Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995 7 Fréttir Leikfélag Húsavíkur: Tobacco Road á fjöliinum Jóhaima S. Sigþórsdóttir, DV, Laugum: Herdis Birgisdóttir, Jón Friðrik Ben- ónýsson og Ása Gisladóttir í hlut- verkum sinum í leikritinu. DV-mynd Jóhannes Sigurjónsson Leikfélag Húsavíkur sýnir um þessar mundir Tobacco Road eftir Erskine Caldwell. Leikstjóri er Mar- ía Sigurðardóttir. Tobacco Road gerist í Bandaríkjun- um á krepputímum og íjallar um fá- tæka fjölskyldu sem á ekki málungi matar þegar hér er komið sögu. Flest barnanna íjórtán eru farin að heim- an en heima blasir ekkert annað við en eymd og hungur. Það er ekki einu sinni til fyrir matarlús, hvað þá út- sæði til þess að setja niöur í akrana sem eru skrælnaðir af þurrki. En jörðin er bóndanum, Jeter Lester, allt. Frekar nappar hann mélkorni frá nágrannanum til þess að halda lífl í sér og sínum en aö flytja og freista gæfunnar annars staðar. Tilsvör í leikritinu eru mörg hver spaugileg og koma áhorfendum til aö hlægja. En á bak við þau kraumar djúp örvænting fólks sem eygir ekki lengur neina framtíð. Meö helstu hlutverk fara Jón Frið- rik Benónýsson, Herdís Birgisdóttir og Friðfmnur Hermannsson. Er óhætt að segja að þau komist vel frá þessum erfiðu hlutverkum, svo og aðrir leikarar í sýningunni sem eru ails ellefu. Undirtektir á frumsýning- unni báru glöggt vitni um ánægju leikhúsgesta. Fjórðimgssjúkrahúsið á Akureyri: Engar lokanir í sumar Gylfi KrÍEtjánsson, DV, Akureyri: Halldór Jónsson, framkvæmda- stjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, segir engin áform uppi um lokun deilda við sjúkrahúsið í sumar. „Við verðum auðvitað að laga okkur að þvi umhverfi sem við búum við í rekstrinum en þótt sam- dráttur veröi á meðan sumarleyfi standa yfir þá kemur ekki til lokun- ar deilda enda þurfum við að veita þjónustu og eigum óhægt uro vik með að loka deildum. Við erum að skoða aðrar leiðir eins og td. að lengja sumarleyfistímann og leysa málið á þann hátt," segir Halldór. Skotveiðimenn mótmæla malamámi 1 Kapelluhrauni: Átta mig ekki á því hvað mennirnir eru að fara Sölukerfið lokar kl 20:20 - segir Jón Loftsson skógræktarstjóri „Það er alveg makalaust að menn skuli geta snúið hlutum svona við. Það er ekkert birkikjarr þarna og þetta er nýlega runnið grámosa- hraun. Fyrir ofan þetta hraun, á þessum 1990 hekturum sem þar eru eftir, er farinn að myndast gróöur, svo sem birkikjarr og fleira. Þangað stendur ekki til að hleypa einum eða neinum," segir Jón Loftsson skóg- ræktarstjóri vegna ályktunar aðal- fundar Skotvíss sem lýsir furðu sinni á því að Skógrækt ríkisins skuli selja kjarri vaxið land við Kapelluhraun undir malamám. í ályktuninni segir að fyrirhugað malarnám muni skilja eftir sig stórt sár í náttúrunni og skemma þar með vinsælt útivistarsvæði þar sem auð- ugt fuglalíf er. Jón segir þessa álykt- un vera óskiljanlega. „Ég átta mig ekki á því hvað menn- irnir eru að fara. Þarna var náma sem ekki var nógu vel gengið frá. Þá er gert ráð fyrir samkvæmt skipulagi Hafnarfjarðar að þarna risi iðnaðar- byggð. Þess vegna var gengið til þess- ara samninga og gerðar strangar kröfur um frágang. Þegar þetta verð- ur búið veröa tilbúnar þarna lóðir og þá geta Hafnfirðingar tekið til við að byggja þama einhverjar ljótar verksmiðjur. „Þeir fjármunir sem fyrir þetta fást ofan á þröngar og naumt skammtaðar fjárveitingar fara til þess að búa til meiri skóg í þessu landi," segir Jón. „Hluti af þessu er gömul náma samkvæmt korti sem ég hef séð af þessu svæði. Annar hluti er gróið ályktun," segir Arnór Sigfússon hjá land og við stöndum því við okkar Skotvis. -rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.