Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 Stuttar fréttir Útlönd Færeyska Lögþingið fjallaði um sambúðarvandann við Dani: Sambandsslitin ekki til umræðu Blaðamaðurmyrtur Alsírskur blaöamaður var myrtur við gröf móður sinnar í gær og liggja bókstafstrúarmenn undir grun. Walesa ieitar markaða Lech Walesa Póllandsforseti heldur í sex daga sögulega ferð til Suður- Ameríku á morgun til að efla viöskipta- tengsl Póllands viö Chile og Brasilíu. Úrganguráferð Grænfriðungar segja að Frakk- ar ætli aö senda kjamorkuúr- gang til Japans á þriðjudag. Nauðgun refsiverð Þýska þingiö hóf í gær umræö- ur um frumvarp sem gerir nauðgun innan hjónabandsins að refsiveröu athæfi. Veiðileyf i á Samtök í Texas veita 5000 doli- ara verðlaun hveijum þeim sem skýtur innbrotsþjóf til bana. VHIfákosnlngar Belgíski forsætisráöherrann sagði í gær að hann vildi fá kosn- ingar á þesu ári til að endurnýja umboð stjómarinnar. Höfnuðutilboðinu Þýskir málmiðnaöarmenn höfnuöu siðasta tilboði atvinnu- rekenda um launahækkun og sögöu verkfall óumflýjanlegt. Vopnahléframlengt Rússar og Tsjetsjenar ákváöu í gær að framlengja vopnahléið til sunnudags en mistókst að semja um skipti á látnum og fóngum. Svartsýni SP Fulltrúar SÞ em svartsýnir vegna bardaganna í Bihac-héraði í Bosníu og telja þá geta breiðst út. Major í meiri vanda John Major, forsætisráð- herra Bret- lands, á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir þar sem frambjóð- andi íhalds- flokksins tapaöi illilega í auka- kosningum í Wales og flokkurinn kemur illa út í skoðanakönnun Guardian. NATOíviðræðum Willy Claes NATO-stjóri ætlar að ræða við ríki Norður-Afriku um ógn við stöðugleika i löndun- um við Miðjaröarhaf. Reuter, Ritzau KauphaHir erlendis: Sögulegt met íWallStreet Undir lok vikunnar tóku hluta- bréfaviðskipti í Wall Street í New York mikinn kipp. Dow Jones vísital- an náði sögulegu hámarki sinu á miðvikudag og fór enn hærra á fimmtudag, eða í 3987 stig. Markaðs- sérfræðingar áttu von á að Dow Jo- nes myndi rjúfa 4000 stiga múrinn en veikur dollar og efnahagsástandið í Mexíkó komu í veg fyrir það. í kauphöUum, eins og í London og Tokyo, hefur hlutabréfaverð hins vegar lækkaö. Litlar breytingar hafa verið á olíu- markaðnum. Ástæðan er einkum tal- in árleg samkoma helstu olíuspek- inga heims sem fram fór í London í vikunni. Þar var glaumur og gleði og ýmislegt fleira en oUuviðskipti sem höfðu forgang! Færeyska Lögþingið frestaði í gær umfiöllun um tillögu Verkamanna- fylkingarinnar um að Færeyjar segi sig úr ríkjasambandinu við Dan- mörku vegna bankamálsins svokall- aða. Ekki var ljóst undir kvöld í gær hvort Lögþingið mundi ræða bréf Pouls Nyrups Rasmussens, forsætis- ráðherra Danmerkur, þar sem hann býður Færeyingum að nefnd óvil- hallra sérfræðinga rannsaki banka- málið. Lögþingið hefur hins vegar til þessa krafist dómsrannsóknar þar sem málsaðUar verði skyldaðir til að bera vitni. Færeyingar saka stærsta banka Danmerkur, Den Danske Bank, um aö hafa með blekkingum losað sig við meirihlutaeign sína í dótturfyrirtækinu Færeyjabanka, sem var sameinaður Sjóvinnubank- anum, og þar með komist hjá að greiða tíu milljarða íslenskra króna tap á rekstri hans. Færeyskir skatt- greiðendur sitja hins vegar uppi með skuldina. Færeyingar halda því fram að Poul Schluter, fyrrverandi forsætisráð- herra Danmerkur, og Poul Nyrup hafi lofað að Den Danske Bank mundi leggja fram fiármagn til þess að bankasamruninn mundi ekki kosta Færeyinga neitt. Bæði forráðamenn Den Danske Bank og danskir stjómmálamenn hafa vísað því á bug að viUt hafi ver- ið um fyrir Færeyingum við banka- samrunann. Ritzau Fabióla Belgíudrottning tekur viö blómum þegar hún yfirgefur Laeken-kirkjuna i Brussel þar sem látinna meölima belgísku konungsfjölskyldunnar var minnst í gær. Simamynd Reuter Réttarhöld í New York vekja mikla athygli: Eins og í leikhúsi geðveikinnar ar hafi verið að því þegar Ferguson gekk um lestarvagninn og skaut á farþegana, neitar hann allri aðild að máUnu. Hann sagði í fyrstu að hvítur maður hefði stoUð byssunni sinni og skotiö farþegana. SíðastUðinn þriðju- dag skipti hann hins vegar um skoð- un og sagði að morðinginn hefði ver- ið blökkumaður, eins og hann, sem væri eins í úthti og héti sama nafni. Geölæknar hafa úrskurðað Cohn Ferguson sakhæfan. „Hér höfum við dæmi um hvað gerist þegar geðsjúklingarnir taka við stjóminni á geðveikrahælinu. Þetta kemur til meö að verða sex mánaða löng sýning í leikhúsi geð- veikinnar," segir bandaríski lög- fræðingurinn Ronald Kuby um rétt- arhöld yfir Colin nokkrum Ferguson sem ákærður er fyrir að hafa myrt sex manns og sært nítján í troðfullri farþegalest á Long Island í New York í desember 1993. Réttarhöldin yfir Ferguson hafa vakið mikla athygli vestanhafs, m.a. fyrir þær sakir að hann rak lögfræð- inga sína, þar á meðal Kuby, og ann- ast eigin málsvöm nú. Ferguson sagði fyrir rétti fyrr í vik- unni að hann væri fórnarlamb sam- særis sem tengdist dauða fiölda- morðingjans og mannætunnar Jef- freys Dahmers en Dahmer var myrt- ur í fangelsi í nóvember. Þótt að minnsta kosti 40 sjónarvott- Kauphallir og vöruverð erlendis | ■. æ , 17,53 D J F DV Vegiðaðnei- drottningunni úr öllumáttum Anne Enger Lahnstein, leið- togi norska Miðflokksins og drottning nei-manna í slagnum um ESB-aðildina, er nú í vondum málum og beinast spjót kvenna úr öllum flokkum aö henni. Ástæðan er tíllaga sem hún stendur fyrir og miðar að þvi að lögfesta „réttinn tíl lífs frá getn- aði tíl dauða“. Konur lita á tiUögu þessa sem tilraun til aö þrengja réttínn til írjálsra fóstureyöinga. Leitaðaðóeirða- seggjunumum alltEngland Mikil leit stendur nú yfir að óeiröaseggjunum sem eyðilögöu knattspyrnulandsleik íriands og Englands í Dublin á miðviku- dagskvöldið. Enska knattspyrnu- sambandið auglýsti sérstakt símanúmer þar sem fólk gætí hringt inn ábendingar og við lá að símakerfið brynni yfir, svo sterk hafa viðbrögöin verið. Þegar hefur tekist aö bera kennsl á allmarga úr hópnum en ljóst er aö þar voru ekki knatt- spyrnuáhugamenn á ferö heldur öfgamenn úr röðum nýnasista sem fóru tU ÐubUh með það aö markmiði að valda sem mestu fióni, og þeitn tókst þaö. Tveir sem handteknir voru á staönum, rúmlega tvítugir piltar, voru dæmdir tíl tveggja ára fang- elsisvistar á írlandi í gær og síðan sleppt gegn tryggingu. Jack Charlton, hinn enski þjálf- ari írska landsliðsins, sendi í gær ákall tU landa sinna um að setja leikinn á aö nýju, helst í vor. Við- brögð Englendinga viö beiöni Charltons voru hins vegar dræm. Franskirhægri- menn erukomn- iríhársaman Keppinautar meðal franskra íhaldsmanna um forsetaembætt- iö eru komnir í hár saman og í gær sökuðu þeir hver annan um skemmdarstarfsemi og vanhæír. Á sama tíma sýndu skoöana- kannanir minnkandi stuöning við framboð Edouards Balladurs forsætisráðherra. Giscard d’Estaing, fyrrum for- setí, veittíst að Balladur og stuðn- ingsmenn þess síðamefnda sök- uöu keppinautana um aö kljúfa raðir hægrikjósenda meö fram- boðum sínum. Vinnyharðhaus bíturínefsvo Mæðirundan Knattspyrnu- maðurinn Vinny Jones baðst i gær af- sökunar á því að hafa bitið blaðamanninn Ted Oliver frá Daily Mirror í I nefið á hóteli i Dublin á miðviku- dagskvöldið. Vinny segist ekki hafa meint neitt illt, þetta hafi veriö fárán- legur hrekkur sem gekk of iangt og sér líði afar illa út af þvi. Oliver kærði Vínny tíl lögregl- unnar og enska knattspymusam- bandíð er meö málið í athugun. Þar er Vinny á þriggja ára skil- orði eftir að hafa gefið út mynd- band þar sem hann lýstí ýmsum fantabrögðum sem beitt væri í knattspyrnunni. ntb, Rcuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.