Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1994, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 Danska fyrirsætan Whigfield skaust beint á topp breska listans meö danslaginu vinsæla, Saturday Night. Eftir að nýr millikafli með Stebba hafði verið settnr saman lá leiöin i hljóðver þar sem allur undirleikur var tekinn upp á nýtt og söngnum síðan skeytt við af hinum ýmsu tölvudiskum. Útkoman er „Swing- urinn“ útskýrir Máni Svavarsson danskóngur. Eitt íslensk lag er að finna á plötunni auk þeirra sem áður hafa verið talin upp. Lagið er með óþekktri sveit sem kallar sig Atsjú og lagið heitir I Need You. Vigfús Magnússon heitir kappinn sem semur lagið en Þorvaldur Bjarni sá um útsetn- inguna. Fyrirsætur og unglingar Erlenda deildin er í meirihluta að venju og úr henni skal fyrst telja lag dönsku fyrirsætunnar Whigífield, Saturday Night, sem skaust beint á topp breska vinsældalistans. Dans- lagafabrikkurnar 2Unlimited, 24/7, Jam & Spoon og D.J. Bobo eiga sitt lagið hver á plötunni, enda ófært að gefa út danssafnplötu án þessara sveita. Norska rapp-stúlkan Stella Getz (sem er aðeins 17 ára gömul) heldur áfram upp á stjömuhimininn með laginu Yeah Yeah og einnig má þama finna lög með hljómsveitum eins og Corona, Ice MC, 2 Brothers on the 4th Floor, BG the Prince of Rap og Jaki Graham. Þegar á heildina er litið skilar Reif í sundur sínu til kaupenda og er ágæt viðbót við hinar 6 Reif-plötumar sem þegar hafa komið út. GBG Safnplötuútgáfa á íslandi verður ekki stöðvuð, svo mikið er víst. Enda þjóna safnplötur ákveðnum tilgangi. Þær greiða leiðina fyrir nýjar íslensk- ar hljómsveitir, auk þess að gefa kaupendum færi á að eignast þau lög sem efst em á baugi hverju sinni (það er nú einu sinni bannað að taka upp úr útvarpinu). í ár hafa hljómplötu- útgefendur verið mjög ötulir i útgáfu sem þessari og íjöldamargar safn- plötur era komnar út nú þegar. Sú nýjasta í Reif-röðinni frá Spori heitir Reif í sundur og kann að vera að hún sé sú sterkasta til þessa. Fjöibreytt Á plötunni er að frnna 17 innlenda og erlenda smelli, yfir 70 mínútur af danstónlist eins það hefur verið orð- að. Danstónlistin er að mestu ættuð úr Evrópunni okkar og ber með sér hinn létta brag sem einkennir vin- sældapoppið þaðan. Við skulum að- eins líta á innlendu lögin sem prýða útgáfuna. Hljómsveitin Tweety á fyrsta lag plötunnar. Lagið heitir Ekkert mál og er frábrugðið fyrri útgáfum hljómsveitarinnar að því leyti að það er sungið á íslensku. Samkvæmt nýútgefinni fréttatil- kynningu sem sveitin sendi frá sér hefur einnig orðið fjölgun innan sveitarinnar. Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Eiður Arnarson, fyrrverandi Tod- mobile-meðlimir, era þama enn en við hafa bæst Ólafur Hólm og Máni Svavarsson, fyrrum meðlimir hljóm- sveitanna Ný dönsk og Pís of keik. Tweety hyggur á útgáfu stórrar plötu í haust og má segja að nýja lagið sé forsmekkur að því sem koma skal. Mezzoforte skipar sér að þessu sinni í danstónlistargeirann. Allir muna eftir laginu Garden party sem var „instrumental" eins og flest önnur lög sveitarinnar. Nú hefur söng Juliet Edwards verið bætt inn í og lagið endurhljóðblandað með frá- bærum árgangri. fremstu sem hana semja. Auk þess að vera nýgenginn til liðs við Tweety á Máni tvö lög á plötunni með Pís of keik, auk endurhljóðblöndunar á laginu Krókurinn með Sálinni sem heitir nú Swingurinn. Þess má geta að Pís of keik hefur nýverið gefið út smáskífu á meginlandinu og á Reif í sundur er að frnna endurhljóðblönd- un tveggja ítala á laginu Can You See Me. En hvernig fór endurhljóð- blöndun Króksins fram? Ég byrjaði á því að fá „masterinn“ með laginu lánaðan og klippti allt út nema sönginn sem ég setti síðan inn á tölvuna heima og hóf leit mína að nýjum millikafla. Hugmyndin var nefnilega að breyta alveg um stíl. í 4 lögum af 6 Máni Svavarsson hefur löngum verið nátengdur danstónlistinni á íslandi og skipað sér í flokk þeirra Stella Getz er 17 ára gömul norsk stúlka sem nýtur mikilla vinsælda, bæði í heimalandi sínu og víða um Evrópu, fyrir lag sitt, Yeah Yeah. Reif í sundur - ný safnplata frá Spori hf. Prodigy - Music for the Jilted Generation: ★ ★ ★ Platan líður þægilega í gegn - nógu góð til að virka sem bakgrunnstónlist og einnig til aö rifa upp athyglina öðru hverju. -PJ Neil Young - Sieeps with Angels: ★ ★ ★ ★ Sleeps with Angels verður ein af skaerustu perlum ársins 1994 og gott ef ekki áratugarins. -SÞS Gilby Clarke - Pawn Shop Guitars: ★ ★ ★ Pawn Shop Guitars kemur á óvart fyrir Qölbreytni. . -ÁT Daisy Chainsaw - For They Know not What to do: ★ ★ ★ Þetta er besta platan sem ég hef heyrt nýlega. -PJ Neol Einsteiger — Heitur vindur: ★ ★ ★ Leiðinlegt að uppgötva ekki fyrr en núna þann merka tónlistarmann sem stendur á bak við tónlistina. -PJ pl^tugagnrýni Prince - Come ★★★ Blessuð sé minning hans Þeir era ekki margir lista- mennimir sem upplifa það að jarðsetja sjálfa sig með viðhöfn. Þetta fær þó maöurinn sem eitt sinn kailaði sig Prince að upplifa en hann er jú snillingur út af fyrir sig og þá ekki síst í markaðsmálum. Platan Come er sem sagt svanasöngur Prince en listamaðurinn Symbol Man eða Victor eða hvað hann kýs að kalla sig framvegis tekuruppmerkiðþar sem frá var horfið. Þessu til staðfestingar stendur utan á plötunni Prince 1958-1993 rétt eins og um minn- ingarplötu um látinn listamann væri að ræöa. Prince heldur sig samviskusamlega við sitt soulfónk á þessari síðustu plötu sinni en er þó öllu meira á nautnalegu nótunum eins og nafn plötunnar gefur til kyima. Áletrun utan á plötunni þess eöiis að hún innihaldi texta og annað sem böm og unglingar ættu ekki að hlusta á nema í félagsskap full- oröinna undirstrikar enn frekar efni plötunnar. íslenskum ungmennum ætti þó aö vera óhætt því ffamsetning ' texta er iðulega það óskýr að hún skilst ekki mjög vel. Þar að auki fylgir ekkert textablað plötunni. Aðdáendum Prince, sem eiga eflaust eftir að sakna hans, er það þó huggun harmi gegn aö hann hefur greinilega haldíð hæfileikum sínum óskertum ffam í andlátið. Á Come er ekki verið að hreyta neinum afgöngum útbrunnins manns í pöpulinn heldur er hér á ferðinni verulega góð plata sem á eftir að halda nafni Prince lengi á lofti. Blessuð sé minning hans konunglegu ótuktar Prince Rogers Nelsons. Sigurður Þór Salvarsson Frank Black -Teenager of the Year ★★★ Stórkostleg framför Frank Black sýnir með nýjustu plötu sinni, Teenager of the Year, ótrúlega framfor ffá fyrstu sólóplötu sinni. Hann var þá nýbúinn að yfir- gefa Pixies og skipta um nafn og virtist eitthvað áttavilltur og andlaus því tónlistin á þeirri plötu hljómaöi eins og einhver miðlungs popphljóm- sveit væri að stæla Pixies. Það er því skemmtilega óvænt ánægja að heyra í honum núna. 22 lög prýða þessa plötu og er meirihlutinn mjög eymavænn. Flest lögin eru hröð og hressileg, kraftmikil en þó ekki hrá rokklög, sem grípa vel. Frank Black tekur sig ekkert of alvarlega en er oftast létt háðskur og hefur greinilega yfir mik- illi leikgleði að ráða um þessar mund- ir. Slöppustu lögin era þegar hann missir niður léttleikann og gerist alvarlegur. Besta lagið er Fiddle Riddle. Þar er leikgleðin allsráðandi í lagi sem hefur ailt með sér - frábæra laglinu, texta, söng og hljóðfæraleik, virkilega ferskt lag. Two Reelers og Big Red eru líka topplög og Whatever Happened to Pong?, Abstract Plain og White Noise Maker eru líka ffábær. Að auki eru svona 5-6 lög við það að komast í þennan hóp. Frank Black hefúr þroskast mikið, bæði sem lagasmiður og söngvari. Hann virðist hafa náö að skapa eigin stíl, sem er í raun engu líkur, þótt sums staðar megi greina áhrif úr ýmsum áttum, m.a. frá gömlum meisturum eins og Joy Division og The Fall. Hann er líka virkilega farinn að kunna að nota röddina sína til að ná ffam þeim áhrifum sem hann vill fá og grípur æ sjaldnar til þess ráðs að öskra sig hásan. Frank Black afsannar hér rækilega mínar fyrri kenningar um að hann sé dauður úr öllum æðum. Pétur Jónas

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.