í upphafi var rekið raftækjaversktæði samhliða versluninni en nú er megin áhersla lögð á verslun með ýmiskonar raftæki. Fyrir rúmum tveimur árum hóf Rafland einnig sölu á sjónvarpstækjum og mynd- bandstækjum og býður nú við- skiptavinum sínum einnig mót- tökudiska fyrir gerfihnattasend- ingar. Ómar Torfason, sjúkraþjálfari að störfum. íbúa bæjarins og nærliggjandi byggða hvað sem staðsetningu hennar annars liði. ÞI Jón E. Berg eigandi Raflands sagði að aldrei hefði verið neinn óhugur í sér að fara af stað með reksturinn og kvaðst alla tíð hafa haft trú á Sunnuhlíðinni. „Frá því ég hóf rekstur hér hefur þró- unin verið fram á veginn - að vísu hæg en stöðug. Það tekur áratuginn að vinna verslunarstað eins og þennan almennilega upp og nú er árangurinn að koma í ljós,“ sagði Jón E. Berg. ÞI Jón E. Berg í Raflandi: Árangurinn koimnn í ljós Hvað Sunnuhlíðina varðar kvaðst Ómar telja að rekstur á svæðinu hefði nú náð til fólks. Til marks um það mætti meðal ann- ars hafa að nú væri farið að kvarta um skort á bílastæðum í fyrsta skipti í sögu staðarins. Hann benti á að staðsetning verslunarmiðstöðvarinnar hefði þurft að vera önnur og viðbótar- möguleikar væru litlir vegna skipulagslegra aðstæðna. Þó ætti að vera unnt að nýta umhverfið til austurs meira í þágu verslun- armiðstöðvarinnar. Ómar ræddi nokkuð um bygg- ingu verslunarhúsnæðis á Akur- eyri og sagði furðulegt að menn leggðu í miklar framkvæmdir á Jón E. Berg í verslun sinni. NORÐLENDINGAR! VELJUM ÍSLENSKT SKÖPUM ATVINNU VERKALÝÐSFÉLAGIO EINING

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.