Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1995, Side 9
MIDVIKUDAGUK 19. AI'RÍL 1995
9
Utlönd
Fyrri umferð frönsku forsetakosninganna á sunnudag:
Chirac og Jospin
líklegast áfram
Frambjóöendur í frönsku forseta-
kosningunum, en fyrri umferöin fer
fram næstkomandi sunnudag, þann
23. apríl, eru farnir að herða á barátt-
unni enda ekki nema nokkrir dagar
til stefnu. Kannanir sýna að um
þriðjungur kjósenda er enn óákveð-
inn og beina frambjóðendurnir helst
spjótum sínum að þeim óákveðnu
enda gætu þeir haft afgerandi áhrif
á kjördag því mjótt er á munum milli
efstu manna. Baráttan stendur milli
þriggja manna, hægrimannanna
Jacques Chiracs og Edouards Ballad-
urs og sósíalistans Lionels Jospins.
Hægrimaðurinn Jacques Chirac,
borgarstjóri í París, er sem fyrr tal-
inn sigurstranglegastur. Hann segist
viss um aö verða annar tveggja sem
tryggja sér þátttökurétt í seinni um-
Stuttar fréttir
ferð kosninganna sem fram fer þann
7. maí. Hann markaössetur sig i
kosningabaráttunni sem manninn
sem best er til þess fallinn að sam-
eina frönsku þjóöina.
Flestar skoðanakannanir sýna aö
þaö verði Chirac og Lionel Jospin,
frambjóðandi Sósíalista, sem berjist
um forsetaembættiö í seinni hluta
kosninganna. Nokkrar spá því hins
vegar að Edouard Balladur forsætis-
ráðherra nái aftur vindi í seglin og
verði annar frambjóðendanna
tveggja. Balladur hafði forskot í bar-
áttunni þangaö til í febrúar sl. þegar
ýmis spillingarmál tengd ríkisstjórn
hans uröu til þess aö fylgi við hann
hrundi.
Nýjustu kannanir sýna Chirac með
26% fylgi, Jospin með um 20% og
Balladur með 16% fylgi. Sumir kosn-
ingasérfræöingar segja að slæm
staöa vinstri manna almennt í land-
inu um þessar mundir geri mönnum
erfitt fyrir að spá um úrslitin. Ljóst
sé að Jospin gæti fengiö mun meira
fylgi, honum hafi bara ekki tekist að
sannfæra vinstri menn í landinu um
að hann sé raunverulegur vaikostur.
Jospin berst nú um á hæi og hnakka
og lofar öllu fögru, svo sem þvi að
stytta vinnuvikuna úr 39 stundum í
37. Balladur bendir hins vegar á að
efnahagslíflö hafi tekið kipp síðan
hann varð forsætisráðherra. Hann
segist hins vegar ekki vilja gefa þjóð-
inni loforð sem allir viti að ekki verði
hægt aö standa viö.
Reuter
DoHarfeUur
Gengi doUars gagnvart jap-
anska jeninu er i sögulegu lág-
marki. Dollar hefur ekki veriö
lægri frá stríðslokum og aðgerðir
til að styrkja hann tókust ekki.
Fagnar samkomulagi
Sjávarútvegsráðherra Breta
fagnar samkomulagi Kanada og
ESB í grálúðudeilunni. Spánverj-
ar eru lítt hrifnir af stuðningi
Breta við málstað Kanadamanna.
MúturíKína
Kínversk stjórnvöld hafa hafið
rannsókn á spillingu tveggja
háttsettra embættismanna sem
þegið hafa hundruð mUljóna doll-
ara í mútur.
Norska ríkið sleppur
Norska rikið þarf ekki að greiða
norskum hvalveiðimönnum
krónu vegna þess að hvalveiöum
var hætt 1986. Þeir höfðu farið í
mál við rikið og kröfðust bóta.
Miiyarðíbætur
Ekkja manns sem lést þegar
Pan-Am flugvéUn var sprengd
yfir Lockerbie hefitr fengið jafn-
virði um eins miUjarðs íslenskra
króna í bætur.
Reuter/NTB
Besti vinur barnanna
Þau voru sæl að sjá, hjónakornin Michael Jackson og Lisa Marie Presley
i gær þegar þau tóku á móti stórum hópi barna sem komin voru á búgarð
Michaels, Neverland, til að halda þriggja daga heimsráðstefnu barna. Ráð-
stefnan er liður í Heimsfundi barna sem haldinn verður á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Það var einmitt á Neverland-búgarðinum sem Michaei var sakað-
ur um að hafa misnotað ungan dreng kynferðislega. Simamynd Reuter
15. leikvika 15. APRIL 1995
Nr. Lelkur: Röðln
1. AIK- Örgryte -X-
2. Göteborg - Halmstad --2
3. Helsingbrg - Öster - -2
4. Malmö FF - Djurgárden -X-
5. Norrköping - Trelleborg -X-
6. Frölunda - Degerfors -X-
7. Örebro - Hammarby 1 --
8. Leeds - Blackburn -X-
9. Leicester - Man. Utd. - -2
10. Norwich - Notth For. - -2
11. Coventry - Sheff. Wed 1 - -
12. Southamptn - QPR 1 - -
13. Chelsea - Aston V. 1 --
Heildarvinningsupphæð:
79 mllljónlr
13 réttir
12 réttir
11 réttir
10 réttir
4.250.180
kr.
kr.
kr.
>;•:*! kr.
70.420
4.650
15. leikvika 15. APRIL 1995
Nr. Lelkur: Röðln
1. Torino - Sampdoria -X-
2. Foggia - Parma -X-
3. Genoa - Cagliari -X-
4. Fiorentina - Napoli 1 - -
5. Cremonese - Bari -X-
6. Padova - Lazio 1 - -
7. Reggiana - Juventus - -2
8. Roma - Brescia 1 --
9. Cesena - Piacenza -X-
10. Ancona - Vicenza 1 - -
11. Cosenza - Salernitan -X-
12. Venezia - Palermo 1 --
13. Pescara - Chievo 1 --
Heildarvinningsupphæð:
8 mllljónlr
Hin áiiega kaffisala skátanna
veröur í
félagsheimili Kópavogs
frákL3-5.
HlaÖborö meö gimilegum kökum.
Styikiö ofebur í staifi!
KVENNADEILDIN URTUR
&
SKÁTAFÉLAGIÐ KÓPAR
CAFEBOHEM
Vitaslíg 3 - Sími 626290
Fyrsta sumarstripp
sumarsins!
Dansmeyjar blómstra.
Opið síðasta
vetrardag 22-3
Fimmtud. 22.00-3.00
Föstud. 22.00-3.00
Laugard. 22.00-3.00
Sunnud. 22.00-1.00
Aðgangseyrir kr. 1.000
Drykkur innifalinn.
, i „i
Nýjustu
íþróttaúrslitin!
SIMfllDRG
9 9 • 1 7 • 0 0
hagnýtar upplýsingar þegar þér hentar
Verð aðeins 39,90 mínútan.