Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1994, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994'
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994
17
íþróttir
United byrjaráQPR
Enska úrvalsdeildin í knatt-
spymu hefst á laugardaginn
kemur og má segja að langþráð
stund fyrir marga sé loksins að
renna upp. Meistararnir í Man-
chester United hefja titilvöm á
heimaveUi þegar QPR kemur í
heimsókn.
Leikirílumferð
Leikir í 1. umferð verða annars
þessir: Arsenal-Manchester City,
Chelsea-Norwich, Coventry-
Wimbledon, Crystal Palace-
Liverpool, Everton-Aston Villa,
Ipswich-Nottingham Forest,
Manchester United-QPR, Shef-
íield Wednesday-Tottenham, So-
uthampton-Blackburn, West
Ham-Leeds.
Dæmt eftir HM-reglum
Breski dómarinn Philip Done
sem dæmdi á HM í sumar dæmdi
leik Manchester United og Black-
bum í úrslitaleiknum um góð-
gerðarskjöldinn í fyrradag. Done
dæmdi eftir HM-reglunum og gaf
sjö leikmönnum gul spjöld.
Kenny Dalglish, iramkvæmda-
stjóri Blackburn, er ekki ánægð-
ur með þessar reglur. „Ef þaö á
að gefa 7-8 áminningar í leik held
ég að enginn hafi gaman af. Það
er stór munur á hörðum leik og
grófum leik ogþar verða dómarar
að greinaá milli,“ sagði Dalglish.
Varð fyrir hnífstungu
Avaro Pena, leikmaður bólí-
víska landsliðsins á HM í sumar,
varð fyrir árás fyrrverandi eigin-
konu sinnar í borginni Santa
Cruz um helgina. Konan beitti
eldhúshnífi í árás sinni og hlaut
Pena nokkur meiðsli, þó ekki lífs-
hættuleg. Ekki er vitað hvenær
Pena verður knattspyrnufær á
nýjan leik.
Villfáfrið
Gísli Þór Guómundsson, D V, Englandi:
Ghanabúinn Nii Lamptey, sem
Aston ViUa keypti frá Anderlecht
í Belgíu fyrir 1,3 milljónir punda,
hefúr óskað eftir því aö vera ekki
valinn í landsliö Ghana svo hann
geti einbeltt sér að árangri í
ensku deildinni.
Fær ekki atvinnuleyf i
Bandaríska leikmanninum
Brad Friedel, sem var á leið til
Newcastle fyrir um 300 þúsund
pund, hefur verið neitað um at-
vinnuleyfi. Friedel á yfir 30 lands-
leiki að baki og hefur Kevin Keeg-
an, framkvæmdasijóri New-
castle, ákveðiö aö áfrýja dómn-
um.
Doncaster tapaði
Doncaster, lið Guömundar
Torfasonar, tapaði fyrir Wrex-
ham, 2-4, í fyrri leik liöanna í l.
umferð ensku deildarbikar-
keppninnar í knattspyrnu í gær.
Bæjarar úr leik
Þau óvæntu úrslit urðu í 1.
umferö þýsku bikarkeppninnar í
knattspyrnu um helgina að
þýsku meistararnir i Bayern
Múnchen voru slegnir út af
áhugamannaliðinu Vestenbergs-
greuth. Lokatölur urðu 1-0 og var
markiö skoraö á 43. mínútu leiks-
ins.
race oroinn etstur
Nick Price frá Zimbabwe, sem
sigraði á bandaríska PGA meist-
aramótinu í golfi um helgina,
komst í efsta sæti á heimsafreka-
hstanum sem gefinn var út í gær.
Price velti Ástralanum Greg Nor-
man úr efsta sætinu en i þriðja
sæti er Bretinn Nick Faldo.
1. deild kvenna í knattspymu:
Hagur UBK vænkast enn
- eftir 1-1 jafntefli ÍA og KR í gær
Ingibjörg Hinriksdóttir skriíar:
Fátt getur nú komið í veg fyrir að
íslandsmeistaratitillinn í 1. deild
kvenna í knattspyrnu falli Blika-
stúlkum í skaut efir að aðalkeppni-
nautarnir og íslandsmeistararnir í
KR gerðu 1-1 jafntefli við ÍA á Akra-
nesi í gærkvöldi. Breiðablik hefur 8
stiga forskot á KR þegar þremur
umferðum er ólokið og hefur að auki
mun hagstæðari markatölu.
Skagastúlkur komust í 1-0 á 27.
mínútu. Magnea Gunnlaugsdóttir
tók langt innkast á írisi Steinsdóttur
sem gaf boltann út á Laufeyju Sig-
urðardóttur Henn og hún skoraði
með fallegu vinstrifótarskoti upp í
markhomið. Mínútu síöar átti KR
skot í stöngina og rétt fyrir leikhlé
varði Steindóra Steinsdóttir ipjög vel
skalla frá Helenu Ólafsdóttur.
KR-ingar komu mjög ákveðnir til
leiks í síöari hálfleik og á 56. mínútu
jöfnuðu þeir metin. Markið skoraði
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir beint
úr aukaspyrnu rétt utan teigs og þar
svaf Skagavörnin á verðinum. KR
sótti það sem eftir lifði leiks en
Skagastelpur voru samt nær því að
skora en glæsilegt skot Berglindar
Þráinsdóttur af 35 metra færi small
í markstönginni.
Hjá ÍA voru Magnea Gunnlaugs-
dóttir og Áslaug R. Ákadóttir bestar
en hjá KR bar mest á Helenu Ólafs-
dóttur og Ásdísi Þorgilsdóttur.
Maður leiksins: Magnea Gunnlaugs-
dóttir, ÍA.
Laufey Sigurðardóttir Henn skoraði
mark Skagastúlkna.
ísland og Eistland mætast á Akureyri í kvöld:
Rennumnokkuð
blint í sjóinn
- segir Ásgeir landsliösþjálfari sem leggur mikið upp úr leiknum
íslenska landsliðið í knattspyrnu
mætir Eistum í vináttulandsleik á
Akureyri í kvöld. Leikurinn er liður
í undirbúningi íslenska hðsins fyrir
Evrópuleikinn gegn Svíum í Reykja-
vík 7. september. Ásgeir Elíasson
landsliðsþjálfari lagöi mikið kapp á
það að stilla upp sterku liði og voru
sjö atvinnumenn erlendis frá kallað-
ir í leikinn. Eistlendingar eru eins
og íslendingar að undirbúa liö sitt
fyrir riðlakeppni Evrópumótsins en
hðið er nær eingöngu 'skipað leik-
mönnum frá sama liðinu í Eistlandi,
Flora Talhnn.
íslenska liðið hélt norður til Akur-
eyrar í gærkvöldi og æfði á KA-vell-
inum í gærkvöldi.
Mikilvægur undirbúningur
fyrir Svíaleikinn
„Ég hef ekkert séð til eistneska liðs-
ins og rennum því svo að segja nokk-
uð blint í sjóinn. Engu að síður legg
ég mikið upp úr þessum leik enda
mikilvægur undirbúningur fyrir
Birkir Kristinsson mun verja mark
íslands í kvöld.
stóra leikinn gegn Svíum í septemb-
er. Við þurfum í öllu falh helst að
vinna sigur í leiknum og þar af leið-
andi verður lagt töluvert upp úr
sóknarleiknum. Við látum þó upp-
hafsmínútur ráða nokkuð um fram-
haldið í leiknum," sagði Ásgeir Elías-
son landsliðsþjálfari í samtali við DV
í gærkvöldi.
Verður Arnór
með í kvöld?
Amór Guðjohnsen kom til íslands
frá Svíþjóö fyrir helgina og hefur síð-
an verið undir handleiðslu læknis
vegna nárameiösla sem hann hlaut
í deildarleik með Örebro fyrir
skemmstu. Ásgeir sagði í samtalinu
við DV að það kæmi í ljós eftir
morgunæfingu liðsins hvort Amór
yrði með í kvöld. Arnór er á batavegi
og verður að telja möguleikana æ
meiri á því að hann leiki með í kvöld.
Tvær breytingar voru gerðar á 16-
manna hópnum í gær þegar í ljós
kom að Arnar Gunnlaugsson,
Þorvaldur Örlygsson, Stoke, leikur
á sínum gamla heimavelli.
Numberg, og Sigurður Jónsson, ÍA,
yröu ekki með vegna meiðsla. Arnar
fékk blóðeitrun í fótinn og Sigurður
Jónsson hlaut meiðsli í leiknum gegn
Þór um helgina. í þeiira stað koma
Haraldur Ingólfsson, ÍA, og Ólafur
Kristjánsson, FH.
Eftir æfinguna í gærkvöldi til-
kynnti Ásgeir byrjunarhðið og verð-
ur það þannig skipað.
Markvörður:
Birkir Kristinsson...........Fram
Aðrir leikmenn:
Arnar Grétarsson......Breiðabliki
Kristján Jónsson.......Bodö/Glimt
Guðni Bergsson................Val
Sigursteinn Gíslason......... ÍA
Hlynur Stefánsson..........Örebro
Ólafur Þórðarson...............ÍA
Þorvaldur Örlygsson.........Stoke
Eyjólfur Sverrisson......Besiktas
ArnórGuðjohnsen............Örebro
Bjarki Gunnlaugsson......Núrnberg
Sigursteinn Gíslason leikur í kvöld
sinn sjötta landsieik.
Um helgina náði KSÍ samkomu- er i úrslitakeppni heimsmeistara- mun í þeim leik eingöngu styðjast
lagi viö Sádi-Araba um að liö mótsins í Bandaríkjunum í sumar við leikmenn sem leika með ís-
þeirra léki landsleik við íslendinga ogsýnduþáaöþeirkunnaýmislegt lenskum félagsliðum. Landsliðs-
á Laugardaisvellinum í lok ágúst. fyrir sér á knattspymusviðinu. menn með erlendum félagshöum
Þessar þjóðir áttust við í Toulon í Ekki er annað vitað en aö þeir komi eru á sama tíma að leika með sin-
Frakklandi á sl. vori og fóru þá hingaðtillandsmeðnokkuðsvipað um liðum og geta af þeim sökum
Sádi-Arahar með sigur af hólmi, liðoglékíBandaríkjunumísumar. ekki komið i leikinn.
2-O.Sádi-Arabarlékusemkunnugt Ásgeir Elíasson landsliðsþjálfari
Geir til Vals?
- hefur sagt skiliö viö Alzira og fer hugsanlega meö
Valsmönnum í keppnisferö til Bandaríkjanna á sunnudaginn
Flest bendir nú til að landsliðsfyrir-
liðinn í handknattleik, Geir Sveins-
son, leiki með íslandsmeisturum Vals
á komandi keppnistímabili í hand-
boltanum. Geir var á Spáni í síðustu
viku og eftir því sem DV kemst næst
þá hefur hann sagt skilið við spænska
félagið Alzira og hyggst að öllum lík-
indum leika á íslandi í vetur. Geir
kom heim um helgina frá Spáni og
æfði með Val í gærkvöldi og fer hugs-
anlega með höinu í keppnisferð til
Bandaríkjanna.
Það þarf ekki að fara mörgum orð-
um um að ef Geir kemur að nýju til
sinna gömlu félaga verður hann lið-
inu gífurlega mikill styrkur. Allir
leikmenn liðsins sem léku í fyrra, að
undanskildum Rúnari Sigtryggssyni,
sem genginn er í raðir Víkinga, verða
með Val áfram í vetur auk ungra og
efnilegra Valsmanna sem Þorbjöm
Jensson, þjálfari Vals, hefur mótað
svo Valsliðið verður ekki árennilegt
með landsliðsfyrirliðann innaborðs.
Leika fimm leiki við
bandaríska landsliðið
Valsmenn halda til Bandaríkjanna á
sunnudaginn og verða í níu daga
keppnisferð þar sem þeir munu leika
5 leiki við bandaríska landshðið. Vals-
menn kosta farið til Bandaríkjanna
sjálfir en Bandaríkjamennirnir sjá
um að greiða fæði og húsnæði fyrir
20 manna hóp.
Að sögn Þorbjöms Jenssonar settu
forráðamenn bandaríska landsliðsins
í handknattleik sig í samband við Jak-
ob Sigurðsson, Valsmann og fyrrum
landsliðsmanna, en hann er við nám
í Chicago. „Upphaflega stóð til að fara
í vor en svo vildu þeir frekar fá okkur
á þessum tíma. Það passaði betur við
þeirra undirbúning og líka okkar.
Þessi ferð og leikir passa alveg frá-
bærlega vel fyrir okkur,“ sagði Þor-
bjöm Jensson við DV í gærkvöldi.
Eyjólfur Sverrisson veröur í fremstu viglínu hjá islenska landsliðinu gegn Eistum í kvöld og verður fróðlegt að sjá í hvernig
formi hann er eftir dvöl sína hjá Besiktas í Tyrklandi.
Eyjólfur Sverrisson byrjar vel í tyrknesku knattspymunni:
Mark í fyrsta leik
- þegar Besiktas vann góðan útisigur í 1. umferð í 42 stiga hita
Eyjólfur Sverrisson skoraði fyrsta
mark tímabilsins í Tyrklandi fyrir sitt
nýja félag, Besiktas frá Istanbul, þegar
hðið sótti Denizlispor heim í 1. umferð
og sigraöi, 1-3. Eyjólfur, sem gerði fyrir
skemmstu eins árs samning við liðið,
skoraði strax á 15. mínútu með skalla
eftir fyrirgjöf fyrir markið.
„Ég get ekki annað sagt en að mér
hafi gengið vel í leiknum. Að vísu var
óbærilegur hiti á sunnudag í Tyrklandi
en um 42 gráðu hiti var og var þetta einn
heitasti dagurinn um 20 ára skeið í land-
inu. Ég er mjög ánægður hjá hðinu og
þetta er allt annar heimur ef mið er tek-
ið af Þýskalandi. Þetta er í raun engu
líkt og það er hrein upplifun að kynnast
þessu öllu saman. Áhorfendur era eng-
um líkir og umgjörðin í kringum leikina
er meiri en maður átti að venjast hjá
Stuttgart í Þýskalandi. Segja má aö öll
þjóðin lifi með knattspyrnunni. Mér hef-
ur verið vel tekiö hjá áhangendum liðins
og er bara bjartsýnn á framhaldið,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson, í samtah viö DV í
gærkvöldi frá heimabæ sínum Sauðár-
króki.
Eyjólfur kom heim frá Tyrklandi í
gær, æfði með landsliðinu á Akureyri í
gærkvöldi og notaði síöan tækifæriö til
að skreppa heim á æskustöðvamar.
Eyjólfur sagði að Besiktas væri mjög
gott lið og stefnan væri tekin á meistara-
titilinn í ár. Baráttan um titilinn myndi
að öllum líkindum standa á milli liðanna
frá Istanbul, Besiktas, Fenerbache og
Galatasaray. Eyjólfur sagði að styrkur
Uðsins lægi í teknískum og snöggum
leikmönnum en meiri skilning vantaði
og varnarleikurinn mætti vera betri.
Öll aðstaða hjá
Besiktas frábær
„Öll aðstaða í hjá Besiktas væri í einu
orði sagt frábær, mun betri en hjá
Stuttgart sem var þó góð. Við æfum þetta
1-2 á dag og flogið er í flesta útileikina
enda landið stórt,“ sagði Eyjólfur.
Eyjólfur bætti viö að menn væm þegar
farnir aö spjalla um viðureign Tyrkja
og íslendinga í Evrópukeppninni í okt-
óber í Istanbul. Menn er minnugir leiks-
ins í Reykjavík sem tapaðist, 5-1.
fþróttir
Miðasala á HM ’95:
Ratvís og HSÍ
hafa samið
um miðasölu
lónsbikarmótið
Gunnsteinn Jónsson, GK, bar
sigur úr býtum án forgjafar á
opna Lónsbikarmótinu í golfi sem
haldiö var á ísafirði um helgina.
Gunnsteinn lék á 141 höggi. Omar
Ómarsson, GÍ, sigraöi meö forgjöf
á 131 höggi.
Siggarnirumtu
Á laugardaginn var haldið
LEK-mót á Strandarvelli sem
einnig gaf stig til landsliðs öld-
unga og voru landsliðin tilkynnt
í mótslok. Úrslit urðu þessí:
Með forgjöf:
1. Sigurður Emilsson, GK..68
2. Sverrir Einarsson, NK..69
3. Vilhjálmur Ámason, GR..69
Án forgjafar:
1. Sigurður Héðinsson, GK.75
2. Guðmundur Valdimars, GL...78
3. Óttar Ingvason, GR....79
Landsliðinvalin
Landsliðin eru skipuð eftirtöld-
um mönnum, A-lið: Guðmundur
Valdimarsson, Sigurjón Gíslason,
Þorbjöra Kjærbo, Gísli Sigurðs-
son, Sigurður Albertsson, Óttar
Ingvason. B-lið: Helgi Ðaníelsson,
Jóhann Benediktsson, Alffeð
Viktorsson, Sverrir Einarsson,
Sveinbjörn Jónsson, Gunnar Júl-
íusson.
Körf uboitaskóii Þórs
Körfuboltaskóli Þórs á Akur-
eyri veröur í íþróttahúsi Glerár-
skóla dagana 22.-26. ágúst og er
hann ætlaður stelpum og strák-
um á aldrinum 7-14 ára. Umsjón-
armaður skólans er Hrannar
Hólm, en auk hans munu þjálfar-
ar og leikmenn Þórs sjá um þjálf-
un. Skráning og upplýsingar hjá
Hrannari í síma 96-11061.
NBA-leikiiieniikonta
Körfuknattleiksdeild ÍBK
stendur fyrir körfuboltaskóla í
íþróttahúsinu í Keflavík dagana
22.-26. ágúst. Anthony Bowie,
leikmaður Orlando Magic, og Ot-
is Smith, fyrrverandi leikmaður
Orlando, munu starfa sem þjálf-
arar alla vikuna. Innritun fer
ffarn í íþróttahúsinu í síma
92-12945.
HandbottaskðliFH
Innritun á handboltaskóla FH
verður í Sjónarhóli þessa viku en
skólinn hefst mánudaginn 22. ág-
úst fil miðvikudags 31. ágúst.
Kennt verður í tveimur sölum
samtímis í íþróttahúsinu við
Kaplakrika. 6-10 ára drengir og
stúlkur verða frá kl. 10-12 en
11-14 ára drengir og stúlkur frá
13-15. Þátttökugjald er krónur
1500 og er veittur systkinaafslátt-
ur. Þekktir þjálfarar sjá um
kennsluna og meistarafiokkar
karla og kvenna koma í heim-
sókn.
Drottningamót
Hagsmunasamtök knatt-
spymukvenna mun standa fyrir
knattspyrnumóti (Drottninga-
móti) fyrir stúlkur 25 ára og eldri
á Leiknisvelli þann 26. ágúst.
Nánari upplýsingar og skráning
er hjá Svövu í síma 76353 eftir kl.
20 á kvöldin.
Jafnt i 4. deildinni
Hetmarm KarlasQn, DV, Akureyri:
HSÞ-B og Hvöt gerðu 2-2 jafn-
tefli í C-riðli 4. deildar karla á
íslandsmótinu í knattspymu í
gær. Ófeígur Fanndal gerði bæöi
mörk HSÞ en en Jón Oskar Pét-
ursson og Pétur Hafsteinsson
gerðu mörk Hvatar.
Leikið i 3. deildinni
Heil umferð verður leikin í 3.
deildinni í knattspymu í kvöld.
Leikirnir em: Dalvlk-BÍ, Hauk-
ar-Fjölnir, Reynir-Völsungur,
Höttur-Skallagrímur, Tinda-
stóll-Víðir. Leikirnir hefjast allir
klukkan 18.30.
Ferðaskrifstofan Ratvís og HSÍ
hafa gert með sér samning um að
Ratvís sjái um alla miðasölu á heims-
meistarakeppninni í handknattleik
sem verður hér á landi í maí á næsta
ári. Ratvís tryggir HSÍ minnst 150
milljónir króna á miðasölu vegna
keppninnar. Ef miðasala gefur meiri
tekjur fær HSÍ þær einnig en greiðir
Ratvís verktakalaun af öllu eftir að
150 milljóna markinu er náð.
HSÍ fær einnig hlutdeild í allri
þjónustu sem Ratvís veitir ferða-
mönnum sem koma til landsins
vegna keppninnar. Samningurinn er
hugsaður til að hámarka tekjur HSÍ
með því að stýra viðskiptum sem
mest í gegnum Ratvís. Söluáætlunin
hér innanlands mun verða byggð
upp á þremur aðferðum. Sú fyrsta
er að ganga í stuðningsmannahópinn
„Fólkið okkar“, sem tryggir fólki
miða á leiki íslands, sá möguleiki
rennur út 1. nóvember. Næsta leið
er sú að taka þátt í svokallaðri
slembiforsölu sem tryggir fólki miða
á eitthvert leikkvöld. Sú síðasta er
aö það veröur boðið upp á mismun-
andi aðgangskort.
Þegar samningur var gerður á milli
Halldórs Jóhannessonar og HM ’95
tryggði HSÍ sér 1000 miða á alla leiki
íslands. Tilgangur HSÍ er að tryggja
þeim aöilum, sem stutt hafa hvað
best við landshðið í gegnum tíðina,
miða á leiki íslands. HSÍ hefur rétt
til þess að ráðstafa þessum miðum
til 1. nóvember. Um leið og menn
gerast meðlimir í „Fólkinu okkar"
fær hver og einn svokallað toppkort
í hendur sem veitir forgang á alla
leiki íslands. Toppkortshafar þurfa
að ganga frá greiðslu og á hvaða leiki
þeir ætla fyrir 1. nóvember. Eftir
þann tíma er miðunum ráðstafað á
annan hátt.
Fram til 20. ágúst fá félögin ákveð-
ið marga miða til sölu og getur við-
komandi aðili nálgast þá þar. Eftir
20. ágúst fær HSÍ þessa miða til um-
ráða og mun svara umsóknum eftir
bestu getu. Umsóknarfrestur til að
gerast meðhmur í „Fólkinu okkar“
rennur út 1. nóvember. Ef viðkom-
andi aðih fær jákvætt svar festir
hann kaup á toppkorti sem er að-
göngumiði á alla leiki íslands fram
að HM ’95. Landsleikirnir verða að
öllum líkindum 10 talsins. Þegar
miðasala hefst á HM’95 getur fólk
komið og sýnt toppkortiö sitt pg feng-
ið keyptan miða á hvern leik íslands.
Meðlimir í „Fólkinu okkar“ þurfa að
vera búnir að nálgast miða sína á
HM ’95 fyrir 1. nóvember.
Þau réttindi sem „Fólkið okkar"
fær eru ýmis á meðan HM ’95 stendur
yfir svo sem aðgangur að setustofu
sem býður upp á veitingar, sjón-
varpsútsendingar frá öðrum leikjum
og kaup á minjagripum, auk þess
verða frátekin bílastæði upp að
ákveðnu marki. Einnig verður
landsliöið með opna æfingu fyrir
meðlimi í „Fólkinu okkar“.
Forsala á slembimiðum byggist á
því að viökomandi aðih leggur inn
kaupbeiðni á miðum, hámark 10
kaupbeiönir. Viðkomandi aðih getur
ekki valið ákveðna leiki heldur verð-
ur það hrein tilviljun á hvaða leiki
miöinn gildir. Einnig er hugsanlegt
aö kaupbeiðnin fái engan miöa.
Miöamagnið í slembimiöaforsöiu er
um 10% af heildarfjölda miða í riðla-
keppninni eða um 5000 talsins.
Þá verða í pottinum mun dýrari
miðar, t.d. á úrslitaleikinn og for-
kort. Með þessu móti getur fólk dott-
ið í lukkupottinn og fengið miða sem
eru mun dýrari og einnig torfengnir.
Forsala á slembimiöum verður frá
1,—10. september og á þeim tíma getur
fólk sent inn kaupbeiönir. Að þeim
tíma loknum veröa allar kaupbeiönir
lagðar í pott og dregið úr þeim í við-
urvist fógeta. Fólk fær síðan bréf til
sín sem segir til um hvort það hafi
fengið miða eöa ekki. Hugmyndir eru
um að draga miðana á úrslitaleikinn
og forkortin í beinni útsendingu í
sjónvarpinu.
ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ