Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1994, Blaðsíða 4
27. OKTÓBER 1994 <* 4 4 ►T r Endurútgáfur fyrir jólin: Islenskt já takk! Á síðustu árum hefur hljóm- plötuútgefendum um allan heim tekist að innleiða geislaplötuna á markaðinn í þvílíku magni að vinyl- plötueigendur hafa átt í vök að verj- ast. í fyrstu innihéldu geislaplöt- urnar einungis nýtt efni, en upp á síðkastið hafa endurútgáfur gamalla vinylplatna átt alveg jafh mikið upp á pailborðið hjá neytendum og nýja- brumið. Fyrir þessi jól koma þar af leiðandi ekki bara út nýjar geislaplötur heldur einnig gamlar vinylplötur í geisla- mynd. Lítum aðeins yfir þá titla sem væntanlegir eru fyrir þessi jól. Bubbi og Megas Ekki saman aö vísu, heldur sinn hjá hvoru útgáfuíyrirtækinu. Á sið- asta ári keypti Skífan allt safhið af Magnúsi Þór Jónssyni (Megasi). Ætlunin er að gefa það smám saman út í heild sinni, en neytendur fengu reyndar forsmekkinn fyr ir síðustu j ól þegar safhplatan „Paradísarfugliim“ kom út. í ár koma hins vegar út tvær fyrstu plötur meistarans. Fyrst skal telja plötuna „Megas“ sem kom út árið 1972. Platan inniheldur 15 lög og þar á meðal er að finna „Þóttú gleymir guði“ og „Spáðu í mig“. Önnur platan heitir „Millilending" og kom fyrst út árið 1975. Aftur fer Megas á kostum og má meðal annars finna lagið „Ragn- heiður biskupsdóttir". Spor hf. gerir það sama með Bubbann sinn. Þeir endurútgefa ^KDtugagnrýni „Trúbadúrplötuna“ „Blús fyrir Rikka“ þar sem Bubbi fer svo sannarlega á kostum á tvöfaldri breiðskífu og svo má ekki gleyma metsöluplötunni „Dögun" sem seld- ist í 19 þúsund eintökum á sínum tíma. Hljómleikar og jólalög Árið 1978 kom út hljómplatan Ellý Vilhjálms og Einar Júlíusson syngja lög Jenna Jóns í útsetningu Þóris Baldurssonar. Á þeim tíma voru flest hans laga orðin aldarfjórðungs gömul og ættu þvi fyrir löngu að vera orðin sígild. Platan verður endurútgefin fyrir þessi jól. Barnaplatan skemmtilega „Böm og dagar ‘ ‘ verður einnig endurútgefin fyrir þessi jól. Þar syngur Björgvin Halldórsson ýmis skemmtileg bama- lög og nýtur aðstoðar kórs Öldu- túnsskóla. Platan kom fyrst út árið 1977. Fyrir jólin má lika búast við einni sígildri jólaplötu þar sem Pálmi Gunnarsson, Ragnhildur Gísladóttir, Magnús Kjartansson o.fl. syngja „Ellefú jóla- lög“. Þeir sem eitthvað fylgdust með Þursaflokknum á sínum tima muna sjálfsagt eftir hljómleikaplötu félag- anna. Hún verður nú endurútgefm og fyrir þá sem ekki muna inniheldur hún lög eins og: „Búnaðarbálkur", „Sjónvarpslagið“ og „Jón var kræfur karl“. Oasis - Definitely Maybe ★ ★ ★ i. Þétt og gott Enska tónlistarpressan heldur varla vatni þessa dagana yfir Oasis. Oft hafa þeir nú verið mistækir á þeim bænum í vah sínu á eftirlæti ársins en það verður að viðurkennast að Defmitely Maybe inniheldur virki- lega góða tónlist þótt platan sé kannski ekki það tímamótaverk sem enska pressan vill vera láta. Bræð- umir Liam og Noel Gallagher em í forustuhlutverki í Oasis. Liam er söngvarinn og Noel sér um sólógítar og bakraddir. Tónlistin er eins konar samtenging milli bítlalegs gelgju- rokks og pönks en inniheldur einnig ' svolítið háðskan léttleika sem minnir á Blur. Þessi blanda er ansi skemmti- leg og heldur manni við efnið í hlustun. Ekki skemmir heldur fýrir að hljómsveitarmeðlimir kunna vel með hljóðfærin að fara. Hvergi er veikan punkt að finna í hljóðfæraleik. Hugvitssemi og leikgleði ræður ferðinni i lagasmíðum og textamir, þegar þeir heyrast, eru góðir. Helsti galli þessarar plötu er að textablað skuli vanta og fóru þvi flestir text- amir fyrir ofan garð og neðan hjá undirrituðum. Bestu lög plötunnar, og jafiiframt þau þyngstu, eru Super- sonic og Bring It on down. Hið síðar- nefnda er mjög pönkað og er auðvelt að sjá Sex Pistols fýrir sér í ham í því lagi. Digsy’s Dinner og Married with Children eru líka frábær, rólegri en hin fýrmefndu og meira léttleikandi. Önnur stórgóð lög em t.d. Shakerma- ker, Live Forever og Columbia. Ég er nú búinn að telja upp sjö af ellefú lögum plötunnar svo það má augljóst vera að hún er þétt og góð út í gegn. Pétur Jónasson Edie Brickell - Picture Perfect Morning ★ ★ ★ Kryddið sparað Edie Brickell án The Bohemians minnir á gamalkunnan rétt sem gleymst hefur að krydda almennilega. Tónlistin á Picture Perfect Moming er vel saman sett popp með soulyfir- bragði hér og þar. Á nokkrum stöðum örlar meira að segja á Kate Bush. Fyrst í stað er tónhstin aht of slétt og átakalítil en smám saman venst hún þó eins og lítt kryddaði maturinn. Frú Brickeh hefur með sér úrvals- lið hljóðfæraleikara, svo sem Neville- Jóhann Helgason endurútgefur plötuna „Change" frá árinu 1974 með sérstöku aukalagi. Eddukvæðin Japis stendur fyrir eins konar hátíðarútgáfu á Eddukvæðum Svein- bjarnar Beinteinssonar. Hátiðar- útgáfan inniheldur 2 geislaplötur, sú fyrri með Eddukvæðunum í flutningi Sveinbjarnar, seinni platan inni- heldur áður óútgefin ljóð ahs- herjargoðans sem ekki hafa heyrst áður auk þess sem myndarlegur bæklingur fylgir útgáfunni á ensku, þýsku, sænsku og íslensku. Jóhann Helgason endurútgefur siðan plötuna „Change“ frá árinu 1974 með sér- stöku aukalagi. Þetta eru helstu titlar endur- útgáfunnar fyrir jól og mimið, um leið og vinylplötusafiiið skarðast, fyllir geislaplatan í skörðin og myndar þannig heilsteypt plötusafn. GBG bræðuma Art og Cyril, Dr. John og náttúrlega bónda sinn, Paul Simon, sem gerir hvort tveggja að leika á gítar og stýra upptökum með Ron Halee, gömlum ref í bransanum. Þá syngur Barry White eða talar öhu heldur í einu áheyrilegasta lagi plöt- unnar, Good Times. Þar rísa soul- áhrifin hæst að þessu sinni. Önnur eftirminnheg lög em Tomorrow Comes (Dixie Cups sjá þar um bakraddir), Hard Times og titihagið. Ahur hljóðfæraleikur á plötunni er óaðfmnanlegur en þó tilþrifalaus. Þar sem samanburðurinn er th staðar er óhætt að fuhyrða að Edie Brickeh hentar betur að hafa með sér hljóm- sveit en hljóðverssphara - þótt þeir séu i fremstu röð. Ásgeir Tómasson DAVE STEWART nilSCS FHO.M THE GtJTTEB Dave Stewart - Greetings From the Gutter ★ ★ Stolið og stælt Eftir að hafa hlustað á þessa plötu í fyrsta sinn var ekki laust við að undirritaður þyrfti að gá betur á plötuumslagið th að fuhvissa sig um að þetta væri ný sólóplata með Dave Stewart en ekki gömul plata með David Bowie! Það mætti hæglega selja þessa plötu sem afgangsefhi frá Ziggy Stardust dögum Bowies, svo gjörsamlega hefur Dave Stewart gengið í þá gömlu smiðju. Sök sér væri að koma hreint fram og kynna þetta sem hyhingu th manns sem greinhega hefúr haft gífurleg áhrif á uppvaxtarár og mótun Stewarts, en að selja mönnum þetta sem frumsamda óháða afurð jaðrar við móðgun. Það er nefhhega ekki nóg með að Stewart stæli söngsth Bowies út og suður heldur eru lögin meira og minna skreytt lánuðum stefjum úr gamalkunnum Bowielögum og útsetningar laganna og hehd- arhljómur plötunnar eru enn fremur í sama eftirlíkingastilnum. Mætti ég þá biðja um Eurythmics aftur. Sigurður Þór Salvarsson Bubbi Morthens - Þrír heimar ★ ★ ★ ★ Samtíðar stökk Bubbi Morthens hefúr í gegnum tíðina þótt framsækinn listamaður. Hann er óhræddur við að reyna nýja strauma og stefhur eins og hann hefur sýnt á síðustu árum. Fyrir tveimur árum var það ,,Kúbu“-platan svokahaða, í fyrra var það óður mjúka mannsins th konunnar sinnar og í ár kynnir hann okkur fyrir hinum víðfeðma heimi svokahaðrar „beat“-tónlistar. Það er ekki hægt að kalla þetta bara rapp, hip hop, reggae, sál, rokk eða píanótónlist en samt er snert á öhum þessum stefhum innan ákveðins ramma. Platan er melódisk þegar á hehdina er litið og oft myndast skemmtheg togstreita mihi undirsphsins og þess sem sungið er. Christian Falk á skhið uppklapp á uppklapp ofan fýrir upptökustjóm og aðstoð við útsetningar. Ahur hljómur á plötunni er eins og hann gerist bestur erlendis. Bubbi tekur stökkið th fuhs og fer ekki aðeins jafhhliða annarri „beat-“músík hér á landi heldur langt fram úr henni hvað varðar hljómgæði. Eins og áður segir þeysir Bubbi um víðan vöh innan þessa ákveðna ramma. Platan inniheldur tíu lög sem öh gripa mann, hvert á sinn hátt. í laginu „Brotin loforð“ ræður ska-takturinn ríkjum, Bubbi leikur sér með sálaráhrif í laginu „Sumar konur“, „Maður án tungumáls" svipar th þess sem Cypress Hih er að gera í öhum sínum lögum, „Loksins loksins" er óður th rokksins, „reggae“ takturinn er ahsráöandi í laginu „Atvinnuleysið er komið th að fara“ og einfalt píanóundirsph og faheg melódía í „Söng kriunnar“ sem er dúett með K.K. setur snihdarlegan endapunkt við annars frábæra plötu. Sem fyrri daginn er textagerð Bubba af ýmsum toga með áhrifum vítt og breitt úr þjóðfélaginu. Ástarmálin eru th staðar, umhverfisvemd, atvinnuleysi og ádehur, auk þess sem óður th íslenskunnar á máli unga fólksins er vel th fundinn. Platan gárar annars lygnan sjó þessarar tónlistarstefiiu hér á landi og má með sanni segja að Bubbi sýni enn og aftur að hann er kóngurinn sama hvað hver segir. Að mínu mati er þetta tvímælalaust hans besta plata th þessa, plata sem sýnir að hann er óhræddur við nýjungar. Guðjón Bergmann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.