Dagur - 01.12.1992, Blaðsíða 5

Dagur - 01.12.1992, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 1. desember 1992 - DAGUR - 5 Lesendahornid „Fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra“ Loks er búið að kynna þjóðinni þau úrræði, sem landsstjórnin hefir af sinni alkunnu snilld sett saman. Þetta hefir að vísu tekið nokkurn tíma, enda ekki hrist fram úr erminni að bjarga heilli þjóð út úr vandræðum. Eins og aíþjóð er kunnugt er ríkisstjórnin okkar ákveðin í að hlynna sér- staklega að þeim sem minna mega sín og staðráðin í að koma á allsherjar tekjujöfnun í þjóð- félaginu. En hvernig hefir svo tekist til með bjargráðin gagnvart hinu almenna launafólki? Skulu nefnd nokkur dæmi: Gengi krónunnar fellt um 6% sem orsakar verðbólgu sem næst 4,5%. Bensínverð hækkar þrisvar á næstunni. Húshitunarkostnaður hækkar, mismikið á landinu, þeir sem verst fara út úr þessu munu þurfa að búa við hækkun upp undir 20%. Bækur og blöð hækka og því fylgir hækkun alls skólakostnað- ar. Afnotagjald útvarps- og sjón- varps hækkar. Vaxtabætur lækka. Barnabætur lækka. Öll fargjöld hækka. Skattbyrði mun yfirleitt hækka. Tryggingagjöld hljóta að „ hækka. Vextir af lánum standa óhreyfðir. Hins vegar á ekki að skattleggja fjármagnstekjur, fremur en áður og bifreiðastyrkur til ráðherra verður ekki skertur svo menn viti og einkabifreiðastjórar verða kostaðir áfram af þjóðinni, enda getur ýmislegt orðið til þess að ráðherrar eigi erfitt með að aka sjálfir. Dagpeninga eiga ráðherr- ar og frúr þeirra að hafa áfram í utanlandsferðum. Þannig er jöfnuður fram- kvæmdur í raun. En ástæðulaust er að gleyma því eina sem fram kom í þessum nýju tillögum til jöfnunar. Þar á ég við svokallaðan hátekjuskatt, sem leggjast skal á mánaðartekj- ur kr. 200.000 á einstakling og kr. 400.000 á hjón. Skatturinn á að nema 5% af áðurnefndum mán- aðarlaunum. Þetta er þó meira til að sýnast enda hefði verið óhætt að bæta við einu eða tveimur tekjuþrepum því að allstór hópur manna hefur miklu hærri tekjur en það sem hér var nefnt, jafnvel um og yfir eina milljón á mánuði. Að síðustu skal hér minnst á annað frægðarverk, sem eftir ríkisstjórnina liggur nú nýlega. Það var þegar hún með undir- skrift ráðherra gerði okkur íslendinga að aukaaðilum að svokölluðu Vestur-Evrópu- bandalagi en það mun vera hern- aðararmur E.B. Hvaða erindi við eigum í annað hernaðarbandalag hefir enginn getað útskýrt svo vel sé. Kannski á að pota okkur þannig inn í E.B. bakdyramegin svo lítið beri á. Svo fá líka ráðherrar átyllu til fleiri fundarferða suður í Evrópu og njóta þá um leið vasapening- anna, sem þeir fá ekki ef þeir sitja heima. Hvernig allur sá málatilbúning- ur var á Alþingi, þegar þetta var að gerast, er svo saga út af fyrir sig. Stundum dettur manni í hug að efast um geðheilsu þeirra sem stjórna landinu okkar, enda hefir jafnvel gengið fram af þeirra eig- in flokksmönnum. En kannski eigum við bara að vera þæg og góð og segja eins og sagt var fyrir margt löngu: „Fyrir- gef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra.“ 231023-4619. Þakkir til starfsfólks Hótels Norðurlands Frostrásin FM 98,7 Útvarp á Norðurlandi með aðsetur á Akureyri. Erum komnir í loftið! Frostrásin FM 98,7 4»*^ Sími 27687 ★ Útvarp með sál HÖNNUNARSAMKEPPNI Verðlaunaafhending og sýning verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu, fimmtudaginn 3. desember nk. kl. 16.00. Sýndar verða handprjónaðar flíkur úr hönnunarsamkeppninni „íslensk hönnun úr íslenskri ull“ Þátttakendur og gestir þeirra velkomnir. m ÍSTEX® ÍSLENSKUR TEXTÍLIÐNAÐUR H.F. PÓSTHÓLF 140 - 270 MOSFELLSBÆ - SlMI 91-666300 - MYNDSENDIR 91-667330 - og félaga í Lionsklúbbnum Hæng Björk Jónsdóttir frá Verka- kvennafélaginu Framsókn í Reykjavík, vildi koma á framfæri sérstöku þakklæti til starfsfólks Hótels Norðurlands á Akureyri. „Við í Framsókn, dvöldum á Hótel Norðurlandi þá viku sem þing ASÍ stóð yfir á Akureyri og fengum þar bestu hugsanlegu þjónustu. Hótelið er virkilega huggulegt og starfsfólkið sýndi okkur hlýtt viðmót og vildi allt fyrir okkur gera og það kunnum við svo sannarlega að meta.“ Einnig vildi Björk koma á framfæri þakklæti til félaga í Lionsklúbbnum Hæng á Akur- eyri. „Þeir félagar stóðu að undirbúningi og framkvæmd ASÍ þingsins í íþróttahöllinni á Akur- eyri og unnu þar frábært starf.“ Bifreið heimahjúkrunar á stæði merktu fötluðum Sonur íbúa í Víðilundi 24 (íbúðarhúsnæði fyrir aldraða) hringdi: Við Víðilund 24 hefur skapast ákveðin hefð með bílastæði, þ.e. með tímanum hafa íbúarnir helg- að sér ákveðin bílastæði þótt auðvitað hafi þeir engan rétt á þeim umfram aðra ef þannig stendur á. Framan við húsið eru líka bílastæði merkt fötluðum, en um s!. helgi brá svo við að þar var alla helgina lagt Lödu- bifreið merkt heimahjúkruninni (ríkisbifreið). Viðmælanda fannst það í hæsta máta óviðeig- andi að þeir sem m.a. bera ábyrgð á heilsufari þeirra öldr- uðu leggðu bifreiðum í stæði merkt fötluðum, og það sólar- hringum saman. Um þessa helgi var bílastæðið einn svellbunki eins og víðar, og margir íbúarnir í stökustu vandræðum með að komast frá bifreiðunum á bíla- stæðunum inn í húsið, ekki síst fatlaðir, og því fordæmið sem starfsmaður heimahjúkrunar gaf ekki gott. Yfirhafnir teknar Sveinbjörg Helgadóttir hringdi og sagði farir sínar og sinna ekki sléttar. Dóttir hennar og tengda- sonur fóru á skemmtistaðinn 1929 sama kvöldið og úrslit „Landslagsins“ fóru fram í Sjall- anum. 800 manns voru í húsinu og því margar yfirhafnir teknar til geymslu. Þegar þau ætluðu eins og fleiri gestir að taka yfir- hafnir sínar að dansleik loknum voru þær allar í einum haug á gólfinu, eftirlitslausar og gat því hver sem er tekið þá yfirhöfn sem honum leist best á enda fór svo að hvorugt þeirra fékk sína yfir- höfn, og hafa ekki fengið enn. í yfirhöfn tengdasonarins var öku- skírteini og því augljóst hver eig- andinn er. Sveinbjörg vill skora á foreldra að athuga hvort í fata- hengið heima sé komin yfirhöfn sem þar á ekki heima og koma henni þá til skila. Auglýsing um markaðsútboð samvinnuhlutabréfa Útgefandi: Nafnvirði hlutabréfa: Gengi: Sölutímabil: Upplýsingar: Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyil.. 50.000.000 krónui*. 2,25. 1. desember 1992- 28. febrúar 1993. Útboðslýsing liggur franuni lijó aðalsöluaðihun og eiiuiig í afgreiðsliun Uúuaðarbankans, sparisjóðaiuia og verðbréfafyrirtœkja. Unisjón með útboði: Aðrir aðalsöluaðilar: NORÐURLANDSHF Kaupvangsstræti 4,600 Akureyri, sfini (96)24700. Kaupþing hf. löggilt verðbréfafyritiœki Kringlunni 5,103 Reykjavík, sfinl (91)689080. VlB V erðbréfaniarkaður íslandsbanka hf, Ármúla'l3A, 108 Reykjavlk, sfmi (91) 681530. S flHWBBtHBHflSKIWI SAMUINNUBANKANS Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavfk, sími (91) 688568. \ áél KAUPÞING

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.