Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
Neytendur
DV ber saman verð í stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu:
14% verðmunur á Bónusi,
Fjarðarkaupum og 10-11
- en 31% verðmunur á Bónusi og Kjöti og fiski sem var dýrasta verslunin
Lesendum DV til fróðleiks könnuð-
um við verðið á nokkrum algengum
vörum í sex stórmörkuðum á höfuð-
borgarsvæðinu. Verslanirnar sem
farið var í voru Bónus, Fjarðarkaup,
Hagkaup, Garðakaup, Kjöt og fiskur
og 10-11. í innkaupakörfuna á hverj-
um stað var sett Colgate tannkrem
(75 ml), Frón mjólkurkex, smjörvi
(300 g), Coke (2 1), tómatar (1 kg),
Royal vanillubúðingur, Libby’s tóm-
atsósa (567 g), Cheerios (425 g), kota-
sæla (200 g), ýsuflök (ófrosin, 1 kg),
Emmess súkkulaðiskafís (1 1), Ora
grænar baunir {'A d), appelsínur (1
kg) og SS pylsusinnep (200 g).
Verulegur verðmunur
R,étt er að taka fram að ýsuflökin
í bæði Bónusi og 10-11 voru pökkuð
en ófrosin. Þá var einungis hægt að
kaupa tvö stykki af Colgate tann-
kremi í Bónusi en ekki eitt eins og í
hinum stórmörkuðunum fimm.
Eins og kemur fram á meðfylgjandi
kortum hér á síðunni er verulegur
verömunur á milli verslana þegar
innkaupakörfurnar eru bornar sam-
an. Verðmunur á einstökum vörum
getur líka í sumum tilfellum verið
mjög mikill eins og sjá má.
í könnuninni, sem var gerð fyrr í
vikunni, var ekkert mat lagt á gæði.
31%
verðmunur
2.056
1.995
1.743
ÍMllKHIpafeíJj'/íJJl?
Q.
3
(0
JSC
k-
RS
«o
h.
(0
o.
3
(0
JX
(0
«o
(C
o
könnuninni kom fram verulegur verðmunur á milli stórmarkaða.
DV-mynd Brynjar Gauti
=lí~ÍJ^M
Mælingar RALA á nautahakki:
Notum ekki lamba-
kjöt í nautahakkið
-segirframkvæmdastjóri S.Ö. kjötvara
„Ég er gáttaður yfir þessu vegna
þess aö þetta er ekld rétt. Þetta getur
ekki gerst vegna þess að það er ekki
notað lambakjöt í nautahakkið hjá
okkur,“ segir Geir Ericsson, fram-
kvæmdastjóri hjá S.Ö. kjötvörum.
Við mælingar Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins á nautahakki úr
nokkrum stórmörkuðum greindist
lambakjöt í nautahakkinu hjá Bón-
usi en það eru fyrmefndar S.Ö. kjöt-
vörur sem sjá þeim fyrir þeirri vöru.
„Það getur verið að það hafi verið
skortur á hreinlæti við það að þrífa
hakkavélina en nautið er hakkað á
eftir lambinu. Ég talaði við Guðjón
Þorkelsson hjá RALA og hann segir
mér það að þetta hafi mælst líklega
í 1-2% þannig að við erum að tala
um verulega lítið magn,“ segir Geir Gáttaður á niðurstöðunni, segir Geir
en hann er mjög gáttaður á þessari Ericsson, framkvæmdastjóri hjá
niðurstöðu. S.Ö. kjötvörum. DV-mynd ÞÖK
Dæmi um verðmun
Hæsta
Lægsta
Hæsta
Lægsta
Skefís
329
195
Hæsta
Lægsta
Grænar baunir
tn
toz
Hæsta
Lægsta
Hæsta
Lægsta
Hraðbank-
ar áýmsum
stöðum
í kjölfar umfjöllunar DV um
hraðbanka í Reykjavík, sem opn-
ir em allan sólarhringinn, var
haft samband við blaðið frá
Sparisjóði vélstjóra í Síðumúla 1
og bent á að þar væri hraðbanki
til staðar og er því hér með kom-
ið á framfæri.
í sömu umfjöllun kom fram að
íslandsbanki er með flesta hrað-
banka í Reykjavík, eða fimm tals-
ins. Bankinn er einnig með hrað-
banki á Eiðistorgi á Seltjarnar-
nesi, Hamraborg 14a í Kópavogi,
Hörgártúni 2 í Garðabæ, Reykja-
víkurvegi 60 í Hafnarfirði,
Kirkjubraui 40 á Akranesi,
Skipagötu 14 á Akureyri, Austur-
vegi 38 á Selfossi og Kirkjuvegi
23 í Vestmannaeyjum.
Landsbankinn er með hrað-
banka að Strandgötu 1 á Akur-
eyri og Búnaðarbankinn á Garða-
torgi 5 í Garðabæ. Þá er hrað-
banki í Sparisjóðnum í Keflavík.
Hráegg
snúast illa
í handbók heimilisins, 500
hollráð, er sagt frá því hvernig
komast megi að því hvort egg sé
hrátt eða soðið.
Þar segir að ef vafi leiki á hvort
eggin eru hrá eða soðin, leggjum
við þau á borðið og snarsnúum
þeim í hring. Hráu eggin snúast
illa en soðnu eggin snúast óð-
fluga.
Verð á GSM
símum og
farsímum
í tilefhi af verðkönnun neyt-
endasíðunnar á GSM símum og
farsímum má geta um verð á
nokkrum stöðum til viðbótar. í
Bónusi Radíó fást þessir GSM-
farsímar: Hagenuk 2000 á 40.900
kr„ AT&T 3240 á 59.900 kr„ Bosch
SC á 63.900 kr„ Bosch SL á 76.900
kr„ Pioneer PCC-D700 á 59.900
kr„ Pioneer PCC-D710 á 70.900
kr„ AT&T 3242 á 74.900 kr„ Siem-
ens 3242 á 59.900 kr. og Panasonic
á 49.900 kr. í Radíóbúðinni fást
þessir GSM-símar: Ericsson
6H337 á 93.953 kr„ AT&T 3242 á
74.900 kr. og Hagenuk MT 2000 á
44.979 kr. Þá má geta um tvo
GSM-síma sem Heimilistæki
selja: Philips PR810 á 59.900 kr.
og Philips PR747 á 89.900 kr. Með
Philips PR 810 fylgir kveikjara-
snúra og sleðafesting.
Verðið miðast alls staðar við
staðgreiðslu.