Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1995, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1995
Viðskipti
Ahrif Framsóknarflokks í nýrri ríkisstjórn á efnahagslifið:
Gæti aukið verð-
bólguvæntingar
- segir Yngvi Harðarson hagfræðingur - Þórarinn V. áhyggjufullur
Islandáárs-
1 undi Evrópu-
bankans
Ársfundur Evrópubankans var
haldinn nýlega í London. Af hálfu
íslands sátu fundinn Finnur
Sveinbjörnsson og Halldór J.
Kristjánsson frá viðskiptaráðu-
neytinu, Benedikt Ásgeirsson,
sendiherra i London, og Gunnar
Viðar, starfsmaður á stjórnar-
skrifstofu Svíþjóðar, íslands og
Eistlands i bankanum.
Finnur hélt ræðu á ársfundin-
um þar sem hann lagði áherslu á
mikilvægi þess að sinna smáum
og meðalstórum fyrirtækjum, á
hlutatjárframlög og mikilvægi
þess fyrir bankann að nota stað-
arbanka til að miðla íjármagni.
Finnur minntist á staöbundna
hlutaflársjóði sem bankinn hefur
ásamt öðrum sett ó laggimar í
Rússlandi og taldi að slíka sjóöi
ætti að stofna í öðrum löndum.
202 milljóna
hagnaðurSÍF
Aöalfundur Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiöenda hf., SÍF,
verður haldinn nk. fóstudag. Þar
verður tilkynnt um 202 milljóna
króna hagnað SÍF og dótturfyrir-
tækja á síðasta ári fyrir skatta
og 164 milljóna hagnað eftir
skatta. Það er töluverður af-
komubati frá árinu 1993 þegar
hagnaðurinn nam 53,5 milljónum
eftir skatta.
Heildarútflutningur SÍF á síð-
asta ári nam tæpum 30 þúsund-
um tonna af saltflsk- og skreiðar-
afurðum. Það er 10% magnaukn-
ing frá árinu 1993. Verðmæti út-
ílutningsins jókst um 18% og nam
7,9 milljöröum króna, Mest var
flutt út til dótturfyrirtækis SÍF í
Frakklandi, Nord Morue. Þar
varö mikill uppgangur á síðasta
ári. Velta Nord Morue jókst um
27% milli áranna 1993 og 1994 og
nam 3 milljörðum. Alls starfa 135
manns hjá Nord Morue, þar af 4
Islendingar. Af öðrum dótturfyr-
irtækjum SÍF er það að segja að
rekstur Saltkaupa hf., Copesco í
Portúgal og SÍF-Union í Noregi
gekk vel. Hjá þessum fyrirtækj-
um starfa 37 manns.
Eigið fé SÍF um síðustu áramót
var 682 milljónir króna, eiginíjár-
hlutfallið 27,7% og veltufjárhlut-
Dauft var yfir viðskiptalífinu í
dymbilviku og um páskahátíðina
eins og víðar í þjóðfélaginu. Aðeins
einn togari landaði í Þýskalandi í síð-
ustu viku. Viðey RE seldi 217 tonn
fyrir tæpar 27 milljónir, meðalverðið
því um 124 krónur kílóið sem telst
ágætt. í gámasölu í Englandi seldust
272 tonn fyrir 38 milljónir.
Hlutabréfaviðskipti í dymbilviku
námu tæplega 37 milljónum króna.
„Við fyrstu sýn er það tvennt sem
ég vil nefna. í fyrsta lagi lýstu fram-
sóknarmenn því yfir fyrir kosningar
að þeir töldu lága verðbólgu að und-
anfömu bera vott um stöðnun í efna-
hagslífinu. Það bendir til þess að þeir
kunni að forgangsraða hlutunum
öðravísi en fyrri ríkisstjórn. Þetta
gæti aukið verðbólguvæntingar. í
öðru lagi bera stjórnvaldsathafnir
Framsóknarflokksins í gegnum tíð-
ina öðru fremur vott um stýringu í
gegnum sjóði af ýmsu tagi. Það gæti
haft neikvæð áhrif á fjármagnsmark-
aði. Hins vegar held ég að öllum sé
ljóst að grípa þurfi til einhverra aö-
gerða í ríkisfjármálum. Það verður
því spennandi að sjá hvaða stefnu
þessir flokkar móta og hvernig þeim
tekst til,“ sagði Yngvi Harðarson,
hagfræðingur hjá Ráðgjöf og efna-
hagsspám hf., í samtali við DV, að-
spurður um áhrif væntanlegrar rík-
isstjórnar Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks á íslenskt viðskipta- og
efnahagslíf.
Þörf á sterkri stjórn
Aðspurður um það sama sagði Þór-
arinn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins,
við DV að sterka ríkisstjórn þyrfti til
að glíma við mörg erfið fyrirliggjandi
verkefni í efnahagsmálum.
„Okkar tilfinning er sú að ríkisút-
gjöldin hafi verið á hættulega hraðri
siglingu upp á við. Hallinn á ríkis-
sjóði er gríðarlegt áhyggjuefni sem
augljóslega þarf að taka á. Endur-
.skoðun vinnulöggjafarinnar er líka
eitt af þeim grundvallarmálum sem
ný ríkisstjórn þarf að koma í gegn.
Þess vegna skiptir máli að fá sterka
ríkisstjórn sem hefur hagvöxtinn að
leiðarljósi."
Meira innávið
Þórarinn sagðist hafa það á tilfinn-
inguni að ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks yrði
Engin viðskipti fóru að sjálfsögðu
fram annan í páskum og viðskipti
gærdagsins lágu ekki fyrir þegar
þetta var ritað. Af 37 milljóna við-
skiptunum var mest höndlað með
bréf SR-mjöls og SÍF hf., eða fyrir
14,8 milljónir með bréf SR-mjöls og
10 milljónir með SÍF-bréfin. Næst
komu hlutabréf Hampiðjunnar með
þriggja milljóna króna viðskipti og
dreifðist afgangurinn á nokkuð mörg
meira inn á við en út á við.
„Þar á ég við'að ég þykist vita að
utanríkismál verði þessari ríkis-
stjórn ekki jafn hugleikin og fráfar-
andi stjórn. Það skiptir íslendinga
miklu máli að halda fullri reisn í
samskiptum við aðrar þjóðir og
sinna utanríkispólitíkinni af krafti.
Við eigum á brattann að sækja í því
efni.“
Hagvöxtur gangi fyrir
- Ertu áhyggjulaus með Davíð Odds-
son og Halldór Ásgrímsson við stjórn
efnahagsmála?
„Ég met það þannig að þessir flokk-
ar, og fleiri, fóru fram fyrir kosning-
arnar með það sem megináhersluatr-
iði að láta hagvöxtinn ganga fyrir.
Ég hef fulla trú á því að þessi ríkis-
stjórn hafi burði til þess að standa
við þau markmið. Það er augljóst að
endurskoða þarf ýmsa þætti skatta-
mála til að gera fjárfestingar í at-
vinnulífi áhugaverðari en aðra ijár-
festingarkosti. Við þurfum sókn í
atvinnulífinu og hef trú á að þessir
hlutafélög.
Hlutabréfaverö hækkaði lítillega
milli vikna ef marka má þingvísitölu
hlutabréfa. Mestu munaði um tæp-
lega fimmtungshækkun á gengi
hlutabréfa Síldarvinnslunnar. Gengi
bréfa stóru hlutafélaganna breyttist
lítið í dymbilvikunni.
Þegar viðskipti með ál hófust á
heimsmarkaði í gærmorgun hafði
staðgreiðsluverðið hækkað lítillega
flokkar hafi sameiginlega þá sýn að
keyra hér á forsendum hagvaxtar."
Horfiðá vit fortíðar
Þórarinn sagðist játa að hann hefði
vissar áhyggjur af því þegar Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknarflokk-
ur fara saman. Það yrði t.d. ekkert
nýjabrum í landbúnaðarmálum. Full
ástæða væri til að ætla að „þung elí-
ment innan flokkanna vildu frekar
hverfa á vit fortíðar heldur en fram-
tíðar.“
Þórarinn sagði að mikilvægasta
verkefni nýrrar ríkisstjórnar væri
að samþætta forsendur stöðugleika
sem náðst hefði í efnahagsmálum.
„Stjórnkerfið og áherslur í sjávarút-
vegsmálum er veigamikill þáttur í
því. Hagkerfið og vinnumarkaður á
Islandi eru svo viðkvæm fyrir sveifl-
unum að það er mikilvægt fyrir nýja
ríkisstjórn að leggja upp með fjöl-
þætta áætlun fyrstu mánuðina um
hvernig hægt er að draga úr skaðleg-
um áhrifum hagsveiflna í iðnaði eða
sjávarútvegi," sagði Þórarinn V.
frá því á skírdag eða upp i 1850 doll-
ara tonnið. Spekingar spá svipuðu
verði á næstunni, helst að stað-
greiðsluverðið hækki ef eitthvað er.
Nokkur lækkun varð á gengi doll-
ars og punds í gærmorgun en jenið
hækkar enn, sölugengið komið í tæp-
lega 0,77 krónur.
60 milljóna
styrkir Byggða-
stofnunar
Byggðastofnun skilaði 15 millj-
óna króna hagnaði af starfsemi
sinni á siðasta ári samkvæmt
nýútkominni ársskýrslu. Haföi
þá verið tekið tillít til 390 milljóna
króna framlags á afskriftaroikn-
ing. Útistandandi lán frá Byggða-
stoftaun námu 8 milljörðum í árs-
lok, þar af 5 milljarðar vegna
sjávarútvegs.
Byggðastofnun útdeildi styrkj-
um á síðasta ári fyrir tæpar 60
milljónir króna. Þar af fóru 23
milljónir í atvinnuráðgjöf, 7,8
milljónir í ferðaþjónustu og 5,4
milljónir í átaksverkefni. í önnur
verkefni fóru 19,5 milljónir. Með-
al þeirra má nefna stuðning við
framleiðslu á köldu slitlagi,
markaðssetningu á íslenska fán-
anum, þróun skeldælu, sæeyra-
eldi, tilraunavinnslu ensíma úr
þorskslógi, tölvunet um atvinnu-
mál kvenna, þróun á taðkolum
fyrir reykhús, trefjaflókaverk-
efni og kræklingarækt í Hval-
firði.
Kaupfélag
Suðurnesja
með lOmillj-
óna hagnað
Kaupfélag Suðumesja, sem
fagnar 50 ára afmæli á þessu ári,
skilaði ríflega 10 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári. Það er lak-
ari afkoma en árið 1993 þegar
hagnaður nam tæpum 15 milljón-
um króna. Afskrifaðar voru 23,4
milljónir og í öðrum félögum
voru afskrifaðir eignarhlutar upp
á 5,3 milljónir.
Heildarsala verslana og kjöt-
vinnslu nam rúmum 2 milljörð-
um króna á síðasta ári sem er
12% meiri sala en árið 1993.
Möguleikar
ástyrkjumer-
lendisfrá
Útflutningsráð hefur í sam-
vinnu við Iðnlánasjóð gefið út
skýrslu um framboð íjármagns
hjá alþjóðlegum stofnunum.
Þetta kemur fram í fréttabréfi
Útftutningsráðs. í skýrslunni er
yfirlit yfir þær alþjóðlegu stofn-
anir. sem islensk fyrirtæki eiga
möguleika á að leita til varðandi
styrki og lán til markaðsstarfa á
erlendri grund. Höfundur skýrsl-
unnar er Vilhjálmur Guðmunds-
son.
í skýrslunni er fjallaö um nor-
ræna sjóði, sjóði á vegum ESB og
EES og fleiri evrópskra aðila og
sjóði á vegum Sameinuðu þjóð-
anna.
Tölvusímaskrá
væntanleg
Á vegum bókaútgáfunnar Alda-
móta i Hafnarfiröi er væntanleg
á markaö í sumar tölvusímaskrá
fyrir Windows-umhverfið. Fyrsta
útgáfa mun innihalda nöfh og
símanúmer fyrirtækja og stofn-
ana auk ítarlegri upplýsinga en
fá má í símaskrá Pósts og sima.
Kostnaður við að taka Tölvu-
simaskrá Aldamóta er rúmar 2
þúsund krónur. Frá deginum í
dag verður hægt að sækja virka
útgáfu af Tölvusímaskrá á
heimasíðu Aldamóta á Internet-
inu. Meðal notkunarmöguleika
Tölvusímaskrárinnar má nefna
aö fyrirtæki með netkerfi geta
samnýtt allar upplýsingar í
skrámú, gular síður fylgja sem
m.a. bjóða upp á að senda póst-
lista eftir starfssviðum og not-
andi getur bætt eigin upplýsing-
um við skrána.
fallið 1,16%.
Dauft í dymbilviku