Dagur - 06.04.1994, Blaðsíða 4

Dagur - 06.04.1994, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 6. apríl 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavikvs. 96-41585, fax 96-42285), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARDUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Áfall á Grenivík Atvinnulífið í íslenskum sjávarplássum snýst fyrst og síðast um fiskvinnslu. Gjarnan eru eitt eða tvö fyrirtæki sem bera uppi vinnsluna á þeim afla sem berst að landi. Fyrirtækin veita þá oftast þorra íbúa vinnu og þar með er rekstur þeirra snar þáttur í af- komu hverrar fjölskyldu. Þegar málum er svo hátt- að er það ólýsanlegt áfall fyrir byggðarlag þegar gjalþrot ríður yfir lykilfyrirtækin, því slíkt ógnar af- komu fólksins sem þar býr. Þessar aðstæður sköp- uðuðust á Grenivík fyrir páska þegar frystihúsið Kaldbakur var lýst gjaldþrota. Frystihúsið Kaldbakur var dæmigert burðarfyrir- tæki atvinnulífsins á Grenivík. Fyrirtækið hafði starfað í 28 ár og sá langi starfstími undirstrikar hversu mikið áfall gjaldþrotið er fyrir byggðarlagið. Eigið fé fyrirtækisins hefur verið neikvætt um nokkurra ára skeið og baráttan hefur verið hörð við að halda því gangandi. Síðast í fyrra voru gerðir nauðasamningar sem áttu að hjálpa Kaldbaki út úr vandanum en því miður reyndist sú aðgerð ekki næg, forsendur breyttust með lækkandi afurða- verði og hækkuðu hráefnisverði og áfram tapaðist fé á rekstrinum. Gjaldþrot varð því ekki umflúið. Þessi raunasaga Kaldbaks á sér því miður hlið- stæður í útgerð og fiskvinnslu. Skerðing aflaheim- ilda á síðustu árum, fyrst og fremst skerðing þorsk- veiðiheimilda, hefur leikið sjávarútvegsfyrirtæki grátt. Skerðing aflaheimilda hefur komið sérlega illa við rekstur Kaldbaks, enda þorskurinn uppi- staða í þeim afla sem unninn var hjá fyrirtækinu. Tíðindin frá Grenivík þurfa ekki að koma á óvart þegar haft er í huga að þorskkvóti Grenvíkinga er í dag aðeins 1200 tonn. Hefði hins vegar ekki komið til skerðingar á liðnum fjórum árum væri þorsk- kvótinn allt að 4500 tonn. Hver fyrirtækjastjórn- andi getur sett sig í þau spor hvernig hægt er að bregðast við slíkum samdrætti og verja reksturinn. Atburðarrásin á Grenivík undirstrikar skýrt og greinilega að ekki er annað ásættanlegt en staða sjávarútvegsfyrirtækjanna og útgerðarinnar um allt land verði skoðuð gaumgæfilega. Hjálparað- gerðir sem ríkisvaldið áformar mega ekki bara snú- ast um Vestfirði af því að athyglin beindist þangað fyrst. Ef á annað borð á að veita einhverjum ein- stökum fyrirtækjum og byggðarlögum aðstoð þá verður að gera það að undangenginni skoðun á stöðu fyrirtækjanna hringinn í kringum landið. Gjaldþrot Kaldbaks sýnir að það voru full rök til þess hjá forsvarsmönnum útvegsmanna á Norður- landi að áminna stjórnvöld þegar umræðan kom upp um aðgerðir á Vestfjörðum. Samdráttur í fisk- veiðunum við landið kemur við alla og því er sið- ferðileg skylda að tekið sé á vanda heildarinnar, ekki bara sumra. Gjaldþrot fyrirtækja, með öllum þeim sárum sem þeim fylgja, verða vonandi aldrei sjálfsögð í þessu þjóðfélagi og því verður að reyna allt til að forðast þau. Ríkisstjórn á hverjum tíma gegnir þar stóru hlutverki. Fyrir íbúa Grýtubakkahrepps er mikilsverðast að tilraunir til endurreisnar fiskvinnslunnar takist þannig að stoð verði rennt undir byggðina á ný. Fátt er verra en óvissan og eitthvað sem heitir gjaldþrotastefna hljómar hjákátlega þegar horft er til þeirrar stöðu sem byggðarlag er í þegar hjarta atvinnulífsins hættir að slá. Um skipan framboðsmála bæjarstjómarflokksins og prófkjör sjálfstæðismanna Áður en fjallað verður um van- mátt bæjarstjórnarklúbbsins á Ak- ureyri og gæluverkefni hans, þá er ekki úr vegi að skrifa dálítið um þær aógerðir sem stjómmálaflokk- amir nota til þess að velja fram- bjóðendur á framboðslista sína. Skoðanakannanir flokkseigendafélaganna Framsóknarmenn, alþýðuflokks- menn og alþýðubandalagsmenn virðast hafa þann háttinn á að flokksbundnir (flokkseigendur) eru beönir að gefa til kynna með einhverjum hætti hverjir það eru sem þeir telji þóknanlega í efstu sæti á framboóslistum flokkanna. Segja má að þetta geti verið eðlileg aðferð við val frambjóó- enda en frá mínum bæjardyrum séð þá held ég að með þessu verði dálítil hætta á að unga fólkið geti orðió undir í samkeppninni. Flokkseigendur hafa nefnilega til- hneigingu til íhaldssemi í þessum efnum og það er helst ef sitjandi bæjarfulltrúar gerast þreyttir á að- gerðarleysi sínu í bæjarstjóminni að þeir ákveóa aó hætta og víkja fyrir öðrum. Þessar svokölluðu skoðana- kannanir flokkseigendafélaganna eða forval hafa þann ókost að yngri liðsmenn eiga erfitt upp- dráttar og hætta er á að forpokaðir en tryggir flokksfélagar eigi frekar upp á pallborðið hjá flokkseigend- um en þeir sem hafa róttækari skoðanir og taka stórasannleik flokksins ekki alvarlega. Sjálfstæðisflokkurinn hefur stundum haft annan hátt á. Þar hefur flokkseigendafélagió efnt til prófkjörs og hafa menn á þeim bæ þá skoðun að slíkt fyrirkomulag sé ákaflega lýðræðislegt. Mín skoðun er sú að alveg opió próf- kjör megi teljast lýðræðislegt enda hafi þar allir rétt til þátttöku, hvort sem eru flokksmenn eða ekki. Þetta hljómar ef til vill undarlega en ég vil benda á að í slíku próf- kjöri skal þaó vera öllum ljóst að allir frambjóðendur eru flokks- bundnir sjálfstæðismenn. Hví skyldu liðsmenn annarra flokka ekki geta haft áhrif á val þeirra karla og kvenna sem setjast munu í bæjarstjórn og fjalla munu um sameiginleg málefni bæjarbúa hvar í flokki sem þeir standa? Prófkjör Sjálfstæðisflokksins Hér á Akureyri höfðu sjálfstæðis- menn prófkjör í nóvembermánuði Pétur Jósefsson. síðastliðnum. Prófkjör þetta fór fram meö þeim hætti að skipuð var einskonar prófkjörsnefnd sem auglýsti eftir fólki sem áhuga hefði á að fara í prófkjör. Einhverjir virðast hafa látið skrá sig en eitthvað vantaði því að prófkjörsnefndin kvaóst ætla aó fá fleira fólk til þátttöku. Þegar listi yfir þátttakendur síóan birtist, þá voru þar nöfn ellefu manna og kvenna og þar á meðal nafn eins bæjarfulltrúa sem áður hafði lýst því yfir að hún ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri! Hvað gerðist síðan? Nokkrum vikum eftir aó prófkjörsnefnd hafði safnað saman þessu fólki, sem vildi taka þátt í prófkjörinu, þá fór það fram. Maður skyldi nú ætla að þessar ellefu persónur, sem vildu fara á framboóslista flokksins til bæjarstjórnar, hefðu uppi einhverja kynningu á þeint sjálfum með fundahöldum eða blaóaskrifum um þær hugmyndir sem þær hefðu og vildu hrinda í framkvæmd ef þær yrðu valdar á framboóslista flokksins. Onei, ekki einn einasti frambjóðandi í prófkjörinu skrifaði stafkrók til kynningar á sjálfum sér eða hug- myndum sínum. Maóur fékk þó veður af því aó Þórarinn B. Jóns- son væri Þórsari cn Þórsarar hafa verió fúlir vegna þess hve KA hefur gengið vel að krækja í pen- inga í gegnum áhrif sín í bæjar- stjórninni til gerðar íþróttamann- virkja en sú saga er tilefni til ann- arrar greinar. Blekking! Það eina sem birtist var eins konar auglýsingabæklingur um fram- bjóðendur, sem flokkseigendafé- lagið lét gera og prentaöi þar all- góðar myndir af þátttakendum í prófkjörinu ásamt upplýsingum um aldur og fyrri störf. Eftir þessu að dæma sýndist manni að farið væri fram á aó kandídatar á fram- boóslista yrðu valdir eftir hárafari, nefstærð eða snoppufríðleik eða öðrum upplýsingum sem birtust á myndunum í téðum auglýsinga- bæklingi prófkjörsncfndar Sjálf- stæðisflokksins eða þá eftir aldri. Allt um það. Niðurstöður urðu í þessu prófkjöri. Þekktustu andlit- in urðu ofan á og allir voru sáttir að lokum, nema einn, sem hætti við að vera á framboðslistanum enda þótt hann fengi bindandi kosningu, en þaó er önnur saga. En Akureyringar voru litlu nær. Hvaða fólk hafði valist til forystu hjá Sjálfstæðisflokkum? Hvaða hugmyndir hafði það um framtíó bæjarins, atvinnusköpun, þjón- ustuhlutverk bæjarins, upplýsinga- skyldu bæjaryfirvalda gagnvart bæjarbúum? Svona mætti lengi telja. Sannleikurinn er sá að hið svokallaða prófkjör sjálfstæðis- manna var ómark, tilgangslaus leikur sem engu máli skiptir, - blekking. Marklaust brambolt Prófkjör sem þetta á ekkert skylt við Iýðræði. Þetta var aðeins sýndarmennska hugmyndalausra ílokkseigenda, marklaust bram- bolt í bæjarfélagi sem þarf á öllu sínu að halda til þess að snúa þró- uninni við, - þetta er bæjarfélag sem þarf duglegt og áhugasamt fólk með hugmyndir og atorku. Akureyringar þurfa fólk sem hefur áhuga á skapandi starfi í bæjar- stjórn og nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins. Akureyringar þurfa fólk sem getur og vill tjá sig, er ekki hrætt við aó veróa ósammála einhverjum eða jafnvel öllum, er óhrætt vió að láta í ljós óvenjulegar cða jafnvel bylt- ingarkenndar skoóanir og berjast fyrir þeim, - fólk sem segir mcin- ingu sína óhrætt jafnvel þótt ein- hverjir mosavaxnir kerfiskallar eóa einhverjir aðrir guðjónar móógist í bili. Eg held að unnt sé að fá svona fólk til starfa á opinberum vett- vangi. Til þess þarf umfram allt vilja til þess að sækja það. Það er nefnilega áreióanlega til. Pétur Jósefsson. Höfundur er sölustjóri Fasteigna- og skipasölu Noróurlands á Akureyri. Millifyrirsagnir eru blaósins. Ritstjóraskipti Eins og fram kemur í frétt hér í blaðinu í dag hefur verið gengið frá ráðningu ritstjóra að dagblaðinu Degi, þar scm fyrrverandi ritstjóri Bragi V. Berg- mann lét af störfum að eigin ósk um síðastliðin mánaóamót. Það eru tveir blaóa- Bragi menn við Dag, þcir Jóhann Ólafur Halldórsson og Óskar Þór Hall- dórsson, sem hafa verió ráónir rit- stjórar Dags frá 1. apríl sl. að telja. Þeir Jóhann Ólafur og Óskar Þór hafa starfið sem blaðamenn hjá Degi í 6-7 ár vió góðan orðstír og eru því vel undir það búnir að takast á við hið nýja starf. Ég vil bjóða hina nýráðnu rit- stjóra velkomna til starfa og áma þeim allra heilla í störf- um sínum. Við starfslok fyrrvcr- andi ritstjóra Braga V. Bergmann vil ég færa honum þakkir fyrir það samstarf scm við höfurn átt, þau tæplcga fimm ár sem ég og flestir núver- andi stjórnarmcnn höfum setið í stjórn Dagsprents hf., og óska honum heilla og hamingju í framtíóinni. Sigurður Jóhannesson, formaður stjórnar Dagsprents hf.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.