Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1995, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 1995 5 Seyðisfjörður: Fjórða snjó- flóðiðáverk- smiðjuna Jóhann Jóhannsson, DV, Seyöisfirði: Ástandið á snjóílóðasvæðinu hér er nánast óbreytt. Nokkur flóð hafa fallið úr Bjólfmum siðan á sunnudag þegar flóðiö skall á verksmiðju Vestdalsnjjöls. Fjarð- arsvæðinu út frá kirkjunni var lokað og nokkur hús rýmd. Þetta mun verða viðvarandi áfram enda hættan síst minni nú. Svæðið sem hér um ræðir er að mestum hluta það sama og flóðið skelftlega féll á 1885. Það grandaöi hálfum þriðja tug manna og lagði fjölda húsa í rúst, Þíðviðrið nú eykur fremur hættuna og er þvi fylgst nákvæmlega með ástandi mála með mælingum. Flóðið sem féll á verksmiöjuna 19. mars mun vera þaö flórða sem á byggingunni dynur þau 27 ár sem hún hefur starfað. Oft hefur munaö litlu að slys yrðu en ljóst er að einhver hulinn verndar- kraftur hefur hingað til haft hönd í bagga. Hafnarflörður: Opinber rannsókn Magnús Jón Ámason, bæjar- stjóri í Hafnarfirði, og Magnús Gunnarsson, förmaður bæjar- ráðs, hafa falið Jóni Steinari Gunnlaugssyni lögmanni að láta fara ffam opinbera rannsókn á því hvort um refsivert athæfi hafi verið aö ræöa í fjármálaleg- um viðskiptum HafnarQarðar- bæjar við Hagvirki-Klett hf. á ár- unum 1992 til 1994. „í uttekt löggiltra endurskoð- enda í janúar koma fram' alvar- legar ábendingar og líkur leiddar að hugsanlegum lögbrotum. Ráð- herra sveitarstjórnarmála segist ekki hafa lögsögu í málinu en gefur í skyn hvert skuli fara með máhð. Okkur finnst nauðsynlegt að fá botn i hvort um réttmætar ásakanir er að ræða eða ekki og sjáum ekki arrnan kost vænni en að fara þessa leið,“ segir Magnús Jón Árnason. StarfsemiGlits hafináólafsfirði Gylfi KristjÉmsson, DV, Akureyii: Starfsemi í keramikverksmiðj- umú GUt, sem Ólafsfjarðarbær keypti á dögunum frá Reykjavík, er hafin fyrir skömmu. Að sögn Hálfdáns Kristjánssonar bæjar- stjóra hafa 10 manns þegar hafið störf við framleiðsluna. Af hálfu bæjarstjórnarinnar hefur verið unnið talsvert að markaðsmálum erlendis. Of snemmt er að segja til um árang- ur en Hálfdán sagði að markaös- horfur bæði í Bretlandi og á Norðurlöndum lofuðu góðu. Hveradalabrekka: Maðurinnúr lífshættu Maðurinn sem lenti í bílslysí i Hveradalabrekku 12. mars síð- astliðinn og missti konu sína og son í slysinu er úr lifshættu og á bataveí. Að sögn lækna á gjörgæsludeild Borgarspítala hefur hann verið vakinn, en honum var haldið sof- andi eftir slysið til aö auka líkur hans á bata. Maöurinn hlaut mikla höfuðáverka og kviðar- holsáverka. Ekki er hægt aö segja til um hvort hann nái fullum bata. -pp Fréttir Sauðárkróksbær: Skulda- lækkun í staðfram- kvæmda Lögfræðilegt álit lögmanns Júlíusar Valssonar: Ólðglegtað reka Júlíus „Ég sagði ráðherra að niðurstaða míns lögmanns væri sú að lagaleg heimild fyrir brottvikningu úr starfi væri ekki fyrir hendi og ég teldi ekki að forsendur fyrir ráðningarsamn- ingi mínum væru að neinu leyti breyttar," segir Júlíus Valsson, tryggingayfirlæknir Tryggingastofn- unar ríkisins. Ráðherra hafði veitt honum frest þar til í dag til að svara áliti ríkislögmanns um hæfi hans til að gegna stöðu tryggingayfirlæknis. Andri Árnason, lögmaður Júlíus- ar, telur óheimilt að víkja Júlíusi úr starfi fyrir skattalagabrot hans árin 1990 og 1991. Andri ályktar sem svo að fyrst saksóknari krafðist þess ekki aö Júlíus yrði sviptur heimild til að gegna starfi tryggingayfirlæknis, þegar hann var ákærður fyrir skatta- lagabrot sín, bresti heimild til þess í lögum að beita shkum viðurlögum nú. Segir hann ennfremur aö „brott- vikningin teldist ólögmæt og gæti varðað ríkissjóð bótaábyrgð. Þá verður að líta svo á að brottvikning við þessar aðstæður... sé gróft brot á sljórnsýslureglum ísl. réttar, enda varðar málið verulega hagsmuni ein- staklingsins.“ Lögmaðurinn efast einnig um að heimildir séu til þess í lögum að víkja Júlíusi frá störfum tímabundið. Hins vegar telur hann ráðherra heimilt að áminna Júlíus. Andri telur enn fremur að álit rík- islögmanns á starfshæfi Júlíusar sé gallað á þeim forsendum að ekki var óskað eftir sjálfstæðu mati heldur samanburði á starfshæfi Júlíusar og tveggja annarra dæmdra trygginga- lækna. Heilbrigðisráðherra leitar álits á álitinu „Ég mun senda greinargerðina til ríkislögmanns og spyrja hvort það sem þar kemur fram breyti á ein- hvern hátt niðurstöðu hans. í fram- haldi af því byggist ákvörðun mín sem fyrr á niðurstöðu ríkislög- manns. Ég hef ekkert annað í að halda,“ segir Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra. -pp Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri: Tveir af stærstu fram- kvæmdaliðum fiárhagsáætlun- ar Sauðárkróksbæjar hafa ver- ið skornir verulega niður frá því fyrri umræða um fiárhagsá- ætlunina fór fram. Samkvæmt þessu verður aðeins unnið við byggingu íþróttaiiússins fyrir 6 milijónir í stað 20 milfióna eins og fyrirhugað var og 25 milfióna króna framkvæmdir víð Sæ- mundarhlið, sem er tengigata í bænum, verða alveg felldar niö- ur. „Það má segja að það sem veldur þessu sé fyrst og fremst að bærinn hefði þurft að fara í lántökur vegna þessara fram- kvæmda og skuldir bæjarsjóðs hefðu þá orðið óbreyttar. Með þessu tekst hins vegar að lækka skuldirnar um 35 milljónir króna,“ segir Snorri Björn Sig- urðsson bæjarstjóri. Helstu framkvæmdir bæjarsjóðs verða við nýjan leikskóla, 27 milljón- ir, og við gatnagerð veröur unn- ið fyrir 15,5 milljónir. Rekstrargjöld bæjarsjóðs verða 258 milljónir króna en rekstrartekjur 334 milljónir. Snorri Björn segir að afborgan- ir lána á árinu verði 81 milljón króna en ný lán að upphæð 44 milljónir verða tekin. Lagt til að Helga verði ráðin Meirihluti Reykjavíkurlista í borg- arráði hefur lagt til að Helga Jóns- dóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og aðstoðar- maður Steingríms Hermannssonar, verði ráðin í stöðu borgarritara, eins og spáð var í DV í gær. Borgarráð hefur frestað ákvörðun að ósk minni- hluta Sjálfstæðisflokksins og verður ráðningin því tekin aftur fyrir á borgarráðsfundi á þriðjudag. Tólf umsóknir bárust um stöðu borgarritara þegar umsóknarfrestur rann út nýlega en fiórar þeirra voru dregnar til baka. Umsækjendur voru: Birgir Guðmundsson, Helga Jónsdóttir, Katrín Atladóttir, Magn- ús Brynjólfsson, Sigurður Örn Sig- urðarson, Skúli Thoroddsen, Sigur- jón Högnason og Sveinn Guðmunds- son. Góðir bílar Gód kjör $ SUZUKI —------------ Skeifan 17, sími 568-5100 SUZUKIBÍLAR HF. Swift sedan, sjálfsk. '91, ek. 66 þ. Kr. 730.000. '93, ek. 27 þ. Kr. 990.000. Daihatsu Applause 4 dyra, sjálfsk., '91, ek. 20 þ. Kr. 890.000. Suzukl Swlft, 5 dyra 90, ek. 83 þ. Kr. 550.000. Subaru station GL '88, ek. 93 þ. Kr. 720.000. '89, ek. 105 þ. Kr. 850.000. M. Benz 230 E, ssk., '86, ek. 142 þ. Kr. 1.490.000. Cltrodn BX 16 TRX 5 dyra, sjálfsk., '88, ek. 96 þ. Kr. 580.000. Vitara JLX, 3 dyra, 89, ek. 87 þ. Kr. 890.000. Vitara JLX, 5 dyra '93, ek. 29 þ. Kr. 1.950.000, sóllúga, 30" dekk. ■ Volvo 240 GL, sjálfsk. '87, ek. 100 þ. Kr. 750.000. '87, ek. 150 þ. Kr. 650.000. Daihatsu Feroza, '90, ek. 77 þ. Kr. 990.000. '89, ek. 98 þ. Kr. 780.000. MMC Pajero, 3 dyra '85, ek. 160 þ. Kr. 620.000. '86, ek. 185 þ. Kr. 630.000. Ford Bronco XLT '87, ek. 80 þ. Kr. 990.000. Suzuki Samurai '91, ek. 66 þ. Kr. 795.000. '92, ek. 46 þ. Kr. 890.000. Toyota Corolla GLi 1600, ssk., '93, ek. 43 þ. Kr. 1.260.000. Flat Uno 45 '94, ek. 17 þ. Kr. 680.000. Toyota Camry GLi '88, ek. 99 þ. Kr. 790.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.