Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1995, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1995
Fréttir
Þrir af fráfarandi ráðherrum Alþýðuflokksins á leið út úr Stjórnarráðinu eftir lausnarbeiðni ríkisstjórnarinnar í
gær: Jón Baldvin, Sighvatur og Össur. DV-mynd BG
Alþýöuílokksmenn gramir sjálfstæðismönnum:
Ásakanir um póli-
tískt framhjáhald
„Við fórum eftir leikreglum. Ég
sagði að við myndum ekki taka þátt
í stjórnarmyndunarviðræðum við
aðra flokka. Viö vildum reyna til
þrautar aö ná málefnalegri samstöðu
í stjórnarmyndunarviðræðum sem
fram fóru undir verkstjóm formanns
Sjálfstæðisflokksins," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson, formaöur Al-
þýðuflokksins, eftir ríkisstjórnar-
fund í gær þar sem Davíö Oddsson
forsætisráðherra tilkynnti formlega
að hann myndi biðjast lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt.
Jón Baldvin sagði aö kratar heföu
algerlega hreinan skjöld í þessu efni.
„Hins vegar er það orðið upplýst
að forsætisráðherra átti í stjórnar-
myndunarviöræðum á sama tíma
sem hann leiddi stjórnarmyndunar-
viðræður við okkur og hann lét mig
ekki vita af því,“ sagði Jón Baldvin.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði á fréttamannafundi í gær að
Jón Baldvin hefði sagt sér eftir á að
hann hefði rætt við Halldór Ásgríms-
son.
„Hitt sagði hann mér ekki, ég
heyrði það í fjölmiðlum í gær, að
hann hefði jafnframt sagt við for-
mann Framsóknarflokksins í efnis-
legum viðræðum að ef viðræður Al-
þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks fæm
í strand þá gæti hann þegar tilkynnt
honum aö hann hefði fullt umboð til
þess að lýsa því yfir á þessu augna-
bliki að hann myndi þá mæla með
því við forseta íslands aö formaöur
Framsóknarflokksins fengi umboð
til þess að mynda fjögurra flokka
vinstristjóm. Með öðmm orðum að
ef slitnaði upp úr viðræðum okkar
þá ætti Sjálfstæðisflokkurinn ekki
að fá tækifæri til að leita eftir að
mynda tveggja flokka stjóm, annað-
hvort með Framsóknarflokki eða
Alþýðubandalagi. Þessu var mér
ekki sagt frá og heyrði ekki fyrr en
í gær,“ sagði Davíð Oddsson.
Jón Baldvin sagöi í samtali við DV
að Halldór Ásgrímsson hefði sagt sér
þaö að hann hefði vissu fyrir því að
Alþýðubandalagið hefði gert Sjálf-
stæðisflokknum stjómarmyndun-
artilboð. Hann hefði því staðið í þeim
sporum að ákveða hvort Framsókn-
arflokkurinn yrði dæmdur til stjórn-
arandstöðu eða aö taka upp viðræður
viö Sjálfstæðisflokkinn.
Davíö Oddsson sagðist hafa heyrt
að einhverjar meldingar hefðu geng-
ið á milli manna.
„En það vom engin formleg skila-
boð á milli okkar Ólafs Ragnars,"
sagði Davíð Oddsson.
Olafur Ragnar sagði í DV í gær að
þaö lægi alveg ljóst fyrir að ekkert
tilboð hefði farið frá Alþýðubanda-
laginu til Sjálfstæðisflokksins.
Davlö Oddsson forsætisráöherra:
Meirihlutinn með
Alþýðuflokknum
væri of knappur
- áttifrumkvæöiðaöviðræöumviðHalldórÁsgrínisson
Davíð Oddsson forsætisráðherra
ræddi við fréttamenn eftir að hann
hafði gengið á fund Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta íslands, og beöist
lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt
undir hádegi í gær. Þaö kom mjög
skýrt fram í málflutningi forsætis-
ráðherra að höfuðástæðan fyrir því
að hann lagði ekki í að mynda áfram
stjórn með Alþýðuflokki væri sú að
meirihlutinn á þingi væri aðeins einn
maður. Raunar hefur Davíð verið
með efasemdir um að hægt væri að
vera með svo knappan þingmeiri-
hluta alveg síðan á kosninganótt.
„Ég sagði strax að ég hefði áhyggj-
ur af þessum nauma meirihluta. Þeg-
ar ríkisstjómin lagði af stað í sína för
fyrir 4 árum hafði hún fjögurra þing-
manna meirihluta. Og ef hægt er að
líkja því við ökuferð hafði hún fjögur
varadekk. Það sprungu svo þrjú dekk
á leiðinni eins og menn vita, Jó-
hanna, Ingi Björn og Eggert Hauk-
dal, og kannski orðið lint í sumum
öðrum. Það var því ekki gæfulegt að
fara af stað í aðra fjögurra ára ferð
um sömu slóðir án þess að hafa nokk-
urt varadekk," sagöi Davíð.
Hann sagðist hafa lagt áherslu á
það í málflutningi sínum að hann
vildi fá stuðning til þess að mynda
sterka tveggja flokka stjórn. Hann
sagði að enda þótt fráfarandi ríkis-
stjórn hefði staðið sig vel þá hefði
nú legið á borðinu að hún yrði ekki
sterk á komandi kjörtimabili nema
síður væri.
„Þess vegna hefur þessi leið verið
farin að leita eftir öðrum möguleik-
um á stjórnarmyndun," sagði forsæt-
isráðherra.
Davíð sagði að viðræður Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks væru
afar stutt á veg komnar. Hann sagð-
ist aðspurður hafa átt frumkvæðið
aö fundinum með Halldóri Ásgríms-
syni. Þeir hefðu átt einn fund saman
og einnig nokkur símtöl. Hann sagö-
ist ekki hafa leitaö formlega eftir
stuðningi hjá þingflokki Sjálfstæðis-
Davíð Oddsson og Vigdis Finnboga-
dóttir þegar forsætisráðherra baðst
lausnar fyrir ríkisstjórnina i gær.
DV-mynd BG
flokksins við þessar viðræðuú Aftur
á móti sagðist hann hafa rætt við
marga þingmenn flokksins og af
þeim samtölum að dæma vildu þeir
mynda hér sterka tveggja flokka
stjórn.
Forsætisráðherra sagði að það
hefði ekki verið trúverðugt fyrir rík-
isstjórnina að Alþýðuflokkurinn
skyldi kjósa að draga fram nokkra
þætti og setja á oddinn í kosninga-
baráttunni sem hægt var að draga
upp sem ágreiningsþætti við Sjálf-
stæðisflokkinn. Hann nefndi þar
ESB-mál, GATT og landbúnaðarmál
og sjávarútvegsmálin. Þetta sagði
hann að hefði haft óheppileg áhrif á
stjórnarsamstarf með minnsta
meirihluta.
Varðandi stjórnarmyndunarviö-
ræður við Framsóknarflokkinn
sagöist Davið trúa því að flokkarnir
gætu fundið samstarfsflöt á nokkr-
um dögum eða vikum. Varðandi
skiptingu ráðuneyta, ráðherraefni og
fleira tengt stjórnarsamstarfi við
Framsóknarflokkinn sagði Davíð að
alltof mörg ef væru í því dæmi til
þess að tímabært væri að ræða það.
Það væri ekki einu sinni búið aö veita
neinum manni stjórnarmyndunar-
umboðið enn, hvað þá meira.
Hann sagðist telja Framsóknar-
flokkinn breyttan flokk með nýjan
formann og því væri hann í sínum
augum góður kostur til stjórnarsam-
starfs.
Idagmælir Dagfari
Margt er sér til gamans gert
Fólk gerir sér dagamun um páska.
Það fer ekki á milli mála. Margir
fara á skíði, aðrir leggja land undir
fót og njóta páskanna á sólar-
ströndum í útlöndum og svo eru
þeir sem dytta að garðinum heima
hjá sér, líta á sumarbústaðinn eða
heimsækja ættingja og vini. Páska-
helgin er langt samfellt frí og þá
gefst tækifæri til að sinna margvís-
legum hugðarefnum. Eini ókostur-
inn við páskana er í rauninni sá
að fólk situr uppi með það að vera
með fjölskyldunni. Menn sleppa
ekki með því að fara í vinnuna því
það er enginn sem vinnur um
páska og menn sleppa ekki viö að
gera þetta eða hitt því það er ekk-
ert að gera og enginn gerir neitt.
Menn sitja uppi með að éta og éta
svo aftur og veröa meira að segja
að leggja það á sig að fara í kirkju!
Það er sem sagt margt sér til
dundurs gert en ekki að sama skapi
það sem traustir fjölskyldufeður
geta hugsað sér skemmtilegast.
Hjónaböndin og fjölskyldulífið
byggist einmitt á því hjá afar mörg-
um að hafa sem minnst samskipti
og páskamir stofna því í hættu með
langvinnum samverustundum.
Það vakti því óneitanlega athýgli
þegar það spurðist helst í fréttum
eftir helgina að páskarnir hefðu
verið næsta tiðindalitlir. Þess var
getið í framhjáhlaupi að ný ríkis-
stjórn íhalds og framsóknar væri í
burðarliðnum en enginn kippti sér
upp við það og taldist heldur ekki
til slysafrétta.
Satt að segja hefur það veriö dag-
legt brauð um hverja páska að fólk
hafi lent í óhöppum og óförum og
björgunarsveitir hafa verið önnum
kafnar um flesta páska að bjarga
fólki úr lífsháska á fjöllum uppi.
Svo var ekki þessa nýliðnu helgi.
Það bar engan skugga á hamingju-
sama frídaga og allir virtust hafa
farið varlega og þjóðin hafi neyðst
til að sitja í faðmi fjölskyldunnar
og halda páskana út.
Á þessu var þó ein undantekning.
Þyrla landhelgisgæslunnar þurfti
að sækja einn mann upp á hálendið
þar sem hann sat fastur í bíl sínum.
Frá því var sagt að maðurinn væri
fjölskyldumaður en hefði farið einn
síns liðs í bíltúr upp að Hofsjökli.
Þar hefði hann fest bílinn og setið
hjálparlaus f sextíu tíma!
Nú er það nógu alvarlegt þegar
maður verður bjargarlaus fjarri
mannabyggðum. Én hitt er náttúr-
lega mikið snjallræði hjá mannin-
um aö láta sér detta þetta í hug.
Ekki er hægt að draga aðra ályktun
en þá að fjölskyldulífið sé komiö á
það stig að maðurinn hafi séð sig
tilknúinn að grípa til örþrifaráða
til að leggja ekki of mikið á sjálfan
sig og fjölskylduna yfir páskahátíð-
ina. Þess vegna hafi hann brugðið
á það ráð að halda einn og yfirgef-
inn á fjöll frekar en aö verja frídög-
unum heima hjá sér. Dagfari veltir
því jafnvel fyrir sér hvort vistin í
bílnum frá fóstudeginum langa og
fram á annan í páskum hafi ekki
verið skipuleg tilraun af hálfu
þessa góða fjölskyldufóður til að
forða sinni eigin fjölskyldu frá því
að umgangast hann of lengi í einu.
Þetta er í sjálfu sér umhugsunar-
efni fyrir marga þá sem lenda í þvi
að þurfa að sifja yfir börnum og
búi í heila fimm daga páskanna og
geta sig hvergi hreyft. Hér er pott-
þétt aðferð til að losna. Setjast upp
í bílinn sinn strax og færi gefst í
upphafi páskavikunnar og bruna
upp á fjöll sem allra, allra lengst í
burt. Festa svo bílinn í góðum
skafli og láta fara vel um sig í sex-
tíu, sjötíu tíma! Láta fyrirberast
einn og yfirgefinn og þurfa ekki að
hafa neinar áhyggjur af matar-
stússi, barnagráti, heimsóknum,
kirkjuferðum né öðrum leiöigjöm-
um fjölskyldumálum. Og bjarga
hinum fjölskyldumeðlimunum frá
samvistum við sig.
Landhelgisgæslan getur svo
komið þessum mönnum til hjálpar
eftir sextíu tíma eða svo og flogið
með þá til baka þegar páskunum
er lokið og hættan um of langar
samverustundir er liðin hjá. Þann-
ig hefur landhelgisgæslan öðlast
nýtt hlutverk að verja landhelgi
fjölskyldunnar og heimilisins en
sjá þó til þess að menn komist heil-
ir heim í sína landhelgi þegar þeir
eru búnir að fá nóg af sextíu tíma
einsemd á öræfum.
Með þessu móti er páskunum
bjargað og heimilisfriðnum og al-
varlegum aileiðingum langrar
páskahátíðar á mannlíf og fjöl-
skyldulíf er haldiö í skefjum.
Dagfari